Morgunblaðið - 29.12.1960, Side 5
Fimmtudagur 29. des. 1960
MORGUNBLAÐIB
5
Tveir þekktir V-íslendingar látnir
TVEXR þekktir vestur-íslenzk
ir öldungar eru látnir fyrir
skömmu vestur í Minnesota-
ríki í Bandaríkjunum. Það
eru þeir Hjörtur Lárusson,
tónlistarmaður, í Minneapol-
is, og Jón B. Gíslason, bænda
leiðtogi og fyrrum þingmað-
ur í Minnesota í Minnesota-
ríki. Valdimar Björnsson,
fjármálaráðherra Minnesota-
ríkis, skrifar minningargrein
um þ'á í Lögbergi-Heims-
kringlu 15. des. sl., og er það,
sem hér fer á eftir, byggt á
þeirri grein.
Hjörtur Lárusson var fædd
ur í Ferjukoti í Borgarfirði
14. nóv. 1874 og lézt 25. nóv.
sl. svo að hann varð réttra
86 ára. Hann fluttist vestur
nokkuð fyrir innan tvítugt
og bjó fyrst í Winnipeg, en
fluttist til Minneapolis fyrir
aldamót. Helgaði hann tón-
listinni lífskrafta sína og
varð þekktur á því sviði,
enda kvað mikið að honum í
tónlistarlífi Minneapolis um
áratugi. Munu fáir íslending-
ar hafa átt jafnlangan starfs-
feril á þessu sviði og Hjörtur,
því að hann hélt heilsu og
starfskröftum til hins síðasta.
Þótti hann jafnan glæsimenni
í sjón og raun.
Hjörtur lék á blásturshljóð-
færi og var einleikari á
trompet í hinni frægu hljóm-
sveit „Minniapolis Symphony
Orchestra". Þá var hann lúðra
flokksstjóri í ýmsum lúðra-
sveitum og kenndi á blásturs-
hljóðfæri við MacPhail School
of Music.
Hjörtur var þríkvæntur.
Fyrstu konunni, Margréti, sem
var alíslenzk, kvæntist hann í
Winnipeg. Margrét er látin
fyrir mörgum árum. Þau eign
uðust fimm börn. Dæturnar
Lára, Grace og Aurora eru
látnar, en eftir lifa söngkon-
an Fjóla Marín Code (San
Francisco) og sonur, Theodore
(Los Angeles). í annað sinn
kvæntist Hjörtur amerískri
konu, en hún íézt skömmu
síðar í bílslysi. Þriðja kona
Hjartar, Alice, var af norsk-
um ættum. Lifir hún mann
sinn.
Fjögur hálfsystkin Hjartar
eru á lífi. Það eru þau Dóra,
kona Steindórs Jakobssonar,
frú Lára Goodman Salverson,
rithöfundur í Toronto, Ontar-
io, frú Anna Kristjánsdóttir,
Elfros, Sask. og Albert Good-
man, starfsmaður í bandaríska
sendiráðinu í Reykjavík.
Jón (John) B. Gíslason var
fæddur á Hauksstöðum í
Vopnafirði 6. des. 1871 og lézt
4. des. sl., tveimur dögum fyr-
ir 89. afmælisdaginn. Foreldr-
ar hans voru Björn Gíslason,
dbr.maður þar, sem fæddur
var á Breiðavaði í Eiðaþinghá,
en bjó lengi á Grímsstöðum á
Fjöllum, áður en hann flutt-
ist í Vopnafjörðinn, og kona
hans, Aðalbjörg Jónsdóttir (af
Grimsstaðaætt). Bjöm fluttist
vestur ásamt fjölskyldu sinni
með „stóra hópnum“ 1879,
þegar Jón var á áttunda ári.
Settist hann að á Stórhól
skammt frá Minneota í Minne
sota. Var Jón sonur hans síðan
lengi kenndur við þann bæ og
kallaður „Jón á Stórhól“. Jón
tók við búi af föður sínum
1903 og varð hann fljótlega
leiðtogi bænda þar um slóðir.
Snemma tók hann þátt í
stjórnmálum og á þingi sat
hann 1918—1925, þegar hann
dró sig til baka. Sinnti hann
þar aðallega ýmsum merkum
framfaramálum, svo sem end
urskipulagningu ríkiskerfis-
ins, vegamálum o fl. Þá átti
hann mikilvægan þátt í út-
breiðslu rafmagnsnotkunar í
Minnesota, þar eð hann var
höfuðmaðurinn í skipulagn-
ingu rafveitna í sveitum. Þá
átti hann mikinn þátt í stofn-
un ýmissa bændasamtaka.
Jón var bókhneigður og
hafði yndi af bókmenntum,
bæði á ensku og íslenzku. 1
Ræðumaður var hann ágætur
og höfðingi heim að sækja,
fjörugur og viðræðugóður.
