Morgunblaðið - 18.12.1960, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.12.1960, Blaðsíða 23
Sunnudagur 18. des. 1960 MORGVNBLÁÐIÐ 23 — Flugslys Framh. af bls. 1 götum í aðalviðskiptahverfi og miðborg Miinchen. Þar sem jól- in voru farin að nálgast þyrpt- ist fólk út á göturnar til að gera innkaup á gjöfum og öðr- um nauðsynjum. Torgið fyrir framan járn- brautarstöð borgarinnar er í við- skiptahverfinu. Það var fullt af fólki sem flýtti sér um gang- stéttirnar og bílar og strætis- vagnar óku um í nær óslitinni röð. Margir, sem áttu leið um torgið voru á leið til járnbraut- arstöðvarinnar, á leið í jólafrí til fjarlægra staða eða á skíði upp 1 Alpafjöll. Kirkjuturn hrynur Þá skall flugvélin skyndilega niður á torgið. Þetta gerðist með svo snöggum hætti, að sjónar- vottarnir, sem nú voru margir, geta ekki gert sér grein fyrir, hvað gerðist. Þeir sáu aðeins að flugvélin kom því sem næst hljóðlaust út úr þokunni. Eld- ur virtist loga í henni. Flugvélin skall fyrst á turn Pálskirkjunnar, sem stendur þarna. Hrundi turninn með voða legum gný og féllu steinar og brak úr flugvélinni yfir spor vegn, sem var á ferð um torg- ið fullur af fólki. Lagðist vagn- inn í rúst og kom upp eldur ' honum. Hundruð barna í hættu Það er vitað með vissu, að 30 af farþegum sporvagnsins biðu þegar bana, eða voru í ardarslitrum er að var komið. Virðist það aðallega hafa ver- ið kirkjutuminn, sem féll yfir vagninn. Megin hluti flugvélar- flaksins kastaðist nokkru lengra og féll niður rétt við takmörk fjölleikahúss (cirkus). Sýning stóð yfir 1 því og voru mörg hundruð börn á sýningunni. Munaði hér vissulega mjóu, eins og í slysinu í New York ,að stórkostlegt tjón yrði. Ekki er vitað til að neitt barnanna hafi meiðzt. — Það var seinna í gær vitað að önnur smábrot úr flugvél- ir.ni urðu enn fimm af vegfar- endum að bana. Eftir því sem næst verður komizt hafa um 55 manns farizt og 60 verið fluttir á nærliggjandi sjúkrahús, sumir þeirra lífshættulega meidd ir. Flestir hinna særðu voru á gsngi á götum úti. Hræðilegt útlits i strætisvagni Allt slökkvilið og björgunarlið borgarinnar var kvatt út við þenrvan atburð. Sérstakega voru fréttirnar ömurlegar af björgun- arstarfi við strætisvagna. 1 fyrstu fréttum var sagt, að eldur logaði í einu húsi í miðbænum, en tekizt hefði að slökkva hann. I seinni fréttum var sagt, að fieiri eldar hefðu komð upp og logaði enn í flugvélabrakinu og húsum. Rétt áður en slys' þetta varð, aðeins um 10 eða 20 mínútum áður, hafði Heinrich Lúbke for- seti Vestur Þýzkalands sent Eeis enhower forseta samúðarskeyti vegna hins ægilega flugslys sem varð daginn áður yfir New York borg. I Áfengt öl - Brúarfoss Framh. af bls. 1 Útbúnaður til fermingar og affermingar er mjög fullkom- inn, bómur fyrir 5 tonna þunga og ein, sem þolir 30 tonn. 2340 brúttó tonn Helztu mál skipsins eru þessi: Mesta lengd 102,05 m., breidd 15 35 m djúprista (opinn) 20' 6”, lokaður 22' 4”. Hleðsluþungi (opinn) 3460 tonn (lokaður 4065 tonn). Brúttó tonnatal 2340 tonn. Aðalvél skipsins er Burmeist- er & Wain dieselvél, 7 strokka 3500 hö. Gert er ráð fyrir 15 sjómílna ganghraða að skipinu fulllestuðu. 