Morgunblaðið - 29.12.1960, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 29.12.1960, Qupperneq 12
12 MOVC.T'*’"* a nib Fimmtudagur 29. des. 1960 Ingvar Árnason verkstjóri — minning Fæddur 30. júní 1892. Dáinn 24. sept. 1960. 1>ÓTT nokkur tími sé liðinn síð- an Ingvar heitinn Árnason var til grafar borinn langar mig að minnast hans með nokkrum orðum, sem eins þeirra ágætustu manna, sem ég hef mætt á lifs- leiðinni. Ingvar var fæddur að Áshól í Holtum þar sem foreldrar hans bjuggu um nokkurra ára skeið, þar ólst hann upp við vanaleg sveitastörf i hópi syst- kina sinna, en hann var elztur þeirra. Foreldrar hans voru Árni, f. 31. janúar 1864, a. í Reykjavik 20. apríl 1943 Run- ólfssonar b. Áshól f. 1828, dó að Berustöðum 17. ág. 1901 Run- ólfssonar b. Brekkum í Holtum f. 1788 Nikulássonar í Kálfholli Snorrasonar í Narfakoti í Njarð- vikum Gizzurssonar. Systkini Árna voru: Runólfur bókbindari í Norðtungu faðir Sigurðar er var kaupfélagsstjóri í Borgarnesi, Sigurður er fór til Ameríku Jón b. Hárlaugsstöðum í Holtum átti fjölda barna og Ingigerður kona Þorsteins Þorst einssonar á Berustöðum, er einn ig áttu stóran barnahóp. Móðir þessara systkina kona Runólfs b. í Áshól var Guðlaug f. 17. apríl 1818 Jónsdóttir b. Stóra-Hofi Rangárvöllum f. 3. ; júlí 1786, drukknaði 29. apríl 1824 Jónssonar í Ey Einarsson- ar. Móðir Guðlaugar var Ingi- , gerður Narfadóttir frá Háamúla ] í Fljótshlíð Jónssonar Eyjólfs- sonar í Háamúla, þess sem Háa- ; múlaætt, verður kennd við Jóns ; sonar. Er ættmennahringur ■ þessi mjög stór, margt mann- ; vænlegra manna og kvenna, um ( Fljótshlíð, Holtin og í Reykja- ■ vík. Kona^Árna móðir Ingvars ] var Margrét f. 22. júlí 1869, d i 15. júni 1951 Hróbjartssonar frá Landeyjum f. 3. nóv. 1836 Ólafs- ] sonar b. Tjamarkoti f. 4. sept. < 1801 Sigurðssonar á Syðri- ] Úlfsstöðum f. 1773 Jónssonar b. Hallgeirsey Ólafssonar. Systir Sigurðar á Úlfsstöðum var Guð- ■ rún móðir Tómasar Sæmunds- : sonar prests á Breiðabólsstað og eins af Fjölnismönnum, hans dóttir var Þórhildur kona Helga Háifdánarsonar prestaskólakenn ara föður Jóns Helgasonar bisk- ups. Kona Hróbjarts var Ingibjörg f. 6. jan. 1845 Magnúsdóttir b. Snjallsteinshöfða f. 19. ág. 1816 Jónssonar b. Skammbeinsstöðum Árnasonar. Kona Magnúsar var Margrét f. 1820 Teitsdóttir á Snjallsteinshöfða f. 1798 Finns- sonar. Þessa leið er frændsemi við Guðmund Daníelsson skáld og fjölda annarra manna austur þar. Af hinum ágæta systkinahóp er ólst upp á heimili Árna og Margrétar eru aðeins tvö eftir lifandi, Guðlaug og 'Sigurberg- ur framkvæmdastjóri í Reykja- vík. Það er ekki sama hvernig maður er kynjaður og flestir bera merki forfeðra sinna meira eða minna, sumir fá í arf allt það bezta, sem til er, aðrir nokkurn veginn jafnt af hvoru. Ingvar var einn þeirra gæfu- manna sem fékk það bezta úr báðum sínum ættum og ávaxt- aði það vel. Árið 1903 fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur og bjó þar æ síðan. Fljótlega hóf Ingvar starf hjá Reykjavíkurbæ, og vann þar uppfrá því og um 30 siðustu árin sem verkstjóri í grjótnámi Reykjavikurbæjar. Ingvar var vel að manni. Hann var þéttur á velli og þéttur í lund. Hægur og gætinn, var vellátinn, sem verkstjóri og náði góðum af- köstum með lægni og vinsæld- um. Ingvar