Morgunblaðið - 13.07.1961, Síða 3
Fimmtudagur 13. júlí 1961
morguisblaðið
IIINGAB er komin nefnd
manna frá Siðvæðingarhreyf-
ingunni (Moral Re-Arma-
ment) og hafa l»eir meðferð-
is kvikmynd. Hámark lífsins,
sem sýnd mun verða fyrir al-
menning í Stjömubió næstu
da'ga. Myndin verður frum-
sýnd á föstudaginn og verður
sýnd á veujulegum sýningar-
tímum, kl. 5, 7 og 9. Meðal
nefndarmanna eru þeir James
Dickson kammerherra, þing-
maður frá Stokkhólmi og pró-
fessor Eiliv Skard frá Osló,
en þeir eru mörgum íslending
um að góðu kunnir.
Blaðamönnum var gefinn
kostur á því að sjá kvikmynd
ina sl. miðvikudag og flutti
próf. Skard formálsorð. Kvik
myndin, sem er frábærlega
vel gerð, er byggð á ævistarfi
blökkukonunnar Mary Mc
Leod Bethuns, sem vann sig
upp úr sárustu fátækt, foreldr
ar hennar voru þrælar, í það
að verða ráðunautur tveggja
Bandaríkjaforseta.
Úr kvikmyndinni Hámark lífsins. Um myndina sagði „The Hollywood Reporter": „M.R.A.
myndin slær öil aðsóknarmet í Los Angeles“. Marion Anderson sagði einfaldlega: „Dásamlegt,
dásamiegt.“
Siðvæ&ingarmenn sýna
jbekkta kvikmynd í Stjörnubíó
STAKSTEINAR
Þjóðarframleiðslan
Á öðrum stað i blaðinu í dag
eru birtar upplýsingar um vöxt
þjóðarframleiðslu okkar allt frá
stríðslokum, sem byggðar eru á
tölum Framkvæmdabanka ís-
lands. Sýna þessar upplýsingar
glögglega, að kauphækkanirnar
að undanförnu eru langt um-
fram það, sem nokkur von er til,
að vöxtur þjóðarframleiðslunnar
geti staðið undir.
Þessar tölur staðfesta raunar
aðeins upplýsingar, sem birtar
voru hér í blaðinu skömmu fyrir
helgina, en þar var sýnt fram á,
að árleg meðalaukning þjóðar-
framleiðslunnar sl. 15 ár hefur
verið um 4%, en þar sem aukning
mannfjöldans hefur verið 2% ár-
lega, væri raunveruleg meðal-
aukning framleiðslunnar aðeins
2% á mann.
Tölur Framkvæmda-
bankans
Eins og við mátti búast hafa
þessar upplýsingar raskað mjög
Úrvals leikasar og söngvar-
ar leika í myndinni, m. a.
Mauriel Smith, sem lék Car-
men Jones við frumflutning
söngleiksins á Broadway,
heimsfræg söngkona, og Ann
Buckles, þekkt bandarísk leik
kona. Inn í myndina er svo
fléttuð lífsskoðun og boðskap
ur Siðvæðingarhreyfingarinn-
ar um baráttiuna gegn komm-
únisma og einræði, fyrir betri
mönnum og betri heimi.
Kvikmynd þessi hefur farið
Adenauer svarar
KrúsjeH
Bonn, Vestur-Þýzkalandi,
12. júlí — (Reuter) —
HANS KROLL, sendiherra
Vestur-Þýzkalands í Moskvu,
afhenti í dag Andrei Gromy-
ko, utanríkisráðherra, orð-
sendingu ríkisstjórnar sinn-
ar. Orðsending þessi er svar
við orðsendingu um Berlín
og Þýzkaland, sem send var
ásamt bréfi Krúsjeffs, for-
sætisráðherra, til Adenauers
kanzlara hinn 17. febr. sl.
Segja Vestur-Þjóðverjar
að ef Sovétríkin semji sér-
frið við Austur-Þýzkaland,
verði það til þess að auka
spennuna í heiminum, en
ekki draga úr henni. Segir
ennfremur í orðsendingunni
að þrátt fyrir allt, sem orðið
hefur eftir að heimsstyrjöld-
inni lauk, haldi þýzka þjóð-
in áfram að vera ein og ó-
skipt heild, og sé ekki unnt
að taka alvarlega neina þá
stefnu, sem ekki tekur tillit
til þeirrar staðreyndar.
SAMEINAÐ ÞÝZKALANB
Vestur-Þjóðverjar benda á að
í orðsendingu Rússa sé áherzla
lögð á það að hraða beri friðar-
samningum við Þýzkaland. En þá
samninga geti sú stjórn ein undir
ritað, sem kosin er frjálsum kosn
ingum í sameinuðu Þýzkalandi.
