Morgunblaðið - 07.12.1960, Blaðsíða 8
8
MORCinsrtl 4 ÐIÐ
Miðvikudagur 7. des. 1960
Ritaði manna
mest og bezt
FYRIR skömmu lézt í París
bandaríski rithöfundurinn Ric
hard Wright, einn af gáfuð-
ustu og róttækustu fulltrúum
þeirra negrabókmennta, sem.
komið hafa fram í Bandaríkj-
unum síðan um aldamót.
Fyrsta bók hans var „Native
Son“. Hún er á borð við „Þrúg
ur reiðinnar" eftir Steinbeck
í sínu innilega ákalli og sið-
ferðilegri alvöru. Bókin kom
út 1940 og var skömmu seinna
samið upp úr -henni leikrit,
sem vakti mikla athygli.
Söguþráðurinn, sem er
skrifaður í beinum og stutt-
orðum stíl, er oft magnast og
býr þá yfir ljóðrænum krafti,
greinir frá Bigger Thomas,
ungum negra, sem lifir með
fjölskyldu sinni í fátækt í
South Side-hverfinu í Chic-
ago. Bigger hefur hvað eftir
annað átt í útistöðum við lpg-
regluna og efnamaðurinn
Dalton geri hann að einkabíl-
stjóra fjölskyldu sinnar, í
þeim tilgangi að hjálpa hon-
um að komast aftur á réttan
kjöl. Hjá Daltonfjölskyldunni
fær Bigger tækifæri til að
kynnast og umgangast hvíta
fólkið í borginni. En innra
með honum býr sífellt eitt-
hvert eirðarleysi. Hann þráir
að lifa frjálsara og skemmti-
legra lífi, en á ekki í sér fram
taksemi til að aðhafast neitt.
Þó Daltonfjölskyldan sé vin-
gjarnleg við hann og komi
vel fram við hann, þá er hann
fjandsamlegur gagnvart henni
og finnst sér misboðið. Undir
niðri er hann ósættanlegur
fjandmaður Daltonfólksins.
Þegar Bigger verður þess
svo valdandi, vegna óheppi-
legra tilviljana og án þess að
ætla sér það, að ein dóttir
Daltons deyr, þá verður hann
alveg frá sér af hræðslu.
Raunveruleikinn hverfur hon
um og sá heimur sem hann nú
lifir í, er allur genginn úr
skorðum. Hann getur ekki
séð sjálfan sig og það sem
hann hefur gert, í réttu ljósi.
Hann gerir örvæntingarfullar
tilraunir til að fela slóð sína
og leggur á fjarstæðukennd
ráð um hefnd og aftur hefnd.
Síðasti hluti skáldsögunnar
fjallar um Bigger, þegar hann
er ákærður fyrir morð. Gyð-
ingurinn Mr. Max tekur að
sér að verja hann, þó hann
hætti með því sínum góða
orðstír sem málafærslumaður.
Max tekst ekki að bjarga
Bigger, en honum tekst þó að
fá negrann til að trúa því að
lífið hafi þrátt fyrir allt sinn
tilgang og að hann standi ekki
Richard Wright
áhrifaríkan hátt sinni eigin
æsku og unglingsárum á ein-
hverjum fátækasta bletti Suð
urrikjanna, þar sem hann
fæddist árið 1908. Faðir hans
flæktist um og vann í verk-
smiðjum og hann yfirgaf fjöl-
skyldu sína þegar Wright var
lítill drengur. í bókinni lýsir
hann árunum áður en hann
hélt út í' heiminn, til Chicago
og New York, þar sem hann
lifði af hverri þeirri vinnu
sem til féll.
Fyrri hluti bókarinnar
Svertingjadrengurinn var
þýddur á íslenzku og gefinn
út hjá Máli og menningu, en
seinni hlutinn hefur aldrei
komið út. Þegar Wright sagði
skilið við kommúnismann,
eftir að hann komst að raun
um að sá flokkur vildi negr-
unum það eitt að nota þá sér
til framdráttar, skrifaði hann
um uppgjör sitt við þá steínu
í bókinni „Guðúin sem brást“.
Séreinkenni Wrights eru
einkum hreinskilin og sterk
lýsing á viðhorfi nútímanegr-
ans til stöðu sinnar í þjóðfél-
aginu. Helzt lýsir hann tilfinn
ingum einfaldra sálna, -sem
ekki hafa neina sérstaka
menntun, en hafa smitazt af
um svertingja í Bandaríkjunum
eín-n upp í baráttu sinni og
þjáningum.
Andleg viðbrögð
einstaklingsins
Sjálfsagt telur Wright Bigg-
er ekki einkennandi fulltrúa
hinna þeldökku í Bandaríkj-
unum. Þau andlegu viðbrögð,
sem hann lýsir svo sterkt,
gætu alveg eins verið duldir
andlegir árekstrar sem brjót-
ast út með þessum hætti hjá
hvaða manneskju sem er. Því
af orðum höfundarins má
marka að uppreisn Biggers er
af sama .toga spunnin og allra
þeirra sem með ranglæti eru
hindraðir í að fá tækifæri til
að njóta hæfileika sinna. En
auðvitað er mismunandi hve
djúpt slíkar tilfinningar eru
grafnar í undirvitund ein-
staklinganna, í hve ríkum
mæli þetta er bætt upp með
öðrum tilfinningum og hve
vel tekst að hafa hemil á
þessu. Viðbrögð Biggers og
endalok hans eru áminning til
okkar um að ekki er um ann-
að að ræða gagnvart tillits-
lausum ofsa en skynsamleg og
ákveðin þjóðfélagsskipan,
sem byggð er á lögmálum rétt
lætis.
