Morgunblaðið - 14.05.1961, Blaðsíða 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 14. mai 1961
Sjónvarpað
frá fundi
Stúdentafélagsins
EINKASKEYTI til Mbl. frá Sig-
urði Líndal Kaupmannahöfn, 13.
maí. — Sjónvarpað var í kvöld
þáttum frá handritafundi Stúd-
entafélagsins. Á eftir þáttunum
ræddu þeir handritamáli Martin
Larsen, sem mælti með afhend-
ingu handritanna og Ole Widd-
ing, sem lagðist gegn henni.
Inger Larsen tók þáttinn sam-
an.
Skriða
féll á veginn
ísafirði, 13. maí.
FYRIR nokkrum dögum féll stór
skriða á Bolungarvíkurveginn,
rétt við Krossinn, og stöðvaðist
öll umferð milli ísafjarðar og
Bolungarvíkur. Var það allmik-
ið verk að ryðja veginn, því
skriðan bar stór björg niður fjalls
hlíðina. — Annars eru vegir í
nágrenninu með bezta móti og
eru menn að vona, að bráðlega
verði farið að moka heiðarnar.
G.
Vegurinn
suður opnaður
Akureyri, 13. mal
VEfeURINN yfir öxnadalsheiði
suður til Reykjavíkur, verður
opnaður til umferðar á morgun.
Umferð er þó takmörkuð við
bifreiðir með sex tonna öxul-
þunga og þar undir. Vegurinn
hefur verið lokaður síðan um
mánaðamót. — Ástandið á öðr-
um vegum hér í nágrenninu er
óbreytt og annast v.b. Drangur
mikinn hluta mjólkurflutning-
anna. — Magnús.
Ofurölvun
MIKIÐ var um ölvun í Reykja-
vík í fyrrinótt og var annríki
hjá lögregluinini. Tók lögreglan
16 menn í sina vörzlax og ók
miklum fjölda ofurölvaðria
mianna heim tiil sín.
Blaðamanna-
fundur
FRAMHALDSAÐALFUNDUR
Blaðamannafélagsins verður
haldinn í Nausti í dag og hefst
kl. 3. Þar verða til umræðu laga-
breytingar, launamál og fleira.
Eru félagar beðnir að fjöl-
menna og mæta réttstundis.
Handfæraveiðar fara að I
hefjast hér syðra. Uirdirbún-
ingurinn stendur nú sem
hæst. Þetta er einn af fyrstu
handfærabátunum, sem sett-
ur var á sjó, s. 1. þriðjudag.
Nú eru notuð stórvirk tæki
til að sjósetja báta, kranar og
vagnar, eins og sézt á með-
fylgjandi mynd. Bátaeigend-
ur geta flutt báta sína heim
að bæjardyrum að loknum
veiðitíma, dittað að þeim og
undirbúið þá fyrir veiðar aft-
ur. Síðan er tæknin tekin í
þjónustu og þeir settir á sjó,
eins og núna. Báturinn á
myndinni heitir Páll Níelsson
BE 291, 5 tonn að stærð.
(Ljósm. Sveinn Þormóðsson).
Landráðaskrif Þjóðvilfans:
Reynir að spilia fyrir
karfasölu til Rússlands
Ef einhver fslendingur hef-
ur dregið það í efa, að íslenzk-
ir kommúnistar hugsi fyrst og
fremst um hagsmuni Bússa, þá
hlýtur sá vafi að hverfa eftir
að hafa lesið grein Þjóðviljans
í gær um möguleika á karfa
sölu til Bússlands. Unnið hef'ur
verið að því undanfarið að fá
Bússa til þess að kaupa af okk-
ur karfa. fslendingar hafa hald-
ið því fram að þeir þyrftu að
fá hækkað verð fyrir karfann,
m. a. vegna þess að verðfall
hefur orðið á karfamjöli á
heimsmrakaðnum, en eins og
kunnugt er fer um 75% af karf-
anum, sem á land berzt til mjöl-
vinnslu.
