Morgunblaðið - 25.11.1960, Blaðsíða 24
tþróttir
eru á bls. 22.
SUS-síðan
^ Sjá bls. 14
271. tbl. — Föstudagur 25. nóvember 1960
IViorðmenn kvarta
undan Rússum á
fslandsmiðum
Álasundi, 24. nóv. — (NTB)
OM þessar mundir eru óvenju-
lega mörg rússnesk skip á síld-
armiðunum austur af íslandi, að
sögn norskra síldveiðimanna,
sem komnir eru heim til Ála-
sunds af íslandsmiðum. Telja
þeir, að þar hafi verið nokkur
hundruð rússneskra skipa —
jafnvel allt að þvi þúsund, að
sumra sögn. Auk bátanna, voru
þarna einnig allmargir rússnesk-
Ir togarar, sem allir voru á síld-
veiðum.
Hinn mikli skipafjöldi gerði
•:• •;* •:* *i* *i* •:• vv v•> •;* <• %• v<* *:• <
>í Burnesja
vegur
hafinn
> I DA G verður hafin vinnaX
»við hinn nýja Suðurnesjavegf
»við Hvaleyrarholt sunnan<
»Hafnarfjarðar. Verður unnið^
f'að undirstöðulagningu vegar-
|ins í ve'.ur, en næsta veturf
ístanda vonir til þess, að hægtZ
Iverði að steypa fyrstu 10 kíló-^
X metrana.
Eins og skýrt var frá í blað|>
íinu í gær, á vegurinn að‘
Higgja nær sjónum en fyrir
íhugað var milli Hafnarf jarðar^
íog Straums. Styttir það leið
Hna um 60 metra slétta, en<
íundirstaðan mun verð:
tnokkru dýrari. Var það álil
|bæði vegamála- og flugmála<
ístjórnar, að ekki mætti úti-|>
|loka þann mögsileika, að flugf
ývöllur kæmi einhvern tíma í<
^Kapelluhrauni, þótt ekkert sé^
í>enn um slíkt ákveðið.
norsku reknetabátunum erfitt
fyrir — og raunar var það af
þessum sökum, að þeir urðu að
hætta veiðum og halda heim,
án þess að þeir hefðu fengið
fullfermi. — Þar sem svo mörg
skip voru á miðunum, var ekki
unnt að koma í veg fyrir, að
netin ræki saman — og hafa
norskir bátar misst nokkuð af
netum af þeim sökum.
Á Ekki ný bóla, segir Land-
helgisgæzlan
Blaðið bar fregn þessa undir
Pétur Sigurðsson, forstjóra Land
helgisgæzlunnar, og kvað hann
þáð rétt vera, að nokkur hundr-
uð sovézkra skipa myndu halda
sig í hafinu milli Færeyja, fs-
lands og Noregs. Hins vegar væri
þetta ekki ný bóla; Sovétríkin
hefðu haldið úti stómm flotum
fiskiskipa á þessum slóðum um
mörg undanfarin ár, a.m.k. um
átta ára skeið. Myndu sjaldnast
vera þar færri en 300 skip, —
móðurskip, reknetaskip og smá-
togarar, allt árið um kring, enda
myndu Rússar vera orðnir lang-
mesta fiskveiðiþjóð í Norðurhöf-
um.
Jón Sig
Hflmar
Pétur
Sigfús
Kristján
Ólafur
Jón H.
Sigurður
Stjórnarkosning í Sjómanna-
félagi Reykjavíkur hefst í dag
KOSNING til stjórnar Sjó-
mannafélags Reykjavíkur hefst í
dag kl. 13. Kosið er í skrifstofu
félagsins daglega eins og nánar
er greint frá í auglýsingu hér í
blaðinu í dag.
Tveir listar eru í kjöri. A-listi,
lýðræðissinna, borinn fram af
fráfarandi stjórn og trúnaðar-
mannaráði, og B-listi, kommún-
ista, sem þeir kalla lista „starf-
andi sjómanna".
Verða
búnir
Narfi og Víkingur
hraðfrystitœkjum ?
ÞAÐ færist nú mjög í vöxt er-
lendis, að togarar séu búnir hrað
frystitækjum, svo að hægt sé að
frysta fiskinn glænýjan um borð.
