Morgunblaðið - 16.03.1961, Qupperneq 9
Fimmtudagur 16. marz 1961
MORGl’NBLAÐIÐ
9
Einar Pétursson stórkaup-
mabur minning
1892 — 1961
í DAG kveðja vandamenn, vin-
ir og félagar minnisstæðan
mann, merkan athafnamann,
mann sem setti svip á umhverfi
sitt, Einar Pétursson, stórkaup-
mann.
Hann vax fæddur 17. júlí
1892 í Garðaholti í Skildinga-
nesi og átti til útvegsbænda í
Reykjavík og nágrenni að telja.
Faðir hans var Pétur Þórarinn
Hansson sjómaður í Skildinga-
nesi Hanssonar bónda og vef-
móðir hans var Vilborg dóttir
Jóns sjómanns í Skildinganesi
Einarssonar, systir hins þjóð-
kunna útvegsbónda Sigurðar í
Görðunum.
Einar hóf mjög ungur störf
1 verzluninni Liverpool hjá Th.
Thorsteinssyni, sem reyndist hon
um eins og öðrum starfsmönn-
um hinn bezti húsbóndi, vinur
og ráðgjafi. Þegar hann hafði
a'dur og efni til, réðst hann
til náms og verzlunarstarfa í
Englandi, enda réðu störfin í
Liverpool framtíð hans. Árið
1917 stofnaði hann með Sigur-
jóni bróður sínum Netjaverzlun
Sigurjóns Pétursson & Co. og
höfðu þeir brátt mörg járn í
eldinum, enda báðir kappsfull-
ir menn og ósérhlífnir. Til
marks um bjartsýni þeirra og
dug var fyrsta al-íslenzka iðn-
aðar- og vörusýningin, er fyrir-
tæki þeirra efndu til í ágúst
1920 í Bárubúð og margir muna
enn vel. Þar var vefnaður,
band, lopi og prjónles frá Ála-
fossi, þar voru prjónaðir sokk-
ar á nokkrum mínútum á með-
an kaupandinn beið. Þar voru
cápur frá Seros-verksmiðjunni
og loks margs konar veiðarfæri
frá netjastofunni, m.a, heil botn
varoa.
En verðfallið, sem sigldi í
kjölfar heimsstyrjaldarinnar
fyrri, reyndist þessum bjart-
eýnismönnum ofurefli. Þeir
urðu að rifa seglin. Sigurjón
hvarf algerlega að rekstri Ála-
foss, en Einar leitaði nýrra
fanga. Árið 1923 stofnaði hann
með Ólafi Gíslasyni, vini sín-
um, stórverzlun og umboðssölu,
helgaða útflutningi íslenzkra af-
urða og innflutningi rekstrar-
vara. Hefur það fyrirtæki jafn-
nn síðan verið í fremstu röð ís-
lenzkra verzlunarfyrirtækja. En
jafnframt hafði Einar um langt
ekeið með höndum rekstur
hlutafélagsins Fiskimjöls, sem
rak umfangsmikla framleiðslu
cg viðskipti af kunnum myndar
»kap.
Hér eru aðeins upp talin
helztu atriðin í lífsstarfi Einars,
€>g er þá ótalið mikið starf, sem
hann vann af áhuga einum og
án tillits til launa eða hagnað-
«ir. Hann var félagslyndur mað-
ur og þjóðhollur, og hjálpsemi
hans var við brugðið. Enn mima
margir þátt hans í hjálparstarf-
lemi í spænsku veikinni 1918.
Af félagsstörfum hans kunna
aðrir að greina betur en ég, en
hann átti um margra ára skeið
’sæti í stjómum ýmissa þjóð-
nýtra félaga. Hitt veit ég, að
fáum var betur treystandi, ef
bindast þurfti samtökum um
ýmis félags- og nauðsynjamál.
Sparaði hann þá lítt fé eða
krafta.
Einar kvæntist árið 1928
Unni Pétursdóttur slökkviliðs-
stjóra Ingimundarsonar, og var
það jafnræði, því að hún stóð
honum hvergi að baki í reisn
né höfðingsskap. Þeim varð
fjögurra barna auðið, tveggja
sona og tveggja dætra.
Einar Pétursson var mikill
maður vexti, svo sem hann átti
kyn til. Hann var höfðinglegur
yfirlitum, svipurinn bjartur og
góðmannlegur. Hann var léttur
í spori og glaðvær í viðmóti,
enda maður íþrótta og útivista.
Hann átti auðvelt með að
kynnast fólki, enda leyndi sér
sjaldnast góðvild hans og lát-
leysi. Við störf sín öll var
hann kappsamur og óhlífinn, og
mun það því miður hafa flýtt
fyrir andláti hans, eftir að
heilsu hans tók að hraka.
