Morgunblaðið - 07.12.1960, Qupperneq 5
Miðviktldagur 7. des. 1960
MORCjnvrtr JÐIÐ
5
EINS óg sagt var frá í blöð-
unum, fór Kristín Þorvalds-
dóttir til London, í byrjun
nóvember, til þess að taka fyr
ir íslands hönd þátt í „Miss
World“ keppninni, sem haldin
er þar árlega. Kristín er nú
komin heim aftur og átti
fréttamaður blaðsins tal við
hana fyrir nokkru.
— Hvernig þótti þér að
taka þátt í keppninni?
— Mér fannst það reglulega
skemmtilegt. Undirbúningur
keppninnar stóð í viku og var
aðallega verið að æfa okkur
í að ganga á palli þeim er við
áttum að koma fram á úrslita-
kvöldið. Einnig var farið með
okkur um borgina og okkur
var sýnt það helzta t.d. þing-
húsið og ótalmargt fleira, auk
þess voru haldnar margar í-
burðarmiklar veizlur fyrir
okkur.
— Bjugguð þið allar á sama
stað meðan á þessu stóð?
— Já, okkur var gætt mjög
vel og fengum ekki að hreyfa
okkur án þess að vakað væri
yfir hverju spori. Ein fullorð-
in kona var alltaf með sex
stúlkna hóp og án hennar
máttum við ekkert fara.
— Og úrslitakvöldið?
— Við vorum eðlilega nokk
uð taugaóstyrkar, en allt fór
þetta ágætlega fram. Ungfrú
Argentína hreppti efsta sætið,
en mér fannst og ég held ég
megi segja flestum öðrum,
ungfrú Brazilía ætti það
miklu fremur skilið, en dóm-
nefndin hafði kveðið upp úr-
skurð sinn og honum var auð-
vitað ekki þokað.
— Fékkstu einhver tilboð?
— Já, meðal annars eitt
mjög glæsilegt, um að gerast
sýningarstúlka hjá stóru fata-
fyrirtæki og voru 100 & viku
launin og er það mjög glæsi-
legt, en sá galli var á gjöf
Njarðar, að ef ég hefði tekið
því var ég bundin í fimm ár,
þannig hljóðaði samningur-
inn. Mér fannst þetta allt of
langur tími og hafnaði þvi V ~
tilboðinu.
Hvað hefurðu hugsað þér
að gera í framtíðinni?
— Það er svo til alveg óráð-
ið. Ég lauk prófi í hárgreiðslu
nú í haust og í vor hef ég
hugsað mér að fara utan vil
náms, en er ekki búin að á-
kveða hvað ég mun leggja
stund á.
H.f. Elmskipafélag ísland: — Brú-
arfoss er í Kristiansand. — Dettifoss
er í Rotterdam. — Fjallfoss fer frá
Raufarhöfn í dag til Norðfjarðar. —
Goðafoss er á leið til N.Y. — Gullfoss
fór frá Kaupmh. í gær til Leith og
Rvikur. — Lagarfoss er i Hull. —
Reykjafoss kom til Rvíkur i morgun.
skipið kemur að bryggju um kl. 10. —
Selfoss er í Rvík. — Tröllafoss er á
leið til Cork. — Tungufoss er í Gauta-
borg.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f. —
Kaíta hefur væntanlega farið í gær-
kvöldi frá Keflavík áleiðis til Patreks-
fjarðar. — Askja er í Livorno.
H.f. Jöklar: — Langjökull fór í gær
frá Akureyri áleiðis tii Gdynia. —
Vatnajökull er á leið til Grimsby.
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla fór
frá Rvík í gær austur um land í hring
ferð. — Esja fer frá Rvík á morgun
vestur um land í hringferð. — Herj-
ólfur fer frá Rvík kl. 22 í kvöld til
Vestmannaeyja. — Heröubreið kom
til Rvíkur i morgun frá Vestmanna-
eyjum.
Hafskip h.f.: — Laxá er í Rvík.
Skipadeiid SÍS: — Hvassafell er á
leið til Rvíkur. — Amarfell er í Rvik.
— Jökulfell er i Grimsby. — Dísarfell
er í Hamborg. — Litlafell er á Aust-
f jarðahöfnum. — Helgafell er á
Vopnafirði. — Hamrafell er í Hafnar-
firði.
— Hver er þessi svínfeiti mað-
ur þarna?
— Það er Sörensen verksmiðju
eigandi. En hver haldið þér að
ég sé?
— Ég veit ekki.
— Konan hans.
— Og hver haldið þér að ég
sé?
— Það veit ég sannarlega ekki.
— Hvílík heppni. Verið þér
sælar, frú.
★
— Ég hafði einu sinni dverg í
vinnu hjá mér. Það var nú sann-
kallaður dvergur. Þegar hann
fékk líkþorn á tærnar, hélt hann
að hann væri með höfuðverk.
