Morgunblaðið - 16.03.1961, Page 11
fí Fimmtudagur 16. marz
1961
MORGXJTSBLAÐIÐ
AKUREYRI, 12. marz 1961. Sl.
föstudag kom hingað til Akur
eyrar brezki togarinn Loch
Oskaic. H.431, frá Hull. Hafði
togarinn orðið fyrir ketil'bilun
út af Vestfjörðum og þá leit
að til ísafjarðar. Þar fékkst
þó ekki fullnaðar viðgerð, og
sigldi skipið því til Akureyr
ar og mun Vélsm. Oddi ljúka
viðgerð í dag. Þar sem langt
er um liðið síðan brezkur tog
ari hefir komið til Akureyrar.
Þar sem deilumálin við Breta
eru formlega til lykta leidd í
dag, fann fréttar. Mbl. fróð-
legt að hafa tal af skipsmönn
um og heyra þeirra álit.
Er við spurðum eftir skip
stjóra, vísaði ungur háseti
okkur til íibúðar hans. Ronald
Hall heitir hann, og er eins og
flestir af áhöfninni frú Hull.
— Hvað er álit yðar á hinu
nýja samkomulagi Breta og
íslendinga í fiskveiðideilunni?
spyrjum við.
Brezki togarinn Loch Oskaic frá Hull.
erum yfirleitt
segir skipstfóri á H úlltogara
Ljósm.: St. E. Sig.
¥
r
— Það er nú komið á aðra
viku síðan ég fór frá Hull, og
þá var ekki endanlega séð
hvernig samningarnir mundu
fara. Af því, sem síðar hefir
gerzt og nú virðist vera stað
fest, virðist mér þessi samning
ar ekki mjög hagstæðir fyrir
okkur. Einkum missum við
mikið og gott svæði við Vest-
firði og Húnaflóa, og mér er
kunnugt um að sjómenn í
Grimsby eru mjög óánægðir.
Um okkur frá Hull gegnir
nokkuð öðru máli, því okkar
skip eru yfirleitt miklu stærri
og veiða því í flestum tilfell-
um lengra frá landi. Eg hef
Brezki skipstjórinn, Ronald Hall.
Leiksýningar, bíó-
sýningar og böll
SAUÐÁRKRÓKI, 15. marz —
Sæluvika Skagfirðinga hófst á
sunnudag með guðsþjónustu.
Sóknarpretsurinn sr. Þórir Steph
ensen prédikaði. Um kvöldið
hafði Leikfélag Sauðárkróks
frumsýningu á gamanleiknum
„Er á meðan er“ eftir Hart og
Kaufman. Leikstjóri er Kári
Jónsson, Húsið var þéttskipað á-
Ihorfendum og leikendum og leik
Stjóra mjög vel tekið, þeir kall
®ðir fram hvað eftir annað að
ieikslokum.
Einnig voru leiksýningar á
mánudags- og þrið,judagskvöld
fyrir fullu húsi og er mikið til
upppantað á aðrar sýningar, sem
verða á hverju kvöldi út vikuna.
Verkamannafélagið Fram hef
ur fjölbreytta kabarettsýningu á
föstudag, laugardag og sunnudag.
Sauðárkróksbíó hefur 1—2 sýn-
ingar á úrvalsmyindum á dag.
Dansað verður á hverju kvöldi
frá fimmtudegi og fram á sunnu
dag. Og það stendur til að Karla
kór Akureyrar og Karlakórinn
Heimir syngi hér.
Hér hefur verið ágætis veður
síðan sæluvikan hófst og góð
færð um Skagafjörð. Hins vegar
verið á Islandsmiðum frá því
ég var unglingur, tel mig því
þekkja nokkuð til á þessu
veiðisvæði og ég veit af eigin
reynslu að oft er fljótteknari
fiskur á djúpmiðunum. Hitt er
svo annað mál að smærri skip
in eiga þar oft erfiðari aðstöðu
einkum á vetrum.
