Morgunblaðið - 25.11.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.11.1960, Blaðsíða 2
2 MORGUNfíT AÐIÐ Föstudagur 25. nóv. 1960 Kominn til oð sam- eina - ekki sundra — sagði hinn nýi fulltrúi Frakklands- stjórnar við komuna til Alsir ALGEIRSBORG, 24. nóv. (Reut- er) — Hinn nýi fulltrúi frönsku stjórnarinnar í Alsír, Jean Mor- in, kom til Algeirsborgar í dag. Miklar öryggisráðstafanir voru viðhafðar, einkum er hann kom opinberlega fram og lagði blóm- sveig að styrjaldarminnismerk- inu í borginni. Lokaði lögreglan þá algerlega nærliggjandi göt- um, en úr fjarlaegð mátti heyra hróp ýmsra franskra landncma: „Alsír er franskt!" Þegar Morin hafði ’formlega verið settur inn í embætti sitt, sagði hann: „Ég er hingað kom- inn til þess að sameina, — ekki til að sundra. Til þess að færa nýja von — ekki að vekja ótta. Ég er kominn til þess að vinna að sigri nýs Alsírs, fullviss um björt örlög þess, í traustu sam- bandi við Frakkland. Innan fárra daga fer einnig hinn nýskipaði Alsír-ráðáherra, Louis Joxe, til landsins — og á grundvelli skýrslu hans um för sína, mun de Gaulle forseti á- kveða, hvort hann lætur verða af för þeirri til Alsír, sem hann hefir hálft í hvoru ráðgert fyrri- hluta desember. Brennan og börnin Gluggaskotið í íbúð Davison-hjónanna. Masonítplata, máluð í sama lit og gólf og veggir, er sett fyrir framan gluggann, og bak við hann er kornið fyrir tveimur fluorecent-ljósum og tveimur Hóskösturum. — UM kl. 21.45 í gærkvöldi kveiktu^ strákar af prakkaraskap í bál- kesti inn við Ásgarð í Sogamýri. ItICSScIÖ á Bessa- I *ós og blóm inn í skammdegið þessir menn: Prófessor Niels Dungal, dr. Björn Jónsson, læknir, Erlingur Guðmunds- son, verkfræðingur, dr. Sig- urður Sigurðsson, landlæknir og Aðalsteinn Guðjohnseo, verkfræðingur. Nefndin hefur einkum fjall- að um stærð og fyrirkomu- lag glugga í búðum, einkum um lífeðlisÆræðileg og sál- fræðileg áhrif þeirra. Hún hefur einnig rætt um fyrir- komulag raflýsingar og æski lega birtu á ýmsum stöðum á heimilum. ★ Mr. Davison hefur þá trú, að íslendingar séu næmari fyrir sálrænum áhrifum sól- arljóss en flestar aðrar þjóð- ir. Hann tehir, að með blóm- um og vel gerðri raflýsingu megi gera íslenzk heimili ennþá ánægjulegri en þau Til að kanna þetta af eigin raun, lét hann skreyta glngga útskot í íbúð sinni með hin- um fjölbreytilegustu plöntum og kom þar fyrir góðri lýs- ingu með um það bil 400 watta Ijósperum, sem lýsa upp um tvo fermetra svæðis. Ringelberg kom blómunum fyrir en Aðalsteinn Guðjohn sen réði tilhögun lýsingar- innar. Kostnaðurinn við gluggaútskotið var fyrir inn- an 1000,00 krónur. BLAD4MONNUM var nýlega boðið að skoða Ijósaútbúnað á heimili herra Robert Dav- ison byggingarmálasérfræð- ings, að Skaftahlíð 16. Mr. Davison hefur siarfað hér síðan í febrúar sl. á vegum Rannsóknarráðs ríkisins og starf hans hefur aðallega ver- ið fólgið í því að kanna leiðir til að byggja megi hér á landi sem hagkvæmastar íbúðir. án þess að kostnaður verði meiri en nauðsyn krefur. Mr. Davison hefur þó látið aðra