Morgunblaðið - 07.10.1960, Page 1
24 síður
á
J,A TOUR du Pin, Frákklandi,
e. okt. — (NTB — Reuter). —
Charles de Gaulle, Frakk-
landsforseti, beindi harðri
gagnrýni að Sameinuðu þjóð-
unum í ræðu, sem hann hélt
hér í kvöld. Jafnframt beindi
hann aðvörunum til alsírskra
uppreisnarmanna og kvað
Frakkland ekki mundu láta
einn eða neinn þvinga sig.
Frakkland stuðlaði að stofnun
Sameinuðu þjóðanna, sagði forset
inn, — en ekki til þess að sam-
tökin skyldu hrörna svo, að þau
rn-ættu kallast eitt samfellt
hneyksli, þar sem mest ber á van
stillingarræðum, yfirboðum og
valdabaráttu. Frakkland vill ekki
taka þátt í slíku. Frakkland ósk-
ar eftir samstarfi milli allra
þjóða, en það mun ekki láta
neina stofnun gleypa sig — allra
sízt að því er varðar Alsír, sagði
forsetinn. Frafckland mun ekki
hlýða predikunum meira og
minna valdasjúkra og meira og
minna einræðishneigðra aðila.
Frakkland óskar eftir friði og
bræðralagi í Alsír og mun ekki
láta neinn beita sig þvingunum.
Forsetinn drap einnig á Atlants
hafsbandalagið og kvað þau sam-
tök í samræmi við óskir Frakka
—- en þeir vildu áfram vera
Frakkar með sínar eigin skyldur
og ábyrgð. Við viljum varðveita
sál vora og athafnafrelsi vort,
sa.gði de Gaulle að lokum.
N U eru skólarnir að
byrja og veldur það mikl
um brey tingum á jútburð
arstarfsliði blaðsins. Má
búast við að þetta valdi
nokkrum erfiðleikum
við að koma blaðinu til
kaupenda, a. m. k. fyrstu
daga október, en að sjálf
sögðu verður allt gert
sem hægt er til þess að
það gangi sem greiðleg-
í ast. —
Geir Hallgrímsson kjör-
inn borgarstjóri
í Reykjavík
GEIR HALLGRlMSSON var
á bæjarstjórnarfundi í gær
kjörinn borgarstjóri til loka
yfirstandandi kjörtímabils. —
Fer hann einn með embættið,
en á þessum fundi var num-
in úr gildi samþykkt um skip-
un og skiptingu borgarstjóra-
embættisins í Reykjavík, er
gerð var í nóvember í fyrra.
Sögðu lausu starfi
Fyrir bæjarstjórnarfundinum í
gær lá bréf frá Gunnari Thor-
oddsen, fjármálaráðherra, þar
sem hann baðst lausnar frá borg-
arstjórastörfum. Einnig bréf frá
frú Auði Auðuns borgarstjóra
sama efnis. Er samþykkt hafði
verið að taka þessa lausnarbeiðn-
ir gildar og samþykktin um skipt
ingu borgarstjóraembættisins
hafði verið felld úr gildi, var
gengið til borgarstjórakjörs fyr-
ir það sem eftir er af yfirstand-
andi kjörtímabili. Geir Hall-
grímsson var kjörinn með 11 at-
kvæðum en 3 seðlar voru auðir.
Næstlengst í embætti
Hinn nýkjörni borgarstjóri,
Geir Hallgrímsson tók til máls.
Þakkaði hann traustið og kvaðst
ekki vilja láta hjá líða að bera
fram þakkir til Gunnars Thor-
oddsens og Auðar Auðuns. Gunn-
ar Thoroddsen, sem nú hefði
fengið að fullu lausn frá borgar-
stjórastörfum, hefði næstlengst
allra borgarstjóra Reykjavíkur
gegnt þessu starfi, eða frá 6.
febrúar 1947. Hefði hann á starfs-
ferli sínum unnið sér verðskuld-
að og almennt traust og vinsæld-
ir bæjarbúa fyrir glæsilega og
farsæla forystu bæjarmálefna á
þeim tíma, sem bærinn hefði
verið í örum vexti. Þá árnaði
borgarstjóri Gunnari Thoroddsen
alira heilla í því mikilvæga
starfi, sem hann gegnir nú í þágu
alþjóðar.
væri ljúft og skylt að þakka frú
Auði Auðuns gott samstarf í
borgarstjórastarfi um nálega eins
árs skeið, samstarf, sem enginn
skuggi hefði fallið á. Sem betur
færi mundi frú Auður starfa á-
fram í bæjarráði og þar sem í
bæjarstjóm mundu bæjarbúar
njóta öruggrar dómgreindar
hennar og mikillar þekkingar og
reynslu. Að lokum lét borgar-
stjóri í ljós ósk um gott sam-
starf við bæjarfulltrúa, starfs-
menn bæjarfélagsins og alla bæj-
arbúa, Reykjavík og Reykvíking-
um til heilla og hagsbóta.
