Morgunblaðið - 13.07.1961, Side 13

Morgunblaðið - 13.07.1961, Side 13
Fimmtudagur 13. júlí 1961 MORGUIWLAÐIÐ 13 Vorlömb fennti tvisvar Rætt við fréttamann FRÉTXARITARI blaðsiiTS á Hóls- fjöllum, Víkingur Gu'ð'mundsson, brá sér fyrir skömmu til bæjar- ins og áttum við þá smá. viðtal við hann um veðurfar, samgöngu mál o. fl. þar nyrðra. — Veðrið hjá oktour hefur ver- ið mjög óhagstætt, það sém af er sumri, sagði Víkingur. I>ó var góð tíð frá sumarmálum fram yfir miðjan maí, en 21.—22. maí gerði stórhríð og síðan hefur ver ið mikill lðfbkuldi og frostnætur alveg fram undir mánaðamótin júní og júlí. Stórhríð gerði aftur nóttina milli 17. og 18. júní og í báðum hríðunum fennti fénað, Ekafiarnir urðu um 2 metrar á hæð. Er það einsdæmi í seinni tíð að vorlömb fenni hér tvisvar. — Hvernig gekk sauðburður- inn? — Hann gekk misjafnlega bæði vegna kuldanna og óhreysti í lömbum og drápust t. d. milli 40 og 50 lömb hjá mér af ýmsum ástæðum, en þó mest af óhreysti, sem var óvenjulega mikil og má telja víst að ástæðan til þess sé sú, að nokkru leyti, að í inni- stöðum, sem voru fyrir sumar- málin, va.r fénu gefið hrakið og úrsér sprottið hey. Víkingur Guðmundsson %—1 mánuð eftir sauðburð skeði sá einikennilegi atburður að heilbrigðar kindur möðkuðu í haganum. Fundust t. d. þrjár kindiur, sem ég átti maðkaðar og varð að lóga einni þeirra, því að Elinhorg Minning ELÍNBORG Pálsdóttir var fædd í Ferjunesi í Flóa 28. júní 1869. Foreldrar hennar voru Páll Jóns- son frá Helli í Holtum og Elín Sveinsdóttir frá Mýrum í Flóa. Elínborg mistj foreldra sína með stuttu millibili sama ár, er !hún var 10 ára að aldri, urðu börnin, sem voru 7 að tölu, því að fara í fóstur til skyldra og vandalausra. Elínborg var svo heppin að komas.t á ágætt heim- ili til hjónanna Helga og Guð- laugar í Villingholti í Flóa. Guð- laug var e!n hlnna merku Kóps- vamssystra, er annálaðar voru fyrir myndarskap og mannkosti. Hjá þessari meriku konu mun Ihún hafa notið óvenjulegs upp- eldis. Um tvítugsaldur fluttist Elínborg að Galtafelli í Hrepp- lim og dvaldist þar, þar til hún giftist. Maður hennar var Guðjón Jónsson frá Unnarholti. Hann var systursonur Jóns á GaltafelU en bróðir Bjarna bankastjóra á Akureyri. Þau ungu hjónin tóku við búi 1 Unnarholti og famáðist vel, enda réði þar ríkjum sérstök Bnyrtimennska, hagsýni og dugn »ður, og yfirleitt það sem á nú- tíðarmáli er hægt að kalla sanna menningu. Mannkostir og listræni þeirra hjóna var alþetokt. Það mun hafa verið vorið 1890 að ég sem þessar línur rita, sá fyrst Elínborgu. í mínum huga er mynd hennar mjög glögg. Pálsdóttir Faðir minn kom á gæðing sínum og ung stúlka á öðrum. Hún var þá að koma að Galtafelli til langdvalar. Unga stúlkan hopp- aði úr söðlinum. Hún var há vexti en tággrönn, augun mógrá, glettn isleg og brosandi. Hárið jarpt, liðað og mikið. Hláturinn hljóm- fagur svo að straks ómaði allt af lífsgleði, eins og það hefur æfinlega gert kringum hana í öllum okkar kynnum um langa