Morgunblaðið - 28.12.1960, Síða 19
Miðvikudagur 28. des. 1960
MORCjjTSTtl. 4Ð1Ð
19
I*rið|a atómsprenging
Frokka heppnast vel
París, 27. des. — (Reuter). —
í MORGUN sprengdu Frakk
ar þriðju atómsprengju sína.
Tilkynna þeir, að tilraunin
hafi heppnazt mjög vel. Hún
var framkvæmd á sama stað
og fyrri sprengingar á eyði-
merkursvæðinu Reggan í
Saharaeyðimörkinni um 1600
km suður af Oran í Alsír.
í tilkynningu hermálaráðu
neytisins segir að sprengjan
sem nú var hleypt af, hafi
verið fremur afllítil. Þá seg-
ir í tilkynningunni að fylgt
hafi verið nijög ströngum
öryggisreglum til þess að
ekkert tjón geti hlotizt af
geislavirku ryki.
Orðrómur um neðanjarðar-
sprengingu
Síðustu vikur hefur orðróm-
ur heyrzt um það, að Frakkar
væru að hefja atómsprengju-
tilraunir og fylgdi það með orð-
rómnum, að ætlunin væri að
framkvæma sprengingarnar neð
anjarðar. Hermálaráðuneytið
hefur ekki skýrt frá því, hvort
tilraunin hafi verið gerð neðan-
eða ofanjarðar, en ein fregn
hermir að sprengjan hafi verið
fest í háan turn ofanjarðar, eins
og tvær þær fyrri.
Eðlisfræðirannsókn
Eftir sprenginguna í morgun
boðuðu yfirmenn tilraunanna,
þeir Jean Thiry hershöfðingi og
Pierre Ballaud atómfræðingur,
b'aðamenn á sinn fund. Þeir
sögðu að líta mætti á þessa
sprengingu sem eðlisöræðilega
rannsókn.
.— Við erum nú að vinna að
því, sagði Ballaud, að gera atóm
sprengjuna sem einfaldasta í
gerð og auðveldasta til geymslu
og notkunar. Og Thiry hershöfð-
ingi sagði: — Við reynum að i
komast af með sem allxa fæetar
— Mabur ársins
Framh. af bls. 1
upp aðferð til aldursákvörðun-
ai með Carbon 14.
William Shockley eðlisfræð-
ingur sem fann upp transistor-
magnara.
Charles Stark Draper, sem
fann upp tæki til fjarstjórnar á
eldflaugum.
Edward Mills Purceli sem
hlotið hefur Nóbelsverðiaun fyr
ir aðferð til að rannsaka atóm-
kjarna.
George W. Beadle erfðafræð-
ingur sem hlotið hefur Nóbels-
verðlaun.
Þessir fimmtán vísindamenn
sem allir hafa getið sér heims-
frægð fyrir ranrrsóknir sínar og
uppgötvanir eru þó aðeins ful.l-
trúar þúsunda annarra banda-
rískra vísindamanna, sem vinna
stöðugt að því að auka þekkingu
mannkynsins. Stórvirki nútím-
ans eru ekki unnin á sviði stjóm
mála eða hermála, heldur í rann
sóknarstofunum.
— Menntamála-
ráðherrar
Frh. af bls. 1
samstarfið á sviði menningar-
mála, fræðslumála og vísinda-
starfsemi. Munu menntamálaráð
herrar Evrópuríkjanna koma sam
an á fund í Þýzkalandi næsta vor
til að ræða þessi mál, og sér-
fræðinganefnd mun undirbúa til
lögur um aðgerðir.
Þá ræddi ráðherranefndin um
flóttamannamál. Island er eitt
þeirra ríkja, sem lagt hafa fé til
sjóðs, er Evrópuráðið hefur stofn
að til að styrkja þá, sem þurfa
að skipta um heimili vegna flótta
eða offjölgunar fólks.
(Frá upplýsingadeild
Evr ópuráðsins).
sprengingar. I stað þess vinn-
um við þeim mun meira með
visindalegum útreikningum og
spörum okkur sprengingar. Með
því getum við náð sama árangri
og hin kjarnorkuveldin en eyð-
um minna fé og komumst hrað-
ar áfram en þau.
