Morgunblaðið - 29.12.1960, Síða 19
Fimmtudagur 29. des. 1960
MORGUlSBLAÐIh
19
— Vélasjóður
Framh. aí bls. 11
l»6ra skárri heimild við hend-
ina, auk minnis míns, aðgang að
fi-umheimildum hef ég vitanlega
ekki:
„Árið 1926 býður sænska sölu-
félagið, sem hafði selt BÍ hina
fyrstu þúfnabana, BÍ fjórar vél-
ar í viðbót, sumar nokkuð not-
aðar. Voru þær keyptar 1927
fyrir 10 þús. kr. sænskar allar
í einu kaupi. Tvo af þessum
þúfnabönum keypti Thor Jen-
sen, einn keypti í>úfnabanafélag
Akureyrar og gamla þúfnaban-
ann, sem þar var, hinn fjórða
keypti Sveinn Jónsson frá Fjalli
á Skeiðum, og loks seldi Bí
gamla þúfnabanann í Reykjavík
Gunnlaugi Gunnlaugssyni, er
lengi hafði unnið með honum.
Þúfnabanarekstri BÍ var þannig
lokið, en þessir aðilar notuðu
vélarnar næstu árin. En dagar
þessara véla og vinnubragða
voru senn taldir. Árið 1932 sel-
ur Þúfnabanafélag Akureyrar
tvo þúfnabana, sem það á þá
heillega, til Danmerkur. Kaup-
andinn var Vildmosekommission
en, sem notaði þá við ræktun
Store-Vildmase á Jótlandi,
ásamt fleiri vélum, en fyrsti
þúfnabaninn, sem til Danmerk-
ur kom, hóf vinnu í Vildmosen
1921, sama árið sem fyrsti þúfna
baninn kom til íslands“.
Þannig var það, Bl átti aldrei
og starfrækti aldrei nema tvo
þúfnabana — sem keyptir voru
1921 og 1922, og var nógu erfitt
samt —. Félagið hafði hins
vegar alla forgöngu um kaup
vélanna sem keyptar voru
1927, og var þar milliaðili. Ef
til vill má segja að félagið hafi
átt þá þúfnabana nokkra daga
eða vikur, sem innflytjandi,
unz eigendur tóku við þeim,
en meira var það ekki, svo sem
að ofan greinir.
Þó að Vélasjóði væri frá upp
hafi 1923, ætlað það mikla
hlutverk „að kaupa og starf-
rækja jarðræktarvélar, svo sem
þúfnabana, skurðgröfur og aðr-
ar stærri nýtízku vélar, sem
eru við hæfi hér á landi“ —
voru þetta dauð ákvæði að
kalla má, allt til ársins 1943.
Árið 1930 eru sett sérstök lög
urc skurðgröfur ríkisins. Var í
þeim heimild til þess að kaupa
„eina skurðgröfu á ári fyrst
uir sinn.“ Ekkert gerðist sam-
kvæmt lögum þessum og síðar
voru þau feld inn í Garðrækt-
arlögin sem V. kafli þeirra —
um Vélasjóð. En allt kom það
eð engu liði, þar til ríkið
keypti hinar fyrstu tvær skurð-
gröfur af dragskóflugerð 1942.
Þá kom í ljós að V. kafli Jarð-
ræktarlaganna — um Vélasjóð,
leysti ekki vandann, að skapa
grundvöll að skynsamlegum og
fjárhagslega heilbrigðum rekstri
slíkra véla sem skurðgröfumar
voru — og eru —.
Árið 1942 var Ólafur Thors
landbúnaðarráðherra um skeið,
eða fór sem ráðherra með þau
mál. Aldrei hygg ég að Ólafur
hafi talið sig vera mikinn bún-
aðarfrömuð, en samt tókst svo
tiL að fyrir atbeina hans var
lagður hinn löggjafarlegi grund
völlur að hinum mikla og
heillaríka rekstri Vélasjóðs —
skurðgröfurekstrinum.
Ólafur fól sem ráðherra Verk-
færanefnd „að semja nýjar og
ákveðnar reglur um notkun
þeirra skurðgrafa sem ríkið á.“
Þetta leysti nefndin af hendi
á þann hátt að hún endurskoð-
aði V. kafla Jarðræktarlaganna,
sem þá voru alveg nýlega end-
urskoðuð — um Vélasjóð, og
breytti honum mikið. Tillögum
nefndarinnar var vel tekið og
voru afgreiddar sem lög frá
Alþingi 26. marz 1943.
Síðan hafa ákvæðin um Véla-
sjóð haldizt óbreytt í megin-
atriðum, þótt Jarðræktarlögin .
hafi verið endurskoðuð, að
þeim verulegu breytingum frá-
töldum, að framlag rikisins til
framræslu með vélum hefir ver
ið hækkað til mikilla muna.
Útgerð skurðgrafanna varð
aðalverkefni Vélasjóðs. Þó skal
því eigi gleymt, að það var á
vegum Vélasjóðs og sem eign
hans að fyrsta jarðýtan — fyrsti
beltatraktorinn búinn ýtutækj-
um — tók til starfa 14. ágúst
1943. Hjólatraktorar höfðu að
sönnu áður tekið við verkefn-
inu af þúfnabönunum, að mjög
verulegu leyti, en þó má með
sanni segja að „Það munaði
um mannsliðið drengir“, er
jarðýturnar komu til sögunn-
ar.