í augum vina sinna var Einar
ekki fyrst og fremst athafna-
maðurinn, dugnaðarforkurinn,
hinn góði nágranni, eins og al-
þjóð manna þekkti hann bezt.
Hann var þeim fyrst og fremst
hinn fölskvalausi drengskapar-
maður, hinn ljúfi og nærgætni
heimilisfaðir, hinn glaðværi sam
kvæmismaður. Hann gat glaðzt
með glöðum, en hann gat einn-
ig af heilum hug tekið þátt í
andstreymi annarra og vand-
ræðum. Er bjart yfir minningu
slíkra manna og söknuður við
brottför.
En þótt oss vinum hans þyki
nú skarð fyrir skildi og þessi
heimur vor allmiklu fátæklegri
en áður, þá er tjón vort lítið
móts við það, sem fjölskylda
hans bíður. Hann var einn
þeirra manna, sem menn mátu
því meir sem þeir kynntust hon
um betur, og því mun nú
þeirra söknuður mestur, sem
þekktu hann bezt.
Bjarni Guðmundsson,
Dömur
Amerískir kjólar
Síðdegis og kvöldkjólar pure silki
Cotton kjólar frá kr. 495/—
Hjá Báru
Austurstræti 14.
HVI LDARSTOLLI N N
er bezti hvíldarstóllirm á
heimsmarkaðnum.
Það má stilla hann í þá
stödu, sem hverjum hentar
bezt, en auk þess nota
hann sem venjulegan ruggu-
stól.
SKÚI/vSON &. JÓNSSON
Laugaveg 62
Sími 36 503
Hafnarfjörður nágrenni
Pökkunarstúlkur óskast strax.
Hraðfrystihusið Frost h.f.
Hafnarfirði — Sími 50165.
Húseigendur !
Yeitum alla þjónustu í sambandi við
trésmíði. Hringið til okkar í síma
37454 eða 32997.
TÍMARIT MÁLS & MENNINGAR
1. HEFTI 1961 ER KOMIÐ I T
E f n i
Jakobs Benediktsson: Stofnun Jóns Sigurðssonar
Ólafur Jóh. Sigurðsson: Samskifti við kínverja
Lu Xun: Æskustöðvarnar kvaddar
Halldór Laxness: Gitanjali á íslandi
Geir Kristjánsson: Að vingsa höndunum
Uja Erenbúrg: Mennirnir, árin, lífið
Sigfús Daðason: Ágreiningsefni Sigurðar Nordals
og Einars Kvarans.
L j ó ð eftir
Majakovskí í þýðingu Geirs Kristjánssonar,
Kristin Reyr, Dag Sigurðarson, Ara Jósefsson.
Umsagnir um bækur eftir
Baldur Ragnarsson, Bjarna Einarsson, Guðmund
Böðvarsson, Elías Mar.
MÁL & MENNING
■ Skólavörðustíg 21 — Reykjavík — Sími 15055.
NauðungaruppboB
verður haldið að Síðumúla 20, hér í bænum, eftir kröfu
tollstjórans í Reykjavík, bæjargjaldkerans í Reykjavík
o. fl., föstudaginn 24. marz n.k. kl. 1,30 e.h.
Seldar verða eftirtaldar bifreiðar:
R-94, R-110, R-216, R-222, R-262, R-348, R-502,
R-698, R-990, R-1161, R-1579, R-1634, R-1824, R-1961,
R-1972, R-1995, R-2042, R-2124, R-2339, R-2605, R-2704,
R-2924, R-3042, R-3146, R-3220, R-3238, R-3512, R-3539,
R-3736, R-4246, R-4380, R-4493, R-4538, R-4634, R-4712,
R-4786, R-4933, R-5000, R-5003, R-5162, R-5676, R-5787,
R-5857, R-6306, R-6450, R-6553, R-6607, R-6688, R-6702,
R-6730, R-6862, R-7098, R-7347, R-7805, R-7809, R-7820,
R-7876, R-7984, R-8139, R-8183, R-8189, R-8216, R-8292,
R-8435, R-8485, R-8931, R-8961, R-8994, R-9081, R-9447,
R-9478, R-9616, R-9658, R-9788, R-9880, R-9957 R-10135
R-10247, R-10249, R-10295, R-10692, R-10748, R-10787,
R-10847, R-10969, R-11227, R-11497, R-11554, R-11594,
R-11645, R-11847, R-11862, G-1202, Y-426, Þ-461, í-252,
Ein loftpressa á Austin bifreið og vélskófla.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetinn í Reykjavík
'A GLER OQ TR'E
QLE IR^ KIRJEvVlTINGi
GRJOTAG'OTU 14