Morgunblaðið - 20.01.1961, Page 6
6
MORVUNBLAÐ1Ð
Föstuilagur 20. Janúar 196x
RekstrarÖryggi ut-
gerðarinnar aukið
deild sjávarútvegsins að opna
nýja lánaflokka í iþeim tilgangi
að bæta fjárhagsaðstöðu fyrir-
tækja er stunda sjávarútveg og
fiskrvinnslu og hafa ekki á und-
anförnum árum fengið nægilegt
fjármagn ti»l langs tíma til
þeirra framkvæmda, sem þau
hafa ráðizt í. Hér væri því urr>
það að ræða að breyta miklu af
skuildum sjávarútvegsins í lán
til lengri tíma.
Því næst gerði viðskiptamála-
ráðherra nokíkra grein fyrir
þeim aðstæðum, sem gera slík
lán nauðsynleg, og benti á, að
fátt geti í raun og veru verið
þýðingarmeira, en að lánamál
sjávarútvegsins, höfuðatvinnu-
vegs þjóðarinnar, séu í viðun-
andi horfi, en á það hefði nokk-
uð brostið. Það, sem mest hefði
háð sjávarútveginum, væri hinn
mikli lausafjárskortur, er leitt
hefði til þess, að safnað hefði
verið miklum lausaskuldum og
að útgerðin hefði þurft að ganga
á rekstrarfé sitt. Mörg útgerðar-
fyrirtæki væru nú hlaðin lausa-
skullum í bönkunum og íþyngdu
þau rekstri þeirra að sjálfsögðu
mjög mikið. Markmiðið með
þessari lagasetningu væri því.að
létta þessum þunga bagga af út-
gerðinni. Hér sé hins vegar ekki
um að ræða styrki til sjávar-
útvegsins á kostnað neinnar ann
arrar atvinnugreinar, og ríkis-
stjórninni sé ljóst, að öllum um-
bótaþörfum sjávarútvegsins sé
ekki fullnægt með þessum ráð-
stöfunum. Hins vegar fari það
ekki á milli mála, að rekstrar-
öryggi sjávarútvegsins aukist
mjög við þessar breytingar.
Eysteinn Jónsson tók næst til
máls. Taldi hann bráðabirgða-
lögin og frumvarpið um staðfest
ingu þeirra tilrauna ríkisstjórn-
arinnar til þess að ná sjávarút-
veginum út af því skeri, sem
hún hefði stýrt 'honum á. Gagn-
rýndi hann mjög, að rikisstjórn-
in skyldi gefa út bráðabirgðalög
um þessi mál, og virtist telja, að
skilyrði tii setningar þeirra
hefðu ekki verið fyrir hendi.
Sagði Eysteinn, að ríkisstjórn-
in reyndi nú að telja mönnum
trú um, að erfiðleikar sjávarút-
vegsins stafi af gömlum leifum
frá vinstristjórnar árunum og
Framhald á bls. 19.
Víst er það sem vera skal,
vart mun annað tjóa,
en sjómenn hundsi Hannibal,
og haldj áfram að róa.
En þeir sem virða Tímans tal,
tapreksturinn þróa.
Þeir munu hanga í Hannibal
og hætta við að róa,
Þá læt ég fylgja hér fyrlr-
fram þakkir, ef þú birtir
þetta.
• Ægissíðaeða
^Ægisíða
Á. G. Æ. skrifar:
1 Stafsetningarorðabók Frey
steins, sem ég aldrei kemst af
án þess að hafa við hönd-
ina, hvað sem ég skrifa, er
þetta bæjarnafn skrifað með
einu s-i — Ægisíða. Hetfi ég
haldið það rétt vera, bæði af
trú og vana að ha'lda mér við
Freystein. Nú sé ég að rit-
hátturinn Ægissíða er víða á
ferðinni. Sem dæmi vil ég
nefna stóra fyrirsögn í Morg-
unblaðinu 30. des. 19&0, —
Sérleyfisbrenna á Ægissíð-
unni, götuskrá fyrir Reykja-
vík s<|n i>óst- og símamála-
stjórnin hefir getfið út, og nú
síðast rekst ég á ritháttinn
ÆgLssiía í riti er ég fébk í
hendur rétt í iþessu, The soils
of Iceland, þar er ritað á
ensku Aegissida. —
Hver er hinn rétti rithátt-
ur? Má ekki fara ©ftir orða-
bók Freysteins?
