Morgunblaðið - 03.11.1960, Síða 19
Fimmtudagur 3. nóv. 1960
MORCUyBLAÐIB
19
— Utan úr heimi
Framhald af ols. 10.
ar verið lagður, áður en Zabotin
ofursti kom til Kanada — enda
J>ótt það yrði svo hann, sem við-
komandi yfirvöld töldu síðar
vera skipuleggjara og aðalstjórn
anda alis njósnanets Rússa í
Kanada.
— ★ —
Það, sem eftir var árslns 1942
og fram á næsta ár fóru skeytin
frá „Leon“ stöðugt um hendur
mínar í höfuðstöðvum leyniþjón-
ustunnar. Þá bauð mér ekki í
grun, að brátt myndi ég fara
tíl Kanada með Zabotin ofursta
— og þyí síður grunaði mig, að
pg myndi innan skamms hitta
hinn dularfulla „Leon“, og
Éneira að segja starfa fyrir hann.
■>
P EINN OG SAMI MAÐIIR
;■ Við Zabotin ofursti komum til
Edmonton í Kanada í júní 1943.
Ófurstinn setti sig þegar í sam-
band við Kudryavtsev, sem var
Sendiráðsritari við sovézka sendi
ráðið í Ottawa. Þeim samdist svo j BONN, Vestur-Þýzkalandi, 2.
tun, að Kudryavtsev kæmi til1 nóv. (Reuter) Talsmaður dóms-
Alfred Frenzel
Akraborg í slipp
AKRABÓRG er nú komin í
slipp og leggjast skipaferðir frá
Reykjavík til Akraness og Borg-
arness að mestu niður um tíma.
Ekki er vitað hve Akraborgin
verður lengi frá, en hún er nú
í „fjögurra ára skoðun“, sem
sennilega mun taka nokkrar
vikur. Skipið er töluvert dæld.
að á hliðum eins og eðlilegt er,
því skipið hefur í ferðum sínum
lagzt að bryggju margsinnis á
dag þau fjögur ár, sem það hef-
ur verið í notkun. Særún ann.
ast ferðirnar „upp eftir“ nokkr.
um sinnum í viku. Annars fara
flutningarnir mestmegnis land
leiðina.
Frenzel-njósnamálið
Fleiri handteknir
ínóts við okkur á járnbrautar-
stöðina í Ottawa. Sendiráðsritar-
inn var maður mjög feitlaginn og
ófríður, með mikla undirhöku
pg þykkar varir. En hann var
yingjarnlegur og hafði heillandi
framkomu, svo að mér geðjaðist
vel að honum við fyrstu sýn.
Ég hafði verið vikutíma í sendi
ráðinu, þegar mér var vísað inn
£ leyniherbergi á annarri hæð.
Þetta var lítið herbergi með stál-
hurð fyrir dyrum og glugga-
hleramir voru einnig úr stáli.
Það var hér, sem Kudryavtsev
setti mig inn í starf mitt við
sendiráðið — ég skyldi vera að-
stoðarmaður við þýðingar dul-
málsskeyta. — Það var fyrst þá,
að það rann upp fyrir mér, að
,,Leon“ og Kudryavtsev voru
éinn og sami maður — höfuðpaur
hernaðarnjósna Sovétríkjanna 1
Kanada.
• VARKÁRNI
KUDRYAVTSEVS
Fyrstu dagana eftir komu sína
var Zabotin, sem nú var að taka
við stjórn njósnahringsins, van-
ur að heimsækja Kudryavtsev
daglega í skrifstofu hans. Zabot-
in þurfti að ganga gegnum lítið
herbergi þar sem sat stúlka nokk
ur, einkaritari Kudryavtsevs. —
Einn daginn snerist hann önd-
verður gegn hinum tíðu heim-
sóknum Zabotins — og sagði hon-
um beinum orðum, að það væri
engin ástæða til, að hann væri
sífellt að koma til sín. — Þetta
sýnir vel varlcárni Kudryavtsevs.
Hann vildi ekki, að neinn —
ekki einu sinni í sjálfu sendiráð-
inu — vissi, að neitt sérstakt
samband vSeri milli þeirra
Zabotins.
Það var ekkert nýtt fyrir
Kuúryavtsev að starfa í senn sem
stjórnarerindreki og einn af
höfuðpaurum sovézkrar njósna-
starfsemi. Þannig hafði hann
starfað þegar fyrir stríðið, þegar
hann dvaldist í Þýzkalandi. Hann
talaði bæði sjaldan og lítið um
störf sín þar — en Þjóðverjar
hugðust taka hann fastan, þegar
styrjöldin milli Rússlands og
Þýzkalands brauzt út. Þrátt fyrir
sinn fyrirferðamikla líkama,
tókst þó Kudryavtsev að fela sig
milli ferðakofforta í járnbraut-
arlest einni — og sleppa þannig
burt.
