Morgunblaðið - 28.04.1961, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.04.1961, Blaðsíða 2
MORGVNBLAÐIÐ Föstudagur 28. aprfl 1961 } Mótmæli Hafnarháskóla þýðingarlaus KAUPMANNAHÖFN, 27. apr. ("Frá Páli Jónssyni) — Há- skólaráð Hafnarháskóla segir, aff réttargrundvöllurinn undir skipulagsskrám fyrir dánar- ffjafir verði brotinn niður og gert verði erfitt fyrir um slík- ar gjafir í framtíðinni, ef fs- lendingum verði afhent hand- rit þau, sem þeir óska eftir. Auk þess gerir háskólaráðið því skóna, að Norðmenn muni krefjast Sæmundar Eddu og Flateyjarbókar, ef Danir á- kveði nú að afhenda íslend- ingum þær. Aðgerðir háskólans hafa reyndar enga þýðingu fyrir gang málsins, þar sem ríkis- stjómin heíir ákveðið afhend- inguna, án tillits til afstöðu háskólans. Tsjombe enn í haidi Öljóst hverjir hafa handtekið haiin — ofj hvers vegna Kristinn í Ráða- gerði látinn I GÆR lézt á heimili sínu Krist- inn Brynjólfsson í Ráðagerði, 81árs að aldri. Kristinn var fæddur og upp- alinn I Engey, sonur Brynjólfs Bjarnasonar bónda þar og konu hans, Þórunnar Jóftsdóttur. — Hann byrjaði að róa á skútum 14 ára gamall, fór síðan á sjó- mannaskóla og varð kunnur sjó- sóknari og mikill og góður skip- stjóri á fiskkútterum og togur- inn, eftir að þeir komu til sög- unnar. Síðustu áratugina bjó Kristinn í Ráðagerði á Seltjarnarnesi, skammt frá æskuheimili konu hans, Önnu Guðmundsdóttur frá Nesi, sem látin er fyrir mörgum árum. Coquilhatville og Elisabethville, Kongó, 27. apríl. — (Reuter) — MOISE Tsjombe, forsætisráð herra Katanga, sem handtek- inn var á flugvellinum í Co- quilhatville í gær, er enn í haldi þar, eftir því sem bezt er vitað — en í gærkvöldi barst sú frétt út, að hann hefði verið látinn laus. Katangastjórn sendi leið- togum Leopoldville-stjórnar- innar skeyti í dag, þar sem þess var krafizt, að beint samband fengizt við Tsjom- be, svo að hann gæti sjálfur greint frá málavöxtum — og að hann yrði tafarlaust lát- inn laus. Var beðið um skjótt svar við þessari kröfu, þar sem nauðsynlegt væri, að fá sannar fréttir af örlögum for sætisráðherrans, ef unnt væri að róa þegna hans, sem væru nú mjög æstir og áhyggjufullir. Allt virtist þó með kyrrum kjörum í Elisabethville í dag, og ekki er kunnugt um, að nein- ar meiri háttar ráðstafanir hafi verið gerðar í sambandi við' þetta mál á ' stjómarfundi, sem haldinn var í dag. Munu ráð- herrarnir vera að bíða svars við fyrrnefndu skeyti sínu. — Því var neitað af starfsmönnum á Elisabethville-flugvelli í dag, að fimm flugvélar hlaðnar her- mönnum hefðu farið þaðan til „ókunns áfangastaðar“, en út- varpið í Brazzaville hafði flutt þá fregn. ★ EKKI HANDTEKINN — OG ÞÓ Fréttastofan ACP í Kongó sagði I dag eftir embættis- mönnum í Leopoldville, að Tsjombe hefði alls ekki verið handtekinn. Hermenn hefðu að- eins varnað honum brottfarar — í því skyni, að unnt yrði að ljúka fundi Kongó-leiðtoga um sambandsríki Kongó. Engin skip un hefði verið gefin um hand- töku Tsjombes af Leopoldville- stjórninni. ★ HEFNDARAÐGERÐIR? Menn óttast nú, að þaff hafi veriff hermenn hliffhollir Liuu- umba, fyrrum forsætisráffherra Kongó, sem myrtur var í Kat- anga í febrúar, er handtekiff hafi Tsjombe — og hyggi þeir nú á hefndir. Jónas Hallgrímsson Bazar Hafnarfirði — Slysavarnadeild in Berklavörn, sem starfað hef- ir hér í nokkur ár, ætlar að halda baztar í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 