Morgunblaðið - 20.10.1960, Qupperneq 22
22
MORCUTSHT. 4 ÐIÐ
Fimmfudagur 20. olrt. 1960
13 af 20 bezfu
■ 400 og 800 rrs hlaupi eru
Bandarikjamean og Þjóðverjar
Hér á eftir höldum við áfram
með heimsafrekaskrána í frjáls
um iþróttum 1960, sem við byrj
uðum á um s.J. helgi.
400 m HLAUP
44,9 O. Davis Bandar.
44,9 Kaufrpann Þýzkaland
45,5 G. Davis Ba.ndaríkin
45.5 Spence S-Afrika
45.6 Singh Indlandi
45.7 Woods Bandaríkin
45,7 Young Bandaríkin
- 45,8 Day S-Afríka
45,8 Kerr Guinea
45,8 Kinder Þýzkaland
800 m HLAUP
1:46,3 Snell Nýja-Sjálandi
1:46,4 Kerr Guýiea
1:46,5 Schmidt Þýzkaland
1:46,5 Moens Belgía
1.46.6 Cunlifte Bandaríkin
1.46.7 Murphy Bandaríkin
1:46,8 Siebect Bandaríkin
1:46,8 Valentin Þýzkaland
1:46,9 Matuschewski Þýzkal.
1:47,1 Blue Ástralía
1.47,1 Balke Þýzkaland
Bandarískur þjálfari í
körfuknatíleik hin gað
Ein harðasta keppni Bómarleikana var í 400 m. hlaupi. Timi tveggja fyrstu var sá sami
44.9 sek. — heimsmet. Ólympíumet — Bandaríkjamet — Evrópumet!!! Davis frá Bandaríkjun.
um var sjónarmun á undan og fékk gullið — en saman eiga þeir heimsmetið hann og Þjód-
verjinn Kaufmann.
EINS og getið er á öðrum stað
hér á síðunni, virðist svo sem
Danir vilji ekki taka upp lands-
Íéikjaskipti við íslendinga í körfu
knattleik. Eigi eru allir aðiljar
edendis á sömu skoðun um skipti
við íslendinga á sviði köfuknatt-
leíks.
Eorráðamenn körfuknattleiks
fíáfa leitað hófanna hjá Upplýs-
ihgaþjónustu Bandaríkjanna um
jiiöguleika á að fá hingað banda-
jfískan þjálfara. Var slíkur þjálf-
ari frá Bandaríkjunum hér á ferð
fýrir nokkrum árum og olli það
byltingu í ísl. körfuknattleik og
áhugi jókst stórum á iþróttinni
við komu hans.
Nú hefur Upplýsingaþjónust
an tilkynnt, að bandarískur
þjálfari í körfuknattleik fari
í kennslu- og þjálfunarferð um
Norðurlönd. Er í ráði að við-
dvöl hans hér verði f jórar vik-
ur. Er ekki að efa að gagn
verði af heimsókn hans og
munu ísl. körfuknattleiksmenn
byggja gott til komu hans. —
ÍSÍ hefur nú mál þetta til
meðferðar.
Danir vilja ekki efna loforð
um landsleik v/ð ísland
Ánægjulegur fundur
Heimsmeistarakeppni á kvikmynd
Knattspyrnusambands; sem hr. iþróttakennari Benedikt
Jakobsson flutti þar. Það sem
Benedikt sagði á vissulega er-
indi til allra, Iþróttamanna sem
annarra. Vonandi verður erind-
ið birt í dagblöðum svo fleiri en
þeir sem á hlýddu eigi þess kost
að kynnast því.
Að loknu erindi Benedikts var^.
STJORN
íslands á þakkir skilið fyrir að
hafa gengist fyrir fundum, eins
konar gkyndi-námsKeiðum, í
knattspyrnu nú í no ikur skifti
Tjarnarbíói.
Þeir eru nokkuð m.irgir hér
höfuðstaðnum, sem ekki iáta
vanta þegar taekifæri gefst
Körfuknattleiksmenn vonsviknir
yfir vibskiptum v/ð Dani
í MAÍMÁNUÐI á sl. ári var
háður í Kaupmannahöfn
landsleikur í körfuknattleik
milli Danmerkur og íslands.
Leikurinn var mjög jafn og
lauk 39:36 Dönum í vil. Kom
í ljós í leiknum að þessar
tvær þjóðir standa á mjög
líku stigi í þessari íþrótt og
hefðu báðar hag af því að
hittast regluiega í lands-
leikum. Var og um það rætt
og Danir gáfu munnlegt vil-
yrði fyrir því að svo yrði. Nú
virðist svo sem þessi frænd-
þjóð vor vilji ekki fast við
munnlegt loforð sitt halda —
með
Snillingurinn Pelé umkringdur ungum aðdáendum.
og heyra
iþrótt —
til að sjá
|>á ágætu
una.