FRUMVARP ríkisstjórnar-
ar um heimild stofnlána-
deildar sjávarútvegsins við
Landsbanka íslands til að
opna nýja lánaflokka, var til
1. umræðu á fundi neðri
deildar Alþingis í gær.
Gylfi Þ. Gíslason viðskipta-
málaráðherra fylgdi frumvarp-
inu úr hlaði. Lagði hann áherzlu
á, að megintilgangurinn með
bráðaib irgða 1 ögu n u m, sem gefin
voru út um þetta efni 5. janúar
si., væri sá að heimila stofnlána-
FERDINANR
Hin gömiu kynni gleymast ei
SL. FÖSTUDAG komu nokkr-
ir 50 ára stúdentar og eldri
saman til kaffidrykkju í há-
tíðarsal Elliheimilisins. í 10
ár hefur það tíðkazt að stúd-
entar frá því fyrir aldamót
hafa hitzt einu sinni á ári, og
rifjað upp gamlar minningar
og skemmtilega atburði frá
skóladögunum. ,
Af skiljanlegum orsökum
hafa stór skörð verið höggvin
í raðir þeirra stúdenta sem
luku prófi fyrir aldamótin, og
að þessu sinni voru aðeins
fjórir mættir af þeim, elztur
Sigurbjörn Á. Gíslason frá
1897. En einnig voru boðnir
til hófsins þeir sem útskrifuð-
ust árið 1910 og fyrir þann
tíma. Mættir voru alls 15
manns. . , ■
☆
Við þetta tækifæri tók ljós-
myndari Mbl. meðfylgjandi
hópmynd af stúdentunum, og
eru þeir taldir frá vinstri:
Fremri röð: Lárus Sigurjóns-
son, skáld og guðfræðingur,
Ólafur Þorsteinsson, læknir;
Guðmundur Hannesson, fyrrv.
bæjarfógeti; Halldór Jónasson
frá Eiðum; Ásmundur Guð-
mundsson fyrrv. biskup; Alex-
ander Jóhannesson, prófessor.
Aftari röð: Sigurður Sigurðs-
son, fyrrv. sýslumaður; Sigfús
M. Johnsen, fyrrv. bæjar-
fógeti, Þorsteinn Þorsteinsson,
fyrrv. hagstofustjóri; Björg--
úlfur Ólafsson, læknir; Bjarni
Snæbjörnsson, læknir; Matt-
hías Þórðarson, fyrrv. þjóð-
minjavörður; séra Sigurbjörn
Á Gíslason; Sigurður Nordal
prófessor; Guðmundur Thor-
oddsen, prófessor. ( ,
☆
Hin myndin er af þremur
bekkjarbræðrum, Lárusi
Sigurjónssyni, Ólafi Þorsteins
syni og Guðmundi Hannes-
syni. Þeir útskrifuðust árið
1903, og af þeim 15, sem þá
tóku stúdentspróf eru nú að-
eins fjórir á lífi.
^Vísan^góða
Ströndi skrifar:
Hér legg ég orð í belg og
vildj ég helzt að svo fari, sem
hjá strákunum forðum að fuill
ur yrði belgurinn. Þá sný ég
mér að vísunni góðu, sem
fjallað er um í dálkunum hjá
þér núna undanfarið.
Vísuna lærði ég atf föður
mínum, en hann mun hafa
numið atf fóstra sínum. Sá
mun aftur hafa haft hana frá
fóstra sínum eða fóstbróður,
sem þó var allmiklu eldri en
hann. Allt voru þetta og eru
vel þekktir menn í sínu
byggðalagi og sumir lands-
kunnir. Vísuna lærði ég
svona:
Nógan gefur snjó á snjó.
Snjóum vefur flóa tó.
Tóa grefur móa mjó,
mjóan hetfur skó á kló.
Svona er vísan í alla staði
rétt stuðluð og rímuð og mik-
ið finnst mér hún lík því sem
Hjálmar hafi hana kveðið,
bæði að rími og orðalagi, þó
maður geti ekki sannað það,
en ef til dæmis seinni partur
vísimnar er ekki líkur því
sem Hjálmars væri, þá veit
ég ekki hvað er líkt hans
kveðskap. Svo fyrst ég er nú
að senda ,þér þessar línur,
læt ég fylgja tvær stökur
sem mér duttu í hug um dag-
inn, þegar ég sá í Vísi að
sjómenn hefðu hundsað Hanni
bal og byrjað róðra, en mér
finnst þær ekki eiga mjög illa
við ástandið sem nú ríkir í
sjávarmálunum. Þær eru
svona: