Morgunblaðið - 13.10.1960, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 13.10.1960, Qupperneq 10
10 MORCXJlSnj. 4 Ð1Ð Fimmtudagur 13. okt. 1960 JUrogmtfrfofrifr Utg.: H.f. Ai-vakur ReykjavOt. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórarí Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók.: Arni Óla, simi 33045. Auglýsmgar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstrætj 6 Sími 2X480. Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. ÞÁTTASK/L P JÁRL AG AFR UM VARP fyrir árið 1961 hefur verið lagt fram á Alþingi ís- lendinga. Við samanburð á því og fjárlagafrumvarpi yf- irstandandi árs, kemur í ljós að nú er í fyrsta skipti gerð alvarleg tilraun til sparnaðar í ríkisrekstrinum. Fram að þessu hefur venj- an verið sú, að ríkisbáknið hefur þanizt út ár frá ári og rekstrargjöldin stöðugt vax- ið. Nú er hins vegar brotið blað og 10 af 14 útgjaldalið- um fjárlaga lækkaðir. Nem- ur sú lækkun 22 millj. kr. samtals. Það má að vísu segja, að þessi upphæð sé ekki mikil, þegar niðurstöður fjárlag- anna eru IV2 milljarður. Hitt ber þó að hafa í huga að fjár- veitingum til verklegra fram- kvæmda er naldið svipuðum og áður og það er beinn kostnaður við rekstur ríkis- báknsins, sem lækkaður ' er um nefnda upphæð. Ríkisstjórninni hefur að- eins unnizt skammur tími til þess að rannsaka, hvernig hægt sé að spara fé í rekstri ríkisins. Með hliðsjón af því verður að telja það bærileg- an árangur að geta nú lækk- að þau útgjöld um 22 millj. króna. En betur má ef duga skal, enda hefur Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra lýst því yfir, að á prjónunum séu ráðagerðir um víðtækar tilraunir til að leitast við að draga úr rekstrarkostnaði ríkisbáknsins. Vonandi er að honum og ríkisstjórninni megi takast að feta áfram þá braut, sem nú hefur verið mörkuð til út- gj aldalækkunar. VEGUR OG FLUG TL|ORGUNBLAÐIÐ skýrði frá því í gær, að ríkis- stjórnin hefði ákveðið að hefja þegar framkvæmdir við steinsteyptan veg um Suður- nes til Keflavíkur. Undanfarið hefur mikið verið rætt um flugvallarmál höfuðborgarinnar. Eru nú flestir orðnir þeirrar skoð- unar, að áður en mjög langt líður hljóti Reykjavíkurflug- völlur að þoka fyrir bygging- um, þar sem flugvallarsvæð- ið er í beinum tengslum við gamla miðbæinn. Hafa því verið uppi hugmyndir um að byggja nýjan flugvöll, ann- að hvort á Álftanesi eða í Kapelluhrauni. Nýlega greindi Morgun- blaðið frá því að nokkrir for- ystumenn flugmála hefðu gert tilraunir til aðflugs yfir þessum tveimur stöðum, sem helzt hafa verið nefndir til flugvallagerðar. Var niður- staða þeirra sú, að aðstæður væru óheppilegar í Kapellu- hrauni, en hins vegar góðar á Álftanesi. Sá galli er þó á gjöf Njarðar, að lönd á Alfta- nesi eru nú þegar or.ðin verð- mikil og mun verðmæti þeirra fara mjög vaxandi á næstu árum. Þar við bætist svo, að Álftanes er í svo mik- illi nálægð við meginbyggð höfuðborgarinnar, að hætt er við að enn mundi gæta mik- ils hávaða og óþæginda af flugi hinna stærri flugvéla yfir borginni enda þarf ekki annað en benda á þau vand- ræði sem nú stafa af þotum t. d. á Kastrupflugvelli. Með Keflavíkurveginum nýja styttist aksturstími svo, að varla mun muna meira en um 20 mínútum, hvort keyrt yrði til flugvallar á Álftanesi eða Kapelluhrauni annars vegar eða þá til Kefla- víkur. Nú liggur það í augum uppi, að starfræksla tveggja stórra flugvalla er geysi kostnaðarsöm. Getur það því varla talizt þjóðhagslega æskilegt að ætla að spara j flugfarþegum um 20 mínútur! í ferð með fjárfestingu, sem