Kröfur neytenda hafa aukizt svo
mjög á síðustu árum, að ísfisk-
ur þykir ekki boðlegur, ef fisk-
ur, sem hraðf^ystur hefur verið
nýr, er á boðstólum.
Blaðið hefur frétt, að eigendur
Narfa hafi hug á að afla sér
slíkra tækja, og hafði því tal af
framkvæmdastjóra togarans,
Guðmund Jörundssyni í gær-
kvöldi.
Utvarpsumræður
um landhelgina í kvöld
I KVÖLD verður útvarpað
umræðum um landhelgismál-
ið, sem fram fara í sameinuðu
Alþingi. Hefur hver stjórn
Brynjólfur Stef-
ánsson látinn
í GÆR lézt hér í bænum, á
heimili sínu, Brynjólfur Stefáns-
son, fyrrum forstjóri Sjóvátrygg
ingarfélags íslands, Marargötu
3, 64 ára að aldri.
Brynjólfur Stefánsson, sem
var tryggingafræðingur að
menntun, réðist til Sjóvá árið
1927, að loknu námi. Hann varð
forstjóri þess 1933 og gegndi
því starfi í tæplega 25 ár. Hann
var einn af þeim, sem vann að
stofnun Tryggingarstofnunar rík
isins og veitti henni forstöðu
um skeið. Stjórnarformaður
Tryg 'ofnunarinnar var
hann u,.. .angt skeið. í byrjun
stríðsins vann hann að stofnun
Stríðstry ggingafélags íslenzkra
skipshafna, sem nú heitir ís-
lenzk endurtrygging.
Brynjólfur átti við vanheilsu
að stríða síðustu árin. — Hann
lætur eftir sig tvo uppkomna
syni.
málaflokkur 45 mín. til um-
ráða og verða tvær umferðir.
Hefjast umræðurnar kl. 8
stundvíslega.
Dregið hefur verið um röð
flokkanna og verður hún
þessi: Framsóknarflokkur, Al-
þýðubandalag, Sjálfstæðis-
flokkur, Alþýðuflokkur.
Af hálfu Framsóknarflokks
ins tala Hermann Jónasson og
Eysteinn Jónsson. Af hálfn
Alþýðubandalagsins Finnbogi
R. Valdimarsson og Lúðvík
Jósepsson. Af hálfu Sjálfstæð
isflokksins Bjarni Benedikts-
son, dómsmálaráðherra, og af
hálfu Alþýðuflokksins Guð-
mundur í. Guðmundsson, ut-
anríkisráðherra.
Aukin eftirspurn neytenda
Hann kvað aukna eftirspurn
vera alls staðar í heiminum eft-
ir fiski, sem hraðfrystur hefur
verið úti á miðum. Hvarvetna
legðu fisksöluhringar hina mestu
áherzlu á að koma vörunni sem
nýjastri á markaðinn. T. d. hefði
Unilever, sem kaupir um 70%
af öllum ferskum fiski, er á land
berst í Bretlandi, nú þegar lok-
að mörgum búðum sínum, og ætl
unin væri að loka fleiri, því að
fiskur, sem geymdur hefur verið
í ís, þykir ekki lengur nógu góð-
ur handa neytendum. Ætla þeir
framvegis að leggja höfuðáherzlu
á sölu hraðfrysts fisks, og munu
í því sambandi gerbreyta dreif-
ingarfyrirkomulagi sínu.
Margir kostir
Guðmundur Jörundsson hefur
kynnt sér erlendis nýjungar á
þessu sviði að undanförnu. Kvað
hann öruggan markað fyrir tog-
ara, sem búnir eru hraðfrysti-
tækjum, um þessar mundir.
Þetta fyrirkomulag hefði einnig
marga kosti í för með sér. Tog-
ararnir gætu sótt fjarlæg mið á
vissum árstímum og lagt aflann
upp, þar sem bezt hentaði hverju
sinni. Hefði hann af þeim ástæð-
um m. a. kynnt sér markaðinn
í Miðjarðarhafslöndum og víðar
í þessu skyni. Fiskurinn yrði
sennilega venjulega þveginn og
slægður, áður en hann færi í
frystingu, en fleiri vinnsluað
ferðir kæmu einnig til greina.
