Morgunblaðið - 11.07.1961, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 11. júlí 1961
S-Vesturlandslið
móti Dundee í kvöld
Góð afrek kvenna oq
drengja um helgina
MEISTARAMÓT kvenna og
drengja í frjálsíþróttum fór
fram á Laugardalsvellinum á
laugardag og sunnudag. Náð-
ist góður árangur í ýmsum
greinum. Eitt met var sett
á mótinu. Setti það Sigrún
Jóhannsdóttir, Akranesi, í há
stökki. Stökk hún 1.46 m en
gamla metið var 1.41 m. —
Með þessu vann Sigrún bezta
afrek mótsins og hlaut að
launum bikar þann, sem
íþróttafréttamenn gáfu til
keppni um á þessu móti og
veitast skyldi þeirri konu er
bezt afrek ynni.
Einna mesta athygli vöktu
spretthlaup kvenna. Þar mættust
án efa tvær fótfráustu konur
landsins, Rannveig Laxdal ÍR og
Guðlaug Steingrímsdóttir A-Hún.
Guðlaug sigraði í 100 m hlaupinu,
enda hefur hún mjög gott við-
bragð og vinnur mikið á því, auk
þess sem hún hleypur fallega og
kröftuglega. Rannveig sigraði
imeð næstum sömu yfirburðum
í 200 m hlaupinu eftir að Guð-
Ibaug hafði haft forystuna lengi
eftir viðbragðið. Rannveig vann
ennfremur grindahlaupið.
Hörkukeppni
Annað bezta afrek mótsins
vann Oddrún Guðmundsd.
Skagaf. í kúluvarpi, varpaði 10.48
m — 2.01 m lengra en sá sem
næst kom.
Hjá drengjunum varð hörku-
keppni víða og góður árangur í
mörgum greinum. Þórhallur Sig-
tryggsson KR varð fast við met
í 300 m hlaupi, en hann vann
einnig 100 og 200 m hlaup. Þrír
stukku jafnhátt í hástökkinu 1.64
m. Jón Ö. Þormóðsson ÍR vakti
athygli fyrir mikinn stökkkraft
og hlauphraða. Hann var einn
þriggja í hástökki með 1.64, vann
langstökkið með 6.07 og var ann-
ar í grindahlaupi Og 4. í þrístökki.
Kjartan Guðjónsson KR var yfir
burðamaður í köstum. Hann vann
spjótkast og kúluvarp.
Úrslit frá mótinu verða að bíða
vegna þrengsla.
Axel Kvaran
synti úr Viðey
Á sunnudaginn var synt fyrsta
Viðeyjarsundið á þessu ári. Það
gerði Axel Kvaran lögregluþjónn
Kann synti vegalengdina úr Við
ey að Loftsbryggju í Reykjavík-
urhöfn, sem er 4% km. á 1 klst.
44 mín. Skemmstum tíma hefur
Pétur Eiríksson náð 1 klst. og 30
mín.
Á MÓTI sem haldið var í
Rostock í A-Þýzkalandi um
helgina setti Jón Þ. Ólafsson
nýtt ísl. met í hástöklki. Stökk
Jón 2.03 m. Hann sigraði í
keppninni við mikinn fögnuð
áhorfenda.
Jón Ólafsson er korpungur
afreksmaður. Hann setti í vet-
ur innanhússmet í hástökki
með 2.00 m og vakti það vonir
um framtíð hans, sem nú hafa
rætzt — og engan veginn hef-
ur Jón sagt sitt síðasta orð.
Jón Pétursson KR átti fyrra
metið 2.00 m og var það sett í
fyrra. Hann var fyrstur íslend
inga til að ná tveim metrum
og vakti það verðskuldaða
hrifningu. Að svo skammt-
skyldi þar til annar afreksmað,
ur kemur fram í greininni er
sannarlega gleðiefni.
Þrir aðrir íslendingar tóku
þátt í Rostock-mótinu. Einar
Frímannsson KR varð 4. í lang
stökki með 6.93 m. Grétar Þor
steinsson Á hljóp 400 m á 51.4
sek. og Sigurður Björnsson
KR hljóp 400 m grindahlaup
á 56.8.
Sigrún Jóhannsdóttir, Akranesi ,setti ísl. met í hástökki
kvenna, 1.46. — Hún vann afreksbikar íþróttamanna, sem
Sigurður Sigurðsson afhenti.
Jón Þ. Ólafsson
setti
2,03
Jón Olafsson
met i hástökki
I KVÖLD fer fram á Laugardalsvellinum síðasti leikur í heim-
sókn skozku knattspyrnumannanna frá Dundee. Þá mæta þeir
úrvalsliði Suð-Vesturlands sem landsliðsnefnd KSl hefur valið.
