Morgunblaðið - 16.03.1961, Page 2
2
MORCVNBL AÐIÐ
Fimmtudagur 16. marz 1961
Lokaatriði Alsír-
stríðsins hafið
Welch situr fast
við sinn keip
París, 15. marz. (Reuter)
FRANSKA stjórnin tilkynnti
loks í dag, að hún vildi
gjarnan hefja viðræður við
serknesku útlagastjórniná
um lausn Alsír-málsins. Er
litið á þessa tilkynningu sem
Hríð á Holta
vörðuheiði
t G Æ R var hríðarveSur
norðanlands og suður fyr-
Ir Holtavörðuheiði. Færð
hefur verið þung norður
undanfarið, en Holta-
vörðuheiði verið haldið
opinni þá fjóra daga vik-
unnar, sem áætlunarbil-
arnir fara um. I gær var
þó heiðin orðin alveg ó-
fær og ekkert hægt að
gera eins og á stóð.
ÁætlunarbíUinn í Dalina
komst alla leið í fyrradag,
en í gær var verið að
reyna að fara á móti hon-
um tU að hjálpa honum
tU baka. Ekki er blaðinu
kunnugt um hvort það
hefur tekizt.
Allir vegir um Suður-
Iandsundirlendið voru fær
ir í gær. Einn skafl lok-
aði þó um hrið Hellisheið-
arveginum í gærmorgun,
en það var fljótlega lag-
fært.
upphaf lokaþáttarins í Alsír-
deilunni. Er nú almennt tal-
ið í París að aðeins sé eftir
að binda endahnútinn á
þetta.
Tilkynningin var gefin út
eftir langan lokaðan fund
de Gaulles með Debré og
öðrum hinum áhrifameiri
ráðherrum frönsku stjórnar-
innar. — Á fundinum var
einnig mættur Georges
Pompidou, sérlegur aðstoð-
armaður de Gaulles, sem að
undanförnu hefur setið
leynifundi í Sviss með um-
boðsmönnum Serkjastjórnar
til að kanna horfur á sátt-
um. —
Frá Túnis herma fregnir, að
Serkjastjórn hafi einnig setið á
löngum fundum í dag til að
meta árangur leynifundanna í
Sviss og ákveða hvort hefja
skuli lokaviðræður við frönsku
stjórnina.
1 byrjun vikunnar gerðist þó
atburður, sem hugsanlegt er að
valdi nokkurri ólgu, og geti því
á mikilvægu augnabliki valdið
tregðu. Svo er mál með vexti,
að serkneskir skæruliðar náðu
á sitt vald einni af fangabúð-
um Frakka, skammt frá tún-
isku landamærunum. í fanga-
búðum þessum voru um þús-
und fangar. Leystu skæruliðar
þá úr haldi og komu öllum
hópnum heilum á húfi inn fyr-
ir landamæri Túnis.
Grimsby, 15. marz (Reuter)
DENNIS WELCH, formaður fél-
ags yfirmanna á Grimsby-togur-
um sagði í dag, að það hefði eng-
in áhrif á verkfallsákvörðlun tog-
aramanna, þótt íslendingar hefðu
veitt sakaruppgjöf á öllum fisk-
veiðibrotum innan 12 mílna
markanna.
Eftir fundinn sagðist Welch
ætla að leggja skoðanir togara-
eigenda fyrir fund í félagi yfir-
manna. Sjálfur var hann sýnilega
ófús að aflétta verkfallshótun,
þrátt fyrir það að íslendingar
hafa gefið upp sakir og ólíklegt
er að íslenzkir togarar komá á
næstunni til hafnar.
Hríd á Nordurlandi
AKUREYRI, 15. marz — í nótt
gekk til norðan og norðaustan-
áttar hér á Norðurlandi með
nokkurri snjókomu og í dag hef
ur veðrið allmikið hert. öxna-
dalsheiði var sæmilega fær í
morgun, en í kvöld er hún orðin
illfær. Nokkrir stórir bilar voru
þá á norðurleið og urðu þeir að
fá aðstoð Vegagerðar ríkisins yf-
ir heiðina.
Meðan snjókoman stend-
ur verður ekki ýtt á heiðinni.
Vegir á láglendi eru allir færir.
Togskip og netabátar, sem veiðar
stunda fyrir Norðurlandi, hafa í
dag leitað vars á Akureyri, við
María Júlía
í fiskirannsóknir
JÓN JÓNSSON, fiskifræðingur,
mun að öllum likindum bráð-
lega fara á varðskipinu Maríu
Júlíu til fiskrannsókna. Er þetta
liður í hinum venjulegu fiskrann
sóknum á flóanum. Sikpstjóri á
Maríu Júlíu er Gunnar Ólafsson.
