Morgunblaðið - 29.12.1960, Side 6
6
MORGVNBLAÐ1Ð
Fimmtudagur 29. des. 1960
kvödd verði saman að nýju Genl
arráðstefnan frá 1954. En það var
sú ráðstefna sem kom á friði i
Indó-Kína.
Þá er í orðsendingunni einnig
kvatt til þess að umsjónar og
eftirlitsnefndin með Laos verði
endurvakin.
Bretar og Kússar skipuðu for-
sæti á Genfarráðstefnunni 1954,
en auk þeirra tóku þar þátt
Bandaríkin, Kína, Suður Viet-
nam, Cambodia, Laos. og Norðux
Vietnam. Eftirlits og umsjónar-
nefndin var lögð niður 1958, en
í henni áttu fulltrúa Indland,
Kanada og Pólland.
Samvinna
háskóla
A VEGUM Evrópuráðsins starf.
ar nefnd, sem fjallar um aeðri
menntun og vísindastörf. Nefnd
þessi kom saman á fund í París
snemma í desember.
A fundinum var ákveðið að
fela sjö sérfræðingum að athuga
samvinnu háskóla í Evrópu og
Afríku. Þá var rætt um, hvernig
fá megi yfirlit yfir, hvaða vís-
indastarfsemi fer fram í Evrópu.
I því sambandi var ákveðið að
gera skrá um rannsóknarstofur i
rafeindatækni og að framkvæma
athugun varðandi rannsóknar-
stofur, sem ekki eru tengdar há-
skólum. Þá var ákveðið á fund-
inum að rannsaka, hvernig
kennslu í ýmsum lítt þekktum
tungumálum er hagað í evrópsk-
um háskólum og samþykkt álykt-
un um nauðsyn þess að auka
kennslu í kínversku. Loks var
ákveðið að fram skyldi fara at-
hugun á samvinnu þeirra aðila,
sem vinna að svipuðum verk-
efnum og nefndin.
Fund þennan sátu fulltrúar
þeirra ríkja, sem eiga aðild að
Evrópuráðinu auk allmargra
áheyrnarfulltrúa. Af Islands
hálfu sátu fundinn dr. Snorri
Hallgrímsson prófessor og Stein-
grímur Hermannsson, .fram-
kvæmdastjóri Rannsóknaráðs rík
isins.
Bangkok og Hong Kong,
28. des. — (Reuter). —
KONG LE yfirmaður herliðs
vinstrisinnaðra uppreisnar-
manna í Laos, er flúinn á-
samt fjölskyldu sinni til
Hanoi, höfuðborgar komm-
únistaríkisins Norður Viet-
nam. —
í fréttum frá Hong Kong
segir að ríkisstjórnin í Kína
hafi skorað á stjórnir Bret-
lands og Sovétríkjanna að
koma í veg fyrir „afskipti og
ofbeldi" Bandaríkjanna í
Laos. —
r r
rstré - ekki jólatré
Þessi skemmtilega mynd brrst
Mbl. í gær frá upplýsinga-
deild sendiráðs Sovétríkjanna
ásamt eftirfarandi texta, sem
hér birtist í lauslegri þýðingu.
Eftir því sem nýárið nálg-
ast færist meira fjör í við-
skiptin. Sérstaklcga er mikil
eftirspurn eftir gjöfum, fatn-
aði og húsgögnum. Hjá mörg-
um fjölskyldum ei um tvenns
konar hátíð að ræða. Á Gaml
árskvöld flytja þær í nýjar
íbúðir.
f verzlunum sem selja skraut
á nýárstré og í matvælaverzl-
unum er ös frá morgni til
kvölds. Á síðasta kvöldi ársins
verða marglit Ijós kveikt á
nýárstrjánum á öllum heimil-
um og íbúarnir skála fyrir
áframhaldandi góðu gengi á
komandi ári.
Myndin er tekin í verzlun,
sem nefnist Heimur barnanna
og sýnir deildina, sem selur
nýárstrésskraut.
Stöðugt undanhald
Vamarmálaráðherra Thailands
(Síam) tilkynnti blaðamönnum í
dag að Kong Le hafi verið hrak-
inn úr aðalstöðvum sínum í borg-
inni Pon Hong í Laos og væri
kominn til Hanoi. Hafa sveitir
Kong Le verið á stöðugu undan-
haldi undan sókn sveita Phoumi
Nosavans herforingja hægrisinna.
Fyrri fréttir hermdu að Kong
Le hafi gengið í lið með sveitum
Pathet Lao kommúnista í Pon
Hong, sem er um 65 kílómetrum
fyrir norðan Vientiane, eftir að
hafa flúið höfuðborgina.
Tilkynnt var að rússneskar
flugvélar hafi flutt vinstri sinn-
um vistir til Pon Hong áður en
borgin féll í hendur hersveita
Phoumi Nosavans.
