Morgunblaðið - 28.04.1961, Side 17

Morgunblaðið - 28.04.1961, Side 17
Föstudagur 28. apríl 1961 MORGVNBLAÐIÐ 17 Guðríður Stefanía Þórðardóttir — Kveðja F. 27. des. lffíl. D. 17. apríl 1961 EF ÉG væri að spurður, hvert toefði verið það heimili, er hæst þar um menningu og myndar- Ibrag í Hnappadalssýslu á bernsku ©g unglingsárum mínum, myndi ég án umhugsunár segja Rauð- ikollsstaðir í Eyjarhreppi, og ef epurningin næði til þess, hver Ihefði verið undirstaða þess, væri (því einnig auðsvarað. Að Rauð- íkollstöðum höfðu búið um langa tíð feðgar tveir, er báðir höfðu Bvo mikið til síns ágætis, að merki íþess hlutu að verða augljós. Þórð nr Jónsson máitti teljast eins kon- ar landnámsmaður, er hann hóf Ibúskap þar með úrvals eigin- ikonu sinni Kristínu Þorleifsdótt- ,ur. Hann var búhöldur svo mik- ill, að orð fór af, enda átti hann að minnsta kosti tíu jarðir inn- ari þriggja sýslna. Hann var manna ráðhollastur, hafði manna forráð og var bjargvættur í Iharðæri. , Þórður yngri var fríður maður sýnum og fyrirmannlegur, gáfu- maður og svo vel menntaður, að bann var fullhlutgengur, hvar sem hann fór. Hann var framsæk inn forustumaður, en kunni vel hóf á. Voru honum því falin marg báttuð trúnaðarstörf, sveitar og sýslu. Hreppstjóri sveitar sinnar var hann, svo sem faðir hans, og einnig sat hann á alþingi um bríð. Kona Þórðar var Ásdís Gísladóttir frá Hraunhöfn á fínæfellsnesi, og var hún kven- kostur ágætur. Það var ekki fyrr en eftir 1890, að ég fór af eigin raun að hafa ofurlitil kynni af iRauðkollsstaðheimilinu, en þrátt fyrir að auðæfi Þórðar Jónsson- ar voru all mikið orðin dreifð og nokkuð gengin til þurðar, mátti þá enn greinilega sjá merki ’þess, að um hefðar setur væri að ræða, hvar hinn aldni höfðingi Þórður yngri bar merkið há'tt í orði og athöfn. Á þessum árum voru hin mörgu og mannvænlegu börn Rauðkollsstaðahjónanna gift og búin að mynda sín eigin heim ili, önnur en yngsta barn þeirra, dóttirin Guðríður Stefanía er lengst lifði syskinanna, en verð- ur nú í dag til moldar borin. Ekki lék á tveim tungum, að bún væri kvenna fríðust um víðar byggðir, og svo var hár hennar mikið, að kalla mátti að hyldi hana. Hún var frjálsmann- leg og hispurslaus, og svo var lund hennar glöð, að jafnan ríkti Síf og kæti í návist hennar. Við- 'kvæmní hennar var mikil, og jafnan lagði hún gott til allra mála og vildi hvers manns vanda leysa. Söngrödd hafði hún mikla og fagna, og minnist ég þess einkum, er hún söng í Mikla- holtskirkju við guðsþjónustur, að unun var á að hlýða. Ung gekk hún í kvennaskólann í Reykja- vík með ágætum árangri, því að námsgáfur voru í bezta lagi, svo sem hún átti kyn til. Hún naut mikillar ástar foreldranna og annara, er náin kynni höfðu af henni, því að hún var ljóssins barn, er jafnan vildi miðla öðr- um birtu og yl. Voru því miklar vonir bundnar við framtíð henn- ar, sökum mikilla hæfileika og mannkosta. Árið 1892 kynntist hún ungum og glæsilegum manni, Ágúst Guðmundssyni Breiðdal, og var hann frá Efra-Breiðdal í Önundarfirði. Þau feldu hugi saman og gengu í hjónaband árið eftir og hófu búskap í Reykja- vík, og mun hann þá einkum hafa stundað ljópmyndagerð. Inn- an fárra ára voru synirnir orðn- ir þrír, en skyndilega dró ský fyrir sólu, er æfintýra- og list- sköpunarþráin náði þeim tökum á heimilisföðurnum, að hann hvarf til fjarlægra landa. Nú mátti ætla, að hin unga móðir, er lítið þekkti andbyr lífsins, léti hendur í skaut falla og gæfist upp, en svo varð ekki. Því að í henni bjó sá ættarkjarni, sem að nokkru er áður að vikið. í öruggu guðstrausti sótti hún á