Morgunblaðið - 14.05.1961, Page 5
f Sunnudagur 14. maí 1961
MORCVWBLAÐ1Ð
5
MENN 06
= MAi£FN/ =
EF HANN hætti að grefa meiri-
hlutann af tekjum sínum
myndi Mario Moreno gera
miklu meira en tryggja sér
þægilega ellidaga. En eins og
stendur verður hann að láta
sér nægja fimm hús og 8000
sterlingspund á viku. Hvað föt
snertir er hann heldur ekki
á flæðiskeri staddur, því að
hann á um 300 skyrtur og
álíka marga alfatnaði og ekki
á hann í vandræðum með að
ferðast, hann á sjö einkabif-
reiðar og eina flugvél.
Við þekkjum hann betur,
sem Cantinflas, skopleikarann,
sem lék eitt aðalhlutverkið í
„Umhverfis jörðina á áttatíu
dögum“.
Eins og áður er sagt, fara
ekki allir peningarnir, sem
hann vinnur sér inn til eigin
þarfa. Hann hefur gefið fé til
bygginga á skóhim, sjúkrahús
um og elliheimilum og þar að
auki skemmtir hann tvisvar
í viku í þáigu friðar í heim-
inum.
í tuttugu ár hefur hann leik-
ið í uppundir jafn mörgum
kvikmyndum, sem hans eigið
kvikmyndafélag hePur gert.
Sumar þeirra hafa hlotið mjög
miklar vinsældir. Mexíkóbúar
veðsetja jafnvel föt sín og aðr-
ar eignir til þess að geta keypt
aðgöngumiða að þeim. Þetta
varð svo illa séð af yfirvöld-
unum, að á mörgum stöðum
varð að loka búðum veðmang-
aranua daginn áður en Cantin
flas-mynd var frumsýnd. Til
sama ráðs er einnig gripið áð-
ur en miklir leikar fara fram
í nautaatshringnum.
Upprunalega var Cantinflas
gott nautabanaefni og hafði
eiginlega hugsað sér að ná
langt á þeirri braut. Hann
sagði, að nautaat væri eina
greinin, þar sem menn væru
í stöðugri lífshættu. Það er
aldrei hægt að vita hvað kem-
ur fyrir, sagði hann, hvert
skipti er ólíkt hinum fyrri.
En maður veit að nautið verð-
ur að deyja og með því að
deyja skapar maður fegurð.
Samt virðist sem Cantinflas
hafi sagt skilið við þessa kenn
-■•T-innnr
ingu, því að þegar hann fer
inn í hringinn, sem skopleik-
ari, deyðir hann aldrei fórnar-
dýrið. Þvert á móti notar hann
óspart skopleikarahæfileika
sína í hringnum og notar naut-
ið, sem óviljugan mótleikara.
Þetta vekur auðvitað mikla
hrifningu áhorfenda.
í hlutverkum sínum vill
Cantiflas ekki að neitt komi
til að stöðva hinn jafna straum
gleðinnar. Hann á ekki til há-
tíðleika Chaplins. — Ég vil
líta út sem hin eilífi bjartsýn-
ismaður. Ef fólkið yfirgefur
kvikmyndahúsið rólegt og
ánægt, hef ég áunnið töluvert.
Það er mjög mikilvægt að gest
irnir haldi heimleiðis, með það
á tilfinningunni að heimurinn
sé nú ekki svo slæmur eftir
allt saman.
„Umhverfis jörðina á átta-
tíu dögum“ var fyrsta kvik-
myndin með ensku tali, sem
Cantinflas lék í og hann lærði
ensku sérstaklega fyrir þá
kvikmynd. Áður hafði hann
afþakkað 15 tilboð frá Holly-
wood. En hann gerði samn-
ing við Mike Todd, með sínum
______ .
eigin skilmálum. Todd hafði
áhuga á Cantiflas sem nauta-
bana, en Cantiflas hafði aðrar
hugmyndir, hann vildi leika
Passepartout — og það gerði
hann líka.
Hann er 43 ára gamall, yngst
ur af sjö systkinum. Faðirinn
var starfsmaður póstþjónust-
unnar í Mexiko og fjölskyldan
hafði sparað saman nægilega
fjárhæð til þess að setja
yngsta soninn til mennta.
Hann átti að verða læknir, en
forsjónin hafði aðrar áætlanir.
Hann fékk sér aukavinnu í
smáleikhúsi með náminu, og á
einni sýningunni sá hann dans
ara og varð strax sannfærð-
ur um að hann gæti dansað
betur og tókst að sannfæra
leikhússtjórann um það. —
Næsta sporið var að í ljós
kom að hann var betri skop-
leikari en sá, sem leikhúsið
hafði á að skipa og þannig
gekk það koll af kolli.
Er Cantinflas nýr Chaplin?
Þeir eru ekki líkir, en við
skulum láta orð Chaplins
hjálpa okkur: — Cantinflas
er bezti skopleikari heimsins.
í Marseilles, ber mlkið á því
að allir vilja vera mestir. Þannig
voru tvær telpur, sem hittust við
höfnina.
— Systir mín, sagði önnur, fór
til Indlands og giftist fursta og
er hún prinsessa alveg eins og
Margrét.
— Uss, sagði hin, það er ekk-
ert miðað við systur mina. Hún
fór til Egyptalands, giftist prinsi
og er nú múmía á safninu í Kairo.
