Morgunblaðið - 14.05.1961, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.05.1961, Blaðsíða 16
16 MORGVNBLAÐ1Ð Sunnudagur 14. maí 196j. Frá blaðamannafundi NATO-ráðherranna. Hlutieysið engin vörn Utanríklsráðherrar íslands og Bretlands samferða af fundi Fréttaritari Mbl. a NATO-fundinum skrifar frd Osló Sr. Gísli Brynjólfsson sem staddur er í Noregi var frétta- ritari Morgunblaðsins á NATO- fundinum, sem haldinn var í Osló. Hér fer á eftir grein eftir hann um fundinn. NATO hefur komið í veg fyrir stríð. Já, vorið er komið fyrir löngu hér í Osló. Það kom óvenjulega snemma að þessu sinni. Hitinn komst upp undir 20 stig í aprH, og þó síðan hafi ekki alltaf verið jafnhlýtt hafa engin vorhret eða kuldaköst komið. Blómin eru sprungin út, trén allaufguð og úti í Stutenterlunden á Karl- johan situr fólkið og drekkur kaffið sitt í blíðu þessa snemm- komna vors. — En í hugum mannanna geysar kalda stríðið. Og hér virðast flestir vera á einu máli um það, að það eina sem hafi bjargað frá því að það hafi orðið að björtu ófriðarbáli sé samstaða hinna frjálsu þjóða í Atlantshafsbandalaginu. Og sú samstaða má aldrei bresta, á upp byggingu hennar og auknum styrk má ekkert lát verða. Þá er voðinn vís. Með styrkri sam- stöðu þjóðanna í NATO hefur því '.i- að ná sínu höfuðmark miði: Að koma í veg fyrir stríð og tryggja frelsi og sjálfstæði allra þátttökulandanna. Og það er að heyra á því, sem haft er eftir Dean Rusk að aldrei hafi verið meiri þörf á því en nú að tryggja þessa samstöðu og vera vel vakandi á verðinum. Hann mun að vísu hafa þótt nokkuð svartsýnn í almennu stjórnmálaumræðunum. Lord Home á að hafa sagt: Við höfum góð spil á hendinni. Spilum á þau. Hlýtt vor — kalt stríð. , Eftir langan og dimman vetur fögnum við vori. Og þegar vorið kemur, verður landið okkar og borgin okkar fegurri en á nokk- urri árstíð annarri. Þessvegna þykir okkur svo vænt um að fá vini okkar frá útlöndum í heim- sókn einmitt nú“, sagði Einar Gerhratsen forsætisráðherra Norðmanna þegar hann ávarpaði fulltrúana á NATO-fundinum í veizlu í Akérshushöllinni. En jafnframt sagðist forsætis- ráðherrann harma það, að hann gæti ekki heimfært þessa vor- stemmingu upp á ástandið í al- þjóðamálum. „Þar höfum við lengi beðið eftir vormerkjum, og það bólar ekki á þeim ennþá. öðru hvo£u hefur brugðið fyrir vorþey í lofti, en það hafa ekki verið nein varanleg veðrabrigði. Á hinu pólitíska veðurkorti hefur kalda stríðið eiginlega alltaf ver ið ríkjandi". Þrjú hundruo blaðamenn í Osló. Það var aldrei við því búizit að þessi NATO-fundur yrði neinn stórviðburður í sögu Atlantshafs ban-dalagsins. Aðallega biðu menn með eftirvæntingu þess, sem Bandaríkin hefðu að leggja til málanna í fyrsta sinn sem Kennedy-stjórnin sendi fulltrúa sinn á fund þessara samtaka. — Hinsvegar er þessi fundur stórvið burður hér í Osló, þvi þetta mun vera ein stærsta samkunda út- lendinga, sem haldin hefur verið í Noregi. Ekki veit ég hvað fund armenn eru margir með öllu sínu fylgdarliði, en blaðamennirnir eru yfir þrjú hundruð, þar af meira en helmingurinn útlendir, frá öllum álfum og flestum lönd um. Þetta er ékki lítil landkyno- inig fyrir þetta mikla og fagra ferðamannaland. sem stöðugt er heimsótt af fleira og fleira ferða- fólki með hverju árinu, sem líð- ur. Svo mikil er aðsóknin, að þrátt fyrir öll hótelin, gengur illa að hýsa alla þá sem að garði betr. Ferðamálasamtökin hér í Osló hafa því skorað á alla bæj- arbúa sem geta, að leigja hótel- unum húsnæði í sumar svo að ekki þurfi að úthýsa neinum út- lendingi, sem kemur til að skoða landið, kynnast þjóðinni og gefa norska velferðarríkinu auknar gj aldeyr istekj ur. Þingmienn í frii. En það ber ekki á öðru en það sé sæmilega rúmt um allan blaða mannafjöldann á NATO-fundin- um. Þeir hafa fengið þækistöð sína í Stórþingshúsinu, þar sem fundurinn er haldinn. Þingið gerði hálfsmánaðar hlé á störfum sínum vegna fundarins, og virtist það þingmönnum ekki neitt á móti gkapi. Óðara og hléið kom ,.tóku þeir til fótanna" og flýttu sér út í kjördæmi sín. Stóð þá sem hæst undirbúningur flokk- anna að framboðunum til kosn- inganna 11. sept. í haust og flokks fundir tíðir. Auk þess voru marg ir þingmenn Alþýðuflokksins rðæumenn við hátiðahöldin 1. maí víðs vegar