Morgunblaðið - 08.09.1960, Side 1
20 síðui
Merkilegt afrek
franskra lœkna
PARÍS, 7. sept. (Reuter). —
lYfirmenn Foch-sjúkrahúss-
ins hér upplýstu í dag, að
tekizt hefði að græða nýra úr
óskyldri manneskju í sjúkl-
ing, sem talinn var dauðvona,
Boðorð Krists
hættulegt
segir kommúnista-
blað
VÍNARBORG, 7. sept. (Reuter).
-— í eintaki af ungverska komm-
únistablaðinu „Fejer Mergyi Her
lap“, sem hingað barst í dag,
segir m. a., að í baráttunni við
guðfræðingana verði að sýna og
sanna, að það „siðgæði“, sem beri
blak af arðráni, prediki þolin-
mæði og bíði eftir frelsun fyrir
kraftaverk, sé „siðlaust og aftur-
haldsamt“.
Blaðið lét svo mælt um það
boð Krists, að menn skuli elska
náunga sinn eins og sjálfan sig,
að ef því væri fylgt, án tillits
til stéttaskiptingar. mundi það
grafa undan stéttabaráttunni og
gera verkamenn varnarlausa
gagnvart valdastéttunum!
París, 7. sept. — Lauris Nor-
stad, yfirhershöfðingi Atlants-
hafsbandalagsins í Evrópu, til-
kynnti í dag, að haldin yrði venju
leg æfing NATO-herja milli 20.
sept. og 1. okt.
London, 7. sept. — Eric Louw,
utanríkisráðherra Suður-Afríku,
sem er á leið til New York til
að sitja Allsherjarþingið, mun
hitta Macmillan á morgun. — Bú-
izt er við að þeir ræðu stöðu
S-Afríku gagnvart samveldinu,
ef landið verður gert að iýðveldi.
en er nú úr allri hættu. Mun
þetta vera fyrsta tilraun af
slíku tagi, sem heppnast —
áður hefir slíkt aðeins tek-
izt, ef um náskylda einstakl-
inga hefir verið að ræða.
— ★ —
Próf. Rene Kuss heitir sá, er
stjórnaði aðgerðinni, en hún var
framkvæmd 22. júní sl. — í
fyrstu fékk sjúklingurinn, frú
Maryse Genoix, mjög háan hita
— en brátt tók hið ágærdda nýra
að starfa nægilega til þess, að
Jífi konunnar var bjargað. Síðan
hefir hún verið að smá-hressast
— en áður en aðgerðin fór fram,
höfðu flestir læknar talið hana
algerlega dauðvona. — Þykir
afrek próf. Kuss og samstarfs
manna hans ákaflega merkilegt.
Sama dvissan í Kongú
Þingið ógilti
Lumumba og
víxlyfirlýsingar
Kasavubu um
valdasviptingu
Leopoldville, 7. sept.
— (Reuter). —
— HVER stjórnar í Kongó?,
syrja menn enn. Þingfundur
sá, er haldinn var í dag
skýrði línurnar lítið — þar
var sem sé samþykkt að
ógilda yfirlýsingar Lumumba
Mismunandi af-
staða kommúnista
SAIGON, S.-Vietnam, 7. sept.
(Reuter) — Blaðið „Cach Mang
Quoc Gia“ (Þjóðbyltingin), sem
Flugsly;
MONTEVIDEO, Úrúguay, 7.
sept .(Reuter). — Sprenging
varð í argentínskri farþega-
flugvél af gerðinni DC-6 í
dag, er hún var á leið héðan
til Buenos Aires, og hrapaði
hún logandi til jarðar
skammt frá landamærunum,
Úrúguay-megin.
Vélin var í eigu argen-
tínska flugfélagsins „Aero-
lineas Argentinas“. Með
henni voru 24 farþegar og
6 manna áhöfn — og er ótt-
azt, að allir hafi farizt.
gefið er út hér, sagði I dag, að
hin kommúniska valadklika í
Norður-Vietnam hallaðist frek-
ar að Kína en Sovétríkjunum í
deilu stórveldanna tveggja um
stefnuna gagnvart hinum kapi-
talisku ríkjum. Segir blaðið, að
stefnan hafi verið mörkuð undir
þungri „pressu“ frá Peking, og
Pekingstjórnin mundi vissulega
vaka yfir því, að ekki yrði frá
henni vikið.
