Morgunblaðið - 20.10.1960, Side 2

Morgunblaðið - 20.10.1960, Side 2
z MORGVNBLAÐ1Ð Fimmtudagur 20. okt. 1960 Hrútasýning á Snœfellsnesi BORG í Miklaholtshreppi, 17. okt. — Undanfarna daga hafa staðið hér yfir í héraðinu hrúta- sýningar í öllum hreppum sýsl- unnar. Aðaldómarar á sýningum þessum voru dr. Halldór Pálsson sauðfjárræktarráðunautur, Bún- aðarfélags íslands og Leifur Jó- hannesson búf járræktarráðunaut- ur Snæfellinga. Sýndir voru alls 672 hrútar í sýslunni. Fengu 280 1. verðiaun, 247 2. verðlaun, 99 3. verðlaun, en 46 voru ekki verðlaunaðir. í dag var svo haldin héraðs- sýning á beztu hrútum sýslunnar, sýninguna varð að halda í tvennu lagi, vegna þess aðnokkrum hluta Snæfellsness er sundur skipt með varnargirðingu. Voru sýningar haldnar á Vegamótum í Mikla- holtshreppi og Söðulsholti í Eyja- hreppi. Á sýningu þessari voru alls sýndir 68 hrútar 39 kollóttir og 29 hyrndir. Sýninguna setti formaður Bún- aðarsambandsins Gunnar Jóna- tansson. Dr. Halldór Pálsson flutti þar fróðlegt erindi um niðurstöður sýninganna hér í sýslunni og sauð fjárræktun almennt hér á Snæ- fellsnesi. Hvað Dr. Halldór að sauðfjárræktuninni hefði miðað mjög vel undanfarin fjögur ár, miklar framfarir orðið til kyn- bóta í héraðinu, og stæði sauðfjár ræktin hér með miklum blóma. Snæfellingar hefðu staðið sig bezt í sauðfjárræktuninni eftir fjárskipti, við að fá vel ræktað fé á skömmum tíma. Aðal ástæðan fjrrir því væri sennilega sú, að Búnaðarsambandið fór tvær ferðir til Vestfjarða að ísafjarð- ardjúpi og keypti þar úrvalsfé til kynbóta aðallega frá Múla og Laugabóli við ísafjarðardjúp. Þá hafa og verið framkvæmdir flutningar á sæði úr hyrnd- um hrútum úr Árnessýslu, af þingeyskum stofni og út af því bafa komið margir góðir ein- staklingar. Þó hafa einnig verið starfandi í héraðinu sauðfjórrækt arfélög í flestum hreppum sýsl- unnar, hafa mörg þeirra unnið mikið og markvisst starf. Þá var einnig höfð á Vegamót- um í dag kjötsýning sem dr. Halldór Pálson stjórnaði ogflutti hann mjög fróðlegt erindi um byggingarlag dilkanna og út- skýrði hina einstöku hluti, skrokksins með sýningu á sund- urlimuðum skrokkum. Þá var einnig mættur í dag á sýningunni á Vegamótum Hjalti Gestsson búf járræktarráðunautur Búnaðarsambands Suðurlands, en Hjalti var dómari ásamt Halldóri og Leifi á niðurröðun hrúta á héraðssýningunni. Kvað Hjalti sauðfjárræktunina hér á Snæfellsnesi standa með miklum og ágætum, fyrir tveim árum var hann dómari hér á sýn- ingum á svæðinu. Taldi hann sér staklega mikla framför hafa orð ið, einkanlega hvað yngri hrútar væru þroskamiklir og holdgóðir. Þá fór fram afhending verð- launagrips sem Búnaðarsamband- ið gaf, fyrir átta árum. Er það útskorinn skjöldur með hrúts- mynd eftir Ríkharð Jónsson. Að þessu sinni hlaut hann hrút- urinn Dvergur frá Innra-Leiti á Skógarströnd, eigandi Jónas Guð mundsson. Er það í annað sinn sem Dvergur hlýtur þennan skjöld. Nú voru sýndir með hon- um synir hans 6 sem allir fengu fyrstu verðlaun. Er Dvergur mjog kynsæl og fögur kind, hann er kollóttur. Bezti hyrndi hrútur á sýningu og var Mímir eigandi Gunnar Guðbjartsson Hjarðar- felli. Niðurröðun hrútanna á héraðs sýningunni var raðað þannig: fyrst I. heiðursverðlaun í þeim hópi lentu 19 hrútar. I. verðlaun A hlutu 26 hrútar L verðlaun B hlutu 23 hrútar. Sýning þessi var mjög fjöl- menn, og ríkir hér í Snæfellsnesi mikill áhugi í búfjárrækt. — Páll. Ekki vandaðar kveðjurnar „TOGARASKIPSTJÓRARNIR rökstyðja einnig afstöðu sína með því í Morgun- blaðinu, að það sé þeim fjárhagslegt hags- munamál að geta selt óverkaðan fisk í Bretlandi — hvað sem líður þjóðarhag. Þeir vilja sem sé selja landsréttindin gegn því að þeir fái persónulega einhvern áhata!