• f stað þess að taka undir ósk-
ir fslendinga í þessum efnum
tekur Þjóðviljinn óstinnt upp
hanzkann fyrir Bússa. „Eiga
Sovétríkin að verðbæta tapsöl-
ur til Vestur-Evrópu“, spyr
kommúnistablaðið. Nei svo sann-
arlega ekki, það verður ekki af
því. — Þetta er allur undirtónn-
in í grein þess í gær.
Skraf Þjóðviljans um „tapsöl-
ur til Vestur-Evrópu“ er auðvit-
að gersamlega út í bláinn. í Mbl.
var talað um, að verð á fiski-
mjöli hefði Iækkað „á heims-
markaðnum“. Auðséð er að
kommúnistar eru að reyna að
spilla fyrir því að Bússar kaupi
karfa á því verið, sem fslendigar
þarfnast. Vitað er að verð á
ýmsum fisktegundum hef'ur
hækkað verulega, bæði í
Ameríku og víðar í hinum vest-
ræna heimi. Hefur það orðið is-
lenzkri útgerð og fiskiiðnaði til
mikils gagns. En Þjóðviljinn má
ekki heyra nefnt að fslendingar
óski hærra verðs fyrir karfa, sem
þeir vilja selja Bússum! Það kem-
ur ekki til mála. Bússar eiga ekki
að þurfa að borga hækkað verð
fyrir íslenzkan fisk þó aðrir hafi
gert það!!
• Um þessa framkomu komm-
únista er ekki hægt annað að
segja en að hún sé hrein land-'
ráð. Kommúnistar draga heldur
enga dul á það, að þeir eru að
vinna gegn hagsmunum fslands
með þessum skrifum sínum.
Annars mætti spyrja kommún-
ista að því, hvort þeir teldu það
einhverja goðgá þó t.d. íslenzkir
bændur vildu fá hækkað verð
fyrir kindakjöt vegna þess að
verð á gærum og ull hefði lækk-
að? Vissulega væri það engan
Sykurinn frá A-Evrópu mun
dýrari en á heimsmarkaöi
ÍSLENDINGAB neyta 8—9 þús.
tonna af . ykri árlega. Liðlega
helming þessa magns höfum við
flutt inn frá A.-Evrópulöndunum
samkvæmt gagnkvæmum við-
skiptasamningum, en afgangur-
inn hefur komið frá Kúbu. Höf-
um við greitt miklu hærra verð
fyrir sykurinn frá A.-Þýzkalandi
og Póllandi en þann frá Kúbu, en
í nýafstöðnum samningaviðræð-
um tókst hins vegar að fá veru
lega lækkun á Póllands-sykri.
Til skamms tíma greiddum við
40 sterlingspund fyrir tonnið af
Póllands-sykri. Við síðustu samn
ingaviðræður tókst hins vegar að
knýja fram lækkun, og munum
við greiða 31 pund fyrir tonnið á
því magni, sem var samið. Hins
vegar er verðið 42 pund í síð-
asta samningi við A.-Þýzkaland
ig gildir hann fyrir þetta ár.
Kúbu-sykurinn hefur kostað
okkur 30—31 pund að undan-
förnu og ber þess að gæta_ að
um mjög langan veg er að flytja
þann sykur. Hér er einnig um
gagnkvæma samninga að ræða.
Við seljum Kúbumönnum f.vsk
/* NA tS hnúior 50/mútor X Snji&ma 7 Skúrir K Þrumúr mss KuUaikit Hitaskit HíHal iéLaa*
0.5 t%l. KL & "| f. W- o xm \
LÆGÐIN suðvestur í hafinu
hreyfist hægt norðaustur eftir,
og önnur minni er yfir strönd
Labrador á hreyfingu austur.
Má búast við, að þær sam-
einist. og valdi hér á landi
suðaustlægri átt nú um helg-
ina og á mánudag. Verður þá
þykkt loft sunnan lands, en
léttskýjað og sóskin á Norð-
urlandi og Austfjörðum.
Veðurspáin á hádegi í gær.
SV-land, Faxaflói og miðin:
SA kaldi, eða stinningskaldi,
rigning með köflum.
Breiðafjörður, Vestfirðir Og
miðin: Hægviðri Og síðar SA
gola, skýjað en víðast úrkomu
laust.
