Morgunblaðið - 20.01.1961, Síða 8

Morgunblaðið - 20.01.1961, Síða 8
8 MORCUIVBLAfílÐ Fösfudagur 20. Janúar 1961' í DAG verður John Fitz- gerald Kennedy, fyrrver- andi þingmaður frá Massa chussetts, settur inn í em- bætti sem 34. forseti Bandaríkjanna. — Verður hann nú,- 43 ára gamall, annar af tveim valdamestu mönnum heimsins. Hvað sem kann að gerast á ár- inu 1961, þá er Kennedy það nafn, sem aldrei mun hverfa úr fréttunum. hefur lýst því þegar félagar hans „urðu drukknir og grétu hrun lýðveldisins á Spáni“, þá hafi Kennedy hvergi komið þar nærri. Kennedy hefur viðurkennt sannindi þessarra ummæla. Hann hefur sagt dapurlega: „Hjá sumum hefur frjálslyndisstefnan verið full- mótuð er þeir voru á tvítugs- aldri. Svo var ekki með mig. Ég lenti í þverstraumum og hringiðum . . .“ Að sjálfsögðu er um yfir- borðslegar ástæður fyrir óróa og kvíða að ræða. í heimi ald- urhniginna þjóðarleiðtoga gat enginn virzt ólíklegri til stjórnvizku en Kennedy. Hann er ótrúlega unggæðislegur. Hreinskilnislegt, laglegt and- litið, úfið hárið og meðfædd óbeit á höttum, breitt og inni- legt brosið og meðfæddur glæsileiki gera hinn kjörna forseta að átrúnaðargoði allra ungra Bandaríkjamanna. En vitandi um hin miklu völd og virðingu forsetaembættisins, hlýtur m,aður að líta á Kenne- dy með íhugun. vann sér er hann var sendi- herra í London fyrir heim- styrjöldina síðari, sem kemur mörgum Bandaríkjamannin- um til að efast um meðfædda kosti hins kjöma forseta. Fað- irinn er talinn hafa verið nokk uð hlynntur nazistum og frek ar and-brezkur. Telja sumir að hann hafi enn nokkur á- hrif á stjórnmálastefnu son- arins. Eldri bróðir Hverjir þessir hringstraúm- ar voru, kemur greinilega fram í ævisögunni eftir Jam- es MacGregor Burns prófess- or. Þar kemur í ljós að faðir Kennedys var mjög drottnun- arsamur, ef til vill af nauð- syn, þar eð hann átti kyrrláta og mjög trúaða eiginkonu og þróttmikil börn, níu að tölu. En hann varð að vera oft að heiman og þá tók Joseph, elzti sonur hans, við stjórnartaum- unum í umboði föður síns. Hann kann að hafa reynt al- veg sérstaklega að láta vald- ið bitna á John, sem var næst- ur honum að árum og því líklegastur til að vefengja um- boðið. Það var Joseph, sem náði glæsilegasta árangrinum í flestum greinum. Þótt báðir bræðurnir læsu hagfræði í London, var það í Joseph, sem kennari þeirra, prófessor Har- old Laski, sá forsetaefni Bandaríkjanna. Hafi þetta haft þau áhrif á John að hann varð hlédrægari en skyldi og tregur til að taka nokkra á- kveðna afstöðu, getur slíkt engan veginn talizt undarlegt. En Joseph dó hetjudauða í heimstyrjöldinni síðari. Er at- mennt talið að þá hafi sú skyldukvöð verið lögð á herð- ar Johns, að hann yrði að taka við. , Tilfinningaleysi Sannleikurinn er sá að Kennedy háði kosningabar- áttu sína sem róttækur hug- sjónamaður, og enginn neitar því að hann er gæddur mikl- um pólitískum gáfum. Hins vegar er það engum vafa und- irorpið, að framan af ævi hans hafði faðirinn mikil áhrif á skoðanir sonarins í utanríkis- málumi f fyrstu bók sinni: Why England Slept (Hvers vegna England svaf), sem út kom árið 1940, endurtók Kennedy vissulega þá grund- vallarskoðun föður síns að nánast væri tryggt að Bret- land mundi tapa stríðinu. En bókin var ekki barátta fyrir afskiptaleysi Bandaríkjanna og var ekki and-brezk. Það sem merkilegast var við þetta óþroskaða ritverk, var næst- um algjört tilfinningaleysi þess. Það sýndi kuldalegt hlut leysi, merkilegt og næstum ótrúlegt í riti eftir svo ungan Bandaríkjamann, umTCngland á svo viðkvæmu augnabliki. En hvað s»m þessu líður, þá hefur Kennedy sagt að póli- tískur ágreiningur þeirra feðga sé nú ,,alger“, og virð- ist engin ástæða til að rengja það. Efíirtektarverður sigur Víða um heim er afstaða fólks enn sú sama og hún var, þegar kjör Kennedys fór fram. Menn eru hvort tveggja í senn, mjög vongóðir og ó- venju efagjarnir. Og þótt þeir ekki flíki skoðunum sínum, er ekki af þeim sökum hægt að álykta að þeir séu Bandaríkj- unum óvinveittir eða ótilhlýði lega vantrúaðir. Það líða of margir Bandaríkjamenn af þessari sömu óvissu. Kennedy hóf kosningabar- áttuna með óvenju miklar hindranir í vegi sínum: —■ æsku sína, ætterni og róm- versk-kaþólsk trúarbrögð. — Hann valdi sér baráttuaðferð, sem Adlai Stevenson hafði tví vegis sýnt að var skaðvænlega óvinsæl. Keppinautur Kennedys brigzlaði honum hvað eftir annað um vanþroskað and- varaleysi í utanríkismálum, sem kynni að steypa