Morgunblaðið - 29.12.1960, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.12.1960, Blaðsíða 4
4 MOKCFWF114FHÐ Flmmtudagur 29. des. 1960 Stúlka eða eldri kona óskast til að gæta tveggja barna frá kl. 10—4 e.h. Ti.boð legg- ist inn á afgr. Mbl. fyrir laugard. merkt. „Stúlka — 1491“. Keflavík íbúð óskast til leigu. — Upplýsingax í síma 1288. Vil taka á leigu bílskúr effa annað húsnæði því líkt. Hringiff í síma 33767. 2ja—3ja herb. íbúð óskast til leigu nú þegar. Upplýsingar í síma 1-43-28 í dag og næstu daga. 2ja herb. íbúð til leigu strax. — Tilboð merkt: „Laugarás — 1487“, sendist Morgunblaðinu. Vélstjóri með rafmagnsdeild, óskar eiftir starfi í landi. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 31. des. merkt: „Vélstjóri — 1493“. t B Ú » fokheld risíbúð til sölu í Hafnarfirði. Útb. 30 þús. Tilb. leggist inn á afgr. Mb.l merkí. „íbúð — 1490“, fyrir 31. des. Stúlka óskast til heimilisstarfa að Reykj- um í Mosfellssveit. Uppl. í síma um Brúarland. Málfríður Bjamadóttir. Skellinaðra Panther árgerð ’57, verff 6500 til sölu. Uppl. í síma 15458 og að Spítalastíg 10, steinhúsið. Vil leigja, eða kaupa verzlun nú þegar, eða fljót lega. Margt kemur til greina. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 9. janúar merkt „Verzlun 1961 — 1492“. Vil kaupa hásingu undan Chevrolet ’34 model. Uppl. í síma 50163 í dag. Viljum selja ca. 700 metra af litið not- uðum 1*4” galvaniseruðum pípum. VIKURFÉLAGIÐ H.F. Súni 10600. Viljum selja eamlan Studebaker vöru- bíl. VIKURFÉLAGI® H.F. Simi 10600. Óska eftir 1—3ja herb. íbúð í Hafnar firði, sem allra fyrst. — Upplýsingar í síma 50132. Pússningasandur Góður — ódýr. Sími 50230. í dag er fimmtudagur 29. descmber.. 364. dagnr ársins. Árdegisflæði kl. 3:93 Síðdegisflæði kl. 15:24. Næturlæknir i Keflavík er Jón K. Jóhannsson. sími: 1800. Nætnrvörður vikuna 24.—30. des. er í Vesturbæjarapóteki, nema jóladag i Ingólfsapóteki og 2. jóladag i Lauga- vegsapóteki. Slysavarðstofan er opin allan sólar- hrmgmn. — Læknavörður L..R. (fyrir vitjanir > er a sama staö ki. 18—8. — Simi 15030. Holtsapótek og Garðsapóteic eru op- in alla virka daga kl 9—7. laugardag frá kL 9—4 og helgldaga frá kl. 1—4 Næturlæknir í Hafnarfirði 24.—31. des. er Ólafur Einarsson, simi 50952, Ljósastofa Hvítabandsins er að Forn haga tt. Ljósböð fyrir börn og full- orðna, upplýsmgar i síma 16699. FRETTIR Jólafundur Kvenfélags Háteigssókn- ar verður þriðjudaginn 3. janúar í Sjómannaskólanum kl. 8,30 stundvís- lega. Kvikmyndasýning, Vigfús Sigur- geirsson. Upplestur Andrés Bjömsson. Sameiginleg kaffidrykkja. Öldruðum konum í Háteigssókn er boðið á fund- inn og er þess vænzt að sem flestar geti komið. Læknar fiarveiandi (Staðgengiar i svigum) Erlingnr Porsteinsson til áramóta — (Guðmundur Eyjólfsson, Túng. 5). Haraldur Guðjónsson óákv. tima Karl Jónasson). Sigurður S. Magnússon óákv. tima — (Tryggvl Þorsteinsson). Sofnin Listasafn ríkisins: Yfirlitssýning ó verkum Svavars Guðnasonar er opin frá kl. 1—10 e.h. Bæjarbókasafn Reykjavíkur sfmi 12308 Aðalsafnið. Þingholtsstræti 29 A. tlán: Opið 2—10, nema laugardaga 2—7 og sunnudaga 5—7. Lesstofa: Opin 10—10, nema laugardaga 10—7 og sunnudaga 2—7. ÚtibúiS Rúlmgarði 34: Opið alla virka daga 5—7. Asgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er opið þriðjud., fimmtud og sunnud. frá kl. 13.30—16. Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla úni 2 Opið daglega kl. 2—4 e.h. nema nánudaga. MENN 06 = AMLEFN/& HÉR er mynd handa þeim aff skoffa, sem gaman hafa af kóngafólki og því tilstandi, sem í kringum þaff verffur, þegar þaff fæffist, trúlofast, giftist, skilur, kemur til rikis, hrökklast frá völdum, deyr o. s. frv. Þessi atburffur, sem hér er festur á mynd, vakti talsverða athygli hjá konung- legum kjaftakindum i Ev- rópu. Hann er tekinn á flug- vellinum viff BrússeL, þegar Margrét Bretaprinsessa og maffur hennar, Armstrong Jones, komu til þess aff vera viffstödd brúffkaup Baldvins Belgiukonungs og spænsk i affaisstúlkunnar Donnu Fabí- ólu. Fólk smjattaði dálítið á komu þeirra, vegna þess aff belgíska konungsættin var ekkert sérlega hrifin af gift- ingu þeirra Margrétar og Armstrong Jones á sínum tíma, fannst hún vist taka niffur fyrir sig, og skipti sér eins litiff af brúðkaupinu og unnt var, án þess þó að sýna beina ókurteisi. Til hægri á myndinni er Albert prins af liiége og kona hans, Paola prinsessa, aff taka á móti hjónunum að handan. Paola virffist svo snotur, aff hún ein réttlæti birtingu þessarar myndar, enda er þaff al- mannamál, aff prinsessur séu heldur aff skána seinni árin hvaff fríðleik snertir, a. m. k. á suðlægari slóðum (Paola er frá Italíu). Því ber aff fagna, þvi að þar sem myndir af prinsessum eru alltaf aff birtast i blöðunum, þá er eins gott aff þær líti sæmi- lega út, en séu ekki þær herfur, aff karlmenn hafi ekki einu sinni lyst á morg- unkaffinu eftir aff hafa opnaff blaðið sitt. Friðleiki hjá prinsessum er einnig mikil- vægur á vorum dögum fyrir þá sök, aff prinsahallæri er nú mikiff, og allar horfur á að álitlegur slatti af konung- bornum meyjum haldi áfram aff verffa konungbornar meyj- ar alla sina ævi, hvort sem þeim Iíkar hetur effa verr. Sennilega flestum verr. Sum- ar þjóffir vilja ekki láta kóngaættina sína deyja út, svo aff vinsældir konungs- dætra geta fariff aff nokkru eftir því, hve útgengilegar þær eru. Út fyrir raffir kon- ungborinna mega vesalings prinsessurnar helzt ekki leita, eins og bezt kom í ljós þegar Margréti var meinað aff eiga Pétur sinn Townsend. Þar var andstyggilegur miðalda- hugsunarháttur, sem aftur- haldsgaurar brezku kirkjunn- ar og úrkynjaffir hirfföldung- ar túlkuffu, látinn koma í veg fyrir, aff ung stúlka fengi aff njóta hamingju í einkalífi sínu — af því aff hún var prinscssa. Mannúfflegur hugs- unarháttur og tuttugasta öld- in virðist þó vera farin aff nálgast suraar hirffir, t. d. þá norsku, og er þó vitaff, aff einnig þar var staffiff gegn giftingu konungsdætra og manna úr borgarastétt í Iengstu lög. JÚMBÖ og KISA WúC: + + + Teiknari J. Moru 1) Kisa var handfljót við að setja nestið í bakpokann. Brauð og ostur, eins dós af sardínum, ein dós af jarð- arberjamauki. Það ætti að vera nóg. Já, og svo auðvitað vasaljósið! 2) Þegar Júmbó kom á mótorhjól- inu, voru telpurnar þegar komnar. Mýsla hélt á tjaldinu og Kisa á bak- pokanum. — Ég vona að þið hafið ekki beðið lengi, sagði Júmbó. — Jæja, upp á aftursætið með ykkur! 3) — Úff, mótorinn reykir svo agalega mikið, sagði Mýsla. — Nú, já .... það er nú víst bara af því, að ég hef gleymt að losa hemlana, sagði Júmbó. — En nú geri ég það .... og þá getum við líka ekið enn hraðar! Jakob blaðamaður Eftir Peter Hoffman — En þér eruð ekki Floyd Grimm! — Það er ég sannarlega, kæra ung- frú. Sjáið þér til, sonurinn hefur ákveðið að halda áfram . .... viðskiptum föðurins! hérna —Viðskiptum! Þér eigið við glæp* starisemi, er það ek....

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.