3 hjálparvélar eru sem fram leiða 1100 hö. Skipshöfn er 30 manns og búa þeir í rúmgóðum og snyrtileg um íbúðum. Útvarp og sjón varp er í setustofum bæði yfir- og undirmanna. Öll tæki til matargerðar og matargeymslu eru mjög fullkomin. Fullkomin siglingatæki 1 skipinu er Telefunken loft- skeytastöð, Gyro-áttaviti, sjálf- stýritæki, ratsjá, bergmálsdýpt- armælir, miðunarstöð o. fl. tæki, svo sem fullkomin eldvarnarút- búnaður og varnaðarkerfi í sam bandi við hann. Tveir björgun- arbátar eru á skipinu fyrir 39 manns hvor, annar vélknúinn, tveir 20 manna gúmbátar og 20 manna bjargfleki úr alum- ir.ium. Viggó E. Maack, skipaverk- fiæðingur, hefir haft eftirlit með smíði skipsins. 1. vélstjóri Hermann Bæringsson hefir litið eftir smíði og niðursetningu véla. Þá hefir skipstjóri og haft eftirlit með ýmsum frá- gangi. 1. stýrimaður á Brúar- fossi er Þórarinn Ingi Sigurðs- son, loftskeytamaður Haukur Hólm Kristjánsson og bryti Karl Sigurðsson. Framh. af bls. 2 hættara við freistingum þessa heims en öðrum. Fullyrðingin um áhrif öls á unglingana virðist haldlítil, þeg- ar á það er bent, að hvorki pen- ingaleysi né hömlur virðast forða frá því, að unglingar komist yfir eldsterkt, hrátt og óhollt brenni- vín eða aðra slíka drykki allt að 60% sterka, sem þeir síðan blanda með sætum og kolsýrðum vökva, er felur áfengisbragðið gersamlega, en flytur áfengis- áhrifin svo til á svipstundu út um allan líkamann, enda liggur sú staðreynd fyrir, að á sama tíma og öl er forboðinn ávöxtur á íslandi, þá eykst vínneyzla með hverju ári, bæði sú, sem sést í skýrslum, og einnig hin, sem aldrei sést öðruvísi en í raun. Glæpir vaxa, afbrotum fjölgar, sívaxandi drykkja meðal ung linga veldur stórauknum glæpa- faraldri meðal þeirra, slysum og jafnvel manndrápum. Áhrif öls á vínneyzluna Því miður liggur það skýrt fyr- ir, að bæði málsmetandi menn og mikilsvirtir hér á landi berj ast gegn veiku, en þó áfengu öli vegna rangra og ímyndaðra álykt ana af öl- og áfengisneyzlu ann- arra þjóða, á sama tíma og æ fleiri þjóðir hlíta raunsæjum á- kvörðunum ráðamanna sinna í þeim efnum. í því sambandi má benda á Svíþjóð, sem nú er -að ná því jafnvægi, sem spáð var af ölfylgjendum að þar mundi nást, eftir að óhjákvæmilegu há- marki yrði náð fyrst eftir rýmk- un áfengislöggjafar þar. Þá má benda á blaðafrétt úr íslenzku blaði fyrir skömmu, er skýrði frá því, að í Tékkóslóvakíu iefði fyrir skömmu verið stórhækkeð verð á sterkum drykkjum til þess að draga úr neyzlu þeirra og gera öl aðgengilegra fyrir almenning, því að það geri miklu minni skaða og jafnvel hverfandi á við sterku vínin. Sumkomur Almennar samkomur Boðun fagnaðarerindisins Sunnudagur: — Hörgshlíð 12, Rvík, kl. 8 e.h. Barnasamkoma kl. 4 e.h. (Myndasýning). — Austurgötu 6, Hafnarfirði kl. 10 f.h. Hjálpræðisherinn Sunnudaginn kl. 11. Helgunar samkoma. Kl. 14: Sunnudaga- skóli. Kl. 20: Bænarstund. K1 20,30: Lucíuhátíð. Lúcía með þernum og pílagrímum Kveikt á jólatrénu. Fyrstu tónar jólanna sungnir. Allir velkomnir. Filadelfia Sunnudagaskóli kl. 10,30. Á samr tíma að Herjólfsgötu 8 Hafnarfirði. Bæn kl. 4. Almenn samkoma kl. 8,30. — Allir vel- komnir Bræðraborgarstígur 34 Sunnudagaskólinn kl. 1. ■— Almenn samkoma kl 8,30. Ajlir velkomnir. — Bókaf)áttur Framh af bls. 6. leg, með dulúðgum seim. Enn cyngur hann þeim lof og þökk, er verkin vinna og ljósin tendra Því er vel lýst í miklu kvæði, Klaka- stíflur. Það er hinn heili maður, sem á virðingu hans, sá, sem