Morgunblaðið - 25.11.1960, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.11.1960, Blaðsíða 20
20 Ifnrfs'rm i> r A fí 1Ð Postudagur 25. nóv. 1960 voru dauf og fólk sötraði kampa Vín liggjandi á lágum legubekkj um allt umhverfið var sérlega rómantiskt. Jean Pierre fór með mig þang að, við dönsuðum saman, og hann þrýsti hendinni ofurlítið á bak ið á mér og lagði hnéð að lærinu á mér og ég var í sæluvímu. Nú voru Edouard og La Baule orðin heldur betur fjarlæg. — Madem oiselle Barrymore, sagði Aumont, — ég verð því miður að fara snemma til vinnu í fyrramáiið. Má ég ekki fylgja yður heim núna Eg hefði með ánægju dansað alla nóttina. Eg var orðin afskap leg heimsmanneskja! — Jú, auð vitað, svaraði ég. — Eg skil þetta vel. Þið hafið auðvitað sams konar vinnutíma hér eins og við í Hollywood! Við lyftuna í forstofunni í gisti húsinu mínu, kyssti hann mig á kinnina. — Góða nótt, elskan, sagði hann í gælutón, og augun full af loforðum. Eg þaut upp í lyftunni, eins og ég svifi í skýi. Daginn eftir hringdi Cobina Wright yngri mig upp. — Cob- ina! sagði ég. — Bíddu bara þang að til þú ert búin að sjá nýjasta skotið mitt. Cobina var komin frá London fyrir tveim dögum. Þú ættir að bíða þangað til þú sérð mitt! svaraði hún. Seinna um daginn dró ég hana í sama kvikmyndahúsið og ég hafði verið daginn áður með Bollu. Þegar Jean Pierre kom fram á tjaldið, greip ég í hand- legginn á Cobinu. — Þarna er hann! sagði ég og næstum vældi. — Er hann ekki það fallegasta, sem þú hefur nokkurntíma séð? Cobina var furðanlega ,cöld fyr ir þessu. — Bíddu bara þangað til fréttamyndin kemur, svaraði hún, dularfullri rödd, — þá skaltu sjá minn! Svo lauk myndinni, og frétta myndin kom í staðinn. II Duce ávarpaði mikinn manngrúa. Hitl er öskraði á þúsundamergð í Ber- lín. Við ' hosrfðum á herflokk Tékka þramma yfir Súdeta-landa mærin. Loks kom mynd af evrópsku kóngafólki, sem hittist . í London. Cobina greip í hand legginn á mér. — Þarna er hann! sagði hún æst. Það var Filippus prins af Grikklandi, sem síðar átti að verða hertoginn af Edin- borg. — Ó, Cobina! sagði ég með öndina í hálsinum. — Virkilega? Copina skríkti. — Við erum skotin hvort í öðru, sagði hún. Eg ætla aftur til Englands með mömmu og Filip æltar að hitta mig á stöðinni. Er hann ekki mesti draumur, sem þú hefur séð? Jean Pierre Aumont leitaði mig ekki uppi aftur. En ég hafði lítinn tíma til að súta það, þvi að tveim dögum seinna hringdi mamma mig upp frá New York. — Komdu strax heim, sagði hún. — Louis Bromfield er nýbúinn að ráðleggj a mér að ná þér burt úr Evrópu — hann er viss um, að það verði stríð og Þjóðverjar muni taka París. Komdu strax heim, Diana! Ef þú færð ekki far, þá leigðu herskip, en komdu um fram allt heim! — Hvaða vitleysa getur verið í þér, kisa gamla! Það er hægðar leikur að fá far á skipi. Svo fór um við að undirbúa ferðina og fengum loks far á Champlain, sem átti að fara seinna í vik- unni. Við hringdum til La Baule og aflýstum avö'l okkar þar, sem varð til þess, að kvöldið eftir kom Edouard, frá sér numinn af sorg, í gistihúsið til okkar. Bolla bannaði mér að fara ein út með honum. Hann gæti heimsótt mig í gistihúsinu. Þegar hún vildi vera inni meðan Edouard bæri upp bónorð sitt, þaut ég upp. — Nei, Bolla! Hér má hann að minnsta kosti tala við mig í einrúmi. Eg skal gæta dyggðar minnar. Bolla roðnaði og dró sig í hlé. Skilnaðurinn við lestina var endurtekning á samskonar at- burði í La Baule — kossar, kveðj ur og innileg loforð á báðar hlið ar, og Bolla stóð og horfði á, eins og illa gerður hlutur. Edou- ard var einbeittur. — Þetta er þá aUt ákveðið. Það bíður þín bréf, þegar þú kemur heim; ég ætla að skrifa á hverjum degi. Og þú ætlar að skrifa mér, elsk an mín? — Já, auðvitað geri ég það, elskan. — Og hvað heldurðu, að ung- frú Strange segi spurði hann, því að nú náðu áhyggjurnar hjá honum vestur um Atlantshaf. í leigubílnum á leiðinni heim, afgreiddi mamma Edouard — og þetta sumarskot mitt — með því að veifa