Með því að búa togara hrað-
frystitækjum, væri líka unninn
bugur á hinu látlausa stríði við
tímann ,þegar siglt væri með
ferskan fisk. Miklu máli skipti
og að togarinn gæti farið með
aflann beint í hendur kaupenda
án tafa og milliliða.
Fær Narfi slík tæki?
Guðmundur hefur athugað í
Þýzkalandi, hvort unnt væri að
setja slík tæki í Narfa, og hafa
sérfræðingar tjáð honum, að
Narfi væri ágætt skip til þess,
og tæknilega væri ekkert því til
fyrirstöðu. Hefur Guðmundur í
athugun tilboð frá framieiðend-
um slíkra tækja, með það fyrir
augum, að þau yrðu sett í Narfa.
Einnig í Víking?
Þá mun einnig vera í athugun
að setja slík tæki um borð í Vík-
ing, hinn nýja togara Akurnes-
inga. Hafa eigendur skipsins
leitað sér tilboða í þessu skyni.
A-listinn er skipaður mönnum,
sem eru vel þekktir meðal sjó-
manna fyrir félagsstarfsemi sína
og hagsmunabaráttu i þágu sjó-
manna.
Sjómenn! Hrindið árás komm-
únista á félag ykkar. Kjósið sem
fyrst á skrifstofu félagsins. Kjós-
ið A-listann!
Frambjóðendur A-listans, lista
lýðræðissinna, eru \Jaessir:
Formaður: Jón Sigurðsson.
Varaform.: Hilmar Jónsson.
Ritari: Pétur Sigurðsson.
Gjaldkeri: Sigfús Bjarnason.
Varagjaldk.: Kristján Guðm.ss.
Meðstj.: Ólafur Sigurðsson og
Karl E. Karlsson .
Varamenn: Jón Helgason, Sig-
urður Sigurðsson, Þor-
björn D. Þorbjörnsson.
Bráðkvaddur
í strætisvagni
í GÆRDAG varð aldraður mað-
ur bráðkvaddur í strætisvagni
á sunnanverðum Langholtsveg-
inum. Hné hann örendur niður
skömmu eftir að hann var kom-
inn inn í vagninn. Maður þessi
var Loftur Loftsson, fyrrum út-
gerðarmaður í Sandgerði, nú til
heimilis að Skeiðarvogi 76. —
Loftur var 76 ára að aldri.
Viðræður
ast að
hefj
nýju
ALÞÝÐUBLAÐIÐ skýrði frá
því í gær, að Guðmundur í.
Guðmundsson, utanríkisráð-
herra, hefði upplýst á flokks-
fundi daginn áður að viðræð
urnar við Breta um land-
helgina myndu hefjast að
nýju fyrir mánaðamótin.
Utanríkisráðuneytið stað-
festi þetta í gær, en sagði, að
ekki væri enn búið að
ákveða 'hvaða dag viðræð-
urnar hæfust eða hvort þær
yrðu í Reykjavík eða Lund-
únum.
Hálfu kolatonni stolið 80 km. frá byggð
YFIR 200 km vegalengd er
inn í Landmannalaugar frá
Reykjavík og frá efsta bæ i
Landsveit, að sæluhúsinu sem
Ferðafélagið á þar eru um 80
km. Samt sem áður hefur ein-
hverja langað svo í hálft tonn
af kolum, að þeir hafa hirt
kolabirgðir Ferðafélagsins í
sæluhúsinu og haft þær brott
með sér.
Þetta hefur gerzt um miðj-
an september, og kemur sér
ákaflega illa fyrir Ferðafélag-
ig, sem neyddist til að kaupa
aftur bíl með kol inn eftir um
síðustu helgi, svo að ferða-
menn mættu ylja sér í sælu-
húsinu. En vegna vatns í Jök-
ulkvísl og aurbleytu á leið-
inni upp að skálanum er
venjulega ekki hægt að kom-
ast að honum með bíl fyrr en
komið er fram á sumar. Hafa
einhverjir ferðalangar launað
illa næturgreiðann í þessu
ágæta sætuhúsi, sem öllum
stendur opið.
Ekki eru mikil brögð að því
að hnuplað sé úr sæluhúsum
ferðafélagsins, þó rýrnar það
sem húsunum ,‘ylgir talsvert
og matarílátum og eldurnar-
tækjum fækkar stundum.