Morgunblaðið - 13.10.1960, Page 13
Fimmtudagur 13. okt. 1960
MOnr.TlVUtl Afílb
13
Ingibjörg Kristjáns
dóttir - minning
Sárt er að gráta góðan vin,
sem grafar myrkrin hylja köld.
Æ kemur eftir skúrir skin.
er skýja dimmu rofna tjöld,
því vér síðar sjáum þá.
sem hér skildust okkur frá.
ÞESSI fornkveðnu orð komu
mér í hug, er mér barst andlá's
íregn vinkonu minnar. Ingibjarg
»r Kristjánsdóttur. Fregnin um
lát hennar kom mér þó ekki á
óvart, því hin erfiðu veikmdi
hennar síðustu vikur gáfu til
kynna að hverju stefndi.
Ingibjörg var fædd 18. ágúst
1868 að Norðtungu í Þverárhiíð,
dóttir hjónanna Sæunnar Jó-
hannesdóttur og Kristjáns Tóm-
assonar.
hún á þeim grunni er mótaði
tilfinningar hennar strax í
bernsku, ekkert gat truflað hana
í þeim efnum.
Félagslyndi og vinfesta voru
sennilega einna ríkustu þætt-
irnir í skapgerð hennar, sem
allir hennar vinir fengu notið í
ríkum mæli. Þessir kostir gerðu
hana ógleymaniega öllum þeim
sem kynntust henni og er ég
þess fullviss að nú að teiðar-
lokum, senda allir vinir og ætt-
ingjar henni 1 anda, hlýjar
kveðjur og þakkir fyrir ánægju
legar samverustundir, vináttu og
tryggð.
Árið 1926 réðst Ingibjörg að
Deild á Álftanesi til Guðbjart-
ar Jóhannssonar, er þar bjó á því
heimili dvaldi hún í 15 ár, eða
þar til Guðbjartur lézt. Og það
var í Deild, sem leiðir okkar
Ingi'bjargar lágu saman. Ég flutt
ist þangað fjögurra ára gömul
með móður minni, sem þá var
orðin ekkja. Ingibjörg var þá
komin hátt á sextugsaldur. Við
mamma vorum svo heppnar að
eignazt strax óskipta vináttu
hennar, sem aldrei brást og minn
ingamar frá þessum æskuaár-
um mínum eru eins og bjartur
sólargeisli, þar bar aldrei skugga
á. — Ingibjörg var sérlega barn-
góð og naut ég þess í ríkum
mæli og mér er óhætt að segja
án þess að varpa skugga á minn-
ingu móður rninnar, að Ingi-
björg hafi verið mér sem önnur
ur móðir. frá okkar fyrstu kynn
um til hinztu stundar.
Ingibjörg átti bví láni að fagná
að vera heilsunraust. Siðustu
ellefu árin dvaidi hún á EiUi-
heimilinu Grund og naut þar
hinnar beztu umönnunar. Hún
eignaðiet nýja vini og gömlu
kunningjarnir heimsóttu hana og
hún kunni vel að meta það, en
kraftarnir voru farnir að þverra
og aldurin orðinn hár. Síðustu
tvö áin mátti hún kallast sjúkl-
ingur, samt var hún óvenju hress
er hún miðjan september sl. varð
fyrir því óhappi að detta og
mjaðmarbrotna, var hún þá flutt
í sjúkrahúsið að Landakoti og
andaðist þar 7. þ. m. 92 ára að
aldri.
Þetta er í stórum dráttum saga
Ingibjargar Kristjánsdóttur; hún
lætur ekki mikið yfir sér og er án
efa lík sögu margra íslenzkra
alþýðukvenna, en þó er það trú
mín að Ingibjörg hafi um marga
hluti verið óvenjuleg kona.
Elsku Imba mín, ég vil nú að
lokum þakka þér alla þina órofa
tryggð og vináttu er þú sýftdir
mér og fjölskyldu minni. Við
biðjpm þér blessunar á hinni
nýju vegferð þinni, fullviss um
að þú átt góða heimvon.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi.
Hafðu þökk íyrir allt og allt.