brattann, ásamt ágætfi tengda- móður. Dvaldist Stefanía með börnum sínum á ýmsum stöðum, unz hún tók við húsmóðurstörf- um hjá Guðmundi Jónassyni, prests frá Staðarhrauni, er þá rak verzlun og búskap í Skarðs stöð. Gegndi hún þar erfiðum og umfangsmiklum störfum, því að aiik þess að heimilið var stórt og mannmargt, var jafnan fullt hús innlendra sem erlendra gesta, og húsbóndinn stórlátur og veitull. Þau eignuðust eina dóttur, síðar varð ellistoð móð- urinnar. Auk þess tók Guðmund- ur systurdóttur sína, Theódóru Guðlaugsdóttur, prests, kornunga í fóstur. Þau Guðmundur og Stefanía bjuggu lengi saman við mikla rausn. Meðan Stefanía var enn ekki gömul kona, gat hún litið sigri hrósandi yfir farinn veg og horft vonglöð fram á veginn, er börnin hennar fjögur voru öll fullþroska, gædd góðum hæfileikum og miklu viljaþreki, og síðast en ekki síst vegna þess ástríkis, er hún naut frá þeim öllum. Börn hennar eru þau Ágúst Hólm, starfsmaðup hjá Rafmagns veitu Reykjavíkur, Kristján H. Breiðdal, bóndi og kaupfélags- stjóri, látinn fyri» nær tveimur árum, Guðmundur Hólm, óðals- bóndi á Krossi á Skarðsströnd, og Elinborg, húsfreyja, gift Magnúsi Jónssyni, óðalsbónda að Ballará á Skarðsströnd. Þó að Stefanía ætti við nokkurn heilsu brest að stríða all mörg síðustu æviárin, átti hún því láni að Það mun hafa verið haustið 1920, sem ég kom í fyrsta sinn inná snotru og þrifalegu stoíuna þína við Vitastíginn. Það var notalegt andrúmsloft fyrir upp- burðarlítinn sveitapilt, glaðvært tal, dálítið gróft í bland. Þó húsráðandinn væri lítið gefinn fyrir ruddaskap og ábyrgðarlaust hjal, varð að sýna viðskiptavin- um lipurð og þolinmæði. Ég var ákaflega bólugrafinn unglingur, hörundið eins og kargaþýfið heima á æskustöðv- unum í Flóanum, og ekki auð- velt að bregða á það eggjárni án þess að fremja stóri og blóðug spjöll. Um þessar mundir var allt í' sárum í veröldinni eftir heims- styrjöldina fyrri, nærri gengið stálbirgðum þjóðanna og óhægt um vik að afla þeirra hárbeittu vopna, er skera skegg manna eins og brugðið sé í vatn, svo sem nú tíðkast á rakarastofunni þinni við Laugaveginn. Fyrirstríðshnífarn- ir þínir voru nú flestir slitnir uppí bakka. Líklega hefir það fremur ver- ið afleiðing af bólunum, en því að í hnífunum þínum væri deigt stríðsstál, að ég var oft dálítið sár í húðinni fyrstu árin mín í höfuðstaðnum, enda varstu mikill íþróttamaður með hnífinn og brást honum geysifimlega. Stund um hvein reyndaf allsárt í sver- ustu trjábolunum er þú lagðir alvopnaður að rótum þeirra, en aldrei mun ég gleyma því hvað þú lagðir þig fram, ekki bara um að hlífa augum skrápnum á hrjóstrugu fésinu á mér, held- ur jafnvel miklu fremur persónu þessa vesalings sveitapilts, er átti um svo sárt að binda vegna ásóknar þess ófagnaðar, er tíð- um sækir unglinga heim á gelgjuskeiði ævinnar, og afklæð- ir þá jafnvel allri mannsmynd. fagna að njóta samvista ástúðlegr ar dóttur og tengdasonar, er önn- uðust hana til síðustu stundar. Mér er sag, að Stefanía hafi haldið óskertum sálarkröftum fram undir það síðasta, þótt ald- urinn væri orðinn hár, og má því nærri geta, hvers virði slík kona hefur verið fyrir upprenn- andi æsku, svo þrungin sem hún var af guðstrú og mannkærleika. Ég sakna þess, hversu lítil kynni ég hafði af ‘henni eftir að ég varð fullorðinn, en minningin um hana, unga og fagra, er hún prýddi föðurgarðinn, er mér ó- gleymanleg. Nú hefur hún á ný öðlazt dýrðlega æsku, er aldrei verður frá henni tekin, af því að hjartað var líka fagurt og gott. | Blessuð sé minning hennar. ' Magnús Sigurðsson. Þó liðin