8,30. — Verður þar á boðstólum ýmislegit nýtilegt. í deildinni eru i)ú nokkuð á annað hundrað félagsmenn, sem hafa á stefnuskrá sinni að styrkja berklasjúklinga hér í Hafnarfirði. Hefir verið efnt til spilakvölda undanfarna vetur, sem hafa ver ið vel sótt, — og einnig hefir deildin haft bazara. Mælír með dragnótaveiðum FISKIFÉLAGI íslands hefur undanfarið borizt hvaðanæfa að á landinu, svör hinna ýmsu aðila sem leita skal til varðandi leyfi stjórnvalda til fiskiskipa um að stunda takmarkaðar dragnóta- veiðar. Meðal þeirra er um þetta hafa fjallað er bæjarráð Reykja- víkur. í útgerðarráði hafði þetta mál verið rætt á tveim fundum. A grundvelli ályktunar útgerð- aírráðsins samþykkti bæjarráð á fundi sínum á þriðjudaginn var, að mæla með leyfi til takmark- aðra dragnótaveiða hér við Faxa flóa. Slíkar takmarkaðar drag- t- Als'ir Framh. af bls. 1 -A Andstæffingarnir lamaðir Það var tilkynnt í París í kvöld, að engar uppreisnarsveit- ir væru lengur að verki í Alsír. Hins vegar hafa ýmsir uppreisn- armanna horfið, og er þeirra nú leitað, en ekki er búizt við, að þeir muni reyna að safna liði til frekari uppreisnartilrauna. Er helzt talið, að þeir hafi flúið til fjallahéraða. Engar óeirðir hafa orðið í Alsír síðann uppreisnin rann út í sandinn -— og virðast andstæðingar de Gaulles nú al- gerlega lamaðir. nótaveiðar voru leyfðar hér í Faxaflóa í fyrrasumar. Bráðlega munu stjórnarvöldin fá málið til meðferðar þ. e. a. s. þegar Fiskifélag íslands sendir þeim öll gögnin sem því hafa borizt málið varðandi að undan- förnu. Öil frumrit kvæða Jdnasar koma heim ÍSLENDINGAR fá nú loks öll þau frumrit- kvæffa Jónasar Hallgrímssonar, sem hingaff til hafa veriff í Árnasafni. Þetta kom m. a. fram í frétta- auka i Ríkisútvarpinu í gær- kvöldi, en þar talaffi Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráff- herra um þau handrit og skjöl, sem gert er ráff fyrir aff afhent verffi íslendingum úr Árnasafni og Konungsbók- hlöðunni í frumvarpi, er lagt var fyrir danska þjóðþingiff í gær. Tók hann þetta sem dæmi um síffari tíma hand- ritin, sem afhent yrffu. Einnig rakti ráðherrann ýt- arlega hvaða handrit hér væri um aff ræða, þar sem afhent yrffu og þau sem eftir yrffu, en um þaff er fjallaff annars staffar í blaffinu. Sagði ráff- herrann aff Ijóst væri aff all- ur þorri þess sem nefnt hef- ur verffi íslenzk handrit í dönskum söfnum verði afhent ur íslendingum, bæffi aff tölu til og þó ekki siffur aff gildi. Þegar þaff gerffist, sagffi hann, verffur þaff einna merk asti atburður í menningarsögu íslendinga, ’ viffburffur, sem hlýtur aff gleffja sérhvern ís- lending aff dýpstu hjartarót- um. íslendingum boðið að skoða þýzka baðstaði NÆSTKOMANDI þriðjudag leggja nokkrir fréttamenn, full- trúar frá heilbrigðismálaráðu- neytinu og viðskiptamálaráðu- neytinu og fulltrúi Veitinga- mannasambandsins af stað í hálfs mánaðar kynnisför til Þýzkalands, undir leiðsögn Gísla SigurbjörnssOnar, forstjóra EUi- heimilisins Grundar. Megintil- gangur fararinnar er að sköða ýmsa fræga baðstaði í Þýzka- landi og kynnast starfsemi þeirra. Undanfarin ár hafa komið hingað til lands nokkrir þýzkir læknar og vísindamenn, aðallega frá háskólanum í Giessen, á veg- um Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar, í þeim tilgangi að at- huga möguleika á notkun hvera- hitans í Hveragerði til lækn- inga. Það er svo í