• MIKILVÆGUR EIGINLEIKI
Ég minnist þess að hafa lesið
í einu af þeim mörgu skjölum,
sem farið hafa um hendur mín-
ar svofellda lýsingu á Kudryavt-
mrálarááðuneytis Bonnstjórnar-
innar skýrði frá því i dag, að
handtekinn hefði verið fjórði
maðurinn í sambandi við njósna
mál það, sem jafnaðarmannaþing
maðurinn Alfred Frenzel er tal-
inn flæktur í. Auk Franzels,
hafa áður verið handteknir tveir
tékkóslavneskir njósnarar, sem
Frenzel hafði samband við.
— ★ —
Ekkert frekar var upplýst um
þennan fjórða mann, sem nú
hefur verið tekinn fastur —
Þýzbui
her til
Frukklonds
— til œfinga
Kassél, V.-Þýzkalandi,
2. nóv. (NTB-Reuter). —
UM það bil 2.400 vestur-
þýzkir hermenn héldu í
dag með járnbrautarlest
frá Kassel til Frakklands,
þar sem heræfingar verða
haldnar í samræmi við sér-
stakan samning stjórna
Frakklands og Þýzkalands
um að vestur-þýzka hern-
um verði veitt æfingaað-
staða á franskri grund. —
Er þetta í fyrsta sinn, síð-
an stríðinu lauk, að þýzk-
ir herflokkar, gráir fyrir
járnum, birtast á franskri
grund.
— ★ —
í síðustu viku hélt raun-
ar smáflokkur hermanna
yfir landamærin tii þess
að undirbúa komu þessara
sveita, en hér er um að
ræða tvær fótgönguliðs-
sveitir og tvær fallhlífa-
sveitir úr v.-þýzka hernum.
— Munu þær dveljast um
þrjár vikur í tveim æfinga-
stöðvum, Mourmelon og
Sissonne, í Austur-Frakk-
landi.
— Kosningabarátta
Frh. af bls. 1.
hámarki. Gallup og flestar aðrar
skoðanakannanir spá Kennedy
sigri. Telja sumir, að hann muni
fá um 300 kjörmenn af 537 —
aðrir nefna allt að 450 kjör-
annað en það, að hann sé ekki
þingmaður í þýzka þinginu, en
orðrómur hefur gengið um, að
annar þingmaður sé flæktur í
þetta mál.
— ★ —
Hinn 61 árs gamli Frenzel, er,
handtekinn var síðastliðinn föstu
dag, sakaður um njósnir fyrir
kommúnistaríki í Austur-F.v-
rópu, eins og tekið var til orða,
er fæddur í Tékkóslóvakíu.
— ★ —
í síðari fregnum segir, að ails
hafi nú sex manns verið hand-
teknir í sambandi við Frenzel-
málið.
sev: „Honum lætur vel að safna manna meirihluta.
nýliðum. Hann hefir góða fram-
komu og laðar fólk að sér í sam-
ræðum — eiginleiki, sem er mjög
imikilvægur við slíkt starf“.
— ★ —
Ég hygg, að Serge Kudryavt-
sev muni notfæra sér þcssa hæfi-
leika sína í hinu nýja starfi. —
Maðurinn, sem eitt sinn var að-
alerindreki Stalins í Kanada, er
nú fulltrúi Krúsjeffs á Kúbu.
(Lausl. þýtt og stytt.)
— o —
Mikil harka hefir nú færzt
í kosningabaráttuna. Nixon
hamrar á því, að Kennedy lofi
öllum öllu, rægi Bandaríkin
og sé gersamlega ábyrgðar-
laus. — Kennedy telur Nixon
hins vegar stefnulaiusan —
hann segi eitt í dag og annað
á morgun, og sakar hann jafn-
framt um að vilja afnema allt
félagslegt öryggi.
- íþróttir
Framh. af bls. 18.
15 luku pófi fyrir silfur og 28
fyrir brons. Samtals voru því
tekin 51 próf. Deildin tók þátt í
Unglingadegi KSÍ. Þreyttar voru
ýmsar knattþrautir, og gefin
stig fyrir árangur. Ragnar Ragu
arsson 3. flokki náði næst bezta
árangri.
Unglingaráð það er starfaði í
fyrra, lofaði tveim fyrstu gull-
drengjum Vals einhverri viður-
kenningu. Og var þeim á aðai-
fundi deildarinnar afhentir áletr
aðir bikarar að gjöf. Piltarnir
eru Pétur Sveinbjörnsson og
Sigurður Gunnarsson.