Óskar 500 millj. $
til S-Ameríkuríkja
Washington, 14. marz (Reuter).
KENNEDY, forseti hefur farið
fram á það við bandaríska þing-
ið að það veiti nú 500 málljónir
dala til aðstoðar við Suður-
Ameríkuríkin. Er þessi beiðni
forsetans í samræmi við tillögu
hans um að hin frjálsu ríki
Ameriku vinni saman að tíu ára
áætlun til framgangs lýðræðis-
ins. Skuli með þessu fé unnið
gegn fáfræði og hungri og að
eflingu efnahags viðkomandi
landa.
/ NA 15 hnútor SV 50 hnútor X Snjókomo t C/ii&to* \7 Stúrir It Þrumur WlZ, KuUaotil Hitoski! H Hosi L LaqS
Hrísey og á öðrum höfnum við
Eyjafjörð. Undanfarna daga hef
ur afli þeirra verið allgóður, eink
um hjá netabátunum. Hafa Ólafs
fjarðarbátar t.d. aflað 5—10 lesta
á dag og allt upp í 17 lestir. Þeir
hMa getað vitjað um net sín dag
lega. Mest af þeirra fiski fer í
salt. Auk allmargra heimabáta,
sem nú stunda veiðar frá Ólafs
firði, eru gerðir þaðan út tveir
bátar frá Skagaströnd og einn
ig bátar frá öðrum verstöðvum.
Welch gaf þessa yfirlýsingu er
hann kom af fundi með togara-
eigendum í Grimsby, en þeir
höfðu reynt að fá Welch til að
falla frá verkfallshótun sinni.
Brezku togaraeigendurnir sögðu
Welch, að ólíklegt væri að ís-
lenzkir togarar myndu landa fiski
í Grimsby á næstunni, en yfir-
menn á togurum höfðu hótað að
gera verkfall ef íslenzkir togarar
lönduðu afla sínum þar.
Fornir á „DC-6
Veðurspáin kl. 10
í gærkvöldi.
SV-land og miðin: Vestan
stinningskaldi og skúrir eða
slydduél í nótt en ahhvass NA
og rigning austan til á morg
un.
Faxaflói- og miðin: Norðan
og NV stinningskaldi, úrkomu
lítið, hiti um eða undir fros-
marki.
Breiðafjörður og miðin: All
hvss NA, skýjað og sums stað
ar snjóköma.
Vestfirðir og miðin: All-
hvass eða hvass NA, snjó-
koma, einkum norðan til.
Norðurland til Austfjarða
og miðin: Austan og NA stinn
ingskaldi, snjókoma öðru
hverju.
SA-land, Austfjarðamið og
SA-mið: Breytileg átt og skúr
ir í nótt, allhvass austan eða
SA og rigning á morgun.
Umhleypingar eru miklir
um þessar mundir. Hver lægð
in af annarri hefur komið suð
vestan úr hafi og lagt leið sína
yfir landið eða rétt hjá því.
Ekki er ennþá að sjá neitt lát
á þessu veðurfari. Lægðin suð
ur af Vestmannaeyjum er á
hreyfingu NA eftir og sér á
aðra syðst á kortinu koma í
kjölfar hennar.
Ekkert lát er á vorhlýindun
um í Vestur-Evrópu, og er
sennilega kominn fallegur
gróður þar í görðum.
námskeið“
VONIR standa til a» miUi-
landaflug Flugfélagsins kom-
ist í samt lag í næstu viku. Á
sunnudag kemur hingað leigu
flugvél, DC-6 frá danska fé-
laginu Nordair, og flytur hún
hingað farþega Flugfélagsins.
Fer vélin utan á mánudag með
farþega til Skotlands og Dan-
merkur. — Annars hefur Flug
félagið sent sina farþega með
Loftleiðavélum og gerir það
fram að helgi. — Fimm flug-
liðar Flugfélagsins eru farn-
ir til Stokkshólms þar sem
þeir sitja „DC-6 námskeið“
hjá SAS. Yfirmenn skoðunar-
deildar og svo og viðgerðaverk
stæðis félagsins eru nú farnir
utan í svipuðum erindagerð-
um.
Lciðréttin"
í YFIRLÝSINGU eistneska flótta
mannsins Eðvalds Hinrikssonar,
sem birtist í blaðinu í gær urðu
tvær meinlegar prentvillur. Á
öðrum staðnum átti að standa:
„Þessar lævíslegu ábendingar
voru til þess gerðar, að vinir
mínir, kunningjar og samverka
fólk snúi við mér bakinu, konan
mín geti ekki farið út í mjólkur
búð og keypt mjólk fyrir börnin,
án þess að verða fyrir aðkasti .. .