“ í hvaða blaði er því dróttað að íslenzk- um sjómönnum að þeir vilji selja lands- réttindi fyrir persónulegan ábata? Sjáið ritstjórnargrein blaðsins í dag. ísland vann Mongólíu LEIPZIG, 19. okt.: — Island vann Mogólíu í annarri umferð Ólympíumótsins með 2% vinning gegn 1%. Freysteinn og Gunnar Gunnarsson unnu sínar skákir, Arinbjörn gerði jafntefli, en Ólafur Magnússon tapaði. Island er með 5% vinning eftir tvær fyrstu umferðirnar í C-riðl inum. Tékkóslóvakía, Túnis og Ungverjaland eru þar efst með 6% vinning hvert land. Noregur er efstur í A-riðli með 8 vinninga, eða allar skákir sínar unnar. Búlgaría er þar næst með 5% vinning. Rússland er efst í B-riðli með 8 vinninga. Argentína og Portú- gal eru næst með 7V2 vinning hvor. — Freysteinn og NTB. Togarasölur TOGARINN Sigurður, einn hinna 1000 lesta, seldi afla sinn í Bremerhaven í gær, 93 léstir fyr ir 67 þús. mörk. Þá seldi Pétur Thorsteinsson frá Bíldudal í sömu borg á þriðjudag tæpar 50 lestir fyrir tæp 32 þús. mörk. í dag selja Keilir frá Hafnar- firði og Geir. Þeir eru með um 100 lestir hvor. Dagskrá >A/Jb/ng/s SAMEINAÐ Alþingi kemur saman til fundar í dag kl. 13:30 og er dagskrá, sem hér segir: 1. Fyrirspumir: a. Rafstrengur til Vestmannaeyja. Hvort leyfð skuli. b. Virkjunarrannsóknir. Hvort leyfð skuli. Efri deild 1. Fiskveiðilandhelg’ Islands, frv. 1. umr. 2. Vegagerð á Vestfjörðum og Austurlandi, frv. 1. umr. Neðri deiid: 1. Fræðslumyndasafn ríkisins, frv. 1. umr. 2. Uthlutun listamannalauna, frv. 1. umr. 3. Bann gegn vinnustöðvun atvinnu flugmanna, frv. 1. umr. 4. Fiskveiðisjóður Islands, frv. 1. umr. 5. Efnahagsmál, frv. Frh. 1. umr. 6. Skólakostnaður, frv. 1. umr. Sölusýnmg í Mokka f GÆR byrjuðu 3 ungir mynd- listarmenn sýningar á verkum sínum í Mokka-kaffi á Skóla- vörðustígnum. Eru það þeir Karl Kvaran, Jóhannes Jóhannesson og Kjartan Guðjónsson. Er hér um sölusýningu að ræða með afborgunarfyrirkpmulagi, þannig að t. d. af 4000 kr. málverki, þarf kaupandi að greiða 25% og svo 500 kr. á mánuíi. Gildir þetta um dýrari málverkin, en af hinum ódýrari þarf að borga 500 kr. og svo 300 á mánuði. Verð mynd- anna er yfirleitt frá 1600 kr. og upp í 4000 kr. Ekki hefur slíkt fyrirkomulag' á sölu málverka, þ.e.a.s., af mál- urunum sjálfum, tíðkazt hér fyrr. Sölusýning þessi verður opin um þriggja vikna skeið, og get- ur fólk virt fyrir sér málverkin um leið og það fær sér kaffi- sopa hjá Guðmundi í Mokka. Sendiherraskiptin NÝLEGA hefur dr. Kristinn Guðmundsson, sendiherra ís- lands í London, verið skipaður sendiherra íslands í Moskva frá 1. janúar 1961 að telja. Þá hefur Pétur Thorsteinsson, sendiherra íslands í Moskva, ver ið skipaður sendiherra íslands í Bonn, einnig frá 1. janúar að telja, í stað dr. Helga P. Briems, sendiherra, sem taka mun við starfi á vegum utanríkisdáðuneyt isins í Reykjavík. (Frá Menntamálaráðuneytinu). - Milljónaveröiiæti Frh. af bls. 1. sagði Sighvatur, og í Eyjum eru 7 slíkar vélar, 4 ýsuvélar og 5 flatníngsvélar, en þær síðást- nefndu skila einna beztri vinnu. Nær allur fiskur, sem berst til Eyja, er flakaður í vélurn, sagði Sighvatur að lokum. Flökunarvélar eru nú í notkun í 20 helztu verstöðvum landsins. A sumum stöðum hafa fleiri en ein vinnslustöð flökunarvél — og margar vinnslustöðvanna eiga fleiri en eina véL — Deilur harðna Framh af bls. 1 fjölda forvígismanna