Morgunblaðið - 28.01.1961, Blaðsíða 8
8
MORGUN3LAÐ1Ð
Laugardagur 28. Jan. 1961
Utg.: H.í. Arvakur, Reykjavík.
Framkvaemdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðaiotræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Asknftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
X lausasölu kr. 3.00 eintakið.
SKUGGI PASTERNAKS HVILIR A
OFBELDISMÖNNUNUM
f>asternak. Það nafn þekkir'*’
öll heimsbyggðin. Hann nú hefur tekizt að draga úr
vígtennurnar, en hafði á sín-
Heilbrigðisvandamálin í Kongó rædd. — Sem stendur er ekki tii í landinu einn einasti útlærð-
ur læknir úr hópi innfæddra manna. E. t. v. ljúka tveir námi á þessu ári — og árið 1965 standa
vonir til, að um 20 innfæddir hafi lokið læknanámi. — Árið 1958 voru starfandi í landinu upp
undir 1.000 læknar, flest Belgir. Af þessu má sjá, hve alvarlegt ástandið er á þessu sviði.
Uppbyggingarstarf
Sþ í Kongó
er nú látinn, en skuggi hans
hvílir á ofbeldismönnunum,
sem undiroka þjóð hans. Og
svo segir okkur hugur um,
að líf hans og verk muni, er
fram líða stundir, verða
þyngra á metunum en menn
almennt gera sér grein fyrir
í dag. Ef til vill á hann þrátt
fyrir allt eftir að frelsa þjóð
sína undan okinu.
Valdamönnum í Kreml
skilst, að andi hans verður
að deyja, ef þeir eiga að geta
haldið völdum áfram. Þeir
óttast skuggann, sem yfir
þeim hvílir. Þess vegna hafa
þeir nú fangelsað vin Past-
ernaks, Olgu Ivinskayu, og
dóttur hennar, og hyggjast
með því reyna að afmá
minningu stórskáldsins.
Pasternak óttaðist, að
hefndin mundi einmitt verða
látin bitna á vinum hans og
ættingjum, því að valdhaf-
arnir þorðu ekki að leggja
til atlögu við hann. Ótti hans
reyndist réttur, Kremlverjar
telja sig hafa í fullu tré við
Ivinskayu og þeir kunna að
hundelta, fangelsa og myrða
fleiri af 'vinum og ættingjum
Pasternaks. En hversu langt
sem þeir ganga í hryðju-
verkunum, þá mun skugginn
hvíla yfir þeim. Andi Paster-
naks verður ekki deyddur
með því að aflífa nokkra
tugi manna. Hinar ánauðugu
þjóðir þekkja hann og til-
biðja. Og fleiri munu feta
í fótspor hans, þó þeir eigi
hefndina yfir höfði sér. Of-
beldinu hefur aldrei tekizt
— og mun aldrei takast —1
að deyða andann.
Á íslandi eru til rithöf-
undar, sem eru á mála hjá
erindrekum heimskommún-
ismans. Ætla þeir að verja
aðfarir Kremlverja gagnvart
Pasternak, gagnvart Ivin-
skayu, gagnvart sjálfri menn
ingunni? Við vildum fá að
sjá framan í þann íslenzka
rithöfund, sem treystir sér
til að gera það beint. En hitt
er svo saga út af fyrir sig,
að geð þeirra er ekki meira
en svo, að þeir halda áfram
að þjóna ofþeldisöflunum,
þótt þeir sjái fyrir sér af-
leiðingarnar.
KU KLUX KLAN
Á ÍSLANDI
Menn kannast við nafnið
Ku—Klux-Klan, þ. e.
heiti þekktrar glæpahreyf-
ingar í Bandaríkjunum, sem
um tíma mikil áhrif, einkum
í Suðurríkjunum. Ofbeldisað-
ferðir í ætt við trúarjátningu
Ku-Klux-Klan-manna þekkj-
ast hinsvegar enn víða um
heim.
Einn af elztu stuðnings-
mönnum kommúnista hér á
landi, sem frá upphafi hefur
fylgzt með störfum flokksins,
hefur í blaðagrein nefnt
klíku þá, sem þar ræður
ríkjum Ku-Klux-Klan-
menn. Hann þekkir heimilis-
hættina í kommúnistaflokkn-
um og velur þessa nafngift
ekki út í bláinn.
Alltaf af og til gægist líka
fram ofbeldisnáttúra þessara
manna. Þannig mega varla
fara fram nokkrar kosningar
í verkalýðsfélagi, sem þeir
ráða, án þess að þeir verði
uppvísir að kjörskrárfölsun-
um, hótunum, lögbrotum og
hvers kyns ósvinnu. Mest
ber þó á þessu í stærsta
verkamannafélaginu, Dags-
brún, þar sem þeir hafa í
kringum sig ákveðið lið, sem
stendur fyrir óhæfuverkun-
um.
Hafa þessar aðfarir komið
óorði á verkalýðshreyfing-
una og stórskaðað álit henn-
ar, enda hefur klíkan aldrei
gert neitt til að reyna að
bæta hag verkamanna, held-
ur þvert á móti að halda
þéim niðri, svo að þægilegra
væri að espa til pólitískra
átaka í þjóðfélaginu.
NÝ TÆKIFÆRI
islendingum hefur nú á ný
skapazt tækifæri til að
afla lánsfjár úr alþjóðasjóð-
um, sem veita hagkvæmustu
lán sem kostur er á. Þetta
hefur tekizt vegna viðreisn-
ar efnahagslífsins.
Meðan hér ríkti . óstjórn
vinstri stefnunnar, treysti
engin alþjóðastofnun sér til
að lána íslendingum til arð-
vænlegra framkvæmda. Á
okkur var litið sem mestu
slóða og óreiðumenn. Öll lán
vinstri stjórnarinnar voru
fengin af annarlegum ástæð-
um úr sjóðum, sem ekki
settu skilyrði fyrir því að
vel væri með fjármunina
farið.
Við hinar nýju aðstæður
opnast okkur tækifæri til
stórafreka á athafnasviðinu.
Þess vegna má gera ráð fyr-
ir, að sjöundi áratugurinn
verði mesta framfaraskeið á
íslandi frá upphafi.
í HINUM stuttu, daglegu
fréttum blaða og útvarps af
FELLUR
SALAZAR?
/ÁNEITANLEGA er taka
” Galvaos á portúgalska
skipinu Santa Maria eitt-
hvert slungnasta áróðUrs-
bragð, sem lengi hefur verið
beitt. Með þessu djarfa til-
tæki hafa andstæðingar
Salazars, sem nú hefur ver-
ið við völd í Portúgal yfir
þrjá áratugi, rækilega vakið
athygli á þeim ófrjálsu stjórn
arháttum, sem þar í landi
hafa lengi ríkt, þó að e. t. v.
megi segja, að ekki hafi ver-
ið þar ógnarstjórn.
Delgato, sem bauð sig fram
á móti Salazar við síðustu
forsetakosningar, stendur í
sambandi við Galvao og eru
þeir félagar staðráðnir í að
reyna að kollvarpa Salazar.
Vitað er að heima í Portúgal
magnast andstaðan gegn
stjórnarvöldunum og er lík-
legt að brátt hrikti í stoðum.
Fjarri fer því að allir and-
stæðingar Salazars vilji beita
ofbeldi eða vopnavaldi til að
hrekja hann frá völdum. Þeir
munu fleiri, sem telja hent-
ast að magna svo andstöð-
una, að hann sjái sig til-
neyddan að afsala sér völd-
um og innleiða lýðræðislega
stjórnarhætti. En tiltæki
Galvaos hlýtur þó einnig að
styrkja aðstöðú þeirra. Þess
vegna er ekki ólíklegt, að
það verði til þess að stjórn
Salazars missi völdin áður en
langt um líður. Er aðeins
vonandi, að ekki þurfi að
koma til blóðugra átaka og
lýðræði fylgi í kjölfarið, en
ekki fari jafn hörmulega og
til dæmis á Kúbu.
atburðum og ástandi í
Kongó, hinu hrjáða og sundr
aða nýja ríki í Afríku, gæt-
ir mest frásagna af deilum
og sundurþykkju hinna inn-
fæddu stjórnmálaforingja og
blóðugum átökum milli and-
stæðra fylkinga úr her lands
ins, sem styðja hina ýmsu
leiðtoga, er tekið hafa völd-
Hér er skóladrengur af yngstu
kynslóðinni í Kongó. Ef til
vill á hann eftir að ganga
menntaveginn og stuðla að
uppbyggingu lands síns, inn á
við og út á við — en mikið
átak þarf að gera í mennta-
málunum, ef Kongó á að geta
þróazt og eflzt og staðið á
eigín fótum í framtíðinni. —
in í sínar hendur í einstök-
um héruðum. Og svo berast
fréttir af mikilli hungurs-
neyð — að hundruð manna
-látist daglega af næringar-
skorti, og þúsundir svelff
heilu liungri. — Auk þess
sem samtök Sameinuðu þjóð-
anna reyna að halda uppi
lögum og reglu í landinu
eftir föngum og koma í veg
fyrir, að allt fari í hál og út
brjótist blóðug borgara-
styrjöld um gervalt landið,
vinna samtökin geysimikið
hjálpar- og fræðslustarf í
Kongó. — Upplýsingar um
þessa þætti starfs SÞ í land-
inu verða yfirleitt að víkja
fyrir frásögnum af átökun-
um og upplausninni, í hinum
daglegu fréttum — og því er
ekki úr vegi að birta hér
kafla úr fréttabréfi frá upp-
lýsingaskrifstofu SÞ í Kaup-
mannahöfn, þar sem segir
örlítið af uppbyggingarstarfi
samtakanna í Kongó:
* NOKKRAR FRAMFARIR
Útlit er fyrir, að fræðslu-
starfsemi Sameinuðu þjóðanna
á ýmsum sviðum í Kongó muni
bera góðan árangur. Að vísu
er þetta starf á byrjunarstigi,
en í skýrslu frá aðalbækistöðv-
um SÞ í Leopoldville er lýst
bjartsýni. Er þar skýrt frá
starfseminni í 12 héruðum
Kongó í nóvembermánuði sl. og
náði hún til eftirtaldra greina:
Landbúnaðar, kennslumála, sam
gangna, fjármála, utanríkis-
verzlunar, heilbrigðismála, rétt.
arfars, atvinnumála, náttúru-
auðlinda, stjórnar opinberra
mála, m. a. lýðhjálpar o. fl.
Er fullyrt, að á ýmsúm svið-
um hafi sézt nokkrar framfarir,
sérstaklega hvað viðkemur fjár-
málastjórn. Á mörgum sviðum
sé hins vegar ekki hægt að bú-
ast við neinum framförum fyrr
en kyrrð hafi skapazt í stjórn-
málaheiminum og stjórnarvöld
landsins geti innt starf sitt af
hendi með eðlilegum hætti.
★ STYRKIR TIL MENNTA
SÞ hafa látið til sín taka á
ýmsan hátt til þjálfunar og
menntunar Kongóbúa, og ýmist
stutt innfædda til náms í út-
löndum eða komið á fót fræðslu
miðstöðvum í landinu sjálfu.
Af 75 fyrstu Kongómönnun-
um, sem fóru til náms erlendis
á vegum SÞ, munu 68 leggja
Framh á bis. 14