næmi hundruðum milljóna og miklum árlegum rekstrar- gjöldum. Heppilegast virðist því vera að halda Reykjavíkurflug- velli enn um skeið en skipu- leggja svæðið þannig að gert væri ráð fyrir byggingum þar í framtíðinni. Mætti þá nota hann fyrir innanlands- flug um allmörg ár, þó að eitthvað væri þrengt að en millilandaflug hinna stærri véla færðist fljótlega til Keflavíkur. Er fram liðu stundir mundi svo Keflavík- urflugvöllur og hinn nýi veg- ur þjóna bæði millilanda- og innanlandsflugi, nema þróun- in yrði sú, að mjög lítið at- hafnasvæði þyrfti fyrir minni flugvélar. í dag kann flugfélögunum að finnast þessi kostur nokk- uð harður aðgöngu, en trú okkar er sú að ekki verði mörg ár liðin, þangað til all- ir verði sammála um að þessi leið sé rétt. UTAN ÚR HEIMI | John Wayne — í sæti stjórnandans að þessu sinni. í eina kvikmynd Aleigan ÞEIR HAFA gert margar „sögulegar“ kvikmyndir í henni Hollywood — þótt oft hafi raunar verið bornar brigður á sögulegt gildi slíkra mynda. En þær hafa a. m. k. margar hverjar verið yfrið glæsilegar og íburðarmiklar, og — umfram allt — dýrar. Og enn megum við eiga von á að sjá eina slíka „stór- mynd“ — sem kvað eiga að verða þeirra allra mest. En það hefur nú reyndar verið sagt um þær fleiri — fyrir fram. — ★ — • „GENGUR“ HÚN 30 ÁR? Kvikmyndin, sem hér um ræð- ir nefnist „The Alamo“ og er „eft irlætis-afkvæmi" þeirrar gömlu og góðkunnu kúrekahetju, Johns Kvenfólk kemur ekki mikið við sögu í kvikmyndinni. Hér er þó a. m. k. ein stúlka „til skrauts“, Linda Cristal. Waynes, sem hefir þeyst um hið „villta vestur“ hvíta tjaldsins lengur en flestir aðrir. — Wayne er löngu kunnur að því að láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna, og nú hefir hann lagt alla sína fjármuni í þetta „fyrirtæki“, en það er ekki svo lítið, sem hann hefir önglað saman með árun- um. — Framleiðslukostnaður „The Alamo“ nemur um 12 millj- ónum dollara — og John Wayne ætlar sér að vinna það margfalt aftur. Hann er viss um, að mynd- in muni „ganga“ í 30 ár og ef hann reynist þar sannspár, tapar hann áreiðanlega ekki á fyrir. tækinu. Hitt er svo annað mál, hvort honum endist aldur til þess að taka við öllum gróðanum . . . — ★ — • 182 GEGN 5.000 Þegar sagan gerist, var Alamo lítil trúboðsstöð við bæinn San Antonio, þá — árið 1836 — í settust að, vildu sameinast Texas — og tóku að skjóta Mexikana til þess að leggja áherzlu á þá kröfu sína. í>ar kemur sögu að 5.000 manna mexikanskur her sezt um víggirta stöðina, en þai eru aðeins 182 menn til varnar. — Umsátrið stendur 13 daga. Eru þá allir hinir 182 dauðir, og 1.700 af liði Mexikana liggja einnig í valnum, en þá er líka fjölmennur her Texasmanna kominn á vett- vang, leggur hann þarna undir sig drjúga landspildu. \ John Wayne, | \ gamla kúreka- j \ hetjan, gerist j umsvifamikill \ l___________________j • LEITAÐI Á HUGANN í 14 ÁR Þessi einfalda hetjusaga (frá sjónarhóli Texasbúa; ekki er víst, að Mexikanar séu eins hrifn- ir af henni) hefir orðið eins kon- ar þjóðsögn í Bandaríkjunum — og hefir sífellt leitað á huga Waynes um 14 ára skeið, að hans eigins sögn. — Loks hefir hann svo látið verða af því að gera kvikmynd um þessa dramtisku atburði — og lagt að veði allar sínar eigur eins og fyrr segir. Auk þess sem hann er framleið- andi myndarinnar, annast hann leikstjórn — og fer með hlutverk hins margfræga Davys Crockets, sem þarna kemur nokkuð við sögu. í hita —Kvikmynddin kostar meira fé en sjálf styrjöldin, sem er aðaluppistaöa hennar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.