Dáin á undan Jóui voru
þrjú hálfsystkin hans, Eyjólf-
ur bóndi, Kristín, gift Jóni
Snædal, Ingibjörg, gift Sveini
Hólm, og fimm alsystkin, Ólöf,
Björn, lögfræðingur og fast-
eignasali, Halldór, prófessor
og stofnandi útvarpsstöðvar
Minnesotaháskóla, Þorvaldur
(Walter), verzlunarmaður og
póstmeistari, og Ámi, dómari.
Árið 1895 gekk Jón að eiga
Lukku 'Edwards, og var því
65 ára brúðkaupsafmæli hans
nýafstaðið. Lukka, sem fædd
er í Papey, lifir mann sinn. '
Þau eignuðust ellefu börn.
Átta eru á lífi, 39 bamabörn
og 18 barnabarnabörn. Þessi
átta eru lifandi: Byron, póst-
meistari í Elbow Lake,
George í Minneapolis, John
verkfræðingur í St. Paul, Jul-
ian bóndi á Stórhóli, William,
Joseph, Cecilia og Aðalbjörg
Lucile, öll í Minneota og
grennd. Cecilia er gift norsk
um manni, Elmar Furgeson,
og Aðalbjörg Friðriki Guð-
mun dssyni bónda.
i ^ i
Gullbrúðkaup eiga í dag hjón-
in Þorkelína Jónsdóttir og Finn-
bogi Guðmundsson, Tjarnarkoti
Innri-Njarðvík.
Opinberað hafa trúlofun sína
ungfrú’ Gudrun Barenther og
Kristján Jónsson, Munchen,
Þýzkalandi. Einnig Ólafía Jóns-
dóttir, Brávallagötu 18, og
Sveinn Ben Aðalsteinsson, Mjó-
stræti 4. Einnig ungfrú Guðrún
Eyberg, Urðabraut 4, Kópavogi
og Sæmundur Árnason, prentari,
Brekkulæk 1, Rvík. Einnig ung-
frú Sigrún María Sigurðardóttir,
Fossagötu 6 og Magnús Magnús-
son skipstjóri, Höskuldarkoti,
Ytri-Njarðvík.
Opinberað hafa trúlofun sína
ungfrú Fanney Jónsdóttir, Berja
nesi og Jón Jónsson á Ingólfs-
firði, bæði í Árneshreppi í
Strandasýslu. — Einnig ungfrú
Aðalheiður Jónsdóttir, Skúlagötu
76 og Jón Frímannsson, iðnnemi,
Karfavogi 27. — Einnig ungfrú
Hjördís Benónýsdóttir, Bjarkar-
götu 10 og Hörður Lorange, Víf-
ilsgötu 12.
Á jóladag opinberuðu trúlofun
sína, ungfrú Jóhanna Jóhannes-
dóttir, Háteigsveg 28 og Ólafur
Þór Thorlacíus, Ránargötu 33.
í dag verða gefin saman í hjóna
band í kixkjunni í Innri-Njarð-
vík, ungfrú Sólveig Karvelsdótt-
ir, Bjargi, Ytri-Njarðvik og Sig-
urður Pálsson frá Húsavík. Heim
ili ungu hjónanna verður fyrst
um sinn að Bjargi Ytri-Njarð-
vik.
Gerðir vorar ættum við að miða við
vilja himinsins, en haga orðum vot-
um með tilliti til tifinninsa mann-
anna. — Kínverskt.
Það er föst regla meðal mannanna að
hata þá, sem þeir hafa gert órétt.
— Tacitus.
— Alfreð liggur auðvitað ein-
hversstaðar sofandi.
Eimskipafélag íslands hf.: — Brúar
foss er á Akureyri. Dettifoss er í Vent
spils. Fjallfoss er á leiö til Rvíkur.
Goðafoss er í Rvík. Gullfoss er á leiö
til Hamborgar. Lagarfoss er í Keflavík
Reykjafoss er á leið til Hamborgar.
Selfoss er í New York. Tröllafoss er á
leið til Rvíkur. Tungufoss er á Siglu-
firði.
H.f. Jöklar.: — Langjökull er í Len-
ingrad. Vatnajökull er í Hamborg.
Hafskip hf. — Laxá er á leið til
Kúbu.
Eimskipafélag Reykjavíkur h. f. —
Katla er í Arhus. Askja er 1 Rvík.
Skipadcild SÍS.: — Hvassafell er í
Riga. Arnarfell er á leið til Vestmanna
eyja. Jökulfell er á leið til Póllands.
Dísarfell er á Hvammstanga. Litlafell
er á Norðurlandshöfnum. Helgafell er
í Ventspils. Hamrafell er á leið til
Gautaborgar.