þætti byggingarmála til sín taka; einkum hefur sér- staða íslendinga varðandi stuttan sólargang á vetrurn og skortur á sólskini vakið áhuga hans á lýsingu á is lenzkum heimilum. Því hefur hann komið á fót nefnd manna til að vera honum til ráðuneytis um lýsingu á heim ilum og eiga sæti í nefnJinni Mr. Robert Davison sagði, að sér hefði hugkvæmzt að fá leigðan sýningarglugga í bænum til að sýna fólki fram á, að með ljósum og blómum er hægt að færa sólbjarta náttúruna inn á heimilin á löngum skammdegiskvöldum. Sérstök ástæða væri til að gera heimilin líflegrf bjartari og hlýlegri á veturna en nú er almennt gert. Góð lýsing á plöntunum ylli því, að þær þrifust betur, þær gæfu heim- ilinu friskan og líflegri blæog færa ferskleik og grózku nátt úrunnar inn á heimilin, ef svo mætti segja. Höfðu börn við Réttarholtsveg, Ásgarð og Tunguveg safnað i þennan bálköst, með það fyrir augum að halda mikla áramóta- brennu, eins og um síðustu ára- skipti. Þá var haldin stór brenna á sama stað, sem tókst mjöig glæsilega, enda vakti hún mik- inn fögnuð og sérstaklega meðal yngri kynslóðarinnar, eins og nærri má geta. Var þá dansað og sungið umhverfis brennuna, þegar nýja árið reið í garð. Undanfarið hafa börn á sömu slóðum unnið af miklum dugn- aði og áhuga við að efna að sér í köstinn, enda var hann orðinn viðamikill og virtist ekki ætla að verða síðri hinum fyrri. Ekki fékk sú dýrð þó lengi í friði að standa, því að eins og fyrr segir var kveikt í kestinum í gærkvöldi af ein- hverjum pörupiltum. Var þetta mikil brenna, en meiri var þó sorgin hjá bömunum, sem hvergi höfðu hlíft sér, þegar þau voru að viða að sér. Sáu þau erfiði sitt fuðra í loft upp fimm vikum fyrr en skyldi. Við skulum vona, að börnunum tak- ist að hlaða nýjan köst, sem fái að vera í friði fram að ára- mótum. stöðum með sér- stæðum hætti Á SUNNUDAGINN kemur, 27. nóvember, verður messað í Bessastaðakirkju kl. 2 e. h. með nokkuð sérstökum hætti. Messa þessi fylgir hinu fyllsta formi „Grallarans“, sem var messubók kirkju vorrar um tvö hundruð og fimmtíu ár. Tón allt í messunni verður hið fornkirkjulega, sem kennt er við Gregóríus og hefur verið ríkjandi í messu vesturkirkjunn- ar síðan á sjöttu öld. Hér á landi var það notað allt frá kristnitöku til 1860 þegar Guð- jónsen organisti gaf út sitt nýja tón. Sálmasöngurinn verður i stíl 16., 18. og 19. aldar, sum- part einraddaður og sumpart kórsöngur. Kirkjukór Selfoss- kirkju annast sönginn undir stjórn Guðmundar ■ Gilssonar organista. Messuna syngja sr. Sigurður Pálsson frá Hraungerði, sr. Arn- grímur Jónsson í Odda og sr. Guðmundur Ó. Ólafsson á Torfa stöðum. Biskupinn, herra Sigurbjörn Einarsson, lýkur messunni og ávarpar aöfnuðinn. Gegn öfgamönn- um Tokió, 24. nóv. (Reuter) í DAG var stofnuð hér ný hreyf- ing stúdenta, sem ætlað er að vinna gegn hinu fjölmenna, vinstrisinnaða sambandi stúd- enta, „Zengakuren". og beitingu ofbeldis til að koma fram mál- um, hvórt sem þair eiga hlút að máli hægri- eðá vinstrisinnar. Um 2.500 stúdentar tóku þátt i stofnfundinum, en