Morgunblaðið - 11.08.1961, Blaðsíða 1
20 siðui
Blaðamannafundur Kennedys:
Friösamlegar
leiðir reyndar
UfanríkisráSherrar Vesturveldanna
i
! Enginn getur verið viss um, oð
| lokað þjóðfélag geri ekki með leynd
j tilraunir með kjarnorkuvopn
. .Washingtön, 10. ágúst —
(NTB-Reuter).
JOHN F. Kennedy, Bandaríkja-
forseti hélt blaðamannafund í
Washington í dag og svaraði síð-
ustu útvarpsræðu Krúsjeffs, for-
sætisráðherra Sovétríkjanna um
Berlínarmálið. Sagði forsetinn, að
fi þeirri ræðu hefði ekkert nýtt
komið fram til lausnar málinu.
Hann lagði áherzlu á, að Krú-
Pjeff hefði látið í ljósi ósk um
viðræður og sagði, að Vesturvald
in yiðu að þrautreyna allar frið-
eamlegar leiðir til lykta þessa
erfiða deilumáls.
Kennedy var spurður hvort
hann áliti rétt að halda fund
eeðstu manna Austurs og Vesturs.
Svaraði hann því til, að það
hefði verið og væri enn skoðun
sín að slíkur fundur væri því
aðeins tii gagns, að hann hefði
verið vel undir búinn áður Og
nokkur vissa fengin fyrir því, að
einhver árangur næðist. Um
mögulegan fund æðstu manna
Framh. á bls. 19
A-Þjóðverjar reyna að
stöðva flóttastrauminn
Vænzt nýrra laga frá a-þýzka
fyinginu i dag
sjálfa sig: — Mikill reginasni
gat ég verið að flýja sósíalism-
ann“.
Ekki var ljóst af ræðu Ul-
brichts hvort hann hyggst tala
á þingfundi á morgun, en á dag-
skrá fundarins er „Atriði varð'
andi friðarsamningana".
Þessi mynd var tekin á
fundi utanríkisráðherra
Vesturveldanna, sem hófst
í Paris sl. laugardag. Þar
var Berlínarmálið m.a. rætt
og framtíð Þýzkalands.
Myndin sýnir (frá vinstri
þá von Brentano, Vestur-
Þýzkalandi, Home lávarð,
Bretlandi, Rusk, Banda-
ríkjunum, og Couve de
Murville, Frakklandi.
Formlego sótt
BRÚSSEL, 10 ágúst (Reuter) —*
Flugvélin rokst
ó ijollshrygg
Ósló, 10. ágúst.
(Reuter/NTB)
SNEMMA í morgun fundu
þyrlur flakið af brezku
flugvélinni, sem fórst í
gærkvöldi í Noregi. Fórust í
með vélinni 34 brezkir /
skóladrengir á aldrinum 1
14—16 ára. Þeir voru í
sumarleyfisferð með kenn-
| urum sínum tveim, er
einnig fórust. Áhöfnin, þrír
menn, fórst einnig.
Flugvélin hafði rekizt á
fjallshrygg í Holtaheia í
Ryfylki og var ekkert lífs-
mark með neinum í flug-
Ívélinni er að var komið.
Brak úr vélinni lá á víð og
dreif.
i Flugslys þetta er hið
J mesta sem orðið hefur í
I Noregi. Annað mesta slys
ft varð árið 1949 er flugvél,
í sem var að flytja Gyðinga
/ böm, rakst á fjall. Fórust
J 33 af þeim 34, sem í þeirri
I vél voru.
| Skólapiltarnir voru allir
i frá Lanfranc-gagnfræða-
J skólanum í Croydon,
I skammt fyrir sunnan Lon-
I don. — Skólastjóri skólans
skýrði fréttamönnum svo
frá í dag, að þetta væri í
fyrsta sinn, sem flugvél
væri notuð í skólaferðum
nemenda og það yrði
aldrei gert framar. ftarleg
rannsókn er hafin á þessu
sorglega slysi.
Berlín, 10. ágúst. (Reuter)
HAFT er eftir áreiðanlegum
heimildum, að austur-þýzka
þingið muni, sennilega á
morgun, setja lög sem hefta
að verulegu leyti ferðir
manna milli A- og V-Berlín-
ar. Mun sú ráðstöfun fylgja
í kjölfar Moskvu-ferðar Ul-
brichts.
Talið er, að gripið sé til þess-
ara ráðstafana — sem ekki er
kunnugt hverjar verða — til
þess að hefta flóttamanna-
strauminn, sem aukizt hefur
gífurlega síðustu daga. í gær
fóru nær tvö þúsund manna yf-
ir landamærin og í dag hafa
verið skráðir 1701. Flóttamanna
straumurinn hefur að sögn
gengið mjög nærri efnabag A-
Þýzkalands, því skortur er orð-
inn mikill á vinnuafli. Ekki er
þó talið líklegt að landamær-
unura verði alveg lokað.