um landið, því hér hefur Alþfl. öll völd í verka- ýðs- og fagfélögunum og hleypir engum hannibölum upp í þeirra ræðustóla. Og í 1. maí-göngunni hér í Osló skiptust á spjöld með kröfum um styttri vinnuviku og áskorunum um að kjósa Alþ.fl. svo að hann héldi meirihlutanum og gæti tryggt velmegun áfram næstu fjögur árin. Fundarsetning. En hverfum aftur að NATO- fundinum. Við setningu hans, sem fram fór £ þingsalnum fengu blaðamerun aðgang að áheyremda- pöllunum og voru þeir allir full setnir. Ráðherrarnir og fylgdar- íið þeirra ganga í salinn stundar fjórðungi áður en fundur hefst. Þeir skiptast á« kveðjum og taka tal saman. Það er gaman að virða þá fyrir sér þessa heimsfrægu menn, sem myndir eru birtar af og skrifað er um í dálka allra blaða um alla jarðarkringluna. Þarna eru þeir ljóslifandi. Dean Rusk, yfirlætislaus og einarðleg- ur. Hann sker sig á engan hátt úr. Maður skyldi ekki að ó- þekktu halda að hann væri full- trúi stærsta stórveldisins í þess- um samtökum. Eftir að fundur er settur situr hann kyrr eins og líkneski og hlustar með athygli á ræðurnar. Það er meira en hægt er að segja um suma aðra Jens Otto Krag og Couve de Murville skrafa saman í hljóði. Home lávarður handleikur stöð- ugt blýantinn og skrifár öðru hvoru á blað hjá sér athugasemd ir um það, sem kemur fram í ræðunum. Su~iir blaðaljós- myndararnir gefa sérstakar gæt ur að blaðamannastúkunni niðri í salnum. Hún er að þessu sinni ætluð ráðherrafrúnum. Þeir eru að gera sér vonir um að ráðherra frúin danska, Helle Wirkner, komi: Hún var áður leikkona og þykir hinn bezti blaðamatur. En Helle Wirkner kemur ekki. Hún sækir kannske alls ekki NATO- fundinn að þessu sinni. Uppreisin gegn eymdinni. Svo hefst fundurinn með ræðu Lange utanríkisráðh. Norðmanna Hann er sá eini í þessum hóp, sem setið hefur alla ráðherra- fundi NATO frá Upphafi. Hann býður fundarmenn velkomna til Osló. Hann minnir á þá dapur- legu viðburði. þegar hvert ríkið í Evrópu eftir annað á fyrstu ár- unum eftir stríðið varð einræð- inu að bráð. Það leiddi til stofn- unar Atlantshafsbandalagsins. Með samtökum sínum og her- styrk gat það stöðvað ofbeldið. „Það er því að þakka, að við höf um fengið að lifa í friði og getað haldið sjálfstæði voru“. En þetta er ekki nóg, sagði Lange. „Á þessum tímum atomvopna og geimferða hljótum við að játa, að lífrænt, jákvætt samstarf þjóða um allan heim er nauðsyn — lífsnauðsyn. Líf mannkynsins liggur við að það taikist". Og seinna í ræðu sini sagði hann: ,Norska stjórnin, norska þjóð- in samfagnar þeim þjóðum sem fengið hafa sjálfstæði og við gleðjumst yfir þeirri uppreisnar öldu, sem hafist hefur um allan. heim gegn eymd og mannlegri niðurlæginu". Ef{ir ræðu Lange töluðu þeir forseti fundarins, fulltrúi Portú- gals, og aðalritari NATO, Dirk Stikker. Síðan var setningarat- höfninni lokið og ráðherrarnir gengu í annan sal til að halda fundarstörfum áfram. Utanríkis- ráðherrar Bretlands og fslands urðu samferða út og töluðu sam an. Skyldi ekki annarhvor þeirra hafa sagt: Well, þá þurfum við ekki lerigur að þrátta um þorsk- inn. Fjöldafundur. Sama daginn og ráðherrarnir 15 komu saman í þinghúsinu mættust 15 þúsund Öslóbúar á Ráðhústorginu. Þetta var 8. maí — frelsisdagur Norðmanna í styrj' öldinni. Venjulega er hann hald- inn hátíðlegur. Hann hefur eigin- lega runnið saman við 17. maí, enda næsta líkur honum að yfir- skrift og innihaldi. En nú höfðu ýmisir forystumenn andstöðu- hreyfingarinnar frá stríðsárunum boðað til þessarar samkomu á Ráðhústorginu vegna NATO- fundarins: Hún átti m.a. að sýna hver væri afstaða almennings til þátttöku í NATO. Þeir, sem þarna töluðu minntust ekki fyrst og fremst hins liðna, held r lögðu áherzlu á. að allir yrðu að gera sér ljóst hvar við stæðum nú og hverjar skyldurnar væru í dag. Aðalræðumaður var Einar Gerhardsen og hann sagði m. a. „Munum það nú, að 1940 reyndist hlutleysið okkur engin vörn. Við höfum dregið lærdóm að þeirrl reynslu og gengið í varnarbanda lag með öðrum vestrænum þjóð uim. Þessvegna eruim við óhiulfc ari nú en ef við stæðum einii (lófatak) Norðmenn vilja ekki hafa útlendan her í landi sínu £ friðartímum, en við verðum aí styrkja varnir okkar. (Lófataki Framhald á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.