Morgunblaðið - 14.05.1961, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.05.1961, Blaðsíða 8
ð MORGVNBLAÐIÐ €>unnudagur 14. maí 1961 Sænska graf- listar sýningin GÓÐUR gestur dvelst í Reykja- vík um þessar mundir, en fer bráðlega aftur — sænska graf- listarsýningin í Bogasalnum. Vonandi þurfum við ekki að bíða lengi eftir að fá að sjá aðra fyrsta flokks svartlistarsýningu frá öðrum löndum, því hér er um frummyndir að ræða sem er tiltölulega auðvelt að flytja á milli landa. Minna má á pólsku sýninguna, sem hér var haldin fyrir nokkru. Allir, sem séð hafa tréristuna frá Japan eða málm- ristur eftir Goya og Rembrandt, munu bera fulla virðingu fyrir „grafik". En fáir vita hvernig þær eru unnar og almenningur héfir lítið gagn af því þó þær séu flokkað- ar á sýningarskrám í „trérist- ur“, „málmristur“ o. s. frv., án þess að gefa nokkra skýringu á því. Jafnvel sumir listamenn hafa enga þekkingu á málinu. Á öllum tungumálum nema ensku þýðir grafik myndir sem eru handprentaðar og handunn- ar frá byrjun, en aðferðin og efn- ið gefur myndinni sinn karakter es and Schools og Engraving. Hér fylgja skýringar þeirra á aðalað- ferðunum sem notaðar eru í dag. Málmrista — skorurnar á kop- arplötunni eru ekki ristar eða stungnar, heldur etnar í burtu af sýrum. Þurrnál — í þessari aðferð eru línurnar ristar eða skornar í koparplötuna með harðri stál- nál. Tréskurður — tréstunga — dúkrista — hér er teikningin gerð beint á yfirborð efnisins, og það sem hvítt á að vera er skorið burt svo að svörtu línurnar eða fletirnir komi skýrt fram. Steinprent — listamaðurinn dregur mynd sína á flatann stein- inn með fituborinni krít. Steinn- inn er síðan þveginn með sýru. Á steininn er borin prentsverta með rúllu, en vættur steinninn tekur ekki við svertunni, heldur tollir hún aðeins við beitiborna krítina. Síðan er pappírinn lagð- ur á steininn og rent undir pressu svo að myndin komi fram. Graflist er tiltölulega lítið þekkt hér á landi, þrátt fyrir það að Jón Engilberts, Bragi Ás- geirsson og fleiri hafa sent frá sér falleg verk og hlotið viður- kenningu erlendis. f Bogasalnum er hægt að sjá allar þær aðferðir sem að ofan er lýst. Svíar eru frábærlega vel að sér í tækni, smekkvísir og! listrænir og má mikið af þeim. læra í þessari grein og eins í flestu sem snertir listiðnað. Inngangsorðin á sýningar- skránni gefa góða hugmynd um þróun Svía í graflist og sýningin sjálf um árangur þeirra í dag. Þeir sem sækja listasöfn erlend- is, þeim ætti ekki að finnast það of langt að skreppa upp í Boga- salinn til að skoða sýninguna með athygli. Hér eru ekki ennþá nein- ir sem safna graflist einvörðungu. Þeir munu koma seinna. Sýningin er aðeins opin til sunnudagskvölds. Við ættum ekki að sitja okkur úr færi þeg- ar tækifæri gefst til að virða fyrir okkur falleg vinnubrögð og fræðast meira um graflist. Barbara Árnason 3/o herb. íbúð í sambyggingu í Laugarnesi til leigu frá 20. maí 1961. — Tilboðum sé skilað til afgr. Mbl. fyrir n.k. miðvikudag, merkt: „Góð umgengni — 1246“. IJtgerðarmenn Vil taka á leigu í sumar 20—30 tonna vélbát í góðu ástandi. — Æskilegt að humar- eða dragnótarspil fylgi. — Upplýsingar gefur Sigtryggur Benediktsson Hornafirði. T résmíðaverkstœði Til sölu er % hluti af trésmíðaverkstæðinu Fjalar h.f., Húsavík. — Tilboð óskast