Morgunblaðið - 11.07.1961, Blaðsíða 8
8
MORGVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 11. júlí 1961
Sýnikennsla í hárgreiðslu
„Hefurðu séð þennan
þýzka", spurði hárgreiðslukon
an mig um leið og hún keppt
ist við að rúlla upp hárið. Nei,
ég hefi ekki séð þann þýzka,
hvað var merkilegt við hann?“
„Jú, hann er að sýna nýjung
ar í litun og hárgreiðslu í
Pfaff-salnum á Skólavörðu-
stíg“, uppfræddi hún mig. „V
hér á stofunni förum seinni
partinn í dag að horfa á hann“
★
Á þessa leið var rabbað á
öllum hárgreiðslustofum hæj
arins dagana 29. maí til 2. júní
s.l. Meistarafélag hárgreiðslu-
kvenna hafði fengið þýzkan
sérfræðing, Grafentin að
nafni, frá Wella-verksmiðjun
um hingað til lands til að
halda sýnikennslu í hár-
greiðslu. Hann dvaldist hér á
landi í 5 daga.
— Eg hef haldið tvær sýning
ar á dag, sagði Grafentin, er
blaðamaður Mbl. hitti hann að
máli seinasta daginn, sem
hann dvaldi hérna. Samtals
hafa um 120 reykvískar hár-
greiðslukonur mætt á þessum
sýningum og módelin hafa
verið 25.
Mildir brúnir litir mest
í tízku.
— Módelin hafa að sjálf-
sögðu öll verið lögð sam-
kvæmt nýjustu tízku Og hár
þeirra lituð. Tízkulitirnir 1 ár
eru mildir brúnir litir, kopar-
og koníakslitir og purpura-
rautt. Þær ljóshærðu vilja svo
kallaðan norrænan hárlit, og
að síðustu er einn, sem nýtur
mikilla vinsælda í augnablik-
inu og nefnist „zuklamen".
Litir hafa sálfræðileg áhrif,
eins og kunnugt er, Og því er
þýðingarmikið að velja hára
litinn af stakri nákvæmni.
íslenzkt
prjónnblað
NÝKOMIÐ er út íslenzkt
prjónablað. „Prjónninn“, sem
er fyrsta sinnar tegundar hér
á landi. í blaðinu eru 10 upp-
skriftir af peysum, og auk
þess uppskriftir af barna-
hönzkum, ungbarnasokkum og
húfu.
Áætlað er að „Prjónninn"
komi út einu sinni eða tvisvar
á ári og í því verði ávallt f jöl-
Herra Grafentin leggur síðustu hönd á einn kollinn.
Sama er að segja um hár-
greiðsluna, hún er háð per-
sónu hvers og eins.
.... Nei, stutta hárið hefur
borið sigur af hólmi á þessu
misseri, háa hárgreiðslan er
búin að vera í bili. Og fjólu
blái liturinn, sem svo mikið
var í tízku í fyrra, er líka horf
inn. Konurnar urðu fljótt
þreyttar á honum.
Litun í heimahúsum varhuga-
verð.
— Hvað vilduð þér segja
um litun hárs í heimahúsum?
— Eg tel hana stórvarhuga
verða. Kona getur ekki farið
út í næstu búð, keypt ein-
hvern háralit og litað hár
sitt sjálf svo vel fari. Og auk
þess getur það verið stórhættu
legt. Efnasamsetning litanna
er mjög misjöfn og fer mis-
jafnlega vel með hárið. Eng
inn nema fagmaður getur vit
að með fullri vissu, hvað er
bezt fyrir viðkomandi hár-
gerð.
Litað sjampó er hættu-
minna en getur líka verið var
hugavert. Fer það allt eftir
tegundum.
★
Við tókum nú léttara tal og
Grafentin skýrði frá því að
hann hefði unnið rúmt ár hjá
Wella-verksmiðjunum og á
því ári hefði hann heimsótt 6
lönd fyrir utan ísland, síðast
Júgóslavíu. „En Wella hefur
viðskipti við 90 lönd víðsveg
ar á hnettinum," bætti hann
við og var auðheyrt að hann
hafði hug á að komast til sem
flestra.
★
Pfaff-salurinn, sem skömmu
áður hafði verið þéttsetinn
reykvískum hárgreiðslukon-
um, var nú auður, utan einn-
ar konu, sem sat í hárþurrk-
unni. Lítill sonur hennar, á að
gizka 3ja ára, vappaði þar í
kring og virti fyrir sér alla-
vega litar hárflyksurnar, sem
lágu á víð og dreif á gólfinu.
„Af hverju talar maðurinn
svona?“ spurði hann móður
sína, en hún heyrði ekki neitt
þar sem hún sat í þurrkunni.
Þá fór hann aftur að virða fyr
ir sér gólfið og gat nú ekki
orða bundizt: ,En ka gólfið er
óhreint!11
Hg.
breytt úrval af kvenna-,
barna- og herrapeysum. Blað-
ið er prentað í prentsmiðju
Jóns Helgasonar og er frágang
ur þess prýðisgóður. Ritstjóri
og útgefandi er Dóra Skúla-
dóttir, blaðamaður.
