Morgunblaðið - 14.05.1961, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.05.1961, Blaðsíða 22
22 MORGVFBLAÐIÐ Sunnudagur 14. mai 1961 Klæðskerar í London, sem vanir eru að hafa vakandi auga með hvernig framámenn heims- ins klæða sig, lýsa því nú yfir að Bourguiba Túnisforseti sé bezt klæddi karlmaðurinn í Arabalöndunum. Honum mundi aldrei detta í hug að koma nokkurs staðar í hálfvelktum tweedfötum, heldur mætir hann opinberlega annað hvort í galla- lausum kjólfötum eða í svörtum jakka og röndóttum diplömata- buxum, með svo egghvössum brotum að næstum var hægt að skera sig á þeim. Fólk, sem hefur sótt hann heim í Túnis, segir að öðruhverju líti hann líka í spegil í höll sinni, til að fulvissa sig um að brotin séu eins og þau eiga að vera. Annar maður, sem þykir vel klæddur í Arabalöndunum, er Nasser í Egyptalandi. Grísku prinsessurnar, Sophie og Irene þykja ákaflega heillandi stúlkur. Grízka konungsfjölskyld an þykir líka kunna vel að sam- eina erfðavenjur gamals konungs fornleifafræði, Constantine prins siglir skemmtisnekkjum og vann verðlaun á Olympíuleikjunum síðustu og konungurinn sjálfur er tónlistarunnandi, auk þess sem hann eyðir alltaf einum klukkutíma á morgnana í að dunda í garðinum ísnum. Prins- essurnar eru skátaforingjar og Sophie, sú eldri hefur í 2 ár unnið á barnaheimili sem lærling ur. Hún ætti að kunna að ala upp litla prinsa og prinsessur, þegar þar að kemur. í fréttunum ríkis nútíma þjóðfélagi. Vegna sinna opinberu skyldna hefur fjölskyldan vanið sig á að byrja daginn kl. 6 á morgnana. Þá get- ur hver og einn sinnt sínum hugðarefnum í nokkra klukku- tíma á dag. Drottningin fæst við listiðnað, prinessurnar tvær við Walter Ulbricht, Sovétmaður- inn í Austur-Þýzkalandi, lætur sig ekki muna um að hafa af- skipti af dægurlögunum í landi ............. sínu þrátt fyrir ■i Nú hefur hann sent öllum tón- skáldum og dæg urlaghöfundum umburðarbréf, þar sem hann rneira um hjóna band unga fólksins. „Sá sem getur sferifað rétt dægurlagið um ungt sóísaltískt hjónaband", skrifar hann „sá hefur ekki að- eins tryggt sér miklar vinsæld- ir, heldur tekur hann einnig þátt í sköpun mannkynssögunnar." Walt Disney var að leita sér að stúlku til að verða á kvik- myndatjaldinu fyrsta stúlkan frá Marz, ’sem kemur til jarðar- innar. Og hann fann þessa frönsku stúlku, Dany Saval. Hún er 19 ára gamall ballet- dansari, 10 ára gömul dansaði hún ballet í Moulin-Rouge í París og síðan hefur hún leikiS í 6 frönskum myndum. Nú er hún komin til Hollywodd, fór þangað með sex ferðatöskur og 18 síðna frábæran kvikmynda- samning, enda kalla Ameríkan- arnir hana „Lucky Dany“ eða Heppnu Dany. 2 LESBÖK BARNANN/- LESBÓK BARNANNA S 1 2 3 4 A A A A á B B as- s CwG < C < r Y D Þ D A D <3 E C F F F <PF *r H B H«., Ö r 1 l 1 1. K * K •Y L d Þ M Aá M "7 N N P 1 O O oo O P 1 r 7 R 9 R 4 S * $ W T T T + t X X X í Z Z i X Stafrófin, sem okkar letur hefur próast af: 1. Okkar letur. 2. Rómverskt letur. 3. Griskt letur. 4. Fönekiskt letur. (Hér vantar f stafina J, Q, V, V og W). að breyta rittáknunum, og vinna á ýmsan hátt að fullkomnun ritmálsins. Föníkumenn, sem voru mikil verzlunar- og sigl ingaþjóð við austanvert Miðjarðarhaf, þurftu vegna viðskipta sinna mjög á því að halda, að hafa einfalt en jafnframt nákvæmt og auðskilið rit mál. Þeir notuðu upphaf lega fleygrúnir en bættu þær mikið og einfölduðu, unz þeim tókst að búa til letur, þar sem rittákn in voru tengd hljóðum málsins, þannig að hvert tákn var ekki lengur myndtákn heldur hljóð- tákn. Það fékk ákveðið hljóðgildi. Þá var fengið hið fyrsta