Morgunblaðið - 18.12.1960, Page 2
p
2
MORCUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 18. des. 1960
*
Alþingi;
áfengt öl
veröi leyft hér
— Bjórfrumvarp lagt fram af
Pélri Sigurðssyni t gær
Á ALÞINGI var í gær lagt
fram frumvarp um að veitt
verði heimild til að leyfa
hér á landi framleiðslu öls,
sem hefur inni að halda allt
að 3j/2% af vínanda að rúm-
máli, til sölu innanlands og
til útflutnings.
Frumvarpið var lagt fram í
Neðri deild og er Pétur Sigurðs-
son flutningsmaður þess. Allýtar
leg greinargerð fylgir frumvarp-
inu og er þar færður fram ýmis
rökstuðningur með því, að leyfa
beri tilbúnings slíks öls.
Og þó veikt
I upphafi greinargerðarinnar
er drepið á það, að í gildandi ís-
lenzkum lögum sé áfengi skil-
greint sem vökvi, er hafi meira
af vínanda er nemi 2*4 að rúm-
máli. Létt teljist þau vín er hafi
minna áfengismagn en 21% en
sterk vín er meira innihalda.
Ö1 með 314% styrkleika, sem hér
sé lagt til að ríkisstj órninni verði
veitt heimild til að leyfa fram-
leiðslu á, sé talið mjög veikt
meðal þjóða er hafa öl á boð-
stólum. Það njóti hins vegar mik
illa vinsælda meðal flestra menn
ingarþjóða, sem telji, að sterkt
geti öl ekki kallast, fyrr en styrk-
leiki þess sé orðinn 4*4%—6%
eða þar yfir.
I sambandi við meðferð og
sölu hins áfenga öls hér, segist
flutningsmaður að athuguðu
máli telja, að heppilegast yrði
að sala ölsins færi aðeins fram
á stöðum, sem vínveitingaleyfi
hafa, og á vegum Afengisverzl-
unar ríkisins.
Ósamræmi í löggjöfinni
Flutningsmaður telur, að i
áfengislöggjöfinni verði að vera
samræmi, eins og í öðrum lög-
um. Hann telur, að það sé meira
en lítið misræmi í því að leyfa
sölu á eldsterku brennivíni, en
banna sölu á veiku öli — á þeirri
forsendu, að verið sé að vinna
gegn áfengisbölinu.
Við slíkar röksemdir hljóti að
▼akna sú spurning, hvort þeir
fulltrúar á löggjafarþinginu, sem
fylgi núverandi framkvæmd
mála, séu sjálfum sér samkvaem
ir, er þeir láti hjá líða að beita
sér fyrir algeru banni á sölu
sterkra vína, fyrst bruggun og
sala á öli, veikasta stigi áfengis,
sé sá bölvaldur, er sömu aðilar
telji vera.
Astæðan hljóti að vera sú, að
þeir telji slíkt bann með öllu
óframkvæmanlegt í nútímaþjóð
félagi, baeðí þar sem almenning-
ur mundi þá taka upp bruggun
og eins vegna þeirra tekna, sem
ríkissjóður hafi nú af áfengis-
sölu og mundi án hennar ekki
njóta.
Óheppilegt ástand
l>á lýsir þingmaðurinn yfir
þeirri skoðun sinni, að við nú-
verandi aðstæður í bjórmálum
hljóti að vera mikið um leyni-
bruggun öls. Auk þess bendi sú
staðreynd, að ölgerð sú, er n-ú
framleiðir megnið af öli og pilsn-
er í landinu, hafi ekki þurft að
flytja inn eina einustu tóma
flösku síðan 1956 og þó tappað
á 4 milljónir flaskna sl. ár, til
þess að mikið magn af tilbúnu
öli hljóti að koma til landsins.