séu nú yfir 40 ár, hefi ég enn ekki skift um rakara- sitofu, og segir það bezt til um hug minn til þín og þinna traustu sona, sem reyndar hafa nú lært listir sínar af bókum og í svarta skólum tækninnar, þar sem þú lærðir allt af sjálfum þér og lífsbjargarviðleitnin eini skóla- meistarinn. Oft sést um það skrifað í bók- um og blöðum, að er menn taki að reskjast, beri þeim að fara vel með heilsuna, ekki hlaupa upp stiga, ekki snúa bílnum í gang, ekki éta þetta eða hitt, ekki .... ekki .... Skömmu fyr- ir 1880 er forlögin hrintu Valdi- mari Loftssyni, sjö ára dreng- hnokka foreldralausum útí lífið, að bjarga sér eins og bezt mætti ganga, þá var slíkum kenning- um lítið haldið á lofti, enda hvorki komnar lyftur né sterkir ragfeymar að ræsa mótora, syfj- aða og úrilla eftir langstöður á köldum vetrarnóttum. Þá var heldur ekki til siðs að spyrja fólk hvað það vildi fá að éta, heldur hvort nokkuð væri til að éta. Og þegar setzt var undir ári og súrkeimur kominn í hálsinn, er boðaði afsal þess litla matar- forða er aflað hafði verið með söltum svita, var ekki rétt að mönnum ein al'tlæknandi töfra- pilla, eins og nú tíðkast, heldur blautur sjóvettlingur á kjamm- ann. En þetta herti viljann og stælti vöðvana og hvatti til sjálfs bjargar og karlmennsku. Valdimar Loftsson var einn þeirra íslenzku atorkumanna, er snemma lærði að vinna og bjarga sér á eigin spýtur. Að vísu er það «Lki ónýtt að hafa blóð Lofts ríka og Ólafar dóttur hans í æðunum, það ' segir til sín. Já og það sagði sannarlega til sín, og nú er strákurinn Valdi- mar orðinn 90 ára og þó enn tregur til að.fara eftir formúlum þeirra, sem hafa það að hobbíi að auka árum við ævi manna, einatt að þeim forspurðum, með því að hræða þá frá manneskju- legum lífsmáta til meinlætalifn- aðar og sérvizku. Valdimar varð efnaður á því að vinna, vinna meðan aðrir sváfu, léku sér og hvíldu beinin. En það kostaði langan vinnudag hér áður að hafa það að aukastarfa að halda í gangfæru standi uppundir hundr- að hjólatfkum handa óprúttn- um strákum áð þeysa á um svo kallaðar götur Reykjavíkur og nágrennis. Ef Valdimar Loftsson hefði verið í Ameríku, en ekki þessu landkrýli, sem aldrei á til peninga nema fyrir sköttum, væri hann nú áreiðanlega eigandi og forstjóri íslenzkra Fordverk- smiðja eða Edisonfyrirtækja. Valdimar Loftsson er skemmti legur kall og margfróður, enda aldrei sætt sig við neitt gervi- lif af því tagi, sem sparar mönn- um árvekni og vinnu. Hann er ágætt dæmi um það, að með eljusemi, nýtni og sparsemi er hægt að verða efnaður, jafnvel á íslandi, án þess að það sé á annarra kostnað. Hann fór aldrei í neinn skóla um dagana, en kann þó fleira en margir menn lang- skólagengnir, og börn hans eru lifandi sönnun þess, að hann skildi meira í uppeldisfræðum en jafnvel sumir aðrir er hafa það að atvinnu að kenna fólki að lifa, og sjálfur er hann þessa stundina opinber staðfesting á því, að það er viljinn, fremur en atlæti og töframeðul, sem sker úr um hamingju manna og sann an lífsframa eða uppgjöf. Á 90 ára afmæli þinu, gamli vinur, harma ég það eitt, að þessi viljasterki og áræðni dugnaðar- maður, skyldi ekki búa við þau skilyrði að geta gefið okkur sína Rokkefellersitofnun eða General- mótors. Þar voru að verki þínir menn. R. J. Valdimar Loftsson rakaram. níræður LandsmáiaféSagið VÖRÐUR heldur fund 1 Sjálfstæbishúsinu i kvöld kl. 20.30 Fundareíní: Handriiamálift FrummœZands: Cunnar Thoroddsen fjármáZaráðherra Allt sjálfstæðisfólk velkom ib meoan húsrúm leyfir LandsmálaféSagið VöVð&ir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.