.Vilji stjórn Sóvétríkjanna friðar-
samninga við Þýzkaland, verður
hún fyrst að veita þýzku þjóðinni
rétt til að velja sér sameiginlega
stjórn með frjálsum kosningum.
Ríkisstjórn Vestur-Þýzkalands
mun fagna því innilega ef stjórn
Sovétríkjanna vill hraða friðar-
samningum við Þýzkaland á þess
um grundvelli.
í þýzku orðsendingunni er enn
fremur bent á að sérsamningar
við einn hluta Þýzkalands brjóti
í bága við sjálfákvörðunarrétt-
inn, sem viðurkenndur er í stofn-
skrá Samejnuðu þjóðanna. En
friðarsamningar við sameinað
Þýzkaland leystu allan vanda,
einnig vandamál í sambandi við
Berlín.
Dýpkunarskip
í Akraneshöf n
AKRANESI í gær. — Dýpkunar-
skipið Leó hefur verið að verki
í dag við að dæla upp úr báta-
höfninni. Liggur frá Leó leiðsla
á flotholtum, sem nær upp fyrir
grjótgarðinn mikla, undir Hala-
kotsbökkum, og dælir hann leðj-
unni þangað í uppfyllingu.
— Oddur.
sigurför um allan heiminn og
er óhætt að hvetja alla til þess
að sjá hana. Myndin er í lit-
um og widescreen og er gerð
af þekktum kvikmyndamönn-
— Gervihnettir
Framhald af bls. 1.
veðurfræðingum að fylgjast með
því er fellibyljir eru að mynd-
ast. —
Hnötturinn vegur um 140 kg.
og er 98 mínútur að fara um-
hverfis jörðu.
Mörgum löndum eru tryggðar
upplýsingar þær eru gervihnött
urinn mun senda frá sér.
MIDAS III.
Nokkrum stundum eftir að Tir
os III. var kominn á braut, skaut
flugherinn öðrum gervihnetti á
braut umhverfis jörðu. Nefnist
sá hnöttur Midas III. og var s'kot
ið á loft frá tilra. nastöðinni á
Arguellohöfða í Kaliforníu. Not-
uð var þriggja þrepa Atlas eld-
flaug og komst hnötturinn á
braut í 3000 kílómetra hæð.
Hnöttur þessi er búin innrauðum
mælitækjum, sem sýna strax
hitageislunina frá eldflaugahreifl
um um leið og eldflaugunum er
skotið á loft. Ætlunin er að koma
á lof-t keðju af Midashnöttum og
geta Bandaríkjamenn þá fylgzt
með öllum eldflaugaskotum, hvar
sem er á jörðu. Midas III. vegur
1500 kíló.
Áður hafa Bandaríkjamenn
skotið alls 45 gervitunglum á loft
og eru 24 þeirra enn á braut um-
hverfis jörðu.
Skólafólk vantar atvinnu
Á ÞESSUM tíma hefir alla
jafna verið hægt að útvega
fjölda skólafólks atvinnu hér
í bænum. En sökum vöru-
bílstjóraverkfallsins hefir
Reykjavíkurbær og ýmis fyr
irtæki ekki getað bætt við
sig neinu fólki, enda eru
framkvæmdir mjög hægar
þótt víðast sé unnið ennþá.
Byggingarframkvæmdir eru að
stöðvast vegna þess að ekki er
hægt að flytja efni til bygging-
anna.
Umsóknir óafgreiddar
Á Ráðningarstofu Reykja-
víkurbæjar liggur nú fjöldi um-
sókna skólafólks um atvinnu, sem
ekki er hægt að sinna, en það
hefir ekki verið áður á þessum
tíma.
Bridge
RÉTTIR eru nú farnar að ber-
ast um hvernig hinar ýmsu
sveitir verði skipaðar á Evrópu-
mótinu sem fram fer í Englandi
ií haust. Sænska bridgesamband-
ið tilkynnti nýlega hvernig lið
þeirra verði skipuð, en kvenna-
liðið verður þannig skipað:
Segander, Werener, Möller,
Voss Schrader, M&rtensson og
Stenhammar.
Karlasveitin, sem álitin er
mjög sterk og Svíar gera sér
vonir um að nái langt, er þann-
ig skipuð:
Lundell, Wohlin, Nevell, Rád-
berg, Hjertstrand og Nygren.
Norska kvehnaliðið verður
þannig skipað:
Bedixen, Huun, Dullirud, Her-
seth og Ramn Johansen.