send í pósthólf 347, Reykjavík, fyrir 1. júní. Bandaríkjamenn — Ibúð Tveir ungir, einhleypir Bandaríkjamenn óska að leigja nýja fjögurra til fimm herbergja íbúð með húsgögnum, ef hægt er. Tilboð sendist Mbl. fyrir hádegi á þriðjudag merkt: „íbúð — 1220“. Tveir af beztu sundmönn- um Svía keppa hér SI. þriðjudag varð liarður árekstur á Hringbrautinni, austan við gatnamót Sóleyjargötu og Hringbrautar. Plymouth-bifreið, R-5880, ók aftan á Weapon-bifreið, R-11379, sem stóð kyrr við gangstéttina sunnan megin götunnar. Myndin lýsir afleiðingunum betur en nokkur orð. (Ljósm.: Sveinn Þormóðsson) K.oma hingað í boði Sundráos Reykjavíkur SUNDMEISTARAMÓT Reykjavíkur verður haldið í Sundhöllinni á þriðjudags- kvöldið og er betur vandað til þessa móts en nokkru sinni fyrr. Til mótsins koma frá Svíþjóð ein bezta skrið- sundkona Evrópu og einn af beztu bringusundsmönnum Svía. Þegar þess er gætt að skemmtilegasta og bezta keppni móta að undanförnu hefur verið í þessum grein- um er ekki að efa, að þarna verður um mikinn og góðan viðburð að ræða á sviði sundsins- Góðir gestir Svíarnir tveir er hingað koma eru í röð fremstu sund- manna Norðurlanda og Evrópu. Karin Grubb á sænska metið í 100 m skrið- sundi 1.04.1 mín. en það er jafnframt Norðurlandamet. Met hennar í 50 metra sundi er 29,3 sek. íslendsmet Ágústu í 50 m skriðsundi er 29,4 sek. Nái Ágústa því verð- ur sú sænska að taka á öllu sem til er. Roland Sjöberg er 23 ára gamall og einn bezti bringu- sundsmaður Svía. Hans sér- grein er 200 m vegalengd en þar hefiur han náð 2,41,0 mín. sem er 6/10 sek. betra en fs- landsmet Sigurðar^ Þingey- ings. Nærri því meti hafa þeir oft höggvið Einar Kristinsson og Sigurður Sigurðsson og Guðmundur Samúelsson Akra nesi og getur því vel orðið um keppni að ræða. Að minnsta kosti ætti Sjöberg að geta hjá'lpað þeim að h i-u gamla meti Þingeyingsins. Á styttri vegalengdum er Sjöberg ekki eins sterkur og þar verður um mikla keppni að ræða. Ekki er að efa að sund- og íþróttaunnendur nota sér þetta einstaka tækifæri að sjá fræga erlenda sundmenn — þá einu sem hingað hafa kom- ið á keppnistímabilinu. Á Keppnisgreinar Það er Sundráð Reykjavíkur, sem að móti þessu stendur og hef- ur fengið hina erlendu gesti til mótsins. Á þriðjudagskvöldið verður hið eiginlega Reykjavík- urmeistaramót en þá er keppt í Ungmennafélagið Aftureld- ing í Mosfellssveit frumsýndi 2. maí í Hlégarði einþáttung- ana „Kvöldið fyrir haustmark að“ og .,Sér grefur gröf“. — Hafa þrjár sýningar verið í þessum greinum. 100 m skriðsundi karla, 100 m skriðsundi kvenna, 400 m skrið- sundi karla, 200 m bringusundi karla, 200 m bringusundi kvenna, 100 m baksundi kvenna, 100 m baksundi karla, 100 m flugsundi karla, 50 m skriðsundi drengja, 50 m bringusundi drengja, 50 m bringusundi telpna og 50 m skrið sundi telpna. Utanbæjarmönnum er heimil þátttaka, sem gestir en sá Reykvíkingur, sqm fyrstur er hlýtur Reykjavíkurmeistaratign. Þ.etta kvöld keppir Roland Sjöberg í 200 m bringusundi karla og Karin Grubb í 100 m skriðsundi kvenna. Á miðvikudagskvöldið verðui efnt til aukamóts Hlégarði og ein í Grindavík, í kvöM kl. 9 verður svo sýn- ing í Félagslundi í Gaulverj- arbæjarhreppi. Myndin er af Hrappl lög- regluþjóni og Lovisu ráðskonu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.