Morgunblaðið - 17.12.1960, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 17.12.1960, Qupperneq 8
8 M O H V L) /V H I 4010 Laugardagur 17. des. 1960 REIV1ll\iGT0l\l rakvéiin Veitir hreinni og betri rakstur Fæst á eftirtöldum stöðum: Reykjavík: Pennaviðgerðin, Vonarstr. 4. P & O, Herradeild Austurstræti 14. Andersen & Lauth, Laugavegi 39. Andersen & Lauth, Vesturgötu 17 Ljós h.f., Laugavegi 20. Remedía, Austurstræti 6 V.G.K., Kjörgarði Véla- og Raftækjaverzlunin Bankastræti 10 Akranesi: Helgi Júlíusson, úrsmiður Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 62 Viðgerðir og varahluta- birgðir: Pennaviðgerðin, Vonarstr. 4 Heildsölubjrgðir: ORKA h.f. Remington er fljótvirkasta rakvélin Remington hefur stærri skurðflöt en nokkur rakvél. Remington losar yður við fyrirhöfn við sápu og heitt vatn. Remington veitir yður ánægju við raksturinn Remington nafnið tryggir gæðin REMINBTON rakvélin er tilvalin jólagjöf. Laugavegi 178 Reykjavík Ferdinand Rauter og Engel Lund ,,/s/enzA jbjóðlög // 35 jb/óð/ög / nótnabók og sungin á plötu af Engel Lund KOMIN er út á vegum Almenna bókaféiagsins 35 íslenzk þjóð- lög í nótnabók og sungin á plötu af hinni víðkunnu söngkonu Engel Lund. Bókin nefnist Islenzk þjóðlög og er aukabók Almenna bóka- félagsins. Engel Lund hefur sjálf valið lögin og ritar greinargerð með hverju þeirra, en dr. Ferdi- nand Rauter, samstarfsmaður hennar í þrjá áratugi, hefur út- sett lögin og leikur undir söng hennar. Upptakan var gerð hjá Ríkisútvarpinu, en platan er unnin hjá His Masters Voice fyrir milligöngu Fálkans hf. DÝRGRIPIR. Sum þessara laga formæðra okkar og forfeðra eru í hópi allra fegurstu sönglaga, sem til eru — sannkallaðir dýrgripir, sem við getum verið stolt af. í túlkun þessara miklu listamanna sóma' þau sér vel meðal söngelsks fólks, hvar sem er á hnettinum. Engel Lund er einn frægasti þjóðlaga- söngvari heims. AJls staðar, þar sem hún hefur sungið, hefur hún sigrað, hvort sem það hefur ver- ið í höfuðborgum sönglistarinnar eins og Vínarborg, eða litlum bæjum. Hún hefur sungið þjóðlög frá mörgum löndum og alltaf á frúmmálinu, sautján tungumál- um alls. En hvar sem hún hefur sungið og þrátt fyrir hið mikla úrval þjóðlaga, sem hún hefur haft á söngskrám sínum, hefur hún aldrei haldið svo konsert, að hún syngi ekki einhver Gyð- ingalög og einhver íslenzk lög, en við lög þessara tveggja þjóða hefur hún tekið mestu ástfóstri. Hefur túlkun hennar á íslenzkum lögum vakið þvílíka athygli, að hún hefur oft verið nefnd erlend is „hin fræga íslenzka söngkona". Enda hefur hún ekki gleymt að geta þess, þegar hún hefur kynnt hin íslenzku lög, að hún sé borin og barnfædd á Islandi. Er óhætt að segja, að með hinum frábæru kynningum sínum á íslenzkum þjóðlögum bæði hér heima og er- lendis, hefur hún unnið starf, seiti Islendingar fá henni aldrei fullþakkað. Með útgáfu þessarar nótnabók ar og hljómplötu vill Almenna bókafélagið stuðla að því að Is- lendingar kynnist hinum fögru þjóðlögum sínum og læri þau. Norski stjórnmála maðurinn Horns- rud látinn OSLÓ, 13. des. (Reuter) — Jafn- aðarmannaleiðtoginn Christ- offer Hornsrud, sem var fyrsti forsætisráðherra Jafnaðarmanna flokksins, lézt hér í borg í dag, 101 árs að aldri. Hornsrud myndaði ríkisstjórn sína eftir kosningarnar 1927, og tók hún við völdum í janúar 1928. Stjórnin varð þó har.a skammlíf, því að stjórnarand- staðan felldi hana eftir aðeins 17 daga setu. — Hornsrud sat í bæj arráði Oslóar (Kristianíu) árin 1902— 1909 og átti sæti á Stór- þinginu 1912—1930, forseti þess 1928—1930. Hann var formaður norska verkamannaflokksins 1903— 1906. Þá var hann ritstjóri blaðsins „Fremtiden“, banka- stjóri um tíma — og fleira mætti telja. ★ ★ Þess má geta hér, að Christ- offer Hornsrud sótti Alþingis- hásíðina árið 1930. Vakti hann athygli manna á hátiðinni — þótti aðsópsmikill og gjörvileg- i ur maður. MACHINOEXPORT býður allar gerðir af krönum og vélskófl- um, bæði á beltum og gúmmíhjólum, svo og dráttar- vélar með ýtublaði og mokstursútbúnaði. Nokkur tæki hafa þegar verið keypt til landsins og eru væntanleg á næstu mánuðum. Allar upp- lýsingar fúslega veittar. Bilreíðar og landbúnaðarvélar hf. V[0 „MACHINOEXPORT" Brautarholti 20, Reykjavík. — Sími 19345 — Símnefni: Autoimport. Smolenskaya Pl., 32/34 M O S O W, G-200

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.