í þessu sambandi má rifja
upp, að Frakkar sprengdu
fyrstu atómsprengju sína 13.
febrúar sl. og aðra sprengjuna
— Timarit
Framh. af bls. 2
ritsins er að safna efninu frá
öllum meðlimalödum og ætlazt
til, að það geti orðið sem
næst tæmandi viðkomandi áður-
greindum atriðum. Tímaritið
kemur út tvisvar á ári og kostar
$2.00 til áskrifenda.
1. april meðan Krúsjeff dvaldist
í opinberri heimsókn í Frakk-
landi. Þær voru báðar Plúton-
íum-sprengjur, en Plútóníum er
unnið úr Úraníum. Styrkleiki
fyrstu sprengjunnar var 60—70
kílótonn eða fimmfaldur styrk-
leiki Hiroshima-sprengjunnar.
Þíngið verndu
hnelnleibann
NEÐR.I málstofan brezka þings-
ins felldi í dag að leyfa Edith
Summerskill að bera fram í þing-
inu frumvarp um bann við
hnefaleikum. 120 atkvæði voru
á móti en 17 með.
Frú Edith flutti framsöguræðu
og hélt því fram, að hnefaleik-
ar væru villimannleg íþrótt. Hún
er sjálf læknir að menntun og
bar fyrir sig skýrslur lækna um
hve áhrif hnefaleikar hefðu á
heilsu keppendanna.
Teiknistofa landbúnaðarins sér
um málefni t.ímaritsins af ís-
lands hálfu.
Þingheimur virtist mjög and-
vígur frúnni og var með hróp
og sköll með margvíslegum háðs-
yrðum.
Skrifstofusfúlka
óskast nú þegar eða sem fyrst. Þarf að vera
vön vélritun. Tilboð sendist Morgunblað-
hu merkt: „Vélritun — 1483“.
Vélrifunarsfúlka
Óskum eftir að ráða stúlku til starfa við
vélritun. Ensku kunnátta er æskileg.
Umsóknir er greini aldur og fyrri störf,
skulu sendar bókhaldsdeild félagsins eigi
síðar en 4. janúar.
/OSIAA/OA/JP
...allir þekkja
KIWI gljáann
O. JOHNSON A KAABER H/F, REYKJAVIK
Hugheilar þakkir flyt ég þeim, sem sýndu mér vinsemd
og virðingu á 70 ára afmæli mínu 21. desember s.l.
Óska ég öllum árs og friðar.
Nieljohnius Ólafsson
V.ér viljum ráða tiökkrar .
þaulvanar stúlkur til
vélritunarstarfa frá
næstkomandi áramótum.
Nánari upþlýsingar 1
Starfsjnanhahaldi SfS,^
Sölvhólsgötu, ekki f sírna.
Starfsmannahald. SfS.
Ungling
vantar til blaðburðar við
Fálkagö'tu
JHtfttMttt&Iftfeife
Móðir okkar,
ÞÓRUNN MAGNCSDÓTTIR
frá Keisbakka
til heimilis, Stórholti 19, andaðist 24. þessa mánaðar.
Börn hinnar látnu
Maðurinn minn
SÉRA MAGNCS ÞORSTEINSSON
frá Húscifelli
lézt í Bæjarspítalanum þann 26. desember.
Ástríður Jóhannesdóttir
Móðir mín
JÓHANNA JÓNSDÓTTIR
frá Laxárholti
andaðist að heimili okkar í Reykjavík þann 26. þ.m.
Ólöf Sigurbjörnsdóttir
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
PÁLMI VILHJÁLMSSON
er andaðist 23. þ.m., verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju, föstudaginn 30. des. kl. 1,30 e.h.
Jórunn Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn
Konan mín
GCÐRCN árnadóttir
frá Mellæk..
andaðist 24. þessa mánaðar
Fyrir mína hönd og barna okkar.
Valdimar Kr. Árnason
Maðurinn minn
GCÐIÓN LÍNDAL JÓNSSON
trésmiður, Ingjaldshóli, Seltjarnamesi,
verður jarðaður frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 29.
desember kl. 1,30.
Guðrnn Þorsteinsdóttir og börn.