Morgunblaðið - 03.11.1960, Blaðsíða 13
Fimfritudagur 3. nóv. 1960
MORGJJTSBLAÐIÐ
13
Einar Kristjánsson forstjóri
Minning
í DAG er borinn til grafar einn
af forvígismönnum skíðaíþrótt-
arinnar hér á landi, Einar
Kristjánsson, fyrrverandi for-
maður Skíðasambands íslands.
Hann andaðist 27. okt. sl. eftir
þungbær veikindi.
Einar Kristjánsson var fædd-
lir á Hraunum í Fljótum hinn
21. júlí 1898, sonur Kristjáns
Kristjánssonar og konu -hans,
Rósu Einarsdóttur. Foreldrar
hans voru bæði úr Fljótum 1
Skagafirði. Meðan Einar var í
bernsku fluttist hann með for-
eldrum sínum til Siglufjarðar
og ólst þar upp. Hann átti síð-
an heima á Siglufirði mestan
hluta ævi sinnar. Starfaði hann
þar við Lyfjabúð Siglufjarðar
og síðan við Efnagerð Siglu-
fjarðar. Árið 1948 fluttist Einar
til Akureyrar. Var hann for-
stjóri Efnagerðar Akureyrar unz
hann fluttist til Reykjavíkur ór-
ið 1958. Hér starfaði hann nú
síðast í Ingólfs Apóteki.
Fljótin eru næsta sveit fyrir
vestan SiglufjörcS, handan Siglu-
fjarðarskarðs. Fljót og Siglu-
fjörður eru einhver snjóþyngstu
héruð þessa lands, bæði girt
bröttum fjöllum á þrjá vegu og
vita mót norðri. Vetur konung-
ur hefur þar mikið vald og
hann er duttlungafullur stjórn-
andi. Ósvikin norðlenzk stór-
hríð er mikilfenglegt náttúru-
fyrirbæri, sem þeir einir þekkja
er reynt hafa. En hins skal líka
minnzt, hve tign vetrarins er
mikil, þegar hríðinni slotar og
sól skín á landið, þakið djúpum
snjó frá fjallstindum að flæðar-
máli.
í þessum útsveitum Norður-
lands hafa menn alla tíð, síðan
land vort byggðist, orðið að
nota skíði, til þess að komast
leiðar sinnar að vetri til. Skið-
in voru nauðsynleg hvort held-
ur að menn þurftu að fara i
fjárhús til gegninga eða fjall-
vegi í næstu sveitir. Skíði voru'
notuð það mikið og oft við erf-
áðar aðstæður, t. d. í bröttum
fjöllum, að margir öðluðust
góða leikni í notkun þeirra,
bæði karlar og konur.
Þessi forna íþrótt á Norður-
landi lagðist aldrei niður. Mér
er það minnisstætt frá því er eg
var staddur á Siglufirði vetur-
inn 1940, að ég sá hóp Fljóta-
manna, er voru á heimleið úr
kaupstaðarferð og ætluðu að
fara að leggja á Siglufjarðar-
skarð. Þeir gengu allir á skíð-
um, báru byrðar á baki og not-
uðu einn, nokkuð langan brodd-
staf. Fljótamennimir gengu
fram hjá hópi unglinga úr
Siglufirði, er voru að æfa sig í
skíðastökki og svigi, nýmóð jns
listum, sem þá voru. Ég hygj að
hvortveggja hópurinn hafi jot-
ið hornauga til hins.
Það var augljóst, að hér var
mikil breyting á orðin. Ui\ haf
hennar, að því er SiglufVörð
snertir, má rekja til þess, að
veturinn 1920 bundust nekknr
borgarar þar samtökum usn að
efla skíðaiþróttina og stafnuðu
Skíðafélag Siglufjarðar. Skiða-
félög voru þá ekki til á íslandi,
nema Skíðafélag Reykjavxkur,
sem hafði verið stofnað ánð
1914. Skíðafélag Siglufjarðar
fitjaði upp á nokkrum nýung-
um, en starfsemi þess var þó
framan af ekki mikil. En eftir
1930 færist mikið líf í félagið,
mjög fyrir forgöngu Guðmund-
ar heitins Skarphéðinssonar.
