Morgunblaðið - 14.05.1961, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 14. maí 1961
' Mary Howard: -
- Lygahúsiö -
frænka sé ekkert hrifin af böm-
um.... og hvaSa ástæSa væri líka
til þess? Hún hefur engin átt
sjálf. En þegar mamma dó og
pabbi var í fangabúSum, lofaSi
hún mömmu, aS hún skyldi allt-
af sjá mér farborSa, og þaS hef-
ur hún líka gert
V-____________________________
Þetta var síSasta daginn fyrir
sumarleyfið í skóla frú Gunther,
og allir nemendurnir voru önn-
um kafnir að koma fyrir dótinu
sir.u.
Nemendur frú Gunther voru
af ýmsu þjóSerni, en eitt áttu
þó allar þessar stúlkur sameig-
inlegt: þær voru af ríku foreldri.
Allar nema Stephanie Cameron,
og ef hún hafði ekki eins mikla
vasapeninga og stöllur hennar,
þá borgaði móðursystir hennar,
frú Courtney, að minnsta kosti
skólagjöldin hennar og sendi
henni mikiS af fínum, gömlum
fötum.
í>að var nú líka dálítið í munni
að vera náskyld frú Courtney,
sem var alþekkt heimsmanneskja
og fegurðardís.
Sally Rowland gaut öðru
hverju auga til Stephanie, þar
sem hún lá á hnjánum við að láta
niður í kofortið sitt. Þær höfðu
> 1 4----------------
verið herbergisfélagar í tvö ár,
eða allan skólatíma sinn hjá frú
Gunther og nú var þetta síðasti
dagurinn þeirra sem nemenda
þarna.
En Stephanie bar ekki við að
láta niður dótið sitt. Hún sat og
las í bók.
Hún var grannvaxin stúlka,
með fjörleg blá augu, sólbrennd
og með svart hár, sem hún hafði
sleikt aftur og undið í hnút í
hnakkanum.
Hún leit nú upp, sá forvitnis-
svipinn á Sally og sagði: — Hvað
gengur að þér, Sally?
— Hversvegna ertu ekki að
láta niSur? hraut út úr Sally.
Stephanie lagði frá sér bókina.
—Það er nú óþarfi ef maður
ætlar ekkert að fara, sagði hún
lágt, — og ég ætla ekkert sér-
stakt að fara.
— Því kemurðu ekki og verð-
— (Skdldsaga) ——' +
ur hjá mér? sagði Sally með á-
kafa.
— Mamma er búin að leigja
hús suður á Miðjarðarhafsströnd
— í Beaulieu — fyrir næsta mán
uð. Ég veit mér leiðist þar alveg
hræðilega.
Stephanie brosti og hristi höf-
uðið. Hún hafði áður verið hjá
Sally og vissi ofurvel, að mamma
hennar frú Rowland, sem var
svo ströng var ekkert yfir sig
hrifin af systurdóttur frú Court
ney.
— Það gæti náttúrlega verið
gaman, sagði hún, áhugalaust. —
Sólskin og hópur af ungu fólki.
Sally starði á hana. Jú, ekki
vantar það. Úrvalsfólk! I>ú veizt
ekki hvað það er að láta alla
kunningja sína þurfa að ganga
undir rannsókn, áður en maður
má tala við þá. Þú ert eina raun-
verulega vinstúlkan, sem ég hef
nokkurntíma átt. Pabbi er frá
öldinni sem leið. Viltu trúa að
hann hefur aldrei talað við syst-
ur mína síðan hún strauk að
heiman.
— Það er nú ekki von, að hann
sé hrifinn af því sagði Stephanie
— Það hefði bara aldrei orðið
ef hann hefði ekki komið svona
skammarlega fram við Gillian og
Clive til að byrja með, bana af
því að þau voru eignalaus þá.