Sagði skilið við
kommúnismann
Næsta bók Wrights „The
Outsider" fjallar líka um
negra, Cross Dannon, sem les-
andinn hittir fyrst fyrir þar
sem hann er á leið heim úr
vinnu í pósthúsinu í Chicago.
Eins og í „Native Son“ leitar
höfundurinn einnig að til-
gangi í lífinu, en byggir frek-
ar á heimspekilegum en þjóð-
félagslegum grundvelli. Erfið-
leikar Dannons eru flestir
þessi hversdagslegu vanda-
mál, og bókin er ein af fyrstu
existentialistísku skáldsögun-
um eftir Ameríkumann. í sög
unni kemst Dannon -í slagtog
með kommúnistum en slítur
tengslin við þá að lokum, eins
og Wright gerði sjálfur- árið
1944. f rauninni er bókin ár-
angurinn af leit rithöfundar-
ins sjálfs að nýjum lífsviðhorf
um og nýjum skoðunum sem
geti komið í staðinn fyrir
marxistísku kenningarnar, er
hann varpaði frá sér.
í bókinni Sve.rtingjadreng-
urinn eða „Black Boy“, sem
út kom 1945, lýsir Wright á
þeim demokratiska anda, sem
sífellt grípur meira um sig og
eru því fullir af innri spennu.
Bækur Wrights hafa afiað
honum stórs lesendahóps,
bæði meðal hvítra og svartra,
þrátt fyrir það að hann gagn
rýnir hvíta manninn miskunn
arlausar en nokkur annar
negrarithöfundur hefur hing-
að til gert. Vinsældir hans
sýna gæði skáldverka hans og
einnig það, að Bandaríkja-
menn beina nú mjög hug sín-
um að öllu því sem varðar
kynþáttavandamálið.
Hálfa öld á höfum úri
IÚT ER komin í annarri útgáfu
bókin „Hálfa öld á höfum úti“,
I eftir G. J. Whitfield.
Bók þessi hefir verið mjög
j vinsæl meðal unnenda sjóferða-
^duQÍýóendur !
Athugið
Auglýsingar, sem birtast eiga
í jólablaðinu, þurfa að hafa borr
izt auglýsingaskrifstofunni, sem
allra fyrst, og í síðasta lagi fyrir
n.k. laugardag 10. þessa mán-
aðar.
Sími 22480.
Pionite
Pionite haröplast ei auövelt aö set.ia
á borö, skápa og veggl. Pionite er
varanlegt efni seœ þolir hverskonar
bletu. cigarettu - bruna ofl. Uefir
margra ára reynslu hér á landi sem g*öa
vara. Pionlte er þrátt fyrir alla pessa
kosti eítt édýrasta haröplastlö sem vbl
er 6 i dag.
Umboöspenn
ARNAKHVOLL umb. 4 helldverv.lun
P.0. Box 1283, Reykjavík
Síðasta málverkauppboð ársins verður haldið í Sjálfstæðishúsinu
þriðjud. 13. des. — Listaverkin verða til sýnis mánudag og þriðjudag
til kl. 4. Vinsamlegast hringið strax, ef þér viljið selja listaverk á þessu
uppboði.
Listmunauppboð Sigurðar Benediktssonar Austurstræti 12 sími 13715
sagna og hlaut ágæta dóma blaða
gagnrýnenda er hún kom út hér
á landi í fyrstu útgáfu.
Bókin segir frá ævintýrum
skipherra er rekur það sem frá-
sagnaverðast er úr ævi hans sem
sjóm|inns bæði á seglskipum og
gufuskipum. Mörgum mun finn-
ast ævintýraljóminn meiri yfir
frásögnum hans af sjóferðunum
á seglskipunum, en bera þær
keim meiri hreysti og karl-
mennsku.
Engum þarf að leiðast er þessa
bók les, því ekki skortir ævintýr-
in og spennu í frásögnina.
Bókin er 240 síður að stærð,
sett á fremur smátt letur. Er
hún smekklega frágengin, gefin
út af Bókaforlagi Odds Björns-
sonar.
Málverkasvning
í Hveragerði
HVERAGERÐI, 29. nóv. — Síðast
liðinn laugardag öpnaði Höskuld-
ur Björnsson málverkasýningu í
Skátaheimilinu í Hveragerði, og
eru um 50 myndir á sýningunni,
olíu- og vatnslitamyndir. Um 150
manns hafa sótt sýninguna, og 16
myndir selzt. Mest ber á lands-
lags- og dýramyndum. Ber sýn-
ingin vandvirkni og snyrti-
mennsku Höskulds, vitni. Síðast
hélt Höskuldur sýningu á Sel-
fossi 1956.
Ekki er afráðið, hve sýningin
stendur lengi, en sennilega verð-
ur hún opin fram að helgi.
— Georg.
Permanent, lagning, litun
Stangarholti 18
Sími 17116