þor- ir að stríða og fórna. „Þar sem fólk er hætt að heyja heilagt stríð, en skáldin þegja, þar er þjóð að deyja". Davíð veit, að heilagt strið verður ekki háð nema fyrir and- legum verðmætum. Þess vegna er baráttan oft svo vanheilög, að hún snýst um of um efnislega muni. Það er engin hending, að Davið endar bókina á þessum orðum: „Að bera eitthvað þungt — það er að vera“. Mættu íslendingar, ungir og gamlir, muna það. Þórarinn Björusson. og nagrenm Stór húsgagnasýning veröur í Samkomu- húsi Sandgerðis í dag, sunnudag. ÖNDVEGI H.F. Reykjavík. Jólin nálgast Perufestar frá 95 kr. — Þýzkir kvenkjólar í úrvali. — KvenblússUr nýjasta tízka. — Greiðslusloppar. — Barnakjólar úr nælon og flaueli. — Slæður. treflar o. fl. — Allt vandaðar vörur. — Reynið sjálf. Fleiri röksemdir má finna til stuðning því, áð þetta frv. nái fram að ganga, svo sem stóraukn- ar heimsóknir erlendra ferða- manna á næstu árum — og nauð syn þjóðlegra og frambærilegra áfengisdrykkja annarra en svarta dauða, — gjaldeyristekjur af út- flutningi öls o. f 1., sem nánar verður að vikið í framsögu. Móðgun við menningarþroska En meginröksemdir sínar telur flm. vera þær, að slikt bann sem nú er á áfengu öli sé móðgun við menningarþroska og frelsiskennd íslenzkra þegna og að með slíku banni sé ekkert samræmi í fram kvæmd áfengismála, þegar leyfð er sala og neyzla sterkra drykkja, en fordæmd neyzla á veikustu tegund áfengis“. LAUFItl Hafnarstræti 18. bbbbbbbbbbbbbtbbbbbbbhbtxbbbbbbbbbbbbbbbbb HiálnSnigarvörur Hörpu-silki Spred-satin Japanlakk Gólfdúkalím ggingavörur h.f. Simi 35697 laugaveg 17$ b b b b b b b b b b b „b Hjartans þakkir til allra sem glöddu mig með gjöfum og heimsóknum á 70 ára afmæli mínu 14. desember s.L Guð blessi ykkur öll. Ölafia Magnúsdóttir frá Hænuvík. Konan mín ÓLÖF ÓLAFSDÓTTIR Rauðarárstíg 22, fyrrum húsfreyja að Hamraendum andaðist að morgni 17. þ.m. Sigurður Gíslason Móðir mín GUÐBJÖRG LOFTSDÓTTIR Öldugötu 45, andaðist föstudaginn 16. des. að sjúkrahúsinu Sólheim- um. Fyrir hönd aðstandenda: Ingibjörg Árnadóttir Konan mín ANNA KR. ARADÓTTIR frá Þverhamri, andaðist 17. desember Þorsteinn Stefánsson Systir okkar SÖLVEIG MATTHlASDÓTTIR Holti verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 20. þ.m. kl. 1,30. — Blóm vinsamlegast afbeðin. Fyrir hönd systkinanna: Steingrímur Matthíasson Maðurinn minn ÓLAFUR GRlMSSON fyrrverandi fisksali verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 20. des. — Athöfnin hefst ki. 1,30. — Blóm og kransar af- beðið, en þeir, sem vilja minnast hins látna er bent á Blindravinafélag Islands og Blindrafélagið. Gnðrún Árnadóitir Útför móður okkar MATTHILDAR JÓNSDÓTTUR frá Þorpum, fer fram mánudaginn 19. des. ’kl. 1,30 frá Fossvogskirkju. Blóm vinsamlega afbeðin. Böm, tengdabörn og barnabörn. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttekningu við fráfall móður og tengdamóður okkar, FINNBJARGAR KRISTÓFERSDÓTTUR Karen Árnadóttir, Dagm&r Ámadóttir, Guðný Árnadóttir, Þorsteinn Davíðssoa Skúli Árn&son, Guðmundur Árnason Hjartans þakkir færum við öllum þeim, er auðsýndu okkur hjálp og hlýhug við andlát og jarðarför móður okkar, GUÐRtJNAR sigurðardóttur frá Jaðri Með beztu kveðjum og jólaóskum. Einar Hjörleifsson, Siguringi E. Hjörleifsson I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.