framhaldí af þessu, að þýzka sendiráðið í Reykjavík hefir afhent Gísla Sig urbjörnssyni, forstjóra, boð til fyrrgreindrar kynnisfarar, frá ríkisstjórn Vestur-Þýzkalands, háskólanum í Giessen og Sam- bandi þýzkra baðstaða. Eins og fyrr segir, verður lagt af stað 2. maí n.k., en heimleiðis verður haldið hinn 15. — Meðal frægra baðstaða, sem þátttakend um gefst kostur á að heimsækja, má nefna Bad Nauheim, Gies- sen, Wiesbaden, Bad Ems og Bad Pyrmont. HÆÐ fyrir nórðan land en lægðarsvæði fyrir sunnan. Veðurhorfur kl. 22 í gær- kvöldi: SV-mið: A-kaldi, dálítil rign ing. Suðvesturland: A-kaldi, skýjað úrkomulaust. Faxaflói Breiðafjörður, Faxaflóamið Og Breiðarfjarðarmið: A-gola, léttskýjað í nótt, en skýjað á morgun. Vestfirðir og miðin: A-gola, þoka norðantil. Norð- urland og Norðurmið: A-gola, þokuloft. Norðausturland til Austurlands og miðin: A og NA kaldi, þokuloft og rigning öðru hverju. Tveir slösuðust við Arnarstapa Hellum, 27. apríl. SÍÐDEGIS í gær varð harður bifreiðaárekstur í Stapahrauni rétt ofan við Arnarstapa. Rákust þar á Volkswagen-bifreiðin G-2288 og jeppabifreiðin P-324. í fólksbifreiðinni voru hjón með barn Og slasaðist það, en ekki alvarlega. Auk bifreiðarstjórans var í jeppanum einn farþegi og skarst hann á höfði af glerbrotum. Aðr- ir sem í bifreiðunum voru sluppu ómeiddir að kalla. Héraðslæknirinn í Ólafsvík kqm þegar að Arnarstapa, en þangað höfðu hinir slösuðu verið fluttir. Gerði hann að sárum þeirrá. Báðar bifreiðarnar eru stórskemmdar. Rétt er að geta þess að árekst- ur þessi varð á blindri hæð, auk þess sem vegurinn er þarna mjög mjór og aldrei hefir verið sett hættumerki á þennan stað. — — K.K. Eldur í Neptúnusi KL. 8,30 í gærmorgun var slökkviliðið kvatt að togar- anum Neptúnus, er lá við Faxagarð. Var eldur í vistarveru skipverja í fatnaði, sem lá í borðsal aftur á. Mik- ill reykur var þar, en eldur- inn varð fljótlega slökktur. Engar teljandi skemmdir munu hafa orðið. Snjóskaflarnir hopa á Siglufirði SIGLUFIRÐI, 27. apríl. — NorS angarðurinn, sem reið yfir sveit ir hér nyrðra og náði hámarki sínu á síðum Reykjavíkurblað- anna, hefur nú hopað af hólmi fyrir vorinu. Snjóskaflar, sem fyrir skemmstu hreyktu sér S himinsátt, hafa nú sigið saman í nær ekki neitt. Það hefur því lyfzt brúnin á Siglfirðingum, ut- an forfallinna skíðamanna. > Bæjarráð Siglufjarðar hefur I dag sent vegamálastjóra áskor- un um að hefja snjóruðning a£ Siglufjarðarskarði, enda nokkur óánægja ríkjandi sökum þess hve seint hefur verið hafizt handa í þessum efnum undan- farin ár. Undirbúningur fyrir sildarvertíff Hér hefjast senn ýmiskonar undirbúningsstörf vegna vænt- anlegrar síldarvertíðar. 22 sölt- unarstöðvar og 5 síldarbræðslur verða væntanlega þess albúnar að veita móttöku þeirri síld, sem gefast kann þegar um mán- aðamótin maí-júní. —. Stefán. Bæjarráð til Stokkhólms BÆJARRÁÐ Reykjavíkur, I hverju eiga sæti fjórir fúlltrúar auk borgarstjóra, mun leggja land imdir fót innan fárra daga. Á síðasta fundi þess, á þriðjudaginn var, fjallaði þaff um boð um að heimsækja Stokkhólmsborg 8. maí næst- komandi, í sambandi við höfuð- borgaráðstefnu Norðurlanda þar í borg. Hefur bæjarstjórn Stokk hólms boðið bæjarráði í kynnis- heimsókn. Var samþykkt að taka boðinu og að borgarlög- maður sæki ráðstefnuna ásamt bæjarráðsmönnum af hálfu Reykj avíkurbæj ar. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.