Morgunblaðið - 28.04.1961, Page 23
FöstudagTir 28. apríl 1961
MORGVNBLAÐIÐ
23
W. Turner, skipstjori a togaranum Starelle t.h. og Garðar
Pálsson, 1. stýrim. á Óðni, við réttarhöldin í Vestmannaeyj-
um í gær, en Garðar fór yfir í brezka togarann, er hann
var tekinn. —
Réttarhöld í Eyjum
í máli brezka togarans
Skipstjórinn telur sig ekki fyrir
innan mörkin
RÉTTARHÖLD voru í Vest-
mannaeyjum í'gær í máli brezka
togarans Starelle H 219, sem tek
inn var í landhelgi út af Geir-
fuglaskeri í fyrradag.Skipstjóri
togarans viðurkenndi ekki að
hafa verið fyrir innan mörkin,
— Jörgensen
Frh. af bls. 1
sýna þolinmæði og tillitssemi,
þegar fjallað er um mál, er hafa
mikla þýðingu fyrir einstök Norð
lurlandanna. Slíkt mun bezt
styrkja böndin með þessum þjóð
um. — í>að væri því í litlu sam-
iræmi við norræna samkennd, ef
ekki hefði verið reynt að leysa
osamkomulagið um handritin.
miál, sem um langt árabil hefir
valdið miklum biturleik, sagði
xáðherrann.
W Jörgensen bar lof á þátt
’danskra vísindamanna í hand-
ritarannsóknum og kvaðst játa,
að aðstæðumar til áfrámhald-
andi rannsókna í Danmörku
jninnkuðu nokkuð við afhend-
inguna. —. En Islendingar munu
varðveita handritin vel, áhugi
jþeirra á því að rannsaka þau
er trygging fyrir því, sagði
iiann. — Auk þess verða mikró-
Silmur af þeim handritum, sem
afhent verða, eftir í Danmörku
Itil frekari rannsókna.
W Jörgen Jörgensen lauk ræðu
Binni með því að láta í ljós von
um, að Þjóðþingið fylgdi sjón-
armiðum ríkisstjórnarinnar í
þvi, að sanngjamt sé að koma
ftil móts við óskir Islendinga í
r»þessu efni. — Hin íslenzku hand
jrit eru vottur um þúsund ára
menningu lítillar þjóðar, sem
hefur auðgað allan heiminn,
eagði ráðherrann. —. Sjálfir eru
Danir rikir af þjóðlegum minj-
um og hljóta því, í anda nor-
rænnar samhyggðar, að hafa
efni á því að hjálpa íslandi til
að fá aftur hinn stórfenglega
þjóðararf sinn, sagði Jörgen
Jörgensen að lokum.
og stóðu réttarhöldin enn yfir i
gærkvöldi, þegar blaðið fór í
prentun.
Það var varðskipið Óðinn,
sem kom að togaranum að veið-
um og taldi hann vera 1,7 sjó-
mílur fyrir innan 6 mílna mörk
in. Var sett dufl í kjölfar tog-
arans, og tvisvar skotið lausu
skoti, er hann stöðvaði ekki ferð
sína. Rétt á eftir nam togarinn
staðar og varðskipsmenn fóru í
báti yfir í hann.
Herskipið Crossbow D-96 kom
á vettvang og fékk leyfi Eiríks
Kristóferssonar skipherra til að
gera sína útreikninga. Mun það
hafa talið togarann aðeins fyrir
innan mörkin. Fór Óðinn með
togarann til Vestmannaeyja.
Málið var tekið fyrir í fógeta-
rétti þar, er fulltrúar útgerðar-
manna voru komnir á vettvang.
Torfi Jóhannsson bæjarfógeti er
dómforseti. Réttarhöld héldu
áfram í gærkvöldi og hafði
dómur ekki fallið í málinu er
blaðið fór í prentun í gærkvöldi.
