Morgunblaðið - 28.12.1960, Qupperneq 15
Miðvik’udagur 28. des. 1960
MORaVNTtT 4 ÐTÐ
15
Afmæliskveðju
NIL.LI varð sjötugur í gær. Eg
ætla ekki að kynna hann nánar.
Flestir fullþroska Reykvíkingar
þekkja Nilla og fjöldinn af þeim
hefir haft við hann viðskipti.
Hann hefir sem sé í rúma hálfa
öld velgt Reykvíkingum og hann
er Vesturbæingur eins og séra
Bjarni. Oft hafa konur eldri sem
yngri hringt til Nilla og sagt:
Elsku Nilli minn, ég er alveg
að drepast úr kulda, góði hjálp-
uðu mér nú fljótt“. „Nú ert það
þú b . . b . . þín. Hvað viltu
mikið? Vertu bless má ekki vera
að tala við þig, það er svo fj.
mikið að gera“. En hjálpin kom,
og það var höfuðatriðið. Þannig
hefir þetta gengið í meira en
hálfa öld. En Nilli hefir einnig
hlýjað á annan hátt og fleirum
en konum. Hann hefir alltaf ver-
ið reiðubúinn að taka þátt í
gleði og sorgum meðborgara
sinna og gert það á sinn hátt,
með einlægni og sannfæringu
hins góða drengs sem öllum vill
vel og allt vill fyrir alla gera.
í>ó Nilli hafi aldrei verið hávaða
maður eða tranað sér fram, þá
er hann oft búinn að skemmta
öðrum, með sinni ágætu söng-
rödd og einhverntíma í fyrndinni
brá hann fyrir sig leiklistinni,
en ekki hefi ég séð leikdómana.
Flestum mun Nilli þó hafa
skemmt á Vesturgötu 26C,og þar
sem annars staðar, notið góðrar
aðstoðar sinnar ágætu konu, Lóu,
sem heldur ekki þarf að kynna
fyrir Reykvíkingum. Nilli og
Lóa eru mestu tryggðartröll, og
hefi ég og fjölskylda mín, meðal
margra annarra, notið þeirrar
tryggðar í ríkum mæli. A afmæl-
inu í gær, var stöðugur straum-
ur vina allan daginn, til að fagna
afmælisbarninu og óska því til
hamingju. Öllum var tekið með
opnum örmumogsömu hjartahlýj
unni, og gömlu hjónin voru alltaf
á hlaupum til að annast gesti
sína og láta þeim líða sem bezt.
En þannig er þetta alltaf þegar
maður kemur á Vesturgötu 26C
og þannig vona ég að þau fái
notið sín, Nilli og Lóa, meðan
hjörtun slá.
Þessar linur eru afmælisóskir
til þín Nilli minn, frá mér og
fjölskyldu minni, með þakklæti
fyrir tryggð þína og þinnar fjöl-
skyldu frá fyrstu kynnum.
Eg veit að það eru marglr Reyk
víkingar, sem taka undir óskir
mínar og þakklæti, og einnig
þegar ég segi:
Guð blessi ykkur hjcnin og allt
ykkar skyldulið.
Gleðileg jól.
22/12 60
Þinn vinur
Kristján Karlsson
frá Akureyri.
— Landbúnaður
i deiglu
Framh. aí bls. 11
stefnu. Þetta birtist í töflu VI.
Þessu til samanburðar skal
þess svo getið, að árið 1950 voru
samkv. heimild OEEC:
bændur og bústjórar í landinu
5991 talsins
og launaðir vinnumenn
7197, samtals 13,188 starf-
andi karlmenn.
Efni þessarar greinar hlýtur
að vekja umhugsun, en það gef
Ur alls ekki til kynna, hvað beri
að gera. Því meira sem í þessi
mál er rýnt, því flóknara verður
vandamálið viðfangs, en það
skapar enga svartsýni heldur
hvetur til gagngerðrar rannsókn
ar og stefnumörkunar.
Næsta og síðasta greinin í þess
um fLokki mun fjalla um ýmsar
mýjungar á sviði landbúnaðar-
framleiðslu, skipulags og tækni,
sem nú er að ryðja sér til rúms
í hinum háþróuðu iðnaðarlönd
um. Margt af því snertir og mun
hafa djúptæk ahrif á þau mál,
sem hér er fjallað um.
Cíie Cen
Oiuiiumönients
*'i HL5T0N BRYNNE.R BAXTER R0BIN50N
/VONNt OtBR/ JOMN
DECARLÖ PAGET DEREA ^
5lR CtDRlC NIN^ *ARTH/> JuD'Tb VlNCtN’
[HARDWlCKt ^OCh 5COH AN0CR5ON PRlCt!
. ► •. — * «MtA3 AACstN/n /t55l Min * vunj; VMK •
I s—. HOl >CRlPTV«t5 - *. — — .
.p—nsiAViaor «
Sýnd kl. 8,20»
Aðgöngumiðasala í Laugarásbíó opin frá kl. 7.
| Vetrargarðurinn |
Dansleikur i kvöld
Neo kvartettinn skipaður nýjum mönnum:
Aðgöngumiðasala að áramótadausleiknum hafin.
Sími 16710.
Áramótafagnaður
verður haldinn í Breiðfirðingabúð á
gamlárskvöld.
Dansað til kl. 4.
Miðar verða seldir í félagsheimilinu við
Réttarholtsveg í kvöld, fimmtudag og
föstudag kl. 8—9. í Breiðfirðingabúð,
föstudag kl. 5—7 og laugardag kl. 2—4.
Verð aðgöngumiða er kr. 100.—.
„VÍKINGUR"
Handknattleiks- og knattspyrnudeild
NY ARSDAGUR
<■ Hótel Borg ■>
Verður framreiddur hátíðarkvöldverður.
Þeir, sem enn hafa ekki pantað borð, vin-
samlegast gerið það, sem fyrst.
Sími 11440.
M iðstöðvarofnar
Talsvert magn af notuðum miðstöðvarofnum til
sölu af ýmsum stærðum.
GARÐAR GÍSLASOM H.F.
Byggingavörudeild — Hverfisgötu 4 — Sími 11500
*
Aramotafagnaður
verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu
á gamlárskvöld.
■Jr Hljómsveit Svavar Gests
■jr Söngvari: Ragnar Bjarnason.
Aðgöngumiðar verða seldir í skrifstofu
hússins í dag frá kl. 2—4.
Borðpantanir á sama tíma.
Tryggið ykkur miða í tíma.
Tekið á móti pöntunum í síma 17100.
SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ
póhscaíí
Slml 2-33-33.
Ðansleikur
KK
— sextettinn
Söngvari:
Berti Moller
IÐMO
IÐMO
Áramótafagnaður
á gamlárskvöld kl. 9
★ Sextett BERTA MÖLLER leikur
Aðgöngumiðasala frá kl. 2 daglega.
Sími 12350.
I UilimHIÍHHI
K'LUBRIIRINN
í kvöld kl. 9
H löðudansleikur
★ Góð skemmtiatriði.
★ Magnús Jónsson stjórnar í kvöld.
★ Fjölmennið og takið með ykkur gesti
Hér er tækifærið fyrir fólk sem vill skemmta sér án áfengis
Stjórnin
IMGOLFSCAFE
Áramótafagnaður
á gamlárskvöld kl. 9.
Aðgöngumiðasala frá kl. 3 daglega
Sími 12826.