Morgunblaðið - 25.11.1960, Blaðsíða 1
24 síður með Barnalesbók
271. tbl. — Föstudagur 25. nóvember 1960
Prentsmiðia Morgunblaðsins
Vonin
?ar með
brostin?
Þessi mynd var tekin á
Kanaveralhöfða 21. þm. þegar
gerð var tilraun til að skjóta
á loft geimhylki, sams konar
og fyrsti geim-flugmaður
Bandaríkjanna á að hafast við
í, þegar hann hefur hringferð
sína um jörðu — einhvern-
tíma á næsta ári, að því fyrir
hugað er. — Þessi tilraun mis
heppnaðist algerlega, eins og
ein, sem áður hefir verið gerð
— og segja bandariskir sér-
fræðingar, að þar með kunni
að vera úti vonir Bandaríkj-
anna um að verða á undan
Rússum að senda mann út í
geiminn......
Spi
liMÉÉm
HATO gerist
kjarnorkuveldi
Sú hugmynd hlýtur yfirgnæfandi stuðning
á þingmannaiundi bandalagsins
París, 2Jt. nóv. — <'Reuter)
TILLAGA Lauris Norstads
yfirhershöfðingja um að
Atlantshafsbandalagið skuli
koma sér upp birgðum kjarn
orkuvopna og þannig gerast
fjórða kjarnorkuveldið í
heiminum hlaut ákveðinn
stuðning nær allra aðila á
þingmannafundi bandalags-
ins í dag. Nokkrar andmæla-
raddir heyrðust að vísu, en
yfirgnæfandi meirihluti ræðu
manna studdi hugmyndina.
— Þannig sagði t. d. norski
fulltrúinn, Finn Moe, að úr
því að yfirhershöfðinginn
teldi nauðsynlegt, að herir
bandalagsins verði búnir
kjarnavopnum, „hljótum við,
sem ábyrgir þingmenn, að
fallast á það sem grundvall-
arreglu“.
• STUÐNINGUR FRAKKA
Það vakti hvað mesta at-
hygli í dag, að franski gaull-
istinn Jean Palewsky lýsti því
yfir, að flokkur sinn styddi til
lögu Norstads. Vafasamt var
talið, að Frakkar styddu til-
löguna, vegna þeirrar stefnu
de Gaulles, að þeir skuli koma
sér upp eigin k.iarnavopnum.
— Hins vegar taldi
brezki Verkamannaflokks-
þingmaðurinn John Strachey,
að kjarnavopnabúnaður vest-
rænna rífej'stætti að vera bund
inn við Bandaríkin — þau ein
ættu að hafa þessi vopn, og
vopnin skyldu vera staðsett á
bandarísku yfirráðasvæði.
— ★ —
Samkvæmt tillögu Norstads,
eiga öll 15 aðildarríki NATO að
hafa jafnan rétt um meðferð og
stjórn kjarnavopna bandalagsins.
Ályktunartillaga sú, sem rædd
var í dag, minntist að vísu ekki
beinlínis á uppástungu Norstads,
en var algerlega í ánda hennar.
Atkvæðagreiðsla um tillöguna
fer fram n.k. laugardag.
★ NÁNARI SAMVINNA
Tvær aðnar tillögur voru lagð-
ar fyrir þingið í dag. — Banda-
ríski öldungadeildarþingmaður-
inn Estes Kefauver lagði til, að
skipuð yrði nefnd allra þátttöku-
ríkjanna til þess að athuga mögu
leika aukinnar stjórnmálalegrar
og efnahagslegrar samvinnu inn-
an bandalagsins. Yrðu um 100
menn í nefnd þessari. — Þá bar
belgiski jafnaðarmaðurinn Lusi-
en Radoux fram tillögu um, að
komið yrði á fót svonefndri „At-
lantshafsstofnun" í þeim til-
gangi að tengja þátttökuríkin
traustari böndum, að því er varð-
ar samvinnu á sviði menningar-
mála og vísinda.
Manila, Filippseyjum, 24. nóv.
(Reuter).
SAKNAÐ er Dakotaflugvélar frá
flugfélaginu „Philippine Airlin-
es“, en með henni eru 29 far-
þegar og 4 manna áhöfn. — Þeg-
ar leit að vélinni var hætt í kvöld
vegna myrkurs, hafði engin
hinna 40 leitarflugvéla orðið
neins vör, sem ráða má af, hvað
um flugvélina hefir orðið.
Leopoldville eins og púðurfunna
Kongóhermenn og hermenn SÞ
sfanda hvorir gegn óðrum,
gráir fyrir járnum
Leopoldville, 2lf. nóv.
(NTB-AFP-Reuter )
HERVÖRÐUR var í dag sett
ur við heimili forsvarsmanna
SÞ í Leopoldville og vörður
efldur við helztu stöðvar
samtakanna í borginni. Þess-
ar öryggisráðstafanir voru
gerðar vegna þess, að ólga
virðist enn fara vaxandi í
borginni, einkum í röðum
kongóska hersins. Það, sem
einkum veldur þessari ólgu,
er fall næstæðsta manns
Kongóhersins, Josephs Nko-
Kínverskar eldflauga-
stöðvar í Tíbet?