Meðfylgjandi mynd er af
einni peysunni úr blaðinu,
peysu á eiginmanninn.
skrifar um
ÞAÐ HEFUR oft verið svo um
sumarmánuðina, að ekki heíur
verið um auðugan garð að
gresja í kvikmyndahúsunum hér,
sýndar fremur lélegar myndir
eða myndir teknar til endur-
sýningar. Svo er einnig að þessu
sinni hjá sumum kvikmyndahús
unum. Hér eru þó enn sýndar
nokkrar mjög athyglisverðar,
nýjar myndir, svo sem „Fjár-
kúgun“ í Tjarnarbíói, „Á vogar-
skálum réttvísinnar“ (Compuis-
ion) í Nýja Bíói. í Hafnarfjarðar
bíói gengur enn danska myndin
„Trú,. von og töfrar", sem tekin
er í Færeyjum, enda er það
prýðisgóð mynd og Bæjarbíó
sýnir nú mjög spennumikla og
velgerða mynd er nefnist
„Hættuleg karlmönmim". Mynd-
in gerist í Rómaborg og segir
frá ungri og fagurri konu, Angelu
KVIKMYNDIR
að nafni, sem er einkaritari auð-
ugs kaupsýslumanns. Hún kynn-
ist amerískum bílasala, Steve
Catlett, sem starfar þarna í borg
inni. Þessi kynni verða Steve
örlagarík. Hann fær ást á Angelu
og hún virðist bera sama hug til
hans. Og kvöld eitt hringir hún
til hans mjög æst í skapi og bið-
ur hann að koma heim til sín þeg
ar í stað. Þegar Steve kemur
þangað sér hann kaupsýslumann
inn liggja dauðan á gólfinu.
Þar með er Steve flæktur í þetta
mál, — grunaður um að hafa
myrt kaupsýslumanninn, — og
annan mann að auki, sem kemur
þarna óvænt til sögunnar, en
hann er eiginmaður Angelu, ný
kominn úr fangelsi. Steve er stað
inn að margs konar ósannindum
fyrir lögregluréttinum, enda hugs
ar hann um það eitt að hreinsa
Angelu 'af öllum grun. Böndin
berast því æ þéttar að Steve og
ekki annað sýnna en hann hljóti
þungan refsidóm. En sögulokin
verða önnur og koma ö.llum á
óvart, en ekki er vert að rekja
þau atvik nánar.
Aðalhlutverkin leíka þau Mara
Lane (Angela), Dennis O’Keefe
(Steve) og Rossano Brazzi (eig-
inmann Angelu). Mara I.ane er
ung og fríð leikkona, fædd I
Vínarborg. Er hún talin mjög
efnileg leikkona og eiga glæsi-
lega framtíð fyrir sér í leiklist-
inni. Mynd þessi verður áreið-
anlega vel sótt.
í Stjörnubíói er nú sýnd nokk-
uð sérstæð mynd, „Sæskrímslið".
Myndin er amerísk, frá Colum-
bíafélaginu. Hún hefur að vísu
ekkert listrænt gildi, en er gerð
af mikilli tækni. — Nýr ame-
rískur kafbátur verður í reynslu
för sinni fyrir árás risavaxins
kolkrabba, sem heldur skipinu
með ofurafli í örmum sínum um
stund. Þegar hættan er liðin hjá
heldur kafbáturinn til hafnar og
skipstjórinn, Pete Matthews gef-
ur flotastjórninni skýrslu um mál
ið. Utan á skipinu finnst lítiil
kolkrabbi og vísindamennirnir
John Carters og ungfrú Joyce
komast að þeirri niðurstöðu að
þetta sé afkvæmi risavaxins kol-
krabba úr undirdjúpum Kyrra-
hafsins. Flotastjórnin hefur enga
trú á þessum skýringum vísinda-
mannanna, en þegar fréttir fara
að berast úr fleiri áttum um
voveifleg sjóslys af völdum þess-
arar ófreskju og bílstjóri kaf-
bátsforingjans verður ófreskjunni
að bráð að honum og vísinda-
mönnunum ásjáandi, þá lætur
flotastjórnin sannfærast. Hun
flytur bækistöðvar sýnar til San
Francisko og gerir margs konar
ráðstafanir til þess að ráða nið-
urlögum dýrsins. Almenn skeif-
ing grípur um sig meðal íbúa
borgarinnar og þegar ófreskjan
birtist við höfnina og tekur að
mylja öll mannvirki þar og víðar
í borginni mélinu smærra, þá
nær óttinn og ringulreiðin há-
marki sínu. En viðureigninni iýk-
ur með sigri hertækninnar, en
ástin hefur jafnframt sigrað þau
Pete kafbátsforingja og hina
fríðu vísindakonu Joyce.
Eins og áður er sagt er myndin
gerð af furðulegri tækni og því
fremur gaman að sjá hana.
Císli Einarsson
hæstaréttarlögmaður
Málflutningsskrifstofa.
Laugavegi 20B. — Sími 19631.
Guðjón Eyjólfsson
löggiltur endurskoðandi
Skólavörðustíg 16
Sími 19658.
Cólfslípunin
Barmahlið 33. — Sími 13657.
l.ö.l. rivu nuiv Síðasti stórleikur sumarsins timvraiun AMn niiNnrr
. oUUvLol ImLttliU — UUIiUll Keppa á Laugardalsvellinum í kvöld kl. 8,30 Dómari Þorlákur Þórðarson
Su3vestur>ond sigraði S.t. Mirren með 7-1
Gordon Schmith 30 landsleikir og Holland með 4 - 3 Heimir Guðjónsson landsliðsmarkvörður
Tekst Jbe/m einnig oð sigra Duncfee? Nú verður Jboð fyrst spennanái
MÓTANEFNDIN