Um baráttu þá, er háð hefur
verið með og gegn bruggun
áfengs öls hér á landi, segir
Pétur Sigurðsson m. a.:
„Meginröksemdir þeirra, sem
vilja leyfa bruggun og sölu á á-
fengu öli, og þeirra, sem því eru
andvígir, eru varðandi þau áhrif,
er slíkt muni hafa á drykkjuskap
þjóðarinnar í heild. Þeir, sem öl
vilja, telja, að sala á áfengu öli
geti að nokkru leyti bætt úr því
öngþveiti, sem hér ríkir í áfeng-
ismálum, og breyti á ýmsan hátt
til hins betra drykkjarósiðum,
sem hér rikja. Hinir telja, að sala
á öli muni stórauka drykkjuskap,
sérstaklega meðal unglinga, og
enn fremur — eftir því sem
ákveðinn hópur heldur fram —
meðal verkamanna.
Hæpnar fullyrðingar
Hvað síðustu fullyrðinguna
varðar má benda á, að í því til-
liti hafa verið dregnar mjög
hæpnar og vafasamar ályktanir
frá ákveðnum stöðum í nágranna
löndum okkar, sem frekar styðj-
ast við óskhyggju bannmanna,
en raunveruleikann sjálfan. Og
auðvitað ber að mótmæla harð-
lega þeim móðgunum, sem í
þessu felast í garð þessarar stétt-
ar, því að vitaskuld er henni sízt
Framh. á bls. 23.
Uppreisnin í Etíópíu
brotin á bak aftur
Addis Abába, 17. des. (Reuter)
ALLAR fréttir benda nú til
þess, að uppreisnin í Etíópíu
hafi verið bæld niður.
í dögun í morgun hóf flug-
her landsins loftárás á aðal-
bækistöð uppreisnarmanna í
bækistöðvum keisaralífvarð-
arins. Þá var hafin skothríð
úr fallbyssum á önnur bæli
uppreisnarmanna í borginni.
Sagt er að síðasta virki
uppreisnarmanna, sjálf keis-
arahöllin, hafi fallið um há-
degi í dag.
Ilandteknir eða á flótta
Svo virðist sem allir helztu
forsprakkar uppreisnarmanna
hafi ýmist verið handteknir eða
reknir á flótta. Meðal annars
hefur aðalforingi uppreisnar-
manna, Mangistu hershöfðingi,
komizt undan.
Útvarpið í Addis Ababa segir
að uppreisnarmenn hafi sleppt
krónprinsi landsins úr haldi og
sé hann heill á húfi. Hann átti
et gan þátt í uppreisnarsamsær-
ir.u, en uppreisnarmenn höfðu
hcndtekið hann og látið sem
hann vaeri einn þeirra.
\ Norðlæg átt og kólnandi veð
) ur er í aðsigi. — Lægðin
s norður a£ íslandi þokast axxst
| ur eftir, en í kjölfar hennar
S kemur norðlægur loftstraum
| ur frá Grænlandi. Á djúpmið
\ um út af Vestfjörðum er vind
S ur orðinn allhvass NA með 1
1 st. frosti. Annnars er fremur
| hæg SV-átt hér á landi og 2
\ —3 st. hiti eins og kortið ber
i með sér.
) Ný lægð, allmikil er yfir
\ Nova-Scotia, og er sennilegt
X að hún valdi hér suðlægri átt
S eftir helgina.
S
\ Veðurspáin í gærkvöldi.
X SV-Iand og SV-mið: Al.1-
S hvass vestan og síðar hvass
NV, víðast bjartvirði, en élja x
veður vestan til. i
Faxaflói, Breiðafjörður og •
miðin. Allhvass NV og snjó- x
koma í nótt en léttir til með x
hvassri norðan átt í fyrramál 1
ið, lægir annað kvöld. \
Vestfirðir og Vestfjarða- x
mið: Norðan hvassviðri, snjó )
koma. •
Norðurland og norðurmið: (
Hvass norðan og snjókoma x
með nóttinni. I
NA-land, Austfirðir og mið ■
in: Hægviðri og víðast létt- \
skýjað fram eftir nóttu en X
hvass norðan og snjókoma á )
morgun. ;
SA-land og SA-mið: Hæg- x
viðri í nótt en allhvass NV á )
morgun, bjartviðrL ;
Jólasöngvar
í hátíðasal Sjó-
mannaskólans
Á FJÓRÐA sunnudag í aðventu
hefur undanfarin ár verið efnt
til jólasöngva í Hátíðasal Sjó-
mannaskólans. Verður svo einn
ig í dag kl. 2. Sr. Jón Þorvarðs-
son flytur ávarp. Barnaflokkar
syngja undir stjórn Guðrúnar
Þorsteinsdóttur og Guðný Guð
mundsdóttir (12 ára) leikur á
fiðlu. Allir eru velkomnir.
