Morgunblaðið - 12.08.1961, Blaðsíða 2
2
MORGVIVBLAÐIÐ
Laugardagur 12. ágúst 1961 '
I
Forsætisraðherrann,
sem sveik allt
Segir nú að halda beri „samninga
við kjósendur" l
TILVERA lýðræðislegs þjóð-
félags byggist á samningum.
Samningar r ýmsum myndum
eru grundvöllur lýðræðisskipu
lagsins. Kosningar eru samn-
ingar milli frambjóðenda og
kjósenda. Þá samninga ber
stjórnmálamönnunum að
halda.
Hvaða maður var það sem
mælti þessi orð?
Hann heitir Hermann Jón-
asson. Það er maðíurinn, sem
sumarið 1956 myndaði vinstri
stjómina. Þá lofaði hann kjós-
endum því að létta af þeim
sköttum, lækka dýrtíðina, út-
rýma verðbólgunni, leysa öll
efnahagsvandamál í samræmi
við óskir verkalýðssamtaka
og launþeganna, tryggja land-
inu farsæla og samhenta ríkis-
stjóm, sem stjórnaði fyrst og
fremst með hagsmuni „almúg-
ans“ fyrir augum.
Hvemig hélt Hermann Jón-
asson þennan „samning við
kjósendