Morgunblaðið - 31.08.1960, Side 20
OLYMPÍA
Sjá bl& 11.
197. tbl. — Miðvikudagur 31. ágúst 1960
Bjöm vegaverkstjóri við Austurveg. — Myndin er tekin þar sem vegurinn endar nú._I baksýn
eru sjálf Þrengslin. Eítir veginum kemur einn af bílunum með grjótfarm, (Ljósm. Mbl.: vig.)
Lagning Austurvegar um
Þrengslin nú hálfnuð
SMÁTT og SMÁTT lengist hinn
nýi Austurvegur, sem í daglegu
tali er kallaður Þrengslavegur.
Um ókomin ár á þessi vegur eft-
ir að verða aðalsamgönguæðin
milli Reykjavikur og landbúnað-
arhéraðanna fyrir austan Fjall.
Lagning hans og gerð öll við það
1
!
Blaða-
liðið
valið
ÍÞRÓTTAFBÉTTARITARAR
hafa nú valið blaðaliðið, sem
mæta á liði landsliðsnefndar-
innar á morgun kl. 7,30 e.h.
á Laugardaisvellinum. Morg-
unblaðið birti lið landsliðs-
nefndarinnar í gær, en blaða-
liðið verður skipað eftirtöld-
um mönnum;
Gunnlaugur Hjálmarsson, Vaí,
Hreiðar Ársælsson, KR, Jón
Stefánsson, Akureyri, Ormar
Skeggjason, Val, Kristinn
Gunnlaugsson, Akranesi,
Helgi Jónsson, KR og verður
hann fyrirliði á leikvelli,
Bergsteinn Magnússon, Val,
Jakob Jakobsson, Akureyri,
Ingvar Elísson, Akranesi,
Sveinn Jónsson, KR og Bald-
ur Scheving, Fram. — Vara-
menn: Einar Sigurðsson, Hafn
arfirði, Helgi Hannesson, Akra
nesi, Geir Kristjánsson, Fram
og Björgvin Daníelsson Val.
í gær eftir að blaðamenn
höfðu vaiið lið sitt, kom í
ljós að Árni Njálsson, Val, sem
landsliðsnefndin valdi í lið*
sitt, myndi ekki geta leikið
vegna veikinda og eru því
líkur á að Kristinn Gunnlaugs
son fari yfir i lið landsliðs-
nefndarinnar og blaðaliðið
breyttist þá þannig, að Jón
Stefánsson leiki miðframvörð
og Helgi Hannesson bakvörð.
miðið að síðar verði hann malbik
aður eða steinsteyptur, — beint
ofan á slitlagið. Verður akbraut-
in þá 10 metra breið.
í fyrradag brugðu blaðamenn
Mbl. sér austur til þess að sjá
hversu verkinu miðar áfram. —
Eftir að hafa ekið um 10 km.
leið eftir hinum breiða, skemmti-
lega vegi, gegnum sjálf Þrengsl-
in, og nokkuð til suðurs með fell-
inu Meitlum, mátti sjá bækistöð
vegagerðarmanna, og skammt
frá í fjallinu vélskóflur og vöru-
bíla með ofaníburð.
Það var kaffitími hjá vegagerð
armönnum og í einum skúranna,
hittum við Björn Jóhannsson
verkstjóra frá Keflavík, er bauð
komumönnum upp á kaffisopa í
mötuneytisskúrnum.
Það hefur ekki miðað eins vel
áfram nú í sumar og hin fyrri
sumur, t. d. eins og í fyrra, sagði
hann, — en Austurvegur —
Þrengslavegur — er nú orðinn
um 11 km. langur, þ. e. a. s. leið-
in ofan úr Svínahrauni, að veg-
arendanum. En enn er löng leið
fyrir höndum áður en við kom-
um niður í Ölfus. Líklega erum
við þó rúmlega hálfnaðir.
Hér undir Meitlum sækist
verkið seint. Ekki er hægt að
beita jarðýtum á hraunið með
nokkrum árangri, fyrir það, hve
lítið það er brunnið.
— Við verðum að flytja að úr
fellinu allt efni í veginn, undir-
stöður og ofaníburð, sagði Björn
verkstjóri. Víða verður að fylla
upp í djúpar gjótur og dældir
sem eru í vegastæðinu. Þetta hef
ur haft í för með sér að vega-
gerðin í sumar hefur ekki sótzt
nærri eins vel og þegar við vor-
um fyrir norðan Þrengslin í
hrauninu og ýturnar skiluðu
miklu verki á viku.hverri. — Við
erum búnir að leggja, í sumar,
um 2 km. kafla hér undir Meitl-
um. Fjórir stórir vörubílar hafa
verið í stanzlausum flutningi á
efni úr gryfjum, í veginn. Leiðin
er ekki lengri en það, að þeir
hafa komizt upp í 80 ferðir á
vinnudegi, sem er frá kl. 7 ár-
degis til 8 síðdegis, fimm daga
vikunnar.
Björn sagði að hann vissi ekki
hvenær Þrengslavegur kæmist
fram á brún. Það fer auðvitað
eftir hversu vel verkið sækist
og hve miklu fé hægt er að verja
til vegarins. En þegar lengra
dregur suður á bóginn, að svo-
nefndum Krossfjöllum, vonum
við að aftur verði komið í ýtu-
land, og hægt verði að beita ýt-
unum við vegagerðina.
— Hvað hefði það tekið marga
áratugi að leggja þennan veg á
dögum hestakerranna? spurðum
við Björn, að lokum. Hann svar-
aði: — Það getið þið reiknað út
á leiðinni í bæinn.
Islendingunum
líður öllum vel
Hilmar og Svavar keppa i dag
M'bl. í Róm.
RÓM, 30. ágúst: — Keppend-
ur í 100 m hlaupi, sem fram
fer á morgun (miðvikudag),
eru 64, og er Hilmar Þorbjörns
son meðal þeirra. Hann verð-
ur í 9. riðli ásamt Ozolin frá
Rússlandi, Budd frá Banda-
ríkjunum, Radford, Englandi,
Georgopoulus, Grikklandi,
Robert, Liberíu og Abdelkad-
er, Arabalýðveldinu. Þrír kom
ast áfram í milliriðil, og má
telja vonlaust að Hilmari tak-
izt það.
Raðað hefir verið í riðla í
800 m hlaupi þar sem Svavar
Markússon keppir ásamt 55
öðrum. Svavar er i 6. riðli
ásamt Moens frá Belgíu,
Lewandowski, Póllandi, Kov-
Þrír komast áfram en líkur
Svavars til þess eru litlar sem
engar.
★ TVEIR LÉTUST AF
SÓLSTING
Hitinn nær enn 40 stigum í
skugganum um hádegisbilið.
Tveir áhorfendur hafa látizt
af sólsting og margir eru veik-
ir, m. a. íþróttafólk.
★ ISLENDIN G ARNIR
íslendingunum líður öllum
vel. Pólverjarnir eru hræddir
við Vilhjálm í þrístökkinu.
Hann er sýnilega í góðri þjálf
un og vel á sig kominn. Jón
Pétursson stökk yfir 2 metra
í fyrstu tilraun á æfingu í gær.
Mikið er skrifað hér um
danska hjólreiðamanninn, sem
lézt af sólsting á föstudag og
acs, Ungverjalandi, Knuts, inntöku hans í örfandi lyf jum. ,
Svíþjóð og Dargouth, Tunis. — A.St. )
Skólholt verði biskupssetur
Mikill áhiugi á því innan prestastéttarinnar
Á AÐALFUNDI Prestafélags
Suðurlands, sem haldinn var
í Vindáshlíð um síðustu helgi,
var samþykkt samhljóða eft-
irfarandi ályktun um Skál-
holtsstað:
Aðalfundur Prestafélags Suður
lands beinir þeirri áskorun til
kirkjuþings og biskups, að vinna
að því, að fyrir næsta Alþing
lílræðismanna leitað
Amman, Jórdaníu,
Washington, 30 ágúst.
— (Reuter) —•
HANDTÖKUR hafa farið
fram í Amman í dag vegna
morðsins á Hazza Majali, for-
sætisráðherra, í gær, en ekki
er kunnugt um hverjir eða
hve margir hafa verið hand-
teknir.