Fallegir kransar
í Blóm og Ávextir
I DAG hefur Blóm & Avextir
til sýnis í gluggum sínum í Hafa
arstræti þrjá fallega og óvenju-
lega kransa til skreytingar á
heimilum. Eru þeir gerðir vestur
í Bandaríkjunum og hafa vakið
athygli fyrir smekkvísi og hug-
kvæmni, jafnvel í stórborginni
Boston. Það er frú Bima Mann,
dóttir Hendriks Berndsens í
Blómum og Avöxtum, sem gert
hefur þessa kransa. Hún hefur
áðixr getið sér orð þar vestra,
þar sem hún hefur verið búsett
í 15 ár, fyrir listrænt handbragð
®----------------:------*
Blekkingar stjórnarandstæt-
inga um sparifjármyndunina
Úr ræðu Jóhanns Hafstein
V I Ð umræðurnar um efna-
hagsmálin í Neðri deild í
fyrrinótt varpaði Jóhann
Hafstein m .a. skýru ljósi á
blekkingar stjórnarandstæð-
inga um sparif járaukning-
unina á þessu ári, en hún
hefur, sem kunnugt er, verið
nokkru meiri en bæði árið
1958 og 1959 — eða 11,5%
— þó að stjórnarandstæðing-
ar hafi ekki látið sig muna
um að staðhæfa, að hún væri
nú aðeins helmingur af því
scm hún var árið 1958.
í ræðu sinni benti Jóhann Haf-
stein á það, að stjórnarandstæð-
ingar rökstyddu þessa fullyrð-
ingu sína með þeirri röngu að-
ferð, að blanda saman í eitt spari
innlögum og veltuinnlánum í
bönkum og sparisjóðum, sem
væru alveg sitt hvað.
Staðreyndir málsins
Um þetta komst ræðumaður
m.a. svo að orði:
„Ef tölurnar, sem notaðar eru,
eiga að sýna an-nað hvort minnk-
un eða vöxt spariinnlaga, þá verð
ur að nota spari-
innlánin ein og
tölurnar, s e m
segja til um þau.
Ef við tökum
spariinnlánin frá
októberlokum til
októberloka 1958
1959 og 1960, þá
verður niðurstað
an þessi: Spari-
innlögin hafa vaxið frá 1957—
1958 um 110,4 millj. kr. í bönk-
unum eða 10,5%, frá 1958—1959
um 158,7 millj. kr. eða 15,4%,
en frá október 1959 og til' októ-
berloka 1960 um 18,3%, og þá
segja þessar tölur ekki, að spari-
fjárinnlögin séu nær helmingi
minni á þessu ári en árið 1958,
heldur er sparifjáraukningin frá
okt. 1959 til okt. loka 1960 57,5%
meiri heldur en aukning spari-
fjársins frá októberlokum 1957
til októberlokt 1958. — í spari-
sjóðunum lítur þetta öðru vísi út,
því að þar er hlutfallsleg minnk-
un á spariinnlögunum miðað við
árin á undan. Hlutfallstölurnar
eru 20,4% 1957—’58, næsta ár
24% og 12% frá 1959—,60“. Ekki
kvaðst ræðumaður telja neitt ó-
líklegt, að það væri rétt, að á-
kvörðun Seðlabankans um að
binda helming sparifjáraukning-
arinnar hefði sín áhrif í þessu
efni. Mundu þær reglur, sem um
þetta hefðu verið látnar gilda,
nú vera í athugun.
Ankning veltuinnlánanna
í framhaldi af þessu sagði Jó-
hann Hafstein:
„En þá komum við að hinu,
að þegar innlögin í heild, veltu-
innlán og spariinnlán, eru lögð
saman, þá koma hins vegar fram
þær niðurstöður, sem í nefndar-
áliti eru birtar og sem hv. þm.