félagið telur Dagskrá Alþingis Í-DAG eru boðaðir fundir í báð- um deildum Alþingis á venjir- legum tíma. Á dagskrá efri deild ar er eitt mál, en tuttugu mál á dagskrá neðri deildar. Klukkan 20 i kvöld verður svo settur fundur í sameinuðu þingi Og útvarpað einni umræðu um þingsályktunartiliögu um land- helgismál. áhangendur sína a. m. k. tíu sinnum fleiri. Hið nýja samband neínist „Mingakuren" (Samband lýðræðissinnaðra stúdentafé- laga). Segja forráðamenn þess, að það muni ástunda hlutleysi í stjórnmálúm. „Zengakuren“-sambandið, sem telur sér um 280.000 félagsmenn, kom mjög við sögu í götuóeirðum þeim í sumar, sem leiddu til þeSs að Eisenhower Bandaríkjaforseti hætti við för sína til Japans. Týndir í 11 tíma TVEIR litlir drengir á Fram- nesVéginúm, fímm og sex ara bræður, fóru að heiman frá sér kl. 10 í gærmorgun. Þeirra var sáknað, er líða tók á dag- inn, en fundust hvergi í ná- grenninu. Var lögreglunni til- kynnt hvarfið, og auglýst eft- ir þeim í útvarpinu. Brátt fréttist, að þeir hefðu verið að flækjast fram og tii baka í strætisvögnum um daginn, allt fram undir kl. 7. Um níu- leytið litu þeir inn á veitinga , staðinn í Austurstræti, og skömmu síðar tók lögreglan þá sínar vörzlur og kom I þeim heim til s*n. Kvikmyndasýning Germaníu Á MORGUN, laugardag, verður kvikmyndasýning á vegum fé- lagsins Germania í Nýja bíói, hin síðasta fyrir áramótin. — Sýndar verða að venju frétta- og fræðslumyndir. Fréttamyhdimar, sem sýndar verða, eru frá síðastliðnu sumri og hausti. m. a. frá Vestur- Beríín, nýbyggingum þar og skipulagningu, sem risið hafa upp úr rústunum, er stríðið skíldi eftir. Fræðslumyndirnar verða tvær. Er önnur frá sumarbúðum ka- þólskra ungmenna, Burg Feuer- stein, • þar sem márgt er haft fyrir stafni, m. a. svifflug. Hin fræðslumyndin er einkar ný- stárleg, tekin í brúðuleikhúsi, þar sem brúðurnar dansa ballett, dauðadansinn, af einstakri list. Sýningin hefát kl. 2 e. h., og er öllum heimill aðgangur, börn- um þó einungis í fylgd með fullorðnum. FILMUR, FRAMKÖLLUN KOPERING FÓTOFIX, Vesturveri (H /S hnútar SVSOhnútar H SnfHcmt » Úði V S/úr ir ft Þrumur V.trmii ^ . Kuktatkii Hitatki't H Hmt L Lmai ENN ríkir sama góðviðrið hér á landi. Úm hádegið í gær híjóðaði veðurlýsingu í sím- svaranum á Reykjavíkurflug- velli þannig: „Klukkan 11 var austan- og norðaustanátt hér á landi, við- ast 3—5 vindstig. Vestanlands var léttskýjað, en sums staðar skúrir á Austurlandi. Hiti var milli 0—6 stig á láglendi, 3ja stiga frost í Möðrudal." Ékki er nú harkan mikil. Og líkt þessu hefur veðrið verið nær allan þennan mán- uð. Veðurspáin kl. 10 í gærkv.: SV-land til Breiðafj. og SV- mið til Breiðafj. miða: NA- kaldi, léttskýjað, hitastig ná- lægt frostmarki. Vestfirðir, Norðurland og miðin: Austan kaldi og bjart- viðri fram eftir nóttu, NA- stinningskaldi á morgun og víða dálítil él. NA-land, Austfirðir og NA- mið til SA-miða: NA stinnings kaldi, smáskúrir eða slydduél. SA-land: NA kaldi, léttskýj- að vestan til.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.