Þannig hefir verkefni og verk
— þáttur Vélasjóðs í búnaðar-
framkvæmdum orðið mikill og
giftusamlegur, eftir að ætlunar-
verk sjóðsins var markað með
lögunum 1943, langmest er það
á sviði framræslunnar, afskipti
sjóðsins af jarðýtunum voru
aðeins 1943 og 44, en þau mörk
uðu einnig spor sem um mun-
aði og eiga ekki að gleymast.
Verk skurðgrafanna eru auðsæ
öllum sem litast um í íslenzk-
um sveitum, en það verður
heldur ekki farið langt um land
ið — varla bæjarleið — svo
að verk beltatraktoranna með
ýtum blasi ekki við.
Jaðri, 18. desember 1960
Ámi G. Eylands.
í tilefni af gullbrúðkaupsdegi okkar þann 17. desem-
ber flytjum við öllum þeim fjölda vina og vandamanna
allra barna okkar, tengdabarna og barnabarna þakk-
læti fyrir gjafirnar og blómin og heillaskeytin. Þetta
allt þökkum við af hrærðu hjarta, en mest er okkur vin-
6tta ykkar allra. — Þökkum gamla árið, gleðilegt ár.
Guðlaug Pétursdóttir, Stefán Árnason,
Fálkagötu 9.
Hlíöarbúar afhugið!
Eidflaugarnar — Blysin og Raketturnar komið.
HLlÐARTURNINN
Drápuhlíð 1.
i
Flugeídar — Flugeldar
I ár höfum við fjölbreytt úrval af TIVOL.I
Skrautflugeldum
ásamt
MARGLITA BLYS, 12 teg. — SÓLJR (2 teg.)
BENGAL BLYS — ÝLU BLYS. — PÚÐUR-
ÞOTUR — STJÖRNUREGN o. fl.
STJÖRNULJÓS. — RÓMVERSK BLYS. —
Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á fjölbreytt-
asta úrval af skrautflugeldum í öllum stærðum og
nú eins og í fyrra eru til sölu hinir raunverulegu
TIVOLI flugeldar. Við munum leigja hólka með
þessum flugeldum. Tilvalið tækifæri fyrir félags-,
fjölskyldu- og vinahópa að halda sameiginlega flug-
eldasýningu á gamlárskvöld. Gerið innkaup meðan
úrvalið er mest.
FI.UGELDASALAN
VESTLRRÖST H.F.
Vesturgötu 23 (sími 16770).
FLUGELDASALAN
RAFTÆKJAVERZLUMN H.F.
Tryggvagötu 23 (sími 18279).
FLUGELDAR
JOKER —
F L A U T U
STJÖRNU
BLOSSAR — POTS-A-FEU
LJÓS — SÓLIR
Verðandi h.f.
Ungling
vantar til blaðburðar við
Fálkagötu
JDnvgtttihlððið
Konan mín
GUÐRUN árnadóttir
frá Melbæ Kaplaskjóli,
til heimilis Vitastíg 9, andaðist 24. des. s.l.
Valdimar Kr. Árnason.
Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma
guðrUn JÓNSDÓTTIR
frá Tobbakoti, Þykkvabæ,
andaðist í Landsspítalanum 23. þessa mánaðar.
Fyrir hönd aðstandenda.
Gunnar Eyjólfsson.
Eliginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
GUÐMUNDUR SIGURÐUR JÓHANNESSON
húsvörður frá Meira-Garði í Dýrafirði,
lézt í sjúkrahúsi Hvítabandsins þriðjudaginn 27. des.
Jarðarförin auglýst síðar.
Kristín Jónsdóttir, Guðrún Ebeneserdóttir,
Jóhannes S. Sigurðsson, Halldóra Ólafsdóttir,
Ingimar Sigurðsson, Hulda Alexandersdóttir,
Sigurður Sigurðsson, Ása Leósdóttir,
Þórketili Sigurðsson og barnabörn.
Jarðarför
STEINUNNAR ÞÓRARINSDÓTTUR
Kópavogshæli,
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 30. des. kl. 10,30
f. h. — Blóm og kransar afþökkuð.
F. h. aðstandenda.
Margrét Auðunsdóttir
Bróðir minn
EINAR BJÖRNSSON
andaðist í Haugasundi 17. þessa mánaðar. Jarðarförin
fer fram í dag 29. desember frá heimili hans Övregatan 71
Haugesund.
F. h. systkinanna og annarra vandamanna.
Svava Bjfírnsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við fráfall
og jarðarför mannsins míns, föður, tengdaföður og afa
ÞORSTEINS Þ MJRSTEINSSONAR
Höfðaborg 53.
F.h. aðstandenda.
Aðalheiður Jónsdóttir,
bfírn. temrdabfím og barnabfírn.
Þökkum hjartanlega einlæga vinsemd við útför
SIGTRYGGS JÓNSSONAR
Suðurgötu 13.
Aðstandendur.