Flugfélag íslands h.f.: — Sólfaxi er
væntanlegur til Rvíkur kl. 18:30 í dag
frá Khöfn og Glasgow.
Innanlandsflug: í dag til Akureyrar,
Egilsstaða, Kópaskers, Patreksfjarðar,
Vestmannaeyja og í»órshafnar. Á morg
un til Akureyrar, Fagurhólsmýrar,
Hornafjarðar, ísafjarðar, Kirkjubæjar
klausturs og Vestmannaeyja.
Skipaútgerð ríkisins: — Herjólfur
fer frá Rvík kl. 21 í kvöld til Vest-
mannaeyja. Þyrill er á Austfjörðum.
Skjaldbreið er á Breiðafjarðarhöfnum.
Kennari: Getur nokkurt ykkar
sagt mér hvað vindur er?
Anna litla: I>að er logn, sem er
að flýta sér.
— Ertu bindindismaður af
sannfæringu?
— Já.
— Hvað hefur sannfært þig?
— Það er ekkert „hvað“, það
er konan mín.
Kennari: Hvað er þátíðin af
„ég vakna“.
Nemandi: — Ég svaf.
Gömul veitingakona: — Hvern
ig líkar yður hænan? Mikið sá
ég eftir að slátra henni.
Gestur: — Því trúi ég vel. Þið
hafið líklega verið leiksystur 1
æsku.
• Gengið •
Sölugengl
1 Sterlingspund ...... kr. 106,94
1 Bandarikjadollar ...... — 38,10
1 Kanadadollar .......... — 38.98
100 Sænskar krónur .... — 736,85
100 Danskar krónur .... — 552,75
100 Norskar krónur ....... — 534,10
100 Finnsk mörk .......... — 11,92
100 Austurrískir shillingar — 147,30
100 Svissneskir frankar _ — 884,95
100 Franskir frankar ..... — 776,15
100 Gyllini .............. — 1009,95
100 Tékkneskar krónur ........ — 528.45
100 Vestur-þýzk mörk ........ — 913.65
100 Pesetar .............. — 63.50
1000 Lírur ................ — 61,39
Nú er hann Fúsi kominn í Kinn,
kunnugur manni öngum.
Hver mun leiða höldinn inn
með hópinn sinn,
svo rekkurinn ekki roti sig I göngum?
Sigfús prestur Guðmundsson um
sjálfan sig, er hann tók við Stað.
Milliveggjaplötur
7 og 10 cm heimkeyrður.
Brunasteypan
Sími 35785.
24113
Smurt brauð
Höfum opnað smurbrauðsstofu að Hjarðarhaga 47
við hliðina á Dairy Queen. Á boðstólum smurt
brauð, snittur og brauðtertur. Pantanir afgreiddar
með litlum fyrirvara í síma 16311. Seljum einnig
smurt brauð í biðskýlinu Kópavogshálsi.
Brauðsalan opin til kl. 11,30 e.h.
SMURBR AUÐSS Al AN, Hjarðarhaga 47.
Nýtízku 3ja herb. íbúð
með húsgögnum til leigu í óákveðinn tíma.
Upplýsingar í síma 17030 frá kl. 9—12 og
13,30—18.
SKÍÐASKAUNN HVERADÖLUM
Áramótafagnaður
verður í Skíðaskálanum á gamlárskvöld. Vegna
fjölda fyrirspurna hefur verið ákveðið að hafa bfl-
ferðir frá B.S.R. kl. 21 og til Reykjavíkur aftur kl. 3
eftir miðnætti.
Aðgöngumiðar verða seldir hjá L. H. Muller
Austurstræti.
Skíðaskálinn Hveradölum.
Aiamótofagnoður skdta
verður í Sk.á.taheimilinu á gamlárskvöld og byrjar
klukkan 10.
Góð skemmtiatriði.
Aðgöngumiðar verða seldir í Skátaheimilinu
föstudaginn 30. des. kl. 4—7 e.h. og gamlársdag kl.
2—4 e.h.
NEFNDIN.
Verkamannafélagið Dagsbrún
Félagsfundur
verður haldinn í Iðnó föstud. 30. des. 1960 kl. 8,30 sd.
Fundarefni:
Tillögur félagsins til breytinga á samningum
við atvinnurekendur.
Áriðandi að félagsmenn fjölmenni.
STJÓRNIN.
JÓLA - BINGÓ
v e r ð u r í
BREIÐFIRÐIMGAMJD
í kvöld kl. 9
Meðal vinninga er útvarp, innskots-
borð, armbandsúr, auk margra
góðra vinninga.
Ókeypis aðgangur. Húsið opnað kl. 8,30
Borðpantanir í síma 17985 frá kl. 5.
Breiðfirðingabúð