Morgunblaðið - 13.07.1961, Síða 1
20 síður
Rússar kaupa 50
þús. tunnur af síld
ÁskHja sér rétt til að kaupa 10
jbijs. tunnur til viðbótar
De Caulle
ásakar
Rússa
París, 12. júlí — (Reuter)
DE GAULLE forseti flutti í
kvöld ávarp, sem útvarpað
var og sjónvarpað um allt
Frakkland. Sagði hann þar
m. a. að Frakkar væru því
fylgjandi að Serkir fengju
sitt eigið land til umráða, en
varaði jafnframt við því að
ef viðræður Frakka og
Serkja um frið í Alsír fara
út um þúfur, muni landinu
verða skipt milli Evrópu-
manna og Serkja. Sagði de
Gaulle að í ráði væri að hefja
nú þegar brottflutning „þýð-
ingarmikilla“ hersveita
Frakka frá Alsír.
EINS OG VENJUtiEGA
Þá sagði forsetinn að Rússar
væru að skapa nýtt hættuástand
í heiminum „eins og venjulega".
,Væru þeir nú að gera kröfur,
sem stefndu heimsfriðnum í
voða. Hann sagði að þeir væru
enn að gera tilraun til að ráða
einir örlögum Berlínar með því
að gera ferðir þangað og aðstöðu
bandarískra, franskra og brezkra
hermanna í borginni að deilu-
efni. Kvaðst de Gaulle vilja
ítreka fyrri ummæli sín þess efn-
is að hann teldi algjörlega úti-
lokað að gengið yrði að kröfum
Sovétríkjanna varðandi Berlín.
Ef Sovétríkin óska þess að
draga úr spennunni í heiminum,
verða þau að gera það með því
að draga úr ögrunum sínum,
sagði de Gaulle. En þegar þau
skella dyrunum og krefjast þess
að leysa málin án tillits til réttar
hinna stórveldanna þriggja, taka
Sovétríkin á sig alla ábyrgð á af-
leiðingunum.
★
Varðandi Alsír sagði de Gaulle
að sá tími væri liðinn þegar ein
þjóð gat drottnað yfir annari.
Það væri nú hagsmunamál
Frakka að losna undan fjárfrek-
um skyldum sínum gagnvart
Alsir og láta fyrrverandi þegna
sína sjálfa ráða framtíð sinni.
Þessi þróun verður að ná til
Alsír eins og annarra fyrri ný-
lendna Frakklands.
Kanaveralhöföa og Arguello-
höföa, 12. júli (Reuter-NTB)
BANDARÍKJAMENN skutu
í dag á loft tveim nýjum
gervitunglum. Er annað ætl-
að til veðurathugana, hitt til
að fylgjast með því þegar
eldflaugum er skotið á loft
einhvcrs staðar í heiminum.
Kuwait
LONDON og Kuwait, 12. júli.
(Reuter). —Samkvæmt áreið
anlegum fregnum mun brezka
stjórnin vera samþykk tillög-
um aðalritara Arababandalags
ins, Abdel Hassouna, um lausn
á Kuwaitmálinu, ef furstinn í
Kuwait fellst á þær. Tillögur
Hassöuna eru í fjórum liðum:
1. Bretar kalli allt herlið sitt
burt úr furstadæminu.
2. Sjálfstæði Kuwaits verði
viðurkennt.
3. Kuwait verði meðlimur
Arababandalagsins.
4. Sjálfstæði og fullveldi Ku
waits verði tryggt gegn
öllum árásum.
Fulltrúar stjórnarinnar í Ku
wait hafa áður lýst því yfir
að stjórnin væri því fylgjandi
að hersveitir SÞ, eða sveitir
Arababandalagsins 1 e y s t u
brezku hersveitirnar af hólmi
í Kuwait, en því aðeins að
tilgangur varnarsveitanna
væri sá einn að tryggja sjálf-
stæði landsins.
TIROS III.
Frá Kanaveralhöfða í Florída
var veðurhnettinum Tiros III.
skotið á braut umhverfis jörðu.
Notuð var eldflaug af gerðinni
Thor-Delta og fór hnötturinn á
braut í 650 kílómetra hæð. Hnött
urinn er búinn ljósmyndavélum
og sjónvarpssenditækjum auk
tækja til að mæla hita ofl. Á
hnötturinn að senda ljósmyndir
af skýjamynr’unum til jarðar. En
myndir þessar munu auðvelda
Framhald á bls. 3.