í landsliði fslands lék einn
Valsmaður og var það Árni
Njálsson, en alls léku 190 piltar
og drengir með Val á sumrinu.
í stjórn knattspyrnudeiidar-
innar voru kosnir: Form. Ægir
Ferdinandsson, v.form. Sigurður:
Marelsson, gjaldk. Friðjón Frið-
jónsson, ritari Páll Aronsson,
spjaldskrárritari Elías Hergeirs-
son.
— Bridge
Framh. af bls. 6.
ar koma til greina, þ. e. að
svína laufi eða fá 3 slagi á
spaða, en til þess að það sé
hægt þarf annað hvort Austur
að eiga spaðaás eða að spaðarn-
ir séu jafnt skip+'- á A—V.
Sagnhafi lét því úr borði
og drap heima ____o kóngi, en
Vestur gaf. Nú var hjarta látið
út og drepið í borði og enn var
spaði látinn út og drepið heima
með drottningunni og enn gaf
Vestur.
Eins og allir sjá er mjög erfitt
fyrir sagnhafan* að sjá að Vest-
ur er að leggja fyrir hann
gildru. Hann álítur að sjálfsögðu
að Austur eigi spaðaás og sé
eingöngu að reyna að gera spil-
ið erfiðara. Enn spilaði sagn-
hafi hjarta og drap í borði og
lét spaða og tapaði spilinu, því
Vestur fékk tvo slagi í spaða.
Spil þetta er lærdómsríkt að
því leyti að Vestur sér hættuna
á því að laufinu sé svínað. Ef
Vestur drepur fyrr á spaða-
ásinn og svo kemur í ljós að
spaðinn fellur ekki þá verður
Suður að reyna að svína laufi,
og vinnur þannig spilið. I
Hjartans þakkir til allra, sem glöddu mig á 60 ára af-
mæli mínu með heimsóknum, gjöfum og skeytum,
Ragnhildur Þórarinsdóttir,
Efri -Mýrum, Austur-Húnavatnssýslu
Stúlkur óskast
Stúlkur vanar saumaskap
óskast nú þegar.
INIærfatagerðin Carabella
Laugavegi 31
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓHANNES ÁSMUNDSSON
búfræðingur
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn
4. nóvember kl. 4.
Eiísabet Guðmundsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn
Minningarathöfn um föður minn og bróður okkar
SVEINBJÖRN ARINBJARNAR
sem andaðist 30. okt. fer fram frá, Fríkirkjunni, föstu-
daginn 4. nóv. kl. 3 e.h.
Blóm og kransar afbeðið.
Hörður Arinbjarnar og systkini hins látna
Faðir okkar og bróðir minn
JÓN HÁKON BJÖRNSSON
máiarameistari frá Isafirði
sem lézt í Þýzkalandi 24. okt. sl. verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni fimmtudaginn 3. nóv. kl. 1 e.h.
Hanna Kolbrún Jónsdóttir, Björn Jónsson,
Kristín Björnsdóttir
Útför mannsins míns og föður.okkar
GUÐJÓNS H. SÆMUNDSSONAR
byggingameistara
verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík, föstudag-
inn 4. nóv. n.k. kl. 13,30.
Arnheiður Jónsdóttir
Haraldur Guðjónsson, Baldur Öxdal
Útför föður okkar og fósturbróður
GUÐMUNDAR FR. GUÐMUNDSSONAR
sem andaðist í Landakotsspítala 29. f.m. fer fram frá
Fossvogskirkju, föstudaginn 4. nóvember, kl. 3.00.
Sigrún Guðmundsdóttir, Sigurður Þ. Guðmundsson
Steinunn Kristjánsdóttir
Eiginmaður jninn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
HERMANN ÓLAFSSON
Holtsgötu 41
andaðist að Bæjarspítalanum þann 1. nóvember
Halldóra Daníclsdóttir
Haraldur Hermannsson, Pálína Kjartansdóttir
Anna Hermannsdóttir, Kjartan Valgeirsson
Unnur Hermannsdóttir, Haraldur Guðlaugsson
og bamabörn
Eiginmaður minn og faðir okkar
GUNNAR JÓNSSON
fyrrverandi skipasmiður á Akureyri
verður jarðsettur í Fossvogskirkju kl. 1,30 á morgun.
Blóm og kransar afþökkuð, en þeim sem vildu minnast
hins látna, er bent á Sjálfsbjörg, félag fatlaðra og lam-
aðra.
Sólveig Þórðardóttir og böm
SVEINN JÓN EINARSSON
frá Bráðræði,
andaðist í Landakotsspítala 23. okt. Bálför hans hefir
farið fram. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlut-
tekningu.
Vandamenn.