★
— Ég g>et ekki ímyndað mér
hvernig þú ferð að því að fá alltaf
peninga hjá manninum þínum.
— Ó, það er ofur einfalt, ég
segi honum aðeins, að ég skilji
við hann og fari heim til mömmu
Hann lætur mig alltaf fá Deninga
fyrir farinu.
Söfnin
Listasafn fslands er opið sunnudaga,
þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga
kl. 1,30—4 e.h.
Asgrímssafn, Bergstaðastræti 74 er
opið þriðjud., fimmtud. og sunnudaga
frá kl. 1.30—4 e.h.
Þjóðminjasafnið er opið sunnud.,
þriðjud., fimmtud. og laugard. frá kl.
1,30—4 eh.
Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla
túni 2, opið daglega frá kl. 2—4 e.h.
nema mánudaga.
Bókasafn Dagsbrúnar, Freyjugötu
27, opið föstud. 8—-10 e.h., laugard. og
sunnud. 4—7 eh.
Bæjarbókasafn Reykjavíkur: — Aðal
safnið, Þingholtsstræi 29A: Utlán: 2—10
alla virka daga, nema laugardaga 1:4.
Lokað á sunnudögum. Lesstofa: 10—10
alla virka daga, nema laugardaga 10
—4. Lokað á sunnudögum. — XJtibú
Hólmgarði 34: 5—7 alla virka daga,
nema laugardaga. — Útibú Hofsvalla-
götu 16: 5,30—7,30 alla virka daga,
nema laugardaga.
Tæknibókasafn IMSÍ í Iðnskólahús-
inu Skólavörðutorgi er opið virka
daea frá kl. 13—19, nema laugardaga
Sérlyndur maður fer að sínum mun-
um; hann ilskast við öilu, sem hyggi-
legt er.
Djúp vötn eru orð af mannsins
munni, renandi lækur, vizkulind.
Munnur heimskingjans verður hon-
um að tjóni og varir hans eru snara
fyrir líf hans.
Gjöf, sem maður gefur, rýmir til
fyrir honum og leiðir hann fram fyrir
stórmenni.
Dauði og líf eru á tungunnar valdi,
og sá, sem hefir taum á henni, mun
eta ávöxt b»unar.
— Orðskviðirnir.
| Gott herbergi 4 > -íneð skápum til leigu. — Beglusemi áskilin. Holtsgata 41, Ytri-Njarðvík. Lanchester bifreið 1946 til sölu. Þarf viðgerð- arf en er gangfær. Verð kr. 8 þús. Uppl. í síma 1724, Keflavík.
Til sölu Bílskúr
sem ný 2% tonns trilla. — Sími 1137, Keflavík. eða góð geymsla óskast til leigu. Uppl. i síma 10832.
Síldarbátur með báttdekki fæst í skipt- um fyrir 25—35 tonna bát. Sími 17662. Stúlka óskar eftir almennri skrif- stofuvinnu eða símavörzlu. Sími 32105.
3—5 herbergja íbúð óskast sem fyrst í Hafnar- firði eða Vogunum. Kefla- víkurleið. Uppl.1 í síma 14728. 13 ára telpa óskar eftir að komast í sveit, vön sveitavinnu. — Uppl. í síma 33896 eftir kl. 19.
Peysur í sveitina Næstu daga verða til sölu klukkuprjónapeysur og fl. á unglinga Sporðagrunn 4. Sími 34407. ÍBÚÐ ÓSKAST 3ja herb. íbúð óskast nú þegar. Helzt í nýlegu húsi. Árs fyrirframgreiðsla. — Tilb. sendist afgr. Mjbl. merkt; „1245“.
Til sölu þýzk bamakerra. Uppl. í símum 37632 og 32215. Vélhjól til sölu, Linnetsstíg 8, Hafnarfirði.
Til sölu með tækifærisverði nýupp- gerður ísskápur, 9 cubic- fet (Crossley) Verð kr. 3800. Til sýnis í Kaffi- brennslu Johnson og Kaab- » er Sætúni 8. 2—3 herbergja íbúð óskast. ’X'vennt í heimili, vinna bæði úti. Uppl. í síma 37879 kl. 4—7 sunnu- dag.
Pússningasandur Góður — ódýr. Sími 50230. Keflavík 1 herb. og eldhús til leigu. ísskápur til sölu sama stað. Uppl. í síma 2375.
Ingólfs Café
Gömlu dansarnir
í kvöld kl. 9.
Hljómsveit Aage Lorange leikur.
Dansstjóri Árni Norðfjörð.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8, sími 12826
ATH.: Dansað í síðdegiskaffitímanum
í dag kl. 3—5.
, Sextett BERTA MÖLLER leikur.
MELAVÖUUR
í dag (sunnudag) kl. 8,30 keppa
KR — Þróttur
Dómari: Halldór Sigurðsson
Línuverðir: Páll Guðnason, Frímann Helgason
Annað kvöld (mánudag) kl. 8,30 keppa
Fram — Valur
Dómari: Þorlákur Þórðarson
Línuverðir: Baldvin Ársælsson, Sverrir Kjærnested
Leikbókin fyrir sumarið 1961 fæst í veitingasölu vallarins
Múrhúðun
Tilboð óskast í að sléttpússa húsið Melabraut 32,
Seltjarnarnesi. Upplýsingar gefur Þorsteinn Ólafs-
son, Melhaga 16, sími 17223 og 19073.