hendi. — Þetta er ekki annað en vitleysa, Diana. Þú ert alltof ung. Það verðuf að kynna þig, eins og búið er að undirbúa, og ég vil að þú hittir þá einhverja góða unga menn. Ameríska menn. Hún kveykti sér í vind- lingi. — Eg viLdi alls ekki láta þig giftast Evrópumanni, kisa mán. Þeir eru alveg ómögulegir eiginmenn. Þessi greifi þinn fer upp í til vinnukonunnar aðra nóttina, sem þið eruð gift! IX. Eg tók vígslu mína til sam- kvæmislífsins á þessum fjörugu og áhyggjulausu dögum, rétt fyr ir ófriðinn. Þetta voru miklir dagar, með fullar pyngjur og mikið skemmtanalíf, þar sem samkvæmislífið á veitingahúsun- irm átti sinn blómatíma. Kreppan var af staðin og heimsstyrjöldin síðari enn ókomin. Desember 1938 — mánuðurinn þegar ég var formlega 'tekin inn í samkvæmis- lífið, — hafði til síns ágætis það sem eitt blaðið kallaði „stærsta, rakasta, vitlausasta og‘ kátasta vetur, sem komið hafði síðan ó- hófsveturinn 1929“, Peningamir flóðu um allt, fólk var kæru- laust, og hugsaði ekki um annað en skemmtanir. Og þar var ég fremst í flokki. Nú var ég ekki lengur yfirsæta íklædd forneskjubúningunum, sem mamma fann upp handa mér, heldur var ég ein af eftirsóttustu „nýliðunum", sem Cholly Knick erbocker skrifaði, að væri eftir- íektarverðust í þeim hópi, þetta árið. Oholly hét réttu nafni Maury H. B. Paul, og var af fínni ætt, og vissi því gjörla mörkin milli ó- svikna aðalsins og kaffihúsaaðals ins, og allir sem voru í Höfðingja skránni litu á dálkinn hans í blað inu sínu, áður en þeir lit.u á for- síðuna. Þennan vetur 1938—39, kaus hann Brendu Frazier sem glæsi legasta nýliðann það árið. Brenda sem hafði verið þessi óskapa feita bolla í skólanum, var nú orðin stórfalleg stúlka með tæran litar hátt og stór svört augu, en munn urinn var eins og blóðugt sár. Eg var hins vegar persónulegust eða eftirtektarverðust hjá honum og stóð hinni ekki nema lltillega að baki. Já, það var dásamlegt. Mér þótti vænt um að heyra þennan vitnisburð — ég, þessi óstýrláta og hálfvitlausa dóttir Johns Barrymore og hinnar hágáfuðu, óútreiknanlegu Miohael Strange. Og nú var að kafna ekki undir þessu öilu saman. Ef aðrar stúlk ur komu með einn dansherra, kom ég með fjóra. Það gat vel komið fyrir, að allt að því sex strákar úr sama skólanum byðu mér á dansleik — og þá þá ég ölil boðiin. Eg vildi gjarna mæta með heilan herskara tilbiðj enda. Svo, fáum dögum fyrir dansleikinn, hringdi ég kannske til tveggja eða þriggja þeirra og sagði, að mér þætti leitt, að ég gæti ekki farið með þeim. Þá var auðvitað of seint fyrir þá að ná í aðra dömu, svo að þeir urðu annaðhvort að koma einir síns liðs, eða þá með einhverja óvalda dömu, sem mér stóð engin hætta af. Svo þegar hinir, sem ég hefði ekki hringt í, mættu heima hjá mér, hver í sínu lagi, urðu þeir heldur betur kindarlegir, þegar fleiri komu í sömu erindum, og svo fór ég með þeim öllum og allir-höfðu eða þóttust hafa gam an af tiltækinu. Þannig gat ég gefið blaðamönnunum tilefni til að skrifa um mig: — Hún er um kringd karlmömnum hvar sem hún fer. Eg var margföld í roðinu. En var það ekki einmitt ættarein- kenni, hvort heldur leitað var í Oelrichættinni eða Barrymore- ættinni? Það var til þess ætlazt af mér og ég vildi ekki bregðast neinum. Eg fór í þrjú og fjögur samkvæmi á einu og sama kvöldi. Eg varð aldrei þreytt, og var við ekkert hrædd annað en það að mér annaðhvort leiddist sjálfri eða gerði aðra leiða á mér. „Leið- inlegur" var Ijótasta orð, sem ég þekkti. Það virtist helzt ekki neitt vera til, sem ég gæti ekki komizt upp með, ef ég lét sem það væri í gamni gert. Eg drakk súpu gegn um strá í Plaza, kom í veitinga- þjónsjakka í Colony, skaut af káldið og mamma litla — Alltaf er það eins! Þegar mað- .... en þegar maður hringir í vit- .... getur það aldrei verið á tali. ur hringir í rétt númer, þá er það Iaust númer, þá .... alltaf á tali .... — Farðu og náðu í Jóa! Farðu Andy .... farðu! A meðan. — Það var naumast að tá’- beitan sem Markús skar út var ^rrc-ooi Rlakely!? — Það er nú meira! Vilt þú taka mynd af mér með þessari ljósmyndavél Jói? — Sjálfsagt! — Heyrðu, hvers vegna Andy svona æstur? er I tómri skammbyssu í Féfés Monte Carlo. Eg hafði uppgötvað það, að karlmönnum leiddist öll form festa og skikkanlegheit. Einnig hafði ég uppgötvað afbrýðisemi hjá öðrum stúlkum, vegna þess að ég daðraði feimnis- og misk- unarlaust. Eg vildi allstaðar vera miðdepill samkvæmisins, og helzta aðdráttaraflið. Svo fannst mér fólk beinlínis ætlast til þess af mér, og ekki efaðist ég um, að ég sjálf ætlaðist til þess sama. Þarna var erfðavenja og nafn og jafnvel sérvizka, sem ég varð sóma míns vegna að halda uppi. Og blaðaúrklippurnar frá sam kvæmisblaðsnapunum urðu að heilli hrúgu. Mér fannst það snið ugt þegar ég las eftirfarandi; „Það eru tveir flokkar um Diönu. Annar segir, að hún sé stúlka, sem geti íundið upp á því að sparka í fótleggina á húsmóður- inni, og segja að sér leiðist, og svo hinn, sem segir, að hún sé bara elskulegt og ófeimið barn, sem þykir gaman að lifa“. Mér var eiginlega nokkurnveginn sama, hvað skrifað var. Eg tók hnúturnar með hrósinu. Já, þetta var æðisgenginn og áhyggjulaus tími! Allir kepptust um að skemmta sér sem mest. Sjálfri fannst mér ég vera heimsmanneskja. Fátt kom mér á óvart. Aðeins einstöku sinnum hryllti mig. Eitt kvöld var ég boðin til kvöldverðar hjá afskap lega fínum gimsteinasala, sem Raoul hét — það er gervinafn. Hann hafði boðið mér áður en ég alltaf afþakkað. Hann hafði á sér kvensemisorð. —Jæja, kannske þú viljir koma núna sagði hann. — Eg hef boðið honum .... Svo nefndi hann frægan kvikmynda leikara, sem ég hafði séð þegar ég var krakki. Mér var um og ó, en mamma sagði, að ég mætti fara. Hún þekkti heiðursgestinn. Raoul tók á móti mér — elsku legur eins og endranær, og kynnti- mig nokkuð rosknum, grá •v. gHtltvarpið Föstudagur 25. nóvember 8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón- leikar. — 8,30 Fréttir. — 8.40 Tónleikar. — 9.10 Veðurfregnir. — 9.20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir og tilkynningar). 13.15 Lesin dagskrá næstu viku. 13.30 „Við vinnuna“: Tónleikar. 15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (15.00 Fréttir. — 16.00 Fréttir og veð- urfregnir). 18.00 Börnin heimsækja framandi þjóð ir: Guðmundur M. Þorlákssson segir frá Eskimó”*'- * norður. slóðum. 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Þingfréttir. — Tónleikar. 18.50 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. Útvarp frá umræöum á Alþingi. Laugardagur 26. nóvember 8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón- leikar. — 8,30 Fréttir. — 8.40 Tónleikar. — 9.10 Veðurfregnir. — 9.20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir og tilkynningar). 13.00 Oskalög sjúklinga (Bryndís Sig- urjónsdóttir). 14.30 Laugardagslögin. — (15.00 Fréttir). 15.20 Skákþáttur (Baldur Möller). 16.00 Fréttir og veðurfregnir. 16.05 Bridgeþáttur (Hallur Símonar- son). 16.30 Danskennsla (Heiðar Astvalds- son). 17.00 Lög unga fólksins (Guðrún Svaf arsdóttir og Kristrún Eymunds, dóttir). 18.00 Utvarpssaga barnanna: „A flótta og flugi“, eftir Ragnar Jóhann- esson; XI. (Höfundur les). 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Tómstundaþáttur barna og ung- linga. (Jón Pálsson). 18.50 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Tónleikar: „Taras Bulba“, rapsó, día fyrir hljómsveit eftir Leo Janácek (Pro Musica sinfóníu, hljómsveitin í Vínarborg#leikur; Jascha Horenstein stj.). 20.30 Leikrit: „Eigi má sköpun renna" (Mourning Becomes Electra), þrí leikur eftir Eugene O’Neill; þriðji hluti: „Skuld“ (The Haun, ted). Þýðandi: Arni Guðnason magister. — Leikstjóri: Gísli Halldórsson. Leikendur: Helga Bachmann, Helgi Skúlason, Guð- mundur Pálsson, Kristbjörg Kjeld, Lárus Pálsson o. fl. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 „Ur skemmtanalífinu'* (Jónae Jónasson). 22.40 Danslög. 24.00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.