Verka- mannaflokksins, þar sem tekin eru fram 14 atriði, sem þeir telja undirstöðu undir starfi flokks- ins. Meðal þessara atriða eru ein dregin mótmæli gegn tillögunni um að Bretar' afsali sér atóm- vopnum einhliða. Þar er einnig lögð áherzla á, að þingflokk- urinn láti enga segja sér fyrir verkum, svo og að sósíalismi eigi ekki að vera þurr efnahags kredda, heldur leið til þess að öðlast frelsi, jafnrétti ,réttlæti til handa alþýðu og samvinnu alls mannkyns. Margir álíta, að bréf þetta muni falla í góðan jarðveg hjá fjölda félagsmanna innan í’okks ins, þar sem það sé öfgalaust og skírskoti til almennrar skyn- semi, enda séu menn uggandi yfir þeim hótunum vinstri manna, að kljúfa flokkinn. Réttarh.öldin í Tyrklandi: Sokhorningar neita akærum YAS'SIADA, 19. okt. — (Reuter — NTB) RÉTTARHÖLDIN í máli fyrr. verandi forseta stjórnar Tyrk. lands héidu áfram í dag. — Að- alákærurnar fjölluðu um að stjórnin hefði átt upptökin að og staðið fyrir óeirðunum, sem urðu í Ismir, Istanbul og víðar vegna Kýpurdeilunnar haustið 1955. Bæði Bayar og Menderez neituðu að eiga þar nokkra sök! Ákæruskjalið á hendur sak. borningunum var lesið í upphafi réttarhaldsins i dag og tók sá lest ur um klukkustund. Forsetinn og ríkisstjórnin er, sem fyrr segir, sökuð um að hafa efnt til ó- eirðanna út af Kýpurdeilunni haustið 1955, en þá varð m. a. sprenging í tyrkneska sendiráð. inu í Saloniki í Grikklandi. — Menderez er ákærður fyrir að hafa sjálfur staðið fyrir þeirri sprengingu og margháttuðum spellvirkjum öðrum, og síðan hafi hann kennt kommúnistum um þau. Verjandi Baysrs hélt því fram að samkvæmt stjórnarskránni bæri Bayar enga ábyrgð á gerð- um stjórnarinnar og væri því ekki við hann að sakast vesna þessarar ákæru, en dómsforseti tók þá fullyrðingu verjandans ekki til greina. Menderez neitaði hinsvegar af- dráttarlaust að hafa nokkra að- ild átt að óeirðum i sambandi við Kýpurdeiluna. Hins vegar kvað hann sér hafa verið skylt, sem forsætisráðherra Tyrklands að standa við hlið Tyrkja á Kýp. ur í deilumálum þar. Hann kvaðst þá hafa reynt allt sem mögulegt hefði verið til að lægja ofstopann og væri hann þess fullviss að þær tilraunir hans hefðu komið í veg fyrir enn fleiri mannvíg en þar urðu. FyrrVerandi utanríkisráðherra Fatin Zorlu, sagði að tyrknesku stjórnni hefði á engan máta get- að verið þægð í því að koma á stað óeirðum vegna Kýpurdeil- unnar. Sjálfur kvaðst hann ekk- ert hafa um óeirðirnar vitað fyrr en þær voru afstaðnar. NA /5 hnútar SV50hnútar ¥ Snjókoma y Úto V Skúrir lí Þrumur 'WZ, KuUaskit ZS* Hihskif H Hmt L* Latl } í GÆR var hæg austan og norðaustan-átt hér á landi, þurrt veður vestan lands, en lítil háttar rigning á austan- verðu landinu. Klukkan 15 var hitinn 5—10 stig, hæstur í Hornafirði og undan Eyja- fjöllum, lægstur í Möðrudal og á Galtarvita. Út af Eystribyggð í Græn- landi var stormur af suðaustri og rigning með 7—8 stiga hita, en strax og kom austur fyrir Hvarf var hiti við frostmark og snjóaði þar á kafla. Lengra norður með ströndinni var hreinviðri og stilla, en vægt frost. í Meistaravík var frostið 12 stig og 24 á Norðurslóð, sem er á 82. gráðu norður, breidd- ar, um 180 km í hánorður frá Raufarhöfn, Veðurspáin kl. 10 í gær- kvöldi: SV-mið: Austan átt, all- hvasst með köflum, skúrir. SV-land , til Norðurlands Faxaflóaipið til norðurmiða: Austan gola eða kaldi, skýjað með köflum. NA-land, Austfirðir og NA- mið: Austan gola, skýjað. SA-land Austfjarðamið og SA-mið: Austan kaldi, smá- skúrir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.