Þessi leikur er jafnframt síðasti leikur erlends liðs hér á landi
í sumar og er ekki að efa að marga fýsir að sjá leikinn. Kemur
Dundee vann létt 4:0
þar m. a. til að síðast er Suð-Vesturlandsúrval mætti Skotum,
þá sigraði ísl. liðið með 7 mörkum gegn 1.
Liðin í kvöld eru þannig skipuð:
Liney
Hamilton Cox
Seith Ure Brown
Smith Penman Cousin Gilzean Robertson
©
íngvar Elíss. Gunnar Fel. Þórólfur Ellert Þórður Jóns.
Sveinn Teits Rúnar G. Ormar Skeggjason
Árni Njálsson Hreiðar Ársælsson
Heimir
ANNAR Ieikur skozka liðsins
Dundee var á sunnudagskvöld og
mættu þeir þá liði Islandsmeist-
aranna Akraness, sem styrkt
höfðu lið sitt 3 Valsmönnum
Árna Njálssyni, Halldóri Hall-
dórssyni og Björgvini Daníels-
syni) og 1 Keflvíking (Högna
Gunnlaugssyni). En þrátt fyrir
styrk af þessum mönnum —
einkum Árna og Halldóri í vörn-
inni, fóru Skotarnir með auð-
unninn sigur, skoruðu 4 mörk
gegn engu.
Smith (lengst t. v.), Penman (fyrir miðju) og Waddell sækj;-^>ð ma«-v;
knötturinn fer utanhjá. Halldór Halldórsson og Helgi standa
voru mjög hættuleg Skotunum,
en fyrir hreinan klaufaskap sókn-
armanna, tókst Skagamönnum
ekki að ná forystu með 2 mörk-
um. Að hitta ekki knöttinn, eða
skjóta framhjá í dauðafæri og
óhindraður, er ákaflega klaufa-
legt.
Og svo fór að Skotarnir tóku
öll völd á vellinum. Þeir sóttu
allan síðari hluta fyrri hálfleiks
og næstum óslitið í seinni hálf-
leik. Kom þá oft í ljós góður
varnarleikur hjá íslendingum og
áttu Árni og Halldór Halldórs-
son mjög góða leikkafla.
Fyrsta mark þeirra kom eftir
Framh. á bls. 19.
Fram fékk ekkert
stig í Norðurferð
Á SUNNUDAG léku Fram og
Akureyri í 1. deild íslandsmóts-
ins og fór leikurinn fram á Akur-
eyri. Ekki varð för Framara
norður til fjár. Akureyri vann
leikinn og Fram hefur því „að-
eins“ 3 stig eftir 5 leiki í mót-
inu.
Fram sækir
í fyrri hálfleik virtist sigurinn
blasa við Fram. Liðið sótti nær
látlaust allan hálfleikinn og strax
eftir 12 mín. leik náði liðið -for-
ystu í mörkum. Guðjón Jónsson
sem lék í stöðu útherja komst
í gegnum Akureyrarvörnina og
skoraði með fallegu skoti. í þess-
um hálfleik sýndi Fram yfir-
burði og lék á köflum mjög vel,
en fleiri urðu mörk liðsins ekki
þrátt fyrir mikla sókn og oft
fallega uppbyggingu leiks
★ Jakob skorar
En Akureyringar höfðu ekki
gefizt upp. í síðari hálfleik komu
þeir (ákveðnir og fastir fyrir til
leiks Þeir gáfu Framurum aldrel
frið til uppbyggingar og tóku
smám saman völdin 1 sínar hend
ur Má segja að Akureyringar hafi
verið nær látlaust í sókn Og Fram
átti aðeins 1 gott færi í hálfleikn
um komst Óagbjartur einn inn
fyrir en var hrundið og allt fór
út um þúfur.
Em Fram hafði forystuna þar
til um stundarfjórðungur var til
leiksloka. Þá skoraði Jakob
Jakobsson miðherji, sem Akureyr
ingar hafa nú endurheimt frá
námi í Þýzkalandi og er það liði
þeirra mikill styrkur. Skoraði
Jakob af 18 m færi mjög fallega
og hafði Geir enga möguleika tii
varnar. Rétt fyrir leikslok skor-
aði Jakob sigurmark Akureyrar
eftir þvögu við markið.
Jón miðvörður Akureyrar var
klettur í vörninni en Jakob og
Kári leiknastir frammi á vellin-
um. Hjá Fram var Rúnar traust-
astur og Geir í markinu átti og
góðan leik. Sama má segja um
Guðjón sem útherja.