Forsíður austur-þýzkra dag-
blaða eru í dag fullar af frá-
sögnum af vestrænum „hausa-
veiðurum" og „þrælakaupmönn-
um“, eins og það er kallað, sem
ginni Austur-Þjóðverja yfir
landamærin með blekkingum.
Sé algengt orðið, að slíkir
menn séu handteknir í Austur-
Þýzkalandi.
• Ulbriclit talar
Sem fyrr segir eru hinar
væntanlegu aðgerðir yfirvald-
anna taldar afleiðing Moskvu-
ferðar Walters Ulbricht, sem svo
mikil leynd var yfir á dögunum.
Hann kom fram opinberlega fyrst
í dag síðan 31. julí sl. og hélt
ræðu yfir verkamönnum í véla-
verksmiðju nokkuri. Þar sagði
Ulbricht, að nauðsyn bæri til að
Austur-þjóðverjar tækju eitthvað
til bragðs til þess að mæta
„vopna-móðursýki“ Vesturveld-
anna. Hann sagði ennfremur, að
sérstakir friðarsamningar við
Rússland væru nauðsynlegir, til
þess að koma í veg fyrir að
„heimsveldasinnar notuðu Berlín
til styrjaldar fyrirætlana sinna“.
Varðandi flóttamannastraum-
inn sagðist Ulbricht sannfærður
um að margir væru þeir meðal
flóttamanna, sem segðu við
Flugrón reynt
— 3 menn
drepnir
HAVANA, Kúbu, 10. ágúst —í
(Reuter) — Andstæðingar/
Fidels Castros urðu þrem I
mönnura að bana í gær, erl
þeir reyndu að ræna kúb-1
anskri flugvél. Sex manns
særðust að auki.
Flugvélin var á flugi frá
Havana til Furueyja þegar
ránstilraunin var gerð. Flug-
maður vélarinnar hafði neit-
að að opna hurðina að flug-
stjórnarklefanuim fyrir nokkr\
um mönnum er kröfðust þess,
að hann sneri til Miami í
Florida og hófu þeir þá skot-
hríð. Flugmaðurinn lézt af
skothríðinni og tveir aðrir
menn, er reyndu að afvopna
árásarmennina. Aðstoðarflug-
maður nauðlenti nokkru síðar
og voru mennirnir þá hand-
teknir og færðir í fangelsi.
• Nýjar kröfur
um átök þjóðarinnar.
Ulbricht vék í ræðu sinni að
frekari „ráðstöfunum" sem gera
þyrfti í sambandi við þá íbúa
Frh. á bls. 2
VEGNA hinnar röngu stjórn
arstefnu, sem Iengi ríkti hér-
lendis, höfum við íslendingar
dregizt aftur úr í hinni öru
þróun til bættra lífskjara,
sem hvarvetna hefur ríkt í
nágrannalöndunum. — Við-
reisnarstjórnin hefur gert
stórátak til að reisa við fjár-
hag landsins og tryggja það
að framfarir verði héðan í
frá ekki minni en í öðrum
frjálsum löndum.
Eftir skemmdarverk komm
únista og Framsóknarmanna
í sumar var óhjákvæmilegt
að skrá gengi íslenzku krón-
unnar rétt að nýju, svo að
við einangruðumst ekki á ný
frá þeim löndum, sem búa
við traustan og heilbrigðan
Bretland sótti formlega í dag um
upptöku í Efnahagsbandalag
Evrópu. Tveim stundium síðar
sóttu Danir um upptöku og þess
var vænzt að írland, og ef til vill
einnig Noregur, myndu gera slíkt
hið sama síðar í dag.
efnahag. — Framundan er
mesta framfaratímabil í efna
hagssögu Vestur-Evrópu og
óhjákvæmilegt er fyrir Is-
lendinga að taka þátt í hinu
efnahagslega samstarfi. Hins
vegar værum við óhlutgeng-
ir í allri slíkri samvinnu, ef
við ekki hefðum manndóm
til að búa við trausta og
styrka efnahagsmálastefnu.
íslendingar þurfa að
sækja hratt fram til bættra
lífskjara og þorri þjóðarinn-
ar gerir sér grein fyrir því,
að það verður aðeins gert
með því að fylgjast með
þróun þeirri, sem á sér stað
hvarvetna í kringum okkur.
Þess vegna er ekki lengur
Frh. á bls. 2
Þjóðin vill stór-
stígar framfarir
Hafnar pólitiskum strandaglópum