Var þá fenginn norskur skíða-
kennari til Siglufjarðar og nú
lærðu menn þar skíðaíþróttina,
sem Norðmenn höfðu þróað
með sér.
Þetta var -hin mikla breyting.
Siglfirðingar tóku henni tveim
höndum og með öllum þeim
skaphita, sem þeim er eiginleg-
ur. Skíðaíþróttin varð þeirra
hjartans mál og hefur verið það
æ síðan. Hún varð þar ekki
einkamál unglinganna, heldur
almennt áhugamál kvenna og
karla, ungra og gamalla, metn-
aðarmál bæjarfélagsins. Sigl-
firðingar urðu beztu skíðamenn
landsins, jafnvígir á allar grein-
ar. Og nú eru Fljótamenn einn-
ig búnir að ná sér á strik. í
Fljótunum eru nú á ný sumir
af fremstu skíðamönnum lands-
ins.
Því er þetta rakið hér, að
meðal hinna áhugasömustu for-
ystumanna um þessi mál á
Siglufirði var Einar Kristjáns-
son. Hann var formaður Skíða-
félags Siglufjarðar í meira en
áratug, þar til árið 1948 er
hann fluttist til Akureyrar. Fé-
lagið átti þá blómaskeið og Ein-
ar starfaði með lífi og sál að
málefnum þess og skíðaíþrótt-
arinnar á Siglufirði. Væri vel,
ef saga þessara ára á Siglufirði
yrði skráð norður þar, meðan
þeirra manna nýtur enn við,
sem hana muna.
Skömmu eftir að Einar Krist-
jánsson flutti til Akureyrar, yar
hann kjörinn í stjórn íþrótta-
bandalags Akureyrar. Hann
gegndi ýmsum störfum fyrir
það meðan hann bjó á Akur-
eyri.
Arið 1946 var Skíðasamband
íslands stofnað í Re'ýkjavík. Var
Einar Kristjánsson kjörinn í
fyrstu stjórn þess með búsetu á
Siglufirði. En árið 1950 fluttist
aðsetur Skíðasambandsins frá
Reykjavík til Akureyrar og var
þá Einar kjörinn formaður þess.
Því starfi gegndi hann til ársins
1956.
1 störfum sínum fyrir Skíða-
sambandið naut Einar góðrai
þekkingar sinnar á málefnum
skíðaíþróttarinnar og íþrótta-
mála almennt. Slík stjórnar-
störf eru að mestu leyti unpin
£ kyrrþey. Þau láta oft lítið yfir
sér og má kallast gott, þegar
þeim er ekki tekið með van-
þökk af einhverjum. En störf
Einars voru metin vel, allir
sem þar komu nærri, þekktu
áhuga hans og góðvild. Þegar
hann lét af formennsku Skíða-
sambandsins var hann kjörinn
heiðursfélagi þess.
Það lætur að líkum, af því
sem hér hefur verið sagt, að
Einar Kristjánsson var mikill
áhugamaður og atorkumaður
um hugðarefni sín og hin fjöl-
mörgu trúnaðarstörf, sem hon-
um voru falin, bera vott um
það traust, sem samstarfsmenn
og félagar báru til hans.
Nú er liðið að lokum. Skiða-
samband Islands þakkar Einari
Kristjánssyni fyrir mikil og
góð störf £ þágu skíðaíþróttar-
innar. Ég veit að skíðamenn um
land allt taka undir þá þökK.
Ástvinum hans er vOttuð inni-
leg samúð. Einar B. Pálsson.
— ★ —
EINAR Kristjánsson, sem í dag
verður jarðsettur, verður mér
minnisstæður um flesta menn
fram. Eðlisfar hans bar hinn
bjarta svip fæðingarsveitar hans,
Fljótanna, en skapgerðin mótað-
ist jafnframt af iðandi athafna-
lífi bæjanna og félagslífi. í því
tók hann ríkan þátt, fyrst og
fremst á Siglufirði og Akureyri.
