Morgunblaðið - 25.02.1961, Blaðsíða 8
8
MORGUNftLAÐIÐ
Laugardagur 25. febrúar 1961
nsttMðfrifr
Utg.: H.f Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Árni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðaiatræti 6.
Auglýsingar og afgieiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
AÐSTOÐ VIÐ VANÞRÓUÐ LÖND
Pitt gleggsta einkenni efna-
hagsástandsins í heimin-
um í dag er hinn geysimikli
munur, sem er á lífskjörum
þjóðanna. Þessi mikli mis-
munur er tiltölulega nýr og
mun hafa farið vaxandi með
hverju ári að undanförnu. Ef
litið er eitt til tvö hundruð
ár aftur í tímann kemur í
ljós, að þá var töluverður
munur á afkomu hinna
ýmsu þjóða, en hann var
hverfandi lítill á móti því
sem nú er.
Stór hluti mannkynsins
býr við lífskjör, sem bera
mætti saman við það, sem
var hér á Íslandi á 18. öld.
Matvæli eru af svo skornum
skammti, að hungursneyð
ríkir sum árin, en sjúkdóm-
ar, sem stafa af næringar-
efnaskorti, eru landlægir. —
Klæði eru ónóg og húsnæði
ekki betra en svo, að oft
myndi ekki talið skepnum
bjóðandi. Svo er annar hluti
þjóðanna, að vísu mikill
minnihluti, sem býr við eins
góð og betri lífskjör, en við
eigum nú að venjast á ís-
landi.
Yfirleitt eru það ekki rýrir
landkostir, sem einkum valda
fátæktinni, heldur miklu
frekar almennur þekkingar-
skortur o^ ýmsir sérstakir
erfiðleikar, svo sem mikill
fólksfjöldi og fólkfjölgun.
Einkum er fólksfjölgunin
mikið vandamál víð>a í Asíu.
Hinn mikli aðstöðumunur
þjóðanna er hættulegur frið-
inum í heiminum. Talið er,
að eina leiðin til að draga
úr mismuninum sé, að ríku
þjóðirnar hjálpi hinum fá-
tæku til að hjálpa sér sjálf-
ar. Þetta er bæði skynsam-
legt að gera og jafnframt
sanngjarnt, enda hefur
kristnum mönnum verið
kennt að hjálpa meðbræðr-
um sínum.
Bandaríkjamenn hafa af
þessum ástæðum, skynsemd-
ar og sanngirni, haldið uppi
stórkostlegri aðstoð við aðrar
þjóðir. Nutu ríki Vestur-Ev-
rópu mjög góðs af, á árunum
eftir heimsstyrjöldina. Nú
hafa þessi ríki vel efni á að
feta í fótspor Bandaríkjanna
og aðstoða, einkum þjóðir í
Asíu og Afríku.
En hætt er við að nauð-
synlegur árangur náist ekki,
nema öllu því fé, sem nú er
notað til hernaðarútgjalda í
heiminum, verði varið til að-
stoðarinnar. Hvort svo giftu-
samlega tekst til er því mið-
ur ekki undir leiðtogum
<s>-
hinna vestrænu þjóða komið,
nema að mjög takmörkuðu
leyti. En allt mannkyn hlýt-
ur að vona hið bezta.
HANDRITIN
HEIM?
ÍTmræður þær, sem nú fara
fram í Danmörku um
handritamálið og benda til
þess að Danir hafa í huga að
afhenda íslendingum þau
innan skamms, vekja að
sjáífsögðu mikla ánægju hér
lendis. Segja má, að hand-
ritamálið sé eini skugginn,
sem ber á vinsamlega sam-
búð þessara frænþjóða, nú
orðið.
Kapp er bezt með forsjá,
segir máltækið. Við íslend-
ingar höfum gert ákveðna
kröfu til handritanna og
eiga þeir menn, íslenzkir og
erlendir, þakkir skildar, sem
rökstutt hafa rétt okkar
rækilegast. Varla fer þó milli
mála, að skynsamlegt hefur
verið að hafa hljótt um mál-
ið nokkurn tíma, svo að
Dönum gæfist kostur til að
gera það upp við samvizku
sína. _
Hvað sem segja má um
gamlar væringar íslendinga
og Dana, þá verður hinu
ekki neitað að Danir eru
meðal gagnmerkustu þjóða
veraldar. Er það , trú okkar,
að þeir muni brátt sannfær-
ast um, að það sé siðferðileg
skylda þeirra að afhenda fs-
lendingum handritin og á
þeim sama degi munu ís-
lendingar tengdir Dönum
traustari vináttuböndum en
nokkurri þjóð annarri. Eins
og Ólafur Thors forsætisráð-
herra gat um í viðtali við
Mbl. í gær, þá er það auð-
vitað ekki af fjandskap
neinna íslendinga við Dani,
þótt íslenzka þjóðin endur-
heimti óskorað sjálfstæði
sitt. Hljótum við að vona, að
þeirrar stundar verði skammt
að bíða, að þessu misklíðar-
efni verði rutt úr vegi.