Ríkisútvarpið í Amman sakaði
í dag „sendimenn frá Damaskus"
um verknaðinn og kvað líklegast
að illræðismennimir væru komn
ir til Damaskus aftur. Hinsvegar
liggja þrír sendlar, sem unnu í
byggingu utanríkisráðuneytisins,
undir grun. Einn þeirra mun
hafa verið tekinn höndum, en
hinna tveggja er ennþá leitað.
24 kist. sorg
Útför forsætisráðherrans fór
fram í dag og var Hussein kon-
ungur Jórdaníu viðstaddur. — 1
Amman hafði verið fyrirskipuð
Vísitalan óbreytt
KAUPLAGSNEFND hefur reikn-
að visitölu framfærslukostnaðar
í byrjun ágústmánaðar 1960 og
reyndist hún vera 104 stig eða
óbreytt frá vísitölunni í júlíbyrj-
un 1960. —
(Frá Hagstofu Islands).
24 klst. almenn sorg. Hersveitir
stóðu vörð við opinberar bygg-
ingar og fánar blöktu hvarvetna
í hálfa stöng.
Hussein konungi hafa borizt
samúðarkveðjur frá ríkisstjóm
Bretlands og Eisenhower Banda-
ríkjaforseta.
Ný ríkisstjóm hefur verið
mynduð í Jórdaníu og hefur
Hussein konungur skorað á hana
að standa fast gegn þeim öflum,
sem vinna að sundrungu ríkisins.
Erlendir ferða-
skrifstofumenn
á ferð
EINS og að undanförnu hefur
Flugfélag íslands, í sumar, boð-
ið hingað til lands alimörgum
framámönnum ferðamála frá ná-
grannalöndunum. Nýlega er hóp
ur norskra ferðaskrifstofumanna
farin heimleiðis eftir dvöl hér og
ferðalög um landið. Fararstjóri
norska hópsins var Vilhjálmur
Guðmundsson fulltrúi Flugfélags
íslands í Osló.
I kvöld (þriðjudag) er væntan
legur hópur ferðaskrifstofufólks
frá Þýzkalandi, sem dvelja mun
hér og ferðast um landið fram á
laugardag. Fararstjóri Þjóðverj-
anna er Skarphéðinn Árnason
fulltrúi Flugfélags íslands í Ham
borg.
Þá er í ráði að ferðaskrifstofu-
menn frá Svíþjóð komi hingað
um miðjan september.
verði lagt frumvarp um Skál-
holt, sem biskupssetur og mið-
stöð fyrir kirkjulegt starf, með
hliðsjón af þeim tillögum, sem
fram hafa komið á synodus, fund
um prestafélaga og héraðsfund-
um.
Tillaga, efnislega samhljóða
þessari, var samþykkt með yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða á
aðalfundi Prestafélags íslands í
gær. Hefur ríkt mikill áhugi um
þetta mál á þessum tveimur
prestafundum og hefur verið
lögð sérstök áherzla á, að í Skál-
holti sitji biskupsvígður maður
og biskup fái húsbóndavald á
staðnum.
Flestir með
plástra og
marbletti
BLAÐIÐ hefur nú fengið nán-
ari fregnir af slysinu, sem ís-
lenzkur áætlunarbíll, á leið
með ferðaianga á Olympiu-
leikana í Róm, varð fyrir í
Sviss.
1 einkabréfi, sem einn far-
þeganna skrifaði heim, er frá
því sagt að óhappið hafi orðið
norðan megin í St. Gotthard-
skarði. Áætlunarbíllinn, sem
er frá Ísafirði og var sendur
til Hamborgar með skipi til
móts við farþegana, rakst ut-
an í brúarvegg í skarðinu og
skemmdist mikið. Um farþeg-
ana segir svo í bréfinu:
— Sluppu allir við meiri
háttar meiðsli, en nokkrum
var ekið í sjúkrahús um nótt-
ina og þeir hafðir þar til
næsta dags. Flest fólkið er
með plástra og marbletti.
Fólkið fór svo með járn-
brautarlest til Rómaborgar,
og þurfti að skipta sjö sinn-
um um lest á leiðinni.
Að lokum er fararstjóran-
um, Guðmundi Gíslasyni, hrós
að fyrir að hafa staðið sig
mjög vel í þessum erfiðleik-