Norðurland til Austfjarða
og miðin: Hægviðri, víðast
léttskýjað.
SA-land og miðin: Sunnan
gola, síðar SA kaldi, skýjað
en úrkmoulaust að mestu.
og fáum sykur í staðinn.
Markaðsverð á sykri í V.-Þýzka
landi er hins vegar 26—28 sterl-
ingspund pr. tonn og er þá mið-
að við fob-verð í Hamborg.
Kaffisala
Styrktarfélags
vangefinna
í DAG efna konur í Styrktarfé-
lagi vangefinna til bazars og
kaffisölu í Skátaheimilinu við
Snorrabraut. Verður ágóðanum
varið til að búa vistheimili van-
gefinna nauðsynlegum húsgögn-
um, leik- og kennslutækjum.
Styrktarfélagið á hús í smíðum
við Safamýri. Þar verður stofn-
aður leikskóli fyrir börnin og eru
tvær stofur þegar tilbúnar.
Afmælis Siglu-
fjarðar minnzt
SIGLFIBDINGAB á Suðurlandi
minnast afmælis Siglufjarðar og
100 ára afmælis sr. Bjama Þor-
finnssonar í Sjálfstæðishúsinu
fimmtudaginn 18. maí.
Akranes
UNGIB sjálfstæðismenn efna til
vormóts á Akranesi í kvöld.
Bragi Hannesson og Jóhann
Bagnarsson flytja stutt ávörp,
Karl Guðmundsson skemtir, spil
að verður bingó og að lokum
dansað.
veginn óeðlilegt. En íslenzkur
fiskiðnaður og útgerð mega ó-
mögulega nefna hærra verð fyrir
karfa til Bússlands þótt þessar
atvinnugreinar hafi orðið fyrir
stórkostlegu tjóni vegna verð-
falls á fiskimjöli. Þá ætlar komm
únistablaðið vitlaust að verða og
talar um að „Sovétríkin eigi
að verðbæta tapsölur!“
Svona lágt leggjast þeir Þjóð-
viljamenn, svona örlítið láta þeir
sig varða hagsmuni íslenzkra
sjómanna og sjávarútvegs.
— Ég stabfesti
Framh. af bls. 1.
forseta frá forsetabústaðnum
í Kose til Tallin. Ég man
vel eftir yður. I»ér sátuð í
íramsætinu hjá bílstjóran-
um. Þér voruð vörður og
gættuð þess að ekkert kæmi
á óvart. Ég fullvissa yður
um, að í Eistlandi var gert
heyrum kunnugt og rann-
sakað, ef einhverjir Eistlend-
ingar höfðu í frammi ofbeldi
gegn annarri persónu. Ég
staðfesti, að yðar nafn var
aldrei tengt neinu ofbeldi.
Ég hef skrifað bók, sem
heitir „Ferðin gegnum nótt-
ina.“ í þeirri bók hef ég gef-
ið hreina lýsingu á kommún-
istísku og þýzku hernámi í
Eistlandi.
Éylgi fjölskyldu yðar og
yður mínar beztu óskir,
■aWffc- yðar Jan Lattik.
Árnl Bergmann, fréttaritar*
Þjóðviljans í Moskvu. {
Bréfið sem Morgunblaðið I
nú birtir mynd af ætti að J
nægja til að sanna að hinar 1
ódrengilegustu árásir, sem ft'
nokkurn tíma hafa verið gerð í
ar á einstakling á íslandi, eru J
upplognar frá rótum. Hin níð |
ingslega árás, sem gerð var á|
Eðvald Hinriksson og miðaði
að því að eyðileggja eina ís-
lenzka fjölskyldu, hittir því
sjáifa, sem að henni stóðu,
þá Áma Bergmann og rit-
stjóra Þjóðviljans. Samtök
eistneskra flóttamanna í Svi-
þjóð hafa einnig gert ályktun,
þar sem þau fordæma hin
svokölluðu réttarhöld í Tallin.
Hljótum við að vona, að
héðan í frá fái Eðvald Hinriks
son og fjölskylda hans að búa
í friði í skjóli íslenzkra laga
og réttar.