Banda- ríkjunum út í styrjöld. Og Eisenhower forseti — sem enn er mjög virtur meðal flestra Bandaríkj,amanna — réðist í lok kosningabaráttunnar opin berlega á framboð Kennedys. Það er því ekki hinn naumi kosningasigur Kennedys, sem er eftirtektarverður, heldur hitt, að hann skyldi sigra. „Honey Fitz“ Bandaríkjamenn hafa glímt við þá spurningu hvort það geti verið þeim hættulaust á tímum kalda stríðsins að hafa fyrir leiðtoga ungan mann, sem jafnvel Sovétríkjunum hlýtur að geðjast vel að. En þeir, sem þekkja hann gerst, segja að Kenhedy geti stund- um sýnt það svart á hvítu að írski innflytjendahópurinn, sem um 1840 flýði undan hall- ærinu heima fyrir yfir Atlants ála, hafi ékki getið af sér þann ættbálk, sem nú er einn hinn auðugasti og valdamesti í Bandaríkjunum, án harðýðgi og einbeitni. í sögu hinnar innfluttu ætt- ar Kennedys er margt, sem Bandaríkjamönnum virðist í fullu samræmi við „banda- ríska drauminn", en einnig nokkur ástæða til óróleika og kvíða. Menn eru ekki hneigðir til að fordæma Kennedy vegna afa hans, sem báðir voru írsk-amerískir stjórn- málaleiðtogar í Boston. Og enn virðist einlæg aðdáun ríkja meðal almennings á ,,Honey Fitz“, móðurafa Kennedys, hinum fræga borg- arstjóra í Boston er steig gjarn an fjörugan írskan dans að loknum stjórnmálasigrum, sem voru tíðir. Þverstraumar og hringiður Efalaust reynir faðirinn enn að neyta sinna fyrri yfirráða. En þegar sonurinn velur sér stefnu, sem er í algeri and- stöðu við ráðleggingar föður- ins, verður afleiðingin venju- lega símahringing frá föðurn- um, sem segir: „Það bezta, sem þú hefur nokkurntíma gert“. Það versta, sem sagt hefur verið um nýja húsbóndann í Hvíta Húsinu, er ekki það að hann fylgi skoðunum föður síns, heldur hitt að hann hafi sjálfur enga rótfasta sannfær- ingu. Bandarískur rithöfund- ur, samtíðarmaður Kennedys, Innra afl Kennedy hefur ávallt haft áhuga á stjórnmálum og al- þjóðamálefnum. Sem þing. maður hefur hann fylgt þeirri reglu að afla sér stöðugt stað- reynda, vega og meta allar að- stæður í þeirra eigin ljósi og mynda sér skoðun hlutdrægn. islaust. Aðferð, sem getur virzt dauf og varfærnisleg, hefur hvorugt orðið hjá hon- um. Hún varð til þess að hann gerði, meðan hann enn var viðvaningur á þingi, skyndilega og harða árás á yfirstjórn bandaríska hersins. Framhald á bls. 17, Átrúnaðargoð Af þeim, sem kusu Kenne- dy, voru samt fáir, er gerðu það með fullu trausti. Margir þeir Bandaríkjamenn, sem ákafast óska honum góðs geng is, vita ekki hvaða skoðun þeir eiga að mynda sér um hann, óttast að hann kunni að bregðast þeim. Hvert smá- atriði — eins og það þegar for setaefnið lék einn daginn níu holur í golfi í Florida — er notað sem fyrirboði þess að engra gleðilegra breytinga sé að vænta á forustu Banda- rkjanna. _ i Áhrif föðurins En það var faðir forsetans, Joseph Kennedy, sem skóp hinn mikla auð ættarinnar, að- allega með hyggindum sínum og þekkingu á verðbréfamark aðinum. Enda þótt oft sé stað hæft að „Joe hafi notað pen- inga sína til að kaupa Hvíta Húsið handa syni sínum“, þá er það fyrst og fremst hið pólitíska álit sem faðirinn á- í rammanum hér að ofan eru myn : öllum forsetum Bandaríkjanna til þessa- Efst til vinstri er George Washington, sem kjörinn var árið 1789, fyrsti forsetinn. Þegar haldið er áfram til hægri, er næstur John Aðams (1797), 3. Thomas Jefferson (1801), 4. James Madison (1809), 5. James Monroe (1817), 3. John Quincy Adams (1825), 7. Andrew Jackson (1829), 8. Martin Van Buren (1837). j Niður eftir síðunni hægra megin, er næstur nr. 9, William Henry Harrison (1841), 10. John Tyler (1841), 11. James Knox Polk (1845), 12. Zachary Taylor (1849), 13. Millard Fillmore (1850), 14. Franklin Pierce 1853), 15. James Buchanan (1857), 16. Abraham Lincoln (1861), 17. Andrew Johnson (1865). Þj Neðst á síðunni, talið frá hægri eru: nr. 18. Ulysses Grant (1869>, 19. Rutherford Hayes (1877), 20. James Garfield (1881), 21. Chester Arthur (1881), 22. Grover Gleveland (1885 og 1893), 23. Benjamin Harrison (1889), 24. WiIIiam Kc Kinley (1897), 25. Theodore Roosevelt (1901). *i SVo er talið upp eftir síðunni vinstra megin, en þar eru: nr. 26. William Howard Taft (1909), 27. Woodrow Wilson (1913), 28. Warren Harding (1921), 29. Calvin Coolidge (1923), 30. Herbert Hoover (1929), 31. Franklin Roosevelt (1933), 32. Harry Truman (1945), 33. D. Eisenhower (1953), 34. John Kennedy (1961)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.