Á hinum sstaðnum átti að
standa. , . . . Sannleikurinn er
sá, að þegar Rússar hernámu
Eistland öðru sinni og komu til
Tallin 28. september 1944, eða
rúmum þrernur mánuðum eftir
að ísland fékk sjálfstæði, tókst
mér fyrir einskæra heppni að
flýja . , . “
Ósigur iyrir
Mucmillan
FRETTASTOFA Reuters seg-
ir, að í Bretlandi sé litið á
það sem alvarlegan pólitískan
ósigur fyrir Macmillanr að
Suður Afríka skuli nú víkja
úr Samveldinu. Macmillan
hefur ítrekað lýst því yfir, að
Suður Afríka hlyti áfram að
sitja í samveldinu. Hin nýja
upptökubeiðni lýðveldisins
væri aðeins formeatrðú En
málamiðlunartillaga Macmill-
ans kom ekki að gagni.
En það hefur nú komið í
ljós, að Afríkuríkin eru tekin
að eflast irrnan Samveldisins
og ráða nú miklu um sameig-
inlega stefnu.
Eftirá segja marglr: Það
hlaut að fara svona. Kynþátta
stefna Suður Afríku getur
nefnilega ekki með nokkru
móti samrýmst þeirri grund
vallarreglu Brezka Samveld-
isins að allar þjóðir skuli jafn
réttháar alveg án tillits til
uppruna eða litarháttar.
— Njósnir
Framh. af bls. 1
að auðvelt er að koma hennl
fyrir í meðalstórri ferðatösku.
Þegar á að nota hana, er nóg
að setja loftnatsvír út um
glugga eða upp í tré og snúa
einum takka, og stöðin er 1
beinu sambandi við njósna.
stöð Rússa í Moskvu.
Á Við senditækið er hægt að
setja lítið skeytatæki sem get-
ur sent út 240 orð á mínútu og
breytt þeim í dulmálslykil.
Þetta er í stórum dráttum lýs-
ingin á tækni rússnesku njósna-
starfseminnar, sem komið hefur
fram við réttarhöldin í Old Baily.
Það er engin skáldsaga, heldur
blákaldur veruleikinn.
0 Lýslng yflrmanns
Skotland Yard
f dag gekk sjálfur yfirmaður
Scotland Yard, Ferguson Smith
fyrir réttinn, og skýrði frá því
að hann hefði sjálfur komið á
vettvang þegar lögreglan gerði
húsleit í einbýlishúsi einu i
Ruislip, úthverfi Lundúna. Und-
ir eldhúsgólfi fundu þeir falinn
og grópaðan hlera, lyftu honum
upp og í kjallaraholu undir var
híði björnsins, miðstöð eins
allra hættulegasta njósnahrings,
sem starfað hefur í Bretlandi.
• Njósnað um kafbátavarnir
Sakborningarnir fimm eru þrír
karlmenn og tvær konur. Einn
karlmaðurinn og ein konan störf
uðu við rannsóknastöð brezka
flotans í Portland á suðurströnd
Englands. Þeim tókst að ná í upp
lýsingar um eitt mesta hernað-
arleyndarmál Breta, ný tæki sem
Bretar eru að smíða til viður-
eignar við kjarnorkukafbáta. Á
þvi leikur enginn vafi lengur, að
upplýsingarnar eru nú komnar i
öruggar hendur austur í Moskvu.
• Fölsk vegabréf
Auk njósnatækjanna fundust i
kjallaranum fölsk vegabréf og yf-
ir 6 þúsund sterlingspund í pen-
ingum. Einn hinna ákærðu mun
vera annaðhvort rússneskur eða
pólskur, en hafði falsað kanadískt
vegabréf er hann kom til Eng.
lands. Til vonar og vara, hafði
hann annað falsað vegabréf, sem
sýndi að hann væri nýsjálenzkur
borgari. Virðist sem hann hafi
hugsað sér að nota það, ef hann
þyrfti í skyndi að forða sér á
brott frá Bretlandi.
Stefnis-kvöldvaka
HAFNARFIRÐI: — Kvöld.
vaka Stefnis er í Sjálfstæðis.
húsinu í kvöld og hefst kl.
8,30. Þar verður spilað bingó
og sýnd kvikmynd. — öllum
er heimill aðgangur meðan
húsrúm leyfir.