— Álítið þér að brezkir tog
araskipstjórar muni ekki hlíða
þessum nýju reglum, sem rík
isstjórn yðar hefir nú sam-
þykkt?
— Jú, það munu þeir vissu
lega gera, yfirleitt erum við
löghlýðnir.
Þó voru nokkrir. sesm aldrei
hlýddu tilskipuninni meðan á
þorskastríðinu stóð um að
veiða á hinum tilteknu vernd
arsvæðum, enda tæpast hægt
að kalla það lög.
— Veidduð þér oft innan
12 mílnanna?
— Nei, ég hef ekki gert
það.
— En þessi togari mun þó
hafa verið staðinn að land-
helgisbroti.
— Ekki undir minni stjórn.
Annars hef ég einnig veitt
mikið í Hvítahafinu. Þetta er
7. ferðin á Íslandsmið nú í
vetur, og sá síðasti á þessu
skipi, því eftir þessa ferð tek
ég við nýjum og miklu stærri
togara.
— Og hættið þér þá íslands
ferðum?
— Um það get ég ekki sagt.
er veðurútlit ekki gott núna.
Gestum á sæluvikunni fer fjölg-
andi en venjulega er fólksfjöldi
mestur þegar kemur fram á laug
ardag. —Jón.
Eg hef veitt á flestum miðum
á norður Atlantshafi og einn
ig í íshafinu, en hér fáum við
alltaf bezta fiskinn. Ef ég fæ
að ráða, mun ég leita aftur til
Íslands. Faðir minn var tog
araskipstjóri, og taldi miðin
hér bezt, og bræður mínir 5,
sem allir eru togaraskipstjórar
eru mjög hrifnir af íslands-
miðum.
— Hvernig var aflinn í þess
ari ferð?
— Hann má teljast góður,
við gátum aðeins fiskað í
rúma 4 sólarhringa vegna veð
urs og vélabilunar, en veiðin
er þó rúml. 1290 kitt.
— Hvernig líkar yður vif
íslendinga?
— Ég þekki nokkra landa
yðar, sem búsettir eru í Hull,
og eru það allt beztu karlar
og mjög duglegir sjómenn, en
á Lslenzka grund hef ég aldrei
stigið fyrr. Nú hef ég þegar
eignast hér nokkra kunningja,
og vonast ég til þess að eiga
eftir að hitta þá oftar.
— Nokkuð frekar sem þér
vilduð segja?
— Þið hafið unnið þetta
þorskastríð, það viðurkennum
við, og við Bretar erum svo
stoltir, að við munum hlíta
þeim reglum sem hér eftir
gilda. Ég vona og veit að fram
vegis muni góð samskipti og
vinátta ríkja með Bretum og
íslendingum.
St.S.Sig.
Samstarf
Evrópuráðs
og stofnskxá OECD
RÁÐGJAFARÞING Evrópuráðs-
ins kom saman til funda í
Strasbourg 1.—3. marz. Fjallað
var um tvö mál fyrst og fremst:
Samstarf ríkjanna í Evrópuráð-
inu og stofnskrá Efnahags- og
framfarastofnunnarinnar OECD.
Gerðar voru samþykktir um bæði
þessi mál.
í samþykktinni um samstarf
ríkjanna í Evrópuráðinu er lagt
til, að haldnir verði árlegir fund-
ir fulltrúanna á ráðgjafarþing-
inu og ráðherra í ráðherranefnd
Evrópuráðsins. Er lagt til, að
fyrsti fundur með þess-u sniði
verði í september n.k. og þar
rætt um samvinnu Evrópuríkj-
anna og vanþróaðra landa svo og
um þátt Evrópuráðsins í ríkja-
samstarfi innan álfunnar, einkum
með tilliti til OECD.