Enska bridgesambandið hafði
ákveðið að þeir Terence Reese
og Boris Schapiro skyldu keppa
á Evrópumótinu fyrir England
en 4 spilarar til viðbótar skyldu
ákveðnir að undangenginni úr-
tökukeppni. Rétt í þann mund
er úrtökukeppnin var að hefj-
ast, tilkynnti Terence Reese að
hann gæti ekki tekið þátt í Ev-
rópumótinu og útilokaði það þá
einnig félaga hans Schapiro. —
Ákveðið var því að þrjú efstu
pörin í úrslitakeppninni
skyldu keppa fyrir hönd Eng-
lands á Evrópumótinu. Keppn-
inni er nýlokið og verður enska
liðið þannig skipað:
N. Gardener, A. Rose, K. W.
Konstam, C. Rodrique, A. F.
Truscott og R. A. Priday.
Danska kvennasveitin hefur á
undanförnum árum náð góðum
árangri á Evrópumótum. Það
hefur því vakið mikla athygli
að Danska bridgesambandið hef
ur tilkynnt að það muni ekki
senda kvennasveit á næsta Ev-
rópumót.
1 ýmsum löndum stendur nú
yfir og er að Ijúka úrtöku-
keppnum í einhverri mynd. —
Munu því fréttir af skipan ann-
arra sveita berast mjög bráð-
lega.
7. júlí.
Þrír austur-þýzkir kappaksturs
menn, sem komu um sl.
helgi til þess að taka þátt í kapp-
aksturskeppni, hafa nú beiðzt
hælis sem pólitískir flóttamenn,
að því er yfirvöld hér tilkynntu
í dac.
geðró Tímans, sem ekki hefur
hikað við að kalla þær „þvætt-
ing“ Morgunblaðsins og öðrum
ámóta nöfnum. Þar með hefur
málið raunar verið afgreitt af
hans hálfu. Þó hefur blaðið birt
gamlar tölur eftir einum af vara-
þingmönnum Framsóknarflokks-
ins, sem hafa átt að sanna, að
vöxtur þjóðarframleiðslunnar
væri a. m. k. tvöfalt meiri.
Nú er það svo, að tölur
um þessi efni hafa lengstum
verið nokkuð ófullkomnar hér-
lendis, þó sífellt hafi þær að vísu
verið endurbættar undanfarin ár.
Tölur Framkvæmdabankans eru
hyggðar á síðustu óg nákvæm-
ustu athugun, sem fram hefur far
ið á þessum málum.
Áttu að réttlæta
kauphækkanirnar
En hvers vegna hefur Tíminn
viljað gera sem mest úr aukn-
ingu þjóðarframleiðslunnar?
Blaðið veit sem er, að raunhæf-
ar kjarabætur nást því aðeins
með kauphækkunum, að tilsvar-
andi framleiðsluaukning hafi orð
ið í þjóðfélaginu. Er því Tíma-
tölunum um framleiðsluaukning-
una ætlað að sýna fram á, að þær
kauphækkanir, sem nú hafa orð-
ið, séu raunhæfar kjarabætur,
þar sem þær séu aðeins í sam-
ræmi við vöxt þjóðarframleiðsl-
unnar.
Auk þessa, og til frekari árétt-
ingar, hefur Tíminn svo lialdið
því fram, að hér hafi ekki orð-
ið neinar kauphækkanir síðan
1958, þótt þjóðarframleiðslan
hafi síðan vaxið um samanlagt
12% á mann, eftir því sem blaðið
hefur eftir varaþingmanninum,
og því sé atvinnuvegunum síður
en svo ofboöið með kaup-
hækkununum. Þessari staðhæf-
ingu hefur raunar verið svarað
áður hér í blaðinu, en þó er ekki
úr vegi að rifja það upp, fyrir
Tímann, að enda þótt hér hafi
ekki orðið kauphækkanir síðan
1958 með samningum verkalýðs-
félaga, þá sýna skattaframtöl, að
laun hafa engu að síður hækkað
talsvert á þessu tímabili. Sam-
kvæmt upplýsingum, sem Morg-
unblaðið hefur áður birt og
byggðar eru á skattaframtölum
verkamanna, sjómanna og iðn-
aðarmanna í Reykjavík hækkuðu
laun þessara stétta að meðaltali
um 10% á árinu 1959 og um a. m.
k. 5% á árinu 1960.
Tölur Framkvæmdabankans og
skattaframtöl launþega sjálfra
hafa þannig hrundið þeim tveim
kenningum Tímans, sem helzt
hefur verið ætlað að réttlæta
kauphækkanirnar, sem stjórnar-
andstöðubandalagið hefur komið
af stað.