(Skúli Guðmundsson) fór með í
sinni ræðu. Þar kemur fram þessi
mynd, sem athyglisvert er að líta
á sérstaklega, að veltuinnlánin
eða innlán á hlaupareikningi,
aukast í bönkunum frá 1957—’58
um 202 millj. kr. eða 44,7%,
1958—1959 um 167,4 millj. eða
25,5%, en 1959—1960 um 67,9
millj. eða ekki nema 8,2%. Og
það er þessi litla aukning á
hlaupareikningsinnlánunum og
veltuinnlánunum, sem leiðir til
þeirrar niðurstöðu, sem hv. þm.
fær, þegar hann tekur saman
spariinnlögin og veltuinnlánin.
Þessi mynd er líka töluvert öðru-
vísi um sparisjóðina og til fróð-
leiks ætla ég að nefna þær töl-
ur líka. Frá 1957—1958, miðað
við októberlok, aukast veltuinn-
lánin í sparisjóðunum hlutfalls-
lega um 30,9%, frá 1958—1959
um 22,9%, en 1959—1960 um
23,4%.
Ég skal nú víkja nokkuð að
því, hver eðlismunur er á bess-
um tveimur innlánsþáttum. Spari
fjáreigendurnir eru fyrst og
fremst aimenningur í þessu
landi, hinir mörgu smáu, sem
spara. Það hefur verið svo og
það er svo, og ég hygg, að það
muni þannig verða. Veltuinnlán
in eru hins vegar þeir fjármunir,
sem atvinnureksturinn hefur
lausa á milli handa, stundum
meiri og stundum minni, — auk
þess sem veltuinnlátún í bönkun
um verða fyrir stórkostlegum
sveiflum af alveg sérstæðum at-
vikum, þ. e. vegna innstæðu
sjóða, margvíslegra sjóða eins og
Fiskiveiðasjóðs, landbúnaðarsjóð
anna og ýmissa annarra sjóða,
sem við vitum, að stundum hafa
átt töluvert í pokahorninu, en
aðra stundina sáralítið. Og þann-
ig er það t.d. í Útvegsbankanum,
þar sem Fiskveiðasjóðurinn er,
að megnið af þeim veltuf jármun-
um, sem hafa farið út úr bank-
anum á þessu ári, eru úr fisk-
veiðasjóði sem átti 40 millj. kr.
innstæðu í bankanum um ára-
mótin síðustu, en það fer allt sam
an út á þessu ári og miðað við
þetta tímabil, 30. okt. þá hafa
farið út 30 millj. kr. af veltu-
innlánunum. Þetta á auðvitað
ekkert skylt við almanna spari-
f jármyndun í landinu, hvort
þessi liður vex eða minnkar.
Núna minnkar hann vegna hinna
miklu skipakaupa á undnaförn-
um árum. Stundum hefur hann
hlaðizt upp, þegar hlé hefur orð-
ið á bátakaupum. Og ég vil t.d.
benda á það, að öll innlánsaukn-
ingin á hlaupareikningum í öll-
um bönkum landsins er 67,9
millj. frá október 1959 til októ-
ber 1960. En á sama tíma hafa
hlaupareikningarnir í Útvegs-
bankanum lækkað um 30 millj.
kr. bara vegna Fiskveiðasjóðs. Og
þá sjáum við, hvað mikil áhrif
þetta getur haft“.
Algerlega röng mynd
Síðan benti þingmaðurinn einn
ig á, að það hefði veruleg áhrif
til lækkunar á veltuinnlánunum,
þegar útlán hefðu verið takmörK
uð svo mjög sem gert hefði verið
á þessu ári, einkum til kaup-
sýslumanna og iðnrekenda. Þeg-
ar svo stæði á, yrðu þeir að nota
innstæður á hlaupareikningum
sínum mun meir en á þeim tím-
um, sem auðvelt væri að afla
lána.
Um niðurstöðuna af þessu sagði
Jóhann Hafstein orðrétt þetta:
„Þegar veltufjármununum er
blandað saman við spariinnlögin,
þá verður auðvitað myndin um
sjálf spariinnlögin algerlega röng
og í raun og veru furða ég mig
á því, að menn skuli hafa
gefið sig til þess að reyna að
stilla upp svorxa villandi mynd“.
«