eiginlega staf- róf. Frá því eru stafróf allra þjóða runnin. Grikkir fengu 15 stafi að láni úr föniska stafróf inu, en bættu við það nokkrum sérhljóðum. — Rómverjar endurbæta gríska stafrófið nokkuð, Og frá þeim er okkar staf róf (latneska letrið) kom Auk latneska stafrófs ins er í Evrópu notað gríska, serbneska (slav- neska) og rússneska staf rófið af þeim þjóðum. Framhald. Margir eru ennþá að skrifa okkur rúnabréf, og sumir sem hafa óskað eftir bréfaskiptum, senda okkur nafnið sitt skrifað með rúnaletri, svo að við erum næstum í vandræð- um með að lesa það. En við vönum samt, að nöfn- in þeirra séu rétt, og birt- um þau í dag í bréfa- skiptadálkinum. Hérna kemur svo eitt rúnabréf enn. Það er allt skrifað með rúnum, en við verðúm að láta okkur nægja að birta vísuna eina með því letrL Kæra Lesbók! Eg ætla að skrifa þér rúnabréf. Mér þykir afar gaman að skrifa rúnir. Eg hef mjög gaman af að lesa þig og ætla að senda þér vísu, sem eg held mikið upp á. Hún er eftir Stefán frá Hvíta- daL “Z-RN fnu-znrj • I ’P&i: HkntiY* K* 1•• r i r t ■■ t r * 11-í hw • Viltu birta meira af krossgátum fyrir mig. Svo óska ég þér gleðilegs sumars og þakka þér fyr- ir allt, sem þú hefur birt. Vertu svo blessuð og sæl. Þín Kolskör, 10 ára. Viltu skrifa mér Lilja Ágústa Guðmunds dóttir, Hringbraut 15, Hafnarfirði (13—14 ára); Hulda B. Þorkelsdóttir, Garði, Laugarvatni (stúlk ur 12—14 ára); Ingibjörg Kristín Reykdal, Mörk, Ytri-Njarðvík (12—14 ára) og Anna Sigríður Reykdal, sama stað (11 —13 ára); Guðrún Fjóla Granz, Norðurstíg 5, Ytri- Njarðvík (11—13 ára); Þóra Vilborg Vignisdótt- ir, Brúarlandi, Fellum, N-Múl., pr. Egilsstaðir (10—12 ára). ! ! t J. F. COOPER SIÐASTI MOHIKAIVINN 33. Magúa hélt sprett- inum þar til hann kom að tveimur hestum, sem stóðu bundnir við tré, skammt frá stíg gegn um skóginn. Alísa var fallin í yfirlið og hann lagði hana þvert um hrygg og skipaði Córu að fara á bak fyrir aftan hana. Sjálfur gekk Magúa og teymdi hestinn. Þegar Davíð loksins kom, móður Og másandi var annar hesturinn eftir. Hann hljóp á bak og hélt eftir þeim. Þremur dögum eftir ár- ás indíánanna, komu Hey ward, Munró hershöfð- ingi, Fálkaauga, Uncas og faðir hans, aftur þangað sem vígvöllurinn var. Þeir voru skelfingu lostn ir yfir því sem gerzt hafði, en var það samt nokkur huggun, að lík ungu stúlknanna voru ekki meðal hinna föllnu. — Uncas kom auga á horn af slæðu Córu, sem rifnað hafði af, og hékk á trjágrein skammt frá. Þeir röktu nú slóðina og skömmu síðar fundu þeir flautuna hans Davíðs. Þeir sáu -líka greinilega sporin eftir hestana, og vissu þá, að ungu stúlk- urnar höfðu verið teknar til fanga og fluttar burt. 34. Dögum saman röktu þeir félagar slóðina eftir Magúa og fanga hans. Þeir urðu fyrir árás indí- ána, þegar þeir fóru yfir á eina í barkarbát. En á- fram héldu þeir fótgang andi, langar leiðir gegn um skóginn og loks nálg uðust þeir þorp húron- anna. „Nú er bezt, að við dreifum okkur“, sagði Fálkauga. Heyward var sagt að fara einum eftir stíg nokkrum og allt i einu kom hann auga á sér kennilegan indíána, sem var á bak við tré þar skammt frá. Indíáninn hafði ekki séð Heyward, sem nú tókst að kalla Fálkaauga á vettvang. Hann miðaði byssu sinni á óvininn, en lét hana jafnskjótt síga aftur. —- „Þetta er ekki húroni", sagði hann, „bíddu andar tak“. Hann læddis nú að indíánanum, og Heyward til mikillar undrunar klappaði hann honum viri gjarnlega á öxlina. — Það var nefnilega enginn ann- ar, en vinur okkar Davíð söngvari —, dulbúinn sem indíáni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.