ævi. — Við yngri systkinin hugs- uðum gott tii framtíðarinnar að fá þessa ungu stúlku í hópinn, þótt við værum enn í þernsku. Við þurfum að leggja fyrir hana margar spurningar sem á okkar máli hét, að reyna hana. Þau próf stóðst hún öll. Til æviloka átti hún þann sanna kærleika og tryggð, sem var óslítandi. — Eiínborg eignaðist 10 börn, þrjá syni og 7 dætur. Tvo syni sína missti hún, Pál barn að aldri en Kjartan fullorðinn. Sonur hennar Bjarni er bóndi í Unnar- holti, giftur Halldóru Þorsteins- dóttur, en dætumar eru Elín kona Lofts á Sandlæk, Pálína kona Ásmundar í Hólakoti, Margrét kona Dagbjartar í Hvít- árdal. í Reykjavík eru tvær gift ar, Jónína kona Reynis Snjólfs- sonar og Jónný Gróa gift Val Lárussyni, ógiftar í Reykjavík eru Guðrún og Guðfinna og eru alls 80 afkomendur, þar af 2 í 5. lið. Hér er horfin kona, kostum búin og miklum hæfileikum. Hún elskaði hljómlist og hafði góða söngrödd og spilaði á harmoníum á yngri árum. Sambandið milli hennar og barnanna var dásam- legt. Einn okkar mestu andans manna segir á einum stað: „Mitt fegursta skart var skorið af þér, sú skyrtan bezt hefur dugað mér“. Það er venjulega fagurt sólarlag að liðnum björtum degi, svo er og hér að ævikveldi ást- kærrar móður. Ævidagurinn var langur, kraft arnir þrotnir. Allt er að þakka en margs að minnast og sakna. — Kærleikurinn sem er lífæð allrar tilverunnar hefur nú bund ið strönd við strönd, yfir djúp- ið dötokva, þaf sem bíða ný við horf, störf og æðri þroski. Börnin og vinirnir blessa minningu þína. G. eitrun var komin í hana senni- lega af maðkinum. Maðkurinn var kominn allt fram í herða- kamb 'á kindunum. •■Þesisi maðkur kemur af þvi, að eftir burðinn setzt stundum dautt blóð á dindil kindanna. Ef væta kemur syo á þetta, þegar það er orðið skemmt setzt í það fluga. — Er sláttur hafinn hjá ykk- ur? — Nei ekki enn, en það mun verða mjög bráðlega. Vegna hinnar góðu tíðar, sem var fyrst í vor spratt mjög snemma, en með kuldiunum kom afturkippur í gróðurinn og er því sprettan fremur léleg. — Hvernig er með fram- kvæ-mdir þarna í Hólsfjóllum? — í vor hefur verið imnið dá- ltið að jarðarbótum þ. e. a. s. gengið frá landi, sem jarðýta braut hér í fyrrasumar. Fram- kvæmdir á vegum hins opinbera eru nú að hefjast og virðist vera mikill hugur á að Ijú'ka við lögn nýja vegarins yfir Mývatnsifjöll. Það er upphlaðinn vegur, sem bominn er að Borgarmel og að- eins eftir að leggja af honum 4 km. Vegurinn verður mikil sam- göngubót fyrir okkur og bætir að sjálfsögðu þjóðleiðina til Austurlands. Við á Hólsfjöllum höfum ekki talið okkur einangraða þar sem við erum í þjóðleiðinni til Aust- urlands og á krossgötunum til lágsveita NA-tands. Vegurinn yf- ir Mývatnsfjöll er fær lengst af á vetrum og má af þeirri stað- reynd áætla, að hugsanliegur vegur yfir hálendið ýrði mjög snjóléttur að minnsta kosti norð- an jöfcla. Reitona má með að gert verði við veginn austur á fleiri stöð- um en á Mývatnsfjöllum. T. d. er vegurinn