S.U.S. siða
Framhald af bls. 14.
ið rætt um félagsmál, svo og
ýmis mál, sem efst hafa verið
í hugum manna að undanförnu.
Fyrirhugað er að vormót verði
á Akranesi í næsta mánuði, vænt
anlega 14. maí. Verður það á veg-
um Þórs og Sambandes ungra
Sjálfstæðismanna.
Á SÍDUSTU sýningu litkvik-
mynda Ósvalds Knudsens í
Gamla bíói vildi það óhapp til,
að sýningarvél bilaði þegar ver-
ið var að sýna síðustu myndina,
og reyndist ekki unnt að gera við
hana á skammri stundu. Sýning-
argestum er nú boðið að sjá nið-
urlag sýningarinnar (Refurinn
gerir gren í urð og Grænlands-
myndina) á laugardag kl. 3. Og
til uppbótar verða einnig sýndar
þrjár aðrar kvikmyndir Ósvalds:
Heklugosið 1947, Skálholt og
Ullarband og jurtalitun.
. --------------------
— Frumvarpið
Framhald af bls. 1
3. grein: — Samtímis flutningi
handritanna fer fram skipting
fjár stofnunar Áhna Magnússon-
ar, sem nú nemur oa. 100.000
krónum, og verður ákveðin upp-
hæð, samkvæmt 3. grein laganna,
4. kafla, lögð til Háskólans í
Reykjavik, með þeirri skyldu
fyrir hann, að hann hafi umsjón
með fénu og noti það í samræmi
við skipulagsskrá stofnunarinn-
ar.
★
4. grein: — Þau handrit og
skjöl, sem þessi samningur fjall-
ar um, með tilheyrandi fé, skulu
mynda Árna Magnússonar stofn-
unina á íslandi, en heiti hennar
verður staðfest af ríkisstjórn ís-
lands.
★
5. grein:— Árna Magnússonar
stofnuninni á íslandi verða feng-
in þau handrit úr Konunglegu
bókhlöðunni í Kaupmannahöfn,
sem ákvarðanir framangreindra
laga, greinar 3, kafla 4, ná til.
★
6. grein: — Málsaðilar eru sam
mála um, að skipan sú, er gerð
hefir verið, skuli viðurkennd sem
fullkomin og endanleg ákvörð-
un varðandi allar óskir af hálfu
íslendinga um afhendingu hvers
konar þjóðlegra, íslenzkra minja
í Danmörku. — Samkvæmt þessu
skal ekki í framtíðinni unnt fyr-
ir íslenzka ríkið að setja fram
eða styðja kröfur eða óskir um
afhendingu slíkra minja úr dönsk
um skjalasöfnum eða safnastofn-
unum, opinberum eða í einka-
eign.
★
7. grein: — Flutningur þeirra
j^andrita til íslands, sem að áliti
stjórnar hinnar dönsku stofnuri-
ar hafa þýðingu við gerð nýrrar,
islenzkrar örðabókar, sem unnið
er nú að í Danmörku, hefst ekki
fyrr en því verki er lokið, þó
í síðasta lagi 25 árum eftir að
þessi samningur gengur í gildi.
★
8. grein: — Með samningi milli
menhtamálaráðherra landanna
verða settar reglur um gagn-
kvæma möguleika hinna tveggja
deilda stofnunarinnar til þess að
fá að láni handrit til nota við
vísindalegar rannsóknir.
★
9. grein: — Deilur, sem til
greina kunna að kóma, varðandi
hvern skilning leggja bera í þenn
an samning, skulu ræddar að
diplómatískum leiðum, en fáist
ekki viðunandi lausn á þann
hátt, skal málið lagt tU endan-
legrar ákvörðunar fyrir opinbera
nefnd, er skipuð sé tveim full-
trúum, tilnefndum af dönsku rík
isstjórninni og tveim fulltrúum,
tilnefndum af íslenzku ríkis-
stjórninni, ásamt oddamanni, er
hinir fjórir nefndarmenn út-
nefna. Ef þeir ná ekki samkomu-
lagi um oddamann, skulu þeir
fela forseta Alþjóðadómstólsins
í Haag að velja hann.