— ★ —
f sama mund berast þær fregn
ir frá Indlandi, að miðstjórn ind
verltsa kommúnistafloMksins
hafi samþykkt á í>ingi sínu að
leggja áherzlu á stefnu flokks-
ins — að ná völdum í Indlandi
með „friðsamlegum hætti“. —
Ekki var í yfirlýsingunni tekin
4>ein afstaða til deilu Kína og
Sovétríkjanna, en stjórnamála-
fréttaritarar telja, að indverskir
kommúnistar styðji Moskvu
fremur.
forsætisráðherra og Kasa-
vubu forseta, er þeir ráku
hvor annan frá völdum, sem
frægt er orðið. Var þetta
samþykkt með 60 atkv. gegn
19. Samkvæmt tillögu Lum-
umba, som var viðstaddur,
samþykkti þingið síðan að
skipa nefnd til að reyna að
koma á samkomulagi með
forsætisráðherranum og for-
setanum. — Er talið, að þessi
gangur mála geti komið
Kasavubu í slæma klípu.
Samþykkir Lumumba
ríkjasamband?
Lumumba kom til þingsins
með mikinn lífvörð. Hann hélt
ræðu við misjafnar undirtektir,
þar sem hann réðst mjög á Sam-
einuðu þjóðirnar og aðgerðir liðs
þeirra í Kongó. Hann kvað það
„uppspuna heimsvaldasinna“, að
hann væri kommúnisti eða þeim
hliðhollur.
Loksins er farið að rigna.
f fyrstu höfðu menn ekkert I
á móti vætunni, en dumbung-1
urinn verður fljótt leiðigjarn. |
En þeim litlu stendur á sama.
Þær eru vel gallaðar og brosa ]
í gegnum rigninguna.
Ljósm. Mbl.: Markús.
Þá sagði hann, að ef þjóðþingið
vildi koma á ríkjasambandi í
Kbngó í stað sterkrar miðstjórn-
ar, þá mundi hann ekki setja sig
á móti slikri lausn stjórnarfars-
vandans, en það yrði að gera á
grundvelli laganna, eins og hann
tók til orða.
ýf Liðssafnaður í
Leopoldville
Á meðan á fundi þingsins st'ðð,
sterymdu liðssveitir úr Kongó-
her inn í Leopoldville, og mátti
Framh. á bls. 2.
„Óameríska nefndin"
á ferð að nýju
WASHINGTON, 7. sept. (NTB/
AFP) — Banadríska þingnefnd-
in, sem fjalla skal um „ó-amer-
íska starfsemi“, býr sig nú und.
ir að hefja gagngera rannsókn
í sambandi við leyniþjónustu-
mennina Mitchell og Martin, sem
flúðu til Sovétríkjanna — og
hafa þar gagnrýnt stefnu Banda
ríkjanna á margan hátt.
— ★ —
Margir stjórnmálaskoðendwr í
Washington óttast, að þessi rann-
sókn kunni að leiða til nýrra
andkommúniskra ofsókna í lík-
ingu við þá, sem öldungadeildar
þingmaðurinn MacCarthy stóð
fyrir á sínum tíma og enn er
í fersku minni.
Brezk verkalýðssamtök tvístíga
Samþykkja andstæðar tilldgur
varðandi stefnuna i land-
varnamálum
Douglas á eyjunni Mön,
7. sepl. — (Reuter). —
KLOFNINGUR Verkamanna
flokksins út af stefnunni í
landvarnamálum varð ekki
upprættur í dag, nema síður
væri, er ársþing brezku
verkalýðssamtakanna sam-
þykkti tvær tillögur, sem í
rauninni stangast á, að því
er varðar stefnuna gagnvart
kjarnorkuvopnum — en það
atriði hefir einmitt valdið
aðaldeilunum.
• MikiII meirihluti.
Fyrst var samþykkt tillaga í
sex liðum frá Frank Cousins
leiðtoga hins öfluga sambands
flutningaverkamanna, en hann er
einn höfuðandstæðingur hinnar
opinberu stefnu Verkamanna-
flokksiiis í landvarnarmálum. —
í tillögu hans er lögð áherzla á
eftirfarandi: 1) Að hafnað verði
hverri þeirri stefnu í landvarna-
málum, sem byggi á hótun um
notkun kjarnorkuvopna. 2) Hætt
verði algerlega framleiðslu
kjarnavopna og tilraunum með
þau. 3) Bannað verði að fljúga
með kjarnasprengjur frá brezk
um stöðvum. 4) Haldið verði á-
fram andstöðunni við, að settar
verði upp flugskeytastöðvar í
Bretlandi. 5) Sameinuðu þjóðira
Framh. a bls 2.