10-15-20
^T'iminn fann upp á því með
kommúnistum, að sjó-
mannasamningarnir nýju
þýddu 15—25% kjarabætur
fyrir sjómenn. Þessa frétta-
fölsun hefur blaðið síðan
notað til að krefjast þess að
allar aðrar stéttir þjóðfélags-
ins færu fram á stórfelldar
Suðurskautslandið
stærsta frystigeymsla veraldar
1 ARGENTÍNU eru uppi
ráðagerðir um það að
koma fyrir stærstu frysti-
geymslu veraldar á Suð-
urskautslandinu. í Argen-
tínu er sem kunnugt er,
ur í snjóinn. Matvælin eru
geymd á 20 metra dýpi niðri
í íslaginu, þar sem frostið er
að jafnaði um 25 gráður. Hita-
mismunur sumar og vetur er
aðeins ein gráða. Þetta er að-
eins tilraun til að kanna
Úr lofti má sjá snæviþakin fjallasvæði og víðáttumiklai
isauðnir.
mikil nautgriparækt, og
þegar um offramleiðslu er
að ræða á matvælum
vantar einatt frystigeymsl
ur í landinu. En þær eru
hinsvegar fyrir hendi á
Suðurskautslandinu, þar
sem Argentína rekur bæki
stöð í samvinnu við Banda
ríkin. —
Á 20 METRA DÝPI
Fyrir nokkru kom ísbrjótur
inn General San *Martin til
bækistöðvarinnar með lestar
fullar af matvælum. Mikið
magn af smjöri, eggjum, kjöti,
osti o. fl. verður nú grafið nið
kauphækkanir. En ekki hef-
ur þó verið gott samræmi í
málflutningnum, því að einn
daginn breyttist talan 15 í
10 og annan dag breyttist
hún í 20%. Fer þetta allt
eftir því, hve mikið óðagot
er hvern daginn að krefjast
pólitískra verkfalla.
Hitt er svo mál út af. fyrir
sig, að raunverulega hefur
enginn hælt viðreisninni jafn
mikið og stjórnarandstæðing-
ar, þegar þeir segja að ein
stétt hafi getað fengið allt að
fjórðungs kjarabætur við
það eitt að hverfa frá upp-
bótakerfi og að heilbrigðum
atvinnuháttum. Þessar kjara-
bætur hafi sjómenn fengið
þrátt fyrir það að allar upp-
bætur til útvegsins hafa ver-
ið felldar niður og þeir þung
bæru skattar, sem á landslýð
inn voru lagðir þeirra vegna.
í samræmi við þessar full-
yrðingar Framsóknarmanna
og kommúnista ætti kjörorð
þeirra því auðvitað að vera:
Lifi viðreisnin.
geymslumöguleikana í íshell-
unni.
SÝKLAR
Á SUÐURSKAUTINU
Annars hafa Argentínu-
menn nú þegar gert mjög at-
hyglisverðar uppgötvanir í
sambandi við ísinn á Suður-
skautslandinu. Talið var að
þar gætu engir sýklar þrifizt,
en þetta hefur tekizt að af-
sanna. í síðasta argentínska
leiðangrinum voru 75 sótt-
hr.tilraunaglös flutt til Suður
skautsins, og mynduðust sýkl-
ar í 69 þeirra. Átta ólíkar
sýklategundir, sem þarna
fundust, þekkjast ekki annars
staðar á jörðinni. Sýklarnir
hafa sérstaklega aðlagað sig
við kuldanum og deyja við 20
stiga hita.
HLUTLEYSI
Suðurpóllinn hefur á síð-
ustu fimm árum orðið að vett-
vangi visindamanna margra
landa, og virðast möguleik-
arnir á alþjóða rannsóknum
hafa aukizt verulega eftir að
samkomulag náðist á síðast-
liðnu sumri um að gera allt
Suðurskautssvæðið að hlut-
lausu landi. Samkomulag
þetta undirrituðu Bandaríkin,
Sovétríkin, Argentína, Ástra-
lía, Bretland, Cile, Frakkland,
Nýja Sjáland, Noregur,
Belgía, Japan og Suður Afríka.
Sjö fyrstnefndu löndin hafa
þegar tileinkað sér landsvæði
á Suðurskautinu. Þeim svæð-
um verður ekki sleppt, en
hins vegar samþykkja viðkom
andi ríki að gera ekki frekari
kröfur um athafnasvæði á
Suðurskautinu. í rauninni má
segja að Suðurpóllinn sé
„stjórnmálaleg tilraunastofa“
þar sem alþjóða samvinna er
til fyrirmyndar. Þetta er eini
staðurinn á jörðinni þar sem
Rússar og Bandaríkamenn
fylgja sömu stefnu. Bæði lönd
in hafa farið inn á þá braut
að nota svæðið eingöngu í vís-
indalegum tilgangi.
KJARNORKUVER
OG FLUGHÖFN
Það eru fleiri en Argentínu-
menn, sem hyggja á stórfram
kvæmdir á Suðurskautsland-
inu. Bandaríkj amenn hafa
gert áætlanir um byggingu
þriggja stórra kjarnorkuvera.
Eiga orkuverin að sjá svæðinu
fyrir rafmagni og hitun hí-
býla, en Bandaríkjamenn álíta
að unnt sé að koma upp tals-
verðum iðnaði á Suðurskaut-
inu. Fundizt hafa málmar þar
í jörðu og vitað er um talsvert
umfangsmikil koialög. Þá telja
Bandaríkjamenn að ekki sé
útilokað að þar sé einnig olíu
að finna. Sem stendur er verið
að byggja þarna flughöfn, sem
á að vera opin allt árið og mun
kosta um 830 milljónir króna.
Vísindalega séð er Suðurskaut
ið mjög mikilvægt og nauð-
synlegt að leyndardómar þess
Framh. á bls. 14.
Á siglingu við strendur Suðurskautsiandsins.