Gunnar Thoroddsen, fjármála-
ráðherra, þakkaði borgarstjóra
og sagði ennfremur, að í árs-
starfi hefði Geir Hallgrímsson
áunnið sér almennt traust
bæjarfulltrúa og bæjarbúa.
ÍGunnar Thoroddsen, fjár- '
málaráðherra, frú Auður
Auðuns alþingismaður og
Geir Hallgrímsson, borg-
arstjóri. — Myndin var
tekin í lok bæjarstjórn-
arfundarins í gær.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Fellibylur á
Filipps-
eyjum
MANILA, 6. okt. (Reuter). —
Hvirfilvindur gengur nú yfir
Filippseyjar, og er búizt við að
hann nái hingað á morgun síðd.
í opinberri tilkynningu segir, að
þegar hafi 16 manns farizt í of-
viðrinu og margra sé saknað. Er
aðallega um að ræða sjómenn,
sem farizt hafa á hafi úti.
Gagnsókn Gaitskells
\ — Hin .,milda“ stefna hans varðandi
| þioðnýtingn fær yfirgnæfandi fylgi
Þá sagði borgarstjóri, að sér
Scarborough, Englandi,
Mikill meirihluti
Jnnrás' 27 manna á Kúbu
HAVANA, Kúbu, 6. október.
— (NTB — Reuter). —
Flokkur gagnbyltingarmanna
gekk í gær á land í Oriente-
héraði á Kúbu, að því er segir
i tilkynningu frá kúbanska hern-
um. Voru gagnbyltingarmenn 27
saman, þar á meðal þrír Norður-
Ameríkumenn.
í tilkynningunni segir, að
flokkur hermanna og menn úr
heimavarnarliði Kúbu hafi drep-
ið leiðtoga gagnbyltingarmanna,
Armentino Feria, sært einn úr
hópnum og tekið annan til fanga.
Herinn veitir nú eftirför þeim
24, sem eftir eru, segir í til-
kynningunni.
Þá segir, að flokkur þessi hafi
rænt 50 bændum og verið á leið
með þá upp í hæðir nokkrar, þeg-
ar til bardagans kom, en þá hafi
bændunum tekizt að sleppa. —
Kúbumenn náðu bandarískum
fána, sem landgöngumenn höfðu
með sér, þrem múldýrum, sem
klyfjuð voru skotfærum, og sjö
byssum, sams konar og banda-
ríski herinn notar, segir enn i
tilkynningunni.
Réttarhöld yfir
Menderes og mönn
um hans
MIKLAGARÐI, 6. okt. (Reuter)
— Cemal Gursel hershöfðingi,
forseti og forsætisráðherra Tyrk
lands, tjáði fréttamönnum í dag,
að hinn 14. þ. m. mundu hefj-
ast réttarhöld yfir Adnan Men-
deres, fyrrum forsætisráðherra,
flestum ráðherra hans og embætt
ismönnum stjórnarinnar.
6. október. — (Reuter). —
HUGH GAITSKELL, leiðtogi
Verkamannaflokksins, hefir
hlotið mikið lof í brezkum
blöðum og víðar fyrir hina
skeleggu ræðu er hann flutti
á flokksþinginu í gær, þótt
stefna hans og flokksforyst-
unnar í kjarnorkumálunum
biði þar ósigur. — í dag vann
svo Gaitskell eftirtektarverð-
an sigur, er stefna flokksins
að því er varðar þjóðnýtingu
var til umræðu.
Gaitskell fékk þingið til þess
að samþykkja með 4.153.000 atkv.
gegn 2.310.000, að tillaga hans
nýlega um að draga úr og
„milda“ eindregna þjóðnýtingar-
stefnu flokksins — samkvæmt
hinni mjög svo umdeildu 4. grein
flokksstefnuskrárinnar — færi í
rétta átt og væri mikilvæg stefnu
yfirlýsing. — Tillaga Gaitskells,
sem hann fékk samþykkta fyrir
nokkru í miðstjórn flokksins, fel-
ur, ekki í sér beina breytingu á
stefnuskrá flokksins, heldur
leggur áherzlu á, að fara beri
þær leiðir í þjóðnýtingarmálum,
sem bezt eigi við hverju sinni. Er
Frh. á bls. 2.
Ji