Hann er harðstjóri! Stundum
langar mig til að strjúka að heim
an, bara til að stríða honum. Þú
ættir að koma til Beaulieu og
verða mér svolítið til skemmtun-
ar, Stevie.
— Þetta er auðvitað fallega
boðið af þér Sally, en þú veizt,
að ég verð að bíða hér um kyrrt,
þangað til ég fæ boð frá henni
frænku.
— Ég veit það, svaraði Sally
gremjulega. Hún reis upp og
fleygði sér í stól. Hún var lítil
stúlka heldur snotur en feitlag-
in. Hún hafði fengið strangt upp
eldi og var því móttækileg fyrir
alla þá vináttu, sem aðrir sýndu
henni. Þær stöllurnar voru jafn-
aldra, en Stephanie fannst alltaf
hún sjálf vera miklu eldri en
Sally sem var svo óstöðúg í sér
og hrifnæm.
— Þú veizt vel, að það er alls
ekki af því, að ég vilji ekki vera
hjá þér, Sally, sagði Stephanie,
— heldur er það af því, að nú
þegar ég er útskrifuð héðan úr
skólanum, þykist ég alveg viss
um, að Karólína frænka vilji fá
mig fyrir einkaritara. Það hefur
að minnsta kosti alltaf verið ætl
un hennar.
— Hvað er la»gt síðan þú hef-
ur hitt hana? spurði Sally af for
vitni.
— Þrjú ár. Hún hefur verið í
Ameríku allan þann tíma.
— Jæja, mér finnst nú hún
fara fremur með þig eins og skít
inn, sem hún treður á, en sem
systurdóttur sína.
— Sally! Stephanie leit á vin-
stúlku sína vingjarnlega en um
leið með nokkurri gremju. —
Þetta er ekki sanngjarnt af þér,
Sally. Ég held að Karólína
Hún þagnaði og hugsaði til föð
ur síns, sem hún hafði aldrei séð
í öll þessi ár. — Ég veit, að hún
hefur aldrei búið mér neitt heim
ili.. og hvernig ætti það líka að
vera, eins og hennar lifnaðarhætt
ir eru? En hún hefur kostað mig
og klætt og borgað fyrsta flokks
skólagöngu fyrir mig, svo að nú
er það ekki nema sanngjarnt, að
ég reyni að minnsta kosti að end
urgjalda henni það á einhvern
hátt. .
— Hmmm. Sally lét ekki sann
færast. í hennar augum var vin-
stúlka hennar einskonar róman-
tísk Öskubuska. Hún vissí vel, að
Karólína Courtney hlaut að vaða
í peningum, með sín tvö auðugu
hjónabönd að baki, og nú í opin-
berri vináttu við forríkan mann.
— Sástu blaðið í morgun?
spurði hún.
— Nei.. Röddin í Stephanie
setti sig í einskonar varnarstell-
ingu, Þegar Karólína komst í
blöðin var það venjulega af ein-
hverju forvitnilegu tilefni. — Er
þar eitthvað um Karólínu
frænku?
— Það er nú ekkert voðalegt.
Sjáðu.. Stephanie leit á mynd-
ina af hávaxinni og skrautbúinni
konu, ljóshærðri.
„Myndin var tekin af frú Court
ney í New York í gær“ Xas hún
upphátt. „Hún ætlar innan
skamms að setjast að í húsi sínu
á Miðjarðarliafsströndinni. Frú
Courtney sagðist ekkert hafa um
það að segja, er hún var spurð
um langvarandi kunningsskap
sinn við Charles Jerome, hinn
þekkta auðjöfur. Hr. Jerome mun
verða í gestahóp hennar í Frakk-
landi, og orðrómur er uppi um
það að frú Jerome sé að gera
ráðstafanir til hjónaskilnaðar".
— Hvað er hún gömul? spurði
Sally.
— Ég býst við, að hún sé svona
fjörutíu og fimm ára, svaraði
Stephanie.
— Hún er falleg, sagði Sally.