Nýju-Delhi, 2Jt. nóv. (Reuter)
BLAÐIÐ „Times of India“
birti þá fregn frá Nepal í
dag, að Kínverjar væru að
koma upp birgðastöðvum
fyrir eldflaugar, svo og skot-
stöðvum, í Tíbet og nærri
landamærum Indlands og
Nepals.
— ★ —
Til stuðnings fregninni
sagði blaðið frá því, að tveir
menn úr Himalaya-leiðangri
Sir Edmunds Hillarys hefðu
séð eitthvað, sem líktist eld-
flaug, Tíbet-megin við landa-
mæri Nepals í sl. mánuði. —
Sáu þeir glampandi, sívalan
hlut á lofti hinn 22. október,
og sendi hann „gufustrók“
aftur úr sér. Segja mennirn-
ir, að hér hafi ekki getað
verið um annað að ræða en
eldflaug — og hafi henni
sennilega verið skotið frá
kínverskri herstöð, annað-
hvort í Bombuk eða Tingri
í Tíbet.
Ios, þegar átökin urðu fyrir
utan sendiráð Ghana sl.
mánudag. Enda þótt loft
hafi verið lævi blandið í dag,
hefir þó ekki komið til
neinna átaka. — Hins vegar
má segja, að hermenn SÞ og
Kongóhermenn standi hvorir
Verwoerd
somur við sig
PRETORIA, S,- Afríku, 24.
nóv. (Reuter). — Hendrik
Verwoerd forsæfisráðherra
sagði í dag í viðtali við stjórn
ar-stuðningsblaðið „Die Trans
valer“, og „lituðu“ fólki (þ.e.
af blönduðum stofni) yrði
ekki leyfð seta í þjóðþinginu
eða öldungadeildinni. — Sagði
hann, að slík stefna, sem
stj órnarandstöðuf lokkurinn,
,,Sameiningarflokkurinn“,
berðist fyrir, fæli raunveru-
lega í sér, að „leyfð væri tak-
mörkuð sameining kynþátta"
— en „samhliða þróun“ (þ.e.
alger aðskilnaður hvítra
manna og annarra kynþátta)
væri eina leiðin, einnig að því
er varðaði fólk af blönduðum
stofni.
Þeir, sem vildu veita þessu
fólki sérstöðu, væru að ryðja
veginn til blöndunar og sam-
einingar allra kynþátta, sagði
Verwoerd.
gegn öðrum, gráir fyrir járn
um — og borgin sé sem púð-
urtunna.
★ MJÖG /ESTIR
Pascal Kapella, vara-upplýs-
ingamálaráðherra í stjórnar-
nefnd Mobutus ofursta, sagði í
dag, að kóngóskir hermenn
væru „mjög æstir“ vegna falls
foringja síns. Ættu foringjar
fullt í fangi með að hafa hemil
á mönnum sínum, og ef stjórnin
brygðist, gæti dregið til stór-
átaka í borginni. — Nkolo var
yfirstjómandi í Leopoldville-
herbúðunum, og hafa hermenn-
irnir nú skírt búðirnar upp eft-
ir honum og nefna þær Nkolo-
herbúðirnar. — Kapella upp-
lýsti og í dag, að enn hefði
fundizt lík eins Kongóhermanns,
sem fallið hefði í átökunum sl.
mánudag, en fjórir voru jarð-
settir í gær. Enn er þriggja
saknað.
★ MOBUTU TÓK
í TAUMANA
í gærkvöldi tókst Mobutu
ofursta að stöðva mótmæla-
göngu, sem lögð var af stað til
höfuðstöðva SÞ í Leopoldville,
en í henni tóku þátt mörg
hundruð manns. Kapella sagði,
að Mobutu hefði tekið í taum-
ana vegna þess, að hann væri
sér þess meðvitandi, að ástæðan
til ólgunnar í borginni væri
fyrst og fremst nærvera Ghana-
hermanna í liði SÞ — ekki
stjórn SÞ sem slík.
— ★ —
Á meðan á þessu hefur geng-
ið, hefur verið byrjað að flytja
Ghanamenn brott úr borginni,
en stjórn Ghana hefur mælt svo
fyrir, að allir þegnar hennar,
bæði hermenn og almennir borg
arar, skuli hverfa þaðan á brott,
í öryggisskyni.
IJm 100 særðust
í óeirðum í IMýju Delhi
NÝJU DELHI, 24. nóv. (NTB/
Reuter) — Áttatiu og sex lög-
reglumenn og um 25 aðrir særð-
ust í dag, þegar til átaka kom
milli lögreglunnar og fólks af
Sikha trúflokknum fyrir utan
þinghúsið hér. Seint í kvöld til-
kynnti lögreglan, að 61 af sikh-
unum hefði verið handtekinn í
sambandi við óeirðir þessar.
★
Hundruð lögreglumanna vörp-
uðu táragassprengjum að sihk-
unum við þinghúsið, og barst gas
ið inn í húsið, svo að þingmönn-
um súrnaði einnig í augum.
★
Sikharinn, sem teljast til hins
herskáa „Álkaliflokks", gerðu
árás á lögregluna með grjótkasti,
þegar hún afgirti þinghúsið. —
Með göngunni að þinghúsinu
voru sikharnir að leggja áherzlu
á kröfur þær, sem þeir hafa haft
uppi um 5 mánaða skeið, að stofn
að verði sérstakt ríki þeirra er
tala punjabmál á Indlandi.