• r
í tíundu grein samningsins,
sem gerður er bæði á íslenzku og
dönsku, með jafngildum textum,
eru svo loks ákvæði um, að hann
skuli staðfestur í Kaupmanna-
höfn eins skjótt og unnt er — og
að samningurinn skuli taka gildi
frá og með fullgildingardegi.
4 flokks mót
í handknattleik
FRAM og Víkingur hafa ákveðið
að efna til móts í 4 aldursflokki
drengja í handknattleik. Hefst
mótið á laugardag og lýkur sama
dag. Mótið hefst kl. 8,15. Aðgang
ur er ókeypis. Mótið er hrað-
keppni og hver leikur stendur
2x10 mín. Sé jafnt er framlengt
unz úrslit fást.
Níu lið hafa tilkynnt þátttöku
í mótinu Og leikir í 1. umfebð
verða þessir.
Fram — Víkingur
Haukar — FH.
ÍBK — ÍR
KR — Ármann.
Valur situr hjá.
. - . & _
SKIPAllTGCRB rikisins
Skjaldbreið
vestur um land til Akureyrar
hinn 2. maí. — Tekið á móti flutn
ingi í dag til Tálknafjarðar, áætl-
unarhafna við Húnaflóa og
Skagafjörð svo og til Ólafsfjarð-
ar. — Farseðlar seldir árdegis á
laugardag.
ESJA
vestur uih land til Akureyrar
hinn 4. maí. — Tekið á móti
flutningi í dag og árdegis á morg
un til Patreksfjarðar, Bíldudals,
Þingeyrar, Flateyrar, Súganda-
fjarðar, Isafjarðar, Siglufjarðar
og Akureyrar. — Farseðlar
seldir 2. mai.
Vorlaukar
(hnýði)
Begoníur
Gladíólur
Anemónur
Dahlíui
Liljur
Bóndarósir
Ranúnclur
Fjölbreytt litaúrval
Gróðrastöðin við Miklatorg.
Símar 22-3-22 og 1-97-75
Alstaðar þar sem sólin skín
sjást GLkJAANDI skór burst-
aðir með NUGGET. Skór end
as-1 BETUR vel burstaðir meá
NUGGET
4 0»
H úsbyggjend ur
Tek að mér að gera uppdrætti af járnalögn,
upphitun, skolp- og vatnslögn og öðru, sem
lýtuir að byggingaverkfræði.
THEODÓR ÁRNASON, verkfræðingut
Sólvallagötu 13 — Sími 34925.
íbúöir
Til sölu fokheldar íbúðir og lengra komnar, enn-
fremur einstaklingsherbergi, með sér inngangi. —
Lán og góðir greiðsluskilmálar. Állar upplýsingar í
Stóragerði 10. 3. hæð kl. 10—6 daglega.
Sumardvöl barna
Get útvegað nokkrum börnum á aldrinum 5—9 ára
sumardvöl í sveit. Upplýsingar í síma 34933 á, föstu-
dag og laugardag frá kl. 4—7.
Faðir minn
KRISTINN BRYNJÓLFSSON
andaðist á heimili sínu, Ráðagerði Seltjarnarnesi, mið-
vikudaginn 26. aprfl.
Guðríður Kristinsdóttir.
Maðurinn minn,
GUNNAR J. CORTES
læknir,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni laugardaginn
29. apríl kl. 10,30. Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Kristrún Cortes.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem heiðruðu
útför
ÓLlNU HALLDÓRSDÓTTUR
frá Kollsvík,
með nærveru sinni eða á annan hátt.
Fyrir okkar hönd og annarra aðstandenda.
Kristín og Ingvi Eyjólfsson.
Sviðholti.