— Engin furða, að milljónarar
geti orðið hrifnir af henni. Jæja,
þú veizt þá að minnsta kosti, að
hún verður í Evrópu í sumar.
Það var barið að dyrum og ein
þjónustustúlkan kom inn.
— Bréf til yðar, Maddemoiselle.
Stephanie þakkaði henni og
tók bréfið. Hún kom þegar í stað
auga á New York póststimpilinn
og hrafnasparkið hennar Karó-
línu frænku.
Hún glotti til Sally. — Þetta
mátti víst ekki seinna vera! Ég
var fsarin að halda, að frænka
væri alveg búin að gleyma til-
veru minni. Jæja, við skulum
sjá, hvað hún segir.
„Elsku Stephanie" hófst bréf-
ið. „Ég legg hér innan í ávsun
fyrir farinu þínu til Nice. Ég
flýg til London eftir nokkra
daga, og held síðan áfram til Par
ísar, en ég ætti að verða komin
til Roque d’Or eftir svo sem þrjár
— fjórar vikur“.
„í þetta sinn kem ég ekki með
ungfrú Purcell með mér. Mér
hefur fundizt hún heldur seinlát
í seinni tíð og ég vona, að þú
sért nú tilbúin að taka við af
— Jerry, ég er að Xtringja til
að spyrja hvort þú hafir séð
nokkirar Goody-goo auglýsingar
við Straumá!
— Já, Markús, þær er.. hér út
um a.Ht .... En ég skil þetta
ekki. Hverisvegna eru þeir að
setja þær upp hérna úti í óbyggð
— Ég veit það ek'ki Jerry!
í aðalstöðvum náttúrufriðunar
félagsins.
— Vissulega Mlaifkús. okkur
berast kvartanir og ljósmyndir
.....Þeir setja upp Goody-goo
auglýsingar á afsikekiktum stöð-
um um allt land.
aiútvarpiö
Sunnudagur 14. maí
8:30 Fjörleg músík að morgni dags.
9:00 Fréttir.
9:10 Vikan framundan.
9:25 Morguntónleikar:
(10:10 Veðurfregnir).
a) Sinfónía nr. 92 í G-dúr (Ox-
ford-sinfónían) eftir Haydn
(Ríkishljómsveitin 1 Vínar-
borg leikur; Hermann Scher-
chen stjórnar).
b) Andrés Ségovia leikur á gít-
ar verk eftir Bach.
c) Peter Pears syngur brezk þjóö
lög í útsetningu Benjamin*
Britten.
d) „Symphonic Studies" eftir A1
an Rawsthorne (Hljómsveitin
Philharmonia; Constant Lam-
bert stjórnar).
11:00 Messa í hátíðasal Sjómannaskól-
ans (Prestur: Séra Jón Þorvarð-
arson. Organleikari; Gunnar Sig
urgeirsson).
12:15 Hádegisútvarp.
13:00 Erindi: Afstaðan milli kynslóð-
anna (Dr. Matthías Jónasson pró-
fessor).
14:00 Miðdegistónleikar:
Útdráttur úr óperunni „Halka**
eftir Staislaw Moniuszko (Pólsk-
ir listamenn flytja undir stjórn
Walerian Bierdiajew. — t»or-
steinn Hannesson skýrir verkið).
15:30 Kaffitíminn:
a) Magnús Pétursson og félagar
hans leika.
b) Ray Martin og hljómsveit
hans leika.
16:30 Veðurfregnir. — Endurtekið efnit
a) Erindi dr. Kristjáns Eldjárns
þjóðminjavarðar: Haust f
Þjórsárdal (Áður útv. 26.
marz).
b) Píanókonsert nr. 1 í fis-moll
eftir Rachmaninoff, leikinn af
Svjatoslav Riehter og sinfóníu
hljómsveit rússneska útvarps-
ins. (Áður útv. 6. apríl).