Óstaðfestar fregnir herma að
Souvanna Phouma, sem var íor-
sætisráðherra í Laos, væri farinn
frá Cambodia til Spm Neua hér-
aðs í norður Laos, en þar ráða
Pathet Lao ríkjum.
Fyrr í þessum mánuði fór Souv
anna Phouma frá Vientiane til
Cambodia eftir árangurslausar til
raunir til að koma á sættum milli
hægri og vinstri manna.
Orðsendingar
Fréttastofan Nýja Kína í Peip-
ing segir frá því í dag að sendi-
herrum Bretlands og Sovétríkj-
anna hafi verið afhentar orðsend
ingar þar sem Kínastjórn styður
þá tillögu Sovétríkjanna að
Kong Le flúinn
Bóðsteino um
Airíkumúl
Kairo, Egyptalandi, 28. des.
(Reuter).
GAMAL Abdel Nasser forseti
hélt í dag áleiðis til Casablanca
með snekkju sinni Horreya, en
í Casablanca hefst hinn 3. janúar
,,topp“-fundur nokkurra Afríku-
ríkja.
Talið er að fulltrúar að minnsta
kosti 11 sjálfstæðra rikja mæti á
ráðstefnunni, sem mun ræða
vandamál Afríku, svo sem Kongó
og Alsír.
Þar mun einnig verða rætt um
að korna á fót sameiginlegri yfir
stjóm herafla Afrikulandanna,
sem verði einungis skipuð Afríku
búum.
• Heims við ból
Vegna skrifa Velvakanda í
gær, um að Sveinbjörn Egils-
son hafi haft fyrirmynd orð-
anna .lávarður heims' og „kon
ungur lífs vors og ljóss“ í
jólasálminum „Heims um ból“
úr eftirmælum, sem Bjarni
Thorarensen orti, benti einn
blaðamaðurinn honum á það,
að einnig mætti finna fyrir-
mynd upphafsorðanna. A önd-
verðri 18. öld var Jón Hjalta-
lín (langafi Jóns landlæknis)
sýslumaður í Gullbringu- og
Kjósarsýslu og sat í Vík
(Reykjavík). Hann var gleði
maður mikill og hélt góðar
veizlur á vetrum, þar sem
dansaðir voru vikivakar, sung
ið og önnur gleði um hönd
höfð. Heimilislíf var þar allt
með frjálslegum og glaðvær-
um brag og oft dansaðir viki-
vakar, þótt ekki væru veizlur.
Þetta angraði náttúrlega
púrítanska menn úr geistlegri
stétt, sem sáu djöfulsins véla-
brögð í hverri dansheyfingu,
og kom þá upp kvæði norðan-
lands um dansana í Vík. Kvæð
ið er Ijómandi létt og lipurt og
flaug víða um land, því að þá
eins og nú þótti flestu
landsfólki ósköp gaman að
smjatta og hneykslast á því,
sem það ímyndaði sér að fram
færi í Reykjavík. Kvæðið heit
ir ,,Eitt sunnlenzkt vikivaka-
kvæði ort á Munkaþverá eftir
relation (frásögn) eins kaupa
manns“.
Kvæðið, sem mun ort um
1739, hefst á þessu:
Þar er ekkert utan gleði
ævinlega á sunnudagskvöld.
Viðlagið við öll erindin er:
Allan veturinn eru þeir að
dansa.
Þeir eru að drekka
og dóminera
duga því að leika bezt.
Mestur hluti kvæðisins fjaU
ar um líferni Víkurbúa á jóla
hátíðinni, og segir þár m.a.i
Frá þeim vetrar fyrstu
nóttum
fram það gengur undir jól,
liggi menn ei í sárum sóttuno
svo sem skildir heims
við ból.
Þarna er „heims ból“ not-
að um jarðneskan verustað
mannsbarna, og er líklegt, að
Sveinbjörn hafi kannazt við
kvæðið og munað eftir orða-
laginu, þegar hann orti sálm-
inn. Annars getur verið, að
þetta orðalag hafi verið al-
mennt fyrr á öldum.
• Eftir Gunnar
Fálsson
Víst má telja, að séra
Gunnar Pálsson (1714—1791)
sem var djákni á Munkaþverá
um þetta leyti, hafi ort kvæð-
ið. Hann var ágætt skáld og
jafnvígur á íslenzku og latínu.
Hann var um tíma rektor á
Hólum, en sat lengt af í Hjarð
arholti í Dölum. Um hann
segir í Islenzkum æviskrám:
„Hann var gáfumaður mikill
og manna lærðastur, lítill bú-
maður, ógætinn í embættis-
verkum, nokkuð hneigður til
drykkju". Mikið er til eftir
hann af gamansömum kvæð-
um, sem benda ekki til þess,
að hugur hafi fylgt máli,
þegar hann hneykslaðist á
lífsfjöri Víkurbúa, heldur
hafi honum, ungum og fjörug
um manni, leiðzt að hírast á
norðlenzkum sveitabæ, lang-
að í „lebenið" syðra og
öfundað þá sem þar gátu dans
að út jólin.