milli Hólsfjalla og Möðrudals mjög slsemur á V2 km kafla í Vegastoarði vegna snjóþunga og torapabláa eftir að snjóa tetour að leysa. Þó voru í vetur farnar póstferðir á bíl allt- af reglulega einu sinni í vi'ku, nefna 3—4 ferðir. Þá borgaði sig ekki að fara á bíl. Pósturinn er staðsettur í Möðrudal og tekur það hann oft langan tíma að brjótast gegnum Vegaskarðið. — Hvernig er með vegi að Dettifossi og öðrum fallegum stöðum í nágrenninu, sem ferða- menn heimsækja? — Það er ágætur vegur alveg niður á gilbarminn við Dettifóss og stutt þangað frá Hólssands- vegi. Einnig eru mjög sæmilegir vegir til tveggja eða þriggja fagurra fossa fyrir neðan Detti- foss og í F'orvöð, sem er mjög fallegur og blómskrúðugur stað- ur. Þar er Vígaberg og er sagt, að Grettir hafi eitt sinn varizt þar. Að vestan eru Hljóðatolettar og Hóilmatungur. Þaðan er hægt að fara hringinn upp frá Keldu- hverfi upp í Svínadal og upp á Mývaitnsfjöll. Þeta er hægt að komast á litlum bílum. Einnig er mjög sæmilegur vegur fyrir alla bíla af M;ývatnsvegi inn á Herðubreiðarlindir. Árni Guðjónsson hæstaréttarlögmaSur GarSastræti 17 LÚÐVÍK GIZURARSON héraðsdómslögmaður Tjarnargötu 4. — Sími 14855. ÞÓRARINN JÓNSSON LÖGGILTUR DÓMTÚLKUR OG SKJALAÞÝÐANDI í ENSKU KIRKJTJHVOLI — SlMI 12966. Gestheiður Arnu- dóttir, kveðju F. 8. júlí 1919. D. 4. júlí 1961. Kveöja frá systkinum. Ó, þegar vorið vekur blóm og veitir sól og yl, þá kemur systir, sögðum við, og svo var hlakkað til. Og vorið kom og vakti blóm og vetrar eyddist böl, og blessuð sólin signdi þig, en samt þú varst svo föl. Hvað allir báðu góðan guð þú gætir komið heim, og breiddu faðm af fögnuði við fegins-degi þeim. En þú varst áfram þreytt og sjúk og þráðir nú hvíld og ró og blómin glóðu um völl og hnúk en voniii.okkar dó. Við segjum: Verði vilji guðs, hann veit, hann ræður bezt, hann leysti þig frá langri þraut þá langaði til hans mest. Við heyrðum orðin hinztu þín, og hugguðumst af þeim: Ó, komdu Jesú kæri, fljótt og kveð mig til þín heim: Þau orð við munum alla tíð og óskum heitast nú við gætum dáið, systir sæl í sömu trú og þú. Við syrgjum nú, en þökkum þér hve þú varst okkur góð, og ort af hreinni ást til þín er okkar kveðjuljóð. B. J. I Skrifstofu og vörugeymslu okkar verður lokað vegna sumarleyfis 17. til 24. júlí Smith & Uorland h.f. 3/o herb. íbúð Er kaupandi að & Há útborgun í boði Má vera í úthverfi. — Fokheld kemur til greina. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyr- ir sunnudag, merkt: „Góð íbúð — 5027“. H afnarfjörður Mig vantar íbúð til leigu, 2 í heimili. — Vinsamleg- ast hringið í'síma 50518. Bjarni Ágústsson „Með piparmintubragði og virku Cuma- sina-silfri, eyðir tannblæði og kemur í veg fyrir tannskemmdir“. „Sérlega hressandi með Chlorophyll, hinni hreinu blaðgrænu, fjarlægir leiða munn- þefjan“. □ 00 „Freyðir kröftuglega með piparmintu- bragði“. VEB Kosmetik-Werk Gera Deutsche Demokratische Republik.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.