í GÆRKVÖLDI var und-
irritaður sölusamningur
milli Síldarútvegsnefndar
og Prodintorg — innkaupa
stofnunar Sovétríkjanna
— um sölu á 50 þúsund
tunnum saltsíldar veiddri
við Norður- og Austur-
land.
Af hinu selda magni eiga
a.m.k. 75% að vera með
20% fituinnihaldi eða meira,
af síldinni fullverkaðri, og
ekki yfir 25% af magninu
með fituinnihaldinu milli 17
og 20%. — Hinir rússnesku
kaupendur áskilja sér rétt til
þess að kaupa 10 þúsund
tunnur til viðbótar og verða
35 skötuselir
AKRANESI í gær. — Afli 7 drag
nótabáta, sem lönduðu hér í gær
var samtals 12,5 lestir. 35 skötu-
seli fékk humarbáturinn Ásbjörn
m. a. í gær. Voru þeir allir hrað-
frystir. Eru skötuselir eftirsótt
vara bæði í Englandi og Þýzka-
landi, og í háu verði. Svo fékk ]
og Ásbjörn dálítið af öfuguggum
og löngu. — Oddur.
þeir að hafa sagt til um það
innan eins mánaðar, hvort
þeir kaupa þetta viðbótar-
magn.
Samningaumleitanirnar við
Rússa hafa staðið yfir í 8
vikur. Lokaþátt samninganna
önnuðust af hálfu Síldarút-
vegsnefndar þeir Erlendur
Þorsteinsson, Sveinn Bene-
diksson, Gunnar Jóhannsson
og Gunnar Flúvenz.
Finnlands, hefur falið Martti
Miettunen, þingmanni Agrar
(bænda) flokksins og lands-
stjóra í Lapplandi, að gera
tilraun til að mynda nýja
ríkisstjórn í Finnlandi.
Engin lögmæt stjórn hefur ver-
ið í Finnlandi frá því að Vieno
j Sukselainen fyrrverandi forsætis
LJÓSMYNDARI Morgunblaðs J
ins skrapp suður í Nauthóls- i
vík í gær, og ætlaði um leið l
að taka myndir af fallegum /
sjó- og sóldýrkendum. Það fór 1
þó á annan veg, því að þegar I
suður eftir kom, var þar ekki
sálu að sjá. Reykvíkingar eru
nefnilega orðnir svo vandlátir
á veðurfar, að þeir nota helzt
ekki sjóinn og sólskinið nema
í Suðurhafseyjablíðu. Ilins
vegar kom ljósmyndarinn við
hjá Flugskólanum Þyti á heim
leiðinni og brá sér upp í há-
loftin — fór sem sagt í loftið I
í staðinn fyrir sjóinn. (
Þessa mynd tók hann af 7
einu gróðursælasta hverfi bæj
arins. Þótt það sé ekki nema
um 30 ára gamalt, er tr jágróð-
urinn þar orðinn býsna þrosk
aður, og víðast gnæfa trén
hærra en sum húsanna, sem
flest eru þó all-háreist. Sýnir
það vel, hve skógrækt getur
hér borið góðan árangur, sé
vel að henni hlúð og umhverf-
ið skjólsælt. Um kostnaðar-
hliðina spyr enginn, því að
hér er skógurinn ætlaður til
augnayndis en ekki nytja. —
Lesendur geta spreytt sig á
því að þekkja götiurnar. l
ráðherra baðst lausnar hinn 3.
þ.m. Eemil Luukka, fyrrverandi
innanríkisráðherra hefur gengt
embætti forsætisráðherra frá því
Sukselainen sagði af sér.
Miettunen hefur þegar boðið
Sænska þjóðarflokknum þrjú
ráðherraembætti og Finnska þjóð
arflokknum tvö í væntanlegri
samsteypustjórn, og gefið þeim
frest til hádegis á morgun að
svara því tilboði. Hvort sem sam
vinna tekst eða ekki mun Agrar-
flokkurinn skipa tíu ráðherra.
Nýir gervihnettir
5 tjórn armyn d un
reynd \ Finnlandi
Helsingfors, 12 júlí.
—• (NTB-Reuter) —
URHO KEKKONEN, forseti