★
Hún: — Einu sinni sagðir þú,
að ég væri þér allur h<^nurinn.
Hann: — Ég hef lært mikið í
landafræði síðan.
★
— Hefurðu heyrt þá nýjustu
um Skotann? Hann var svo nízk
ur að hann tók orð sín aftur.
★
Innheimtumaðurinn — Er
pabbi þinn heima?
— Nei.
— En mamma þín?
— Nei, hún er líka í klæða-
skápnum.
Loftleiðir h.f.: — Leifur Eiríksson
er væntanl. frá N.Y. kl. 08:30, fer til
Stafangurs, Gautaborgar, Kaupmh. og
Hamborgar kl. 10:00.
Fiugfélag íslands h.f.: — Millilanda-
flug: Hrímfaxi fer til Glasgow og
Kaupmh. kl. 08:30 í dag. Væntanlegur
aftur kl. 16:20 á morgun. — Innan-
landsflug í dag: Til Akureyrar, Húsa-
víkur, Isafjarðar og Vestmannaeyja.
.— A morgun: Til Akureyrar (2 ferðir),
Egilsstaða, Kópaskers, Patreksfjarðar,
Vestmannaeyja og Þórshafnar.
Söfnin
Listasafn Einars Jónssonar verður
lokað um óákveðinn tíma.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er
opið þriðjud., fimmtud og sunnud. frá
kl. 13,30—16.
Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla
úni 2. Opið daglega kl. 2—4 c.h. nema
nánudaga.
Bæjarbókasafn Reykjavíkur sími 12308
Aðalsafnið, Þingholtsstræti 29 A.
tlán: Opið 2—10, nema laugardaga
2—7 og sunnudaga 5—7. Lesstofa:
Opin 10—10, nema laugardaga 10—7
og sunnudaga 2—7.
Útibúið Hólmgarði 34:
Opið alla virka daga 5—7.
Útibúið Hofsvallagötu 16:
Opið alla virka daga 17.30—19.30.
Listasafn Ríkisins er lokað um ó-
ákveöinn tíma.
Þjóðminjasafnið: — Opið sunnudaga
kl. 1—4 þriðjudaga. fimmtudaga og
(augardaga kl 1—3
AMERÍSKUR PRÖFESSOR óskar eftir að leigja piano, fyrir dóttur sína, fram í júní eða borga fyrir að- stöðu til æfinga, helzt sem næst Rauðalæk. —
SENOIBÍLASTÖÐIN Sími 15780.
Sem ný stálhúsgögn til sölu að Sigtúni 35, kjall ara eftir kl. 5 í dag. 2 Verzlunarskó'astúlkur röskar og ábyggilegar óska eftir vinnu í jólafríinu. — Tilb. sendist Mbi. merkt: „Röskar — 1410“
Pels úr bísamskinni, % sidd, til sölu odýrt. Uppl. í srnia 17297. Slúlka óskast annað hvert ltvöld frá kl. 6,30—11,30 við uppþvott og aðstoð í eldhúsi. Björninn Njálsgötu 49
Pússningasandur Góður — ódýr. Sími 50230. A T H U G I Ð að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu sn í öðrum blöðum. —
Húitveliimgar Reykjavík
Munið spilákvöldið að Lidó, annað kvöld kl. 20,30
Sleppið ekki þessu tækifæri til að hljóta heildar-
verðlaunin. — Vegleg kvöldverðlaun.
Chiquita Loperz og Brenda Rowe
skemmta með dans og söng.
Húnvetningafélagið.
IMýlenduvöruverzlun
Vefnaðarvö'ruverzlun
Nýlenduvöruverzlun ásamt húsnæði í nýju hverfi er
til sölu. Ennfremur vefnaðarvöruverzlun á. góðum
stað. Uppl. ekki gefnar í síma.
BALDVIN JÓNSSON, HRL.,
Austurstræti 12.
Eldhúsinmréttingar
Smíða eldhúsinnréttingar og svefnherbergisskápa.
Hagstætt verð.
Trésmiðja ÓSKARS JÓNSSONAR
Rauðalæk 21 — Sími 32328.
Pípulagningarmenn
Frœðsluerindi
Pétur Pálsson verkfræðingur flytur fræðsluerindi í salar-
kynnum Iðnaðarmálastofnunar íslands, nýja Iðnskólan-
um kl. 9 e.h. miðvikudaginn 7. des.
Félag pípulagningameistara.
NÁMSKEIÐ
Sölumðistöðvar Hraðfrystihúsanna í fisk-
vinnslu hefst í samkomusal Hamars h.f.,
Hamarshúsinu við Tryggvagötu kl. 10 f.h.
fimmtudaginn 8. desember.
Verkleg kennsla fer fram í Hraðfrysti-
stöðinni við Grandgarð.
SÖLUMIRSTÖÐ
HRAÐFRYSTIHÚSANNA.