H. H.
SIGURGEIR SIGURJÓNSSON
hæstaréttarlögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Aðalstræti 8. — Sími 11043.
Císli Einarsson
héraðsdómslögmaður.
Málf/utningsstofa.
Laugavegi 20B. — Sími 19631.
KaupsýslumennJ
Látið ekki
sambandið
við
viðskiptavini
yðar rofna
Mikilvæg&sti þátturinn í afkornu ve
unarinn&r er &ð vera í góðum tengslnm
við fólkið. — Hagsýnn k&upsýslumaður
auglýsir því að staðaldri i útbreiddaeta
biaði landsins.
jRwðitttMtafrtfe
Sími 2-24-80
Kornung var hún tekin í fóst-
ur að Helgavatni í Þverárhlið
til hjónanna Margrétar Halldórs
dóttur og Þorbjörns Sigurðsson-
ar og hjá þeim dvaldi hún fram
yfir fermingaraldur, þá var bjart
í hugarheimi hennar og lífið
spáði hinni ungu, glaðværu
stúlku góðu.
Svo sem að líkum lætur varð
hún strax ung að árum að fara
að vinna fyrir sér og ganga til
þjálfunar í allströngum starfs-
skóla lífsins, en þaðan mátti ó-
tvírætt gefa henni fyrstu ágætis
einkunn
Á þeim árum var ekki I mörg
hcrn að iíta hvað stöðuval snerti,
þá var það mest um vert að kom
ast á góð heimili í vinnumenbsku
Og þann kost tók Ingibjörg. —
Eftir að hún fór frá æskuhe;m-
ili sínu dvaldi hún sem vmnu
kona á ýmsum stöðum og ávalH
á hinum mestu myndar- og merk
isheimilum, bæði í Borgarfirði
og víðar og ætíð síðan minntist
hún húsbænda stnna með hlýhug
og virðingu.
Hún vann störf sín af alúð
og trúmennsku og hvar hún var
eignaðist hún vini, og enda þótt
nú séu margir þeirra horfnir af
sjónarsviðinu, þá er enn eftir
stór hópur þeirra.
Ekki mun Ingibjörg hafa hlot-
ið neina teljandi menntun í æsku
en hún hlaut I vöggugjöf góðar
gáfur og notaði þær á réttan
hátt.
Hún auðgaði anda sinn með
lestri góðra bóka,. sérstaklega
unni hún Ijóðum og kunni ótrú
lega mikið af þeim; hún var
einórð í framkomu, lét óhikað
sk< ðanir sinar i ljós og hirti ekki
um hvort þsér likuðu betur eða
ver, í það og það skiptið.
Hún var skemmtileg og v;ð-
ræðugóð og átti kímnigáfu í rík
um mæli. en fór vel með. hún
hafði mikið yndi af hljómlisl og
hafði sjálf mjög fagra söngrödd.
Ingibjörg var mjög tilfinninga-
næm og allir þeir sem undir
höfðu orðið í lífsbaráttunni, áttu
hinn næma skilning hennar og
hlut þeirra reyndi hún af fremsta
megni að rétta.
Hún var trúuð kona og hug-
myndir *ínar og lífsskoðun reisti
Útboð
Tilboð óskast um raflögn, símalögn o.þ.h. í Vöggustofu
Thorvaldsensfélagsins við Sunnutorg. Útboðslýsingar og
uppdrátta má vitja í skrifstofu vora Traðarkotssundi 6,
gegn 300.000 króna skilatryggingu.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVlKUR.
Til sölu
3ja herb. íbúð við Langholtsveg, mjög sólrík. Gott
verð. Lítil úíborgun.
VIÐSKIPTAMIÐLUNIN
Melabraut 12 — Sími 12051.
Látið vita, sem allra fyrst um bækur og málverk sem eiga að seijast á
næstu uppboðum.
Listmunauppboð SIGURÐAR BENEDIKTSSONAR
Austurstræti 12 — Sími 13715.
Þaó var erfitt,
sióasta sumarleyfió...
Volkswagen
í skyndihappdrœtti
Sjálfstœðisflokksins
. . . en næsta ár,
. . . þá verður gaman