Eins og kunnugt er af fyrri
fréttum hefur stofnskrá OECD
verið undiviituð af hálfu Banda-
rikjanna og Kanada, sem ekki
voru fullgildir aðilar að Efna-
hagssamvinnustofnuninni OEEC,
sem OECD er ætlað að leysa af
hóhni. í samþykktum ráðgjafar-
þingsins um hina nýju stofnun
segir m. a., að þingið fagni hinni
nýju skipan mála og mæli með
því, að stofnskrá OECD verði
staðfest hið fyrsta. Jafnframt er
lögð áherzla á nauðsyn þess, að
reynt verði að koma á viðskipta-
bandalagi í Evrópu og leyst verði
vandamál þau, sem upp koma
vegna stofnunar tollabandalags
sexveldanna og fríverzlunar-
svæðis sjöveldanna.
Ráðgjafarþingið bendir á nauð-
syn þess, að þing eða þingmanna-
fundir fjalli um málefni OECD
til að efla starfsemi stofnunar-
innar og auka skilning á henni.
Ráðgjafarþingið lýsir sig and-
vígt því, að komið verði á fót
nýju alþjóðlegu þingi til að gegna
þessu hlutverki, þar sem fjölg-
un slíkra þinga feli í sér sóun
á tíma, starfskröftum og fé og
leiði til þess, að árangur verði
minni en ella og traust almenn-
ings á gildi samstarfs ríkja í
milli dvíni. Leggur ráðgjafarþing
ið því til að skýrslur um starf-
semi OECD verði sendar því og
ræddar innan vébanda Evrópu-
ráðsins, eins og verið hefur um
skýrslur frá OEEC hingað til.
Var kosin nefnd til að semja um
samband OECD og Ráðgjafor-
þings Evrópuráðsins.
Afli Akranesbáta
Akranesi 15. marz.
f DAG eru allir bátar héðan á sjó
Þeir fengu storm í morgun, hvass
an á norðan með snjókomu.
Fimm bátanna komu heim eins
og þeir fóru, en hinir tóku að
draga netin því það rigndi, þegar
á daginn leið.
19 bátar lönduðu hér í gær 202
lestum. Aflahæstir voru Sigurð-
ur AK 27,2 lestir, Sigrún 24,6 og
Sveinn Guðmundsson 21 lest.
, — Oddur
Ógæftir fyrir
austan
Eskifirði, 15. marz.
LÍNUVERTÍÐ er lolcið hér. Allir
bátar hafa tekið net. Afli þeirra,
slægður fiskur með haus, er frá
áramótum að telja: Guðrún Þor-
kelsdóttir 240 lestir, Vattarnes
230, Seley 195, Hólmanes 180,
Björg 94 lestir, en hún reri héð-
an meðan verkfallið í Vestmanna
eyjum stóð yfir. Miklar ógæftir
hafa hamlað veiði Austfjarðar-
báta það sem af er vertíð. — G.S.
Háskólamenn
ánægðir
„Almennur stúdentafundur
haldinn í Háskóla íslands þann
14. febrúar 1961 lýsir ánægju
sinni yfir þeim aukna stuðningi
við háskólastúdenta, sem felst í
framkomnu lagafrumvarpi um
Lánasjóð íslenzkra námsmanna.
Telur fundurinn, að þar sé
bætt talsvert úr brýnum þörf-
um.
Fundurinn leggur áherzlu á
þýðingu þéss, að stuðningur við
stúdenta verði jafnan við það
miðaður, að nám þeirra þurfi
ekki að dragast á langinn vegna
fjárhagsörðugleika".
Og ennfremur:
„Almennur stúdentafundur
haldinn í Háskóla Íslands þann
14. febrúar 1961 lýsir yfir þeirri
skoðun sinni, að óeðlileg sé sú
skipan, sem tíðkazt hefur á und-
anförnum árum, að Ménntamála-
ráð annist úthlutun þess fjór, sem
veitt er íslenzkum námmönnum
erlendis.
Einkum telur fundurinn mikils
vert, að námsmönnum sjálfum
gefist kostur á að eiga hlut að
skiptingu fjárins, þar eð fáir eða
engir hafa betri aðstöðu til að
j gera sér grein fyrir, hvar þörfin
í er brýnust