var alinn upp á trúuðu heimili þar sem guðrækni var stunduð á gamla íslenzka vísu. Það var því eðlileg þróun að i hann léti þau mál sig einhverju skipta. Ungur að árum gerðist hann meðlimur K. F. U. M. var einn af stofnendum Unglinga- deildarinnar. Og þar í þeim fé- lagsskap vann hann mikið og ó- eigingjarnt starf. Og var það 'mikil gæfa fyrir þann félags- skap að hafa fengið að njóta starfskrafta svo ágæts manns. Hins hleypidómalausa hrein- lynda manns sém vakti athygli annarra æskumanna á að Jesús Kristur væri fyrirmyndin sem vert væri að miða að. Og hygg ég að skarð Ingvars á þeim slóðum verði seint — eða aldrei fyllt. Fleiri ár var það hann sem stjórnaði yngsta hópnum, það er svonefndri Vinadeild, drengja- deild yngri en 10 ára. Hann lað- aði þá að fyrirmyndinni með hinni hógværu boðun í orði og verki. Hann var einn aðalfrum- kvöðull sumarsstarfs K. F. U. M., einnig starfaði hann í Kristni- boðsfélagi karla og sunnudaga- skóla K. F. U. M. af sinni ein- stöku trúmennsku og ást á því. sem var hans hjartans mál. Ungur að árum fluttist undir- ritaður til Reykjavíkur og það tel ég vera mína mestu gæfu þar, er ég kynntist þeim Ingvari og bræðrum hans. Og ef ég ætti að óska ungling er flytti til borgarinnar einhvers sem hefði, varanlegt gildi þá væri það, að slíkir menn yrðu á vegi þeirra til handleiðslu gegn um lífið. Menn sem aldrei bregðast hug- sjón sinni og lifa til að gera gagn. Ingvar kvæntist árið 1944 Björgu Jónsdóttur, ágætiskonu, dóttir Jóns Jónssonar frá Breið- holti. Þau Ingvar eignuðust þrjár dætur. Sem nú eiga minn- inguna eftir um góðan föður. Minningu sem getur yljað þeim og stutt um ókomin ár. Það er sárt fyrir konuna að sjá á bak ástríkum eiginmanni. En þau munu bæði hafa verið sannfærð um að þau sæjust aftur á landi lifenda, þar sem þau aldrei þyrftu aftur að skilja. Og þar sem ég trúi þeirri kenningu, að þar sem góðir menn fara eru guðs vegir, er ég sannfærður um að sú trú rætist. Ari Gíslason, DÖMUR FYRIR GAMIÁRSKVÖLD : Kvöidkjólar, Herðasjöl, Kvöldtöskur, Stíf undirpils og Hanzkar. AHt bezt HJÁ BÁRU Austurstræti. 2ja herb. íbúð Til sölu er lítil 2ja herbergja íbúð við Stóragerði. íbúðin er tilbúin undir tréverk, húsið fullgert að utan, sameign inni múrhúðuð, tvöfalt gler. Eignar- hluti í nýtízku þvottavélasamstæðu fylgir. Frysti- hólf. ÁRNI STEFÁNSSON, hdl., nfálflutningur. Fasteignasala Suðurgötu 4 — Sími: 14314. Lærið talmál » erlendra þjóða í fámennum flokkum. Auk venjulegra kvöldkennslu fyrir fullorðna eru sérstök námskeið fyrir börn og útlendinga, sem vilja læra íslenzku. Kennsla hefst 6. janúar. Málaskóli Halldórs Þorsteifissonar Vórður — Oðiim halda Sjálfstæðisfélogin í kl. 8,30 eh. í •- Heimdallur —> AKVÚLD Reykjavík miðvikudaginn 4. Sjálfstæðishúsinu og Lidó - SKEMMTIATRIÐI Hvöt januar 1. Félagsvist 2. Ávarp: Bjarni Benediktsson, ráðherra. 3. Spilaverðlaun afhent. 4. Dregið í happdrættinu. 5. Einsöngur: Guðmundur Jónsson, óperusöngvari 6. D A N S Lidö: 1. Félagsvist 2. Ávarp: Jóhann Hafstein, alþingismaður. 3. Spilaverðlaun afhent. 4. Dregið í happdrættinu. 5. Einsöngur: Guðmundur Jónsson, óperusöngvari 6. D A N S Sætamiðar afhentir í Sjálfstæðishusinu í dag, fimmtudag frá kl. 1 Skemmtinefndin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.