Einar var fjörmiklum gáfum
gæddur, en sterkasti eðlisþáttur
hans var hlýjan og traustið. Fé-
lagsmaður var hann í þess orðs
dýpstu merkingu. Hann jós öðr-
um ómælt af sálarbrunni og sást
ekki fyrir, þegar félagsstarfið
krafðist allra krafta hans. Dýpstu
sporin markaði hann á sviði
íþróttamálanna nyrðra, og mun
hans lengi minnst sem brautryðj-
anda á því sviði. Stjórnmálin
voru annað mesta áhugamál hans
auk íþrótta. Hann var forystu-
maður Sjálfstæðisfélaganna á
Siglufirði og Akureyri um ára-
tuga skeið, ýmist formaður eða
stjórnarmaður, og vann mikið
starf og fórnaði miklu í þeirra
þágu.
Einar Kristjánsson er fæddur
21. júlí 1898 að Hraunum í Fljót-
um en fluttist á barnsaldri til
Siglufjarðar. Guðmundur T
Hallgrímsson, héraðslæknir, tók
hann að sér um fermingaraldur,
og hjá héraðslækni lærði Einar
lyfjagerð. Sveinninn var óvenju-
næmur og fól héraðslæknir hon-
um að aðstoða sig við lyfjagerð-
ina. Árið 1917 gerðist hann starfs
maður apóteksins á Akureyri og
vann síðan að lyfjagerð í lyfja-
búð Eyrarbakka og síðan á Seyð-
isfirði. Þá gerðist hann verzlun-
armaður hjá Garðari Gíslasyni i
Ólafsvík og síðar í Hafnarfirði.
En árið 1927 fluttist hann heim
til Siklufjarðar; og tók hann við
störfum í Lyfjabúð Siglufjarðar,
er hún var stofnuð árið 1928.
Árið 1948 gerðist Einar forstjóri
Efnagerðar Akureyrar, unz hann
fyrir tveim árum fluttist til
Reykjavíkur. Hér hugðist hann
byrja nýjan starfsdag, en það fór
á annan veg.
Einar var umsýslumaður og
starfsmaður mikill. En samt safn-
aði hann ekki þeim fjársjóðum,
sem mölur og ryð eyðir. Hann
taldi það skyldu sína að fórna
verulegum hluta ';íma síns og
krafta fyrir meðbræðurna, og því
átti hann óþrjótandi lífsgleði,
sem einkenndi hann framar öðru
nema ef vera kynni ástríki hans.
Einar eignaðist góða konu,
Ólöfu Ísaksdóttur frá Eyrar-
bakka, og lifir hún mann sinn.
Þau hjón voru mjög samhent, og
var heimili þeirra annálað fyrir
gestrisni. Þar ríkti ávalt hátíða-
blær, er gest bar að garði. Við
hjónin erum meðal hinna mörgu
er þakklæti býr í huga nú, þeg-
ar litið er til baka.
Einar hafði tvo um sextugt.
Hann var óbilaður að starfskröft
um, er hann lagðist þungri sjúk-
dómslegu. Þungur harmur er þvi
kveðinn að konu hans, frú Ólöfu,
dóttur þeirra, frú Dórotheu, son-
um þeirra, Ólafi, sveitarstjóra
cand. jur. og Boga, verzlunar-
manni, tengdadóttur og dóttur-
dóttur. En „sérhver góð gjöf og
sérhver fullkomin gáfa er ofan
að og kemur niður frá föður ljós-
anna“. Einar var slík Guðs gjöf
til okkar, vina hans, og við þökk-
um Guði fyrir hann. Gjafari allra
góðra gjafa huggi og styrki ást-
vini hans.
Þórir Kr. Þórðarson
Valkyrja
flugherinn. — Þettá er
sprengjuþota og tegundin,
sem er B-70, ber nafnið
„Valkyrja“.
„Valkyrjan“ verður knú
in tveimur þrýstilofts-
hreyflum. Hún á að fljúga
með þreföldum hraða
ÞETTA er nýstárleg þota eitthvað annað. — North
og mætti ætla, að hún American Aviation í Los
ætti ekkert skylt við raun Angeles er að smíða tvær hljóðsins, eða um 3,200 km
veruleikann. En það er nú slíkar fyrir bandaríska á klukkustund.
Sendisveinn
Röskan Sendisvein vantar okkur strax.
Vinnutími frá kl. 8—5.
JltorgttttÞfaMfr
Afgreiðslan — Sími 22480
Ámokstursskófla
og jarðýtur
til leigu
Vélsmiðjan BJARG
Hölóatúni 8 — Sími 17184