17:30 Barnatími (Skeggi Ásbjamarson
kennari):
a) Ölafur Jónsson syngur fáein
vor- og sumarlög.
b) Lilja Kristjánsdóttir frá Braut
arhól flytur sögu um kisurn-
ar sínar.
c) Sigríður Guðmundsdóttir (10
ára) leikur þrjú lög á píanú.
d) Elfa Björk Gunnarsdóttir les
tvær frásagnir eftir Viktoríu
Bjarnadóttur: Frá löngu liðn-
um árum.
e) „Táp og fjör og frískir menn'*.
leikþáttur fluttur af skóla-
börnum á Selfossi.
18:30 Miðaftanstónleikar: Hljómsveit
Guy Luypaerts leikur lagasyrpu
eftir Richard Rodgers.
18:55 Tilkynningar.
19:20 Veðurfregnir.
19:30 Fréttir.
19:45 Stillið viðtækin! — Verkfræð-
ingur útvarpsins, Stefán Bjarna-
son, leiðbeinir hlustendum.
20:00 Píanótónleikar: Rögnvaldur Sig-
urjónsson leikur „Wanderer-
fantasíu" op. 15 eftir Schubert.
20:20 Erindi: Með vínbændum og fiskl
mönnum á Portúgalsströnd —•
(Guðni Þórðarson framkvæmda-
stjóri).
20:45 Balletttónlist: „Fagra Dóná" eft-
ir Johann Strauss (Filharmoníu-
sveit Lundúna leikur; Jean Mat-
inon stjórnar).
21:15 Gettu betur!, spurnlnga- og
skemmtiþáttur undir stjórn Svav
ars Gests.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22.05 Danslög.
23:30 Dagskrárlok.
Mánudagur 15. maí
8:00 Morgunútvarp (Bæn: Séra Garð
ar Svavarsson. — 8:05 Morgun-
leikfimi: Valdimar Örnólfsson
leikfimikennari og Magnús Pét-
ursson píanóleikari. 8:15 Tónleiíc
ar — 8:30 Fréttir. — 8:35 Tón-
leikar. — 10:10 Veðurfregnir),
12:00 Hádegisútvarp: — Tónleikar
12:25 Fréttir. — 12:35 Tilkynning
ar. — 12:55 Tónleikar).
13:15 Búnaðarþáttur: Um matjurta-
rækt (Öli Valur Hansson ráðu-
„ nautur).
13:30 „Við vinnuna": Tónleikar.
15:00 Miðdegisútvarp (Fréttir. —
15:05 Tónleikar. — 16:00 Fréttir
og tilk. — 16:05 Tónleikar. --
16:30 Veðurfregnir).
18:30 Tónleikar: Lög úr kvikmyndum#
18:50 Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr,
19:30 Fréttir.
20:00 Um daginn og veginn (Séra
Sveinn Víkingur).
20:20 Einsöngur: Einar Sturluson syng-
ur; Fritz Weisshappel leikur und-
ir á píanó.
a) Tvö lög eftir Bjarna Þorsteins
son: „Vor og haust" og
„Kirkjuhvoll".
b) Tvö lög eftir Jón Laxdal:
„Syngið, syngið svanir mínir'*
og „Ljúfar, ljósar nætur".
e) Tvö lög eftir Franz Schubertf
„1 kvöldroða" og „Unaður".
20:40 Erindi: Yosemite-þjóðgarðurinn f
Kaliforníu (Þórður Kárason lög-
regluþjónn).
21:05 Tónleikar: Sónata fyrir selló og
píanó op. 119 eftir Prokofieff
(Mastislav Rostropovitsj og Svato
slav Riehter leika).
21:30 Utvarpssagan: „Vítahringur" eft-
ir Sigurd Hoel; III. (Arnheiður
Sigurðardóttir).
22:00 Fréttir og veðurfregnir
22:10 Hljómplötusafnið (Gunnar Guð-
mundsson).
°a 00 Dagskrárlo>