Ég var
leíð mína
Tjarnarbíó, er
til að hlýða á
eitthvað um
knattspyrri-
einn þeirra er lagði
sl. fóstudagskvöid í
tækifæri gafst
stórvel samið,
íræðandi og skyrisamlegt erindi
sýnd kvikmynd frá heimsmeist-
arakeppninni í knattspyrnu, úr-
slitaleikirnir milli 16 landa, er
fram fóru í Svíþjóð 1958. Er
myndin mjög vel tekin og sjást
þarna skemmtilegir kaflar úr
helztu leikjunum, og segja mér
kunnugir að mikið geti knatt-
spyrnumenn af sýningunni lært,
einkum ef þeir sjá oftar en einu
sinni. Þá þekkja kunnugir þarna
ýmsa frægustu knattspyrnumenn
heimsins að ógleymdum mörg-
um af Þjóðverjunum sem hing-
að komu í sumar og kepptu v;ð
Eramh. á bls. 23
og ekkert frekar hafa
ísl. körfuknattleik eða sam-
skipti við ísland að gera.
★ Danir skipta um skoðun
Ingi Þorsteinsson form. Körfu-
knattleiksráðs Reykjavíkur fór
til fundar við nýkjörinn formann
danska körfuknattleikssambands-
ins fyrir rúmum mánuði. Var
hann mjög neikvæður í við-
ræðum um frekari landsleika-
skipti íslands og Danmerkur.
Vildi Ingi ekki una orðum hans
og var því boðaður stjórnarfund-
ur í danska sambandinu og var
Ingi á þeim fundi.
★ Sjónarmið íslendinga
Skýrði Ingi þar sjónarmið
íslendinga, sem eru í stuttu
máli þau, að er ísl. landsliðið
á s.l. ári ferðaðist án endur-
gjalds frá Dönum til landsleiks
í Kaupmannahöfn þá hefði
fyrrverandi formaður sam-
bandsins, Christensen frá Árós
um sagt, að á árinu 1960
myndi danska landsliðið endur
gjalda fslendingum heimsókn-
ina með heimsókn til íslands.
Þá myndu Danir hafa nægi-
legt fé því danska körfuknatt-
leikssambandið myndi fá fé
frá Ólympíunefndinni dönsku
til landsleikaferða, því þá
gæti landsliðið keppt við lið.
sem væru þeim lík að getu,
í stað þess að taka þátt í Ólym
píuleikunum.
★ Loforðið gleymt
Er Ingi sat stjórnarfundinn
kom í Ijós að Danir hyggjast
heimsækja Hollendinga, Svía og
A-Þjóðverja á þessu ári og leika
við þá landsleiki í körfuknattleik.
Loforðið við íslendinga virtist
alveg gleymt og lítill sem enginn
vilji hjá stjórn sambandsins til
að gera eitthvað fyrir ísl. körfu-
knattleiksmenn til að endur-
gjalda þeim leikinn í Höfn í
fyrra.
Ekkert hefur heyrzt
frá Dönum
Kom það flatt upp á stjórn
hins danska sambands hve vel
Ingi var heima um allt er varð-
aði fjármál og framtíðaráætlanir
Dana. Vildu þeir því halda annan
fund, án hans nærveru, þar se.n
endanlega yrði ákveðið um við-
skipti við ísland.
En Inga tókst ekki að ná sam-
bandi við Strömberg formann
danska sambandsins eftir þetta.
Sendi Ingi honum línu og bað
hann skrifa sem skjótast til ís-
lands. Nú eru liðnar 6 vikur og
ekkert orð hefur frá danska sam-
bandinu heyrzt. Mun ÍSÍ haf3
sömu reynslu af dönskum körfu-
knattleiksmönnum að þeir svari
ekki bréfum.
★ ÍSÍ tekur við málinu
Ingi hefur gefið ÍSÍ skýrslu um
viðræður sínar við Dani og tekur
nú ÍSÍ við málinu, enda er það
sérsamband fyrir körfuknattleik
á íslandi. Sagði Ingi að erfitt
væri alltaf að gera annað en-
munnlega samninga við aðrar
þjóðir því umboð ÍSÍ skorti til
þess. Og nú hefði komið í Ijós
hve haldgóðir munnlegir samn-
ingar væru.
Þó taldi Ingi að ekki væri úti-
lokað enn, að danska sambandið
sæi að sér og gerði eitthvað til
að efna loforð sem það áður hafði
gefið íslendingum.
Landsleikir'
viö Austur-
Þjóðverja
KÖRFUKNATTLEIKSRÁÐ
Reykjavíkur hefur mælzt til
þess við ÍSf, að leitað verði
hófana um gagnkvæm lands-
leikaskipti í körfuknattleik
hjá Austur-Þjóðverjum.
Telur Körfuknattleiksráðið
að slíkri málaleitan yrði vel
tekið hjá A-Þjóðverjum því
þeir hafa gert sér far um að
koma á slíkum viðskiptum
við sem flestar þjóðir.
Þá er og líklegt, að fjár-
hagslegur grundvöllur slíkra
skiptilandsleikja verði við-
ráðanlegur, því Þjóðverjarnir
eru fúsir til slíkra samninga
á fullkomnum jafnréttis-
grundvelli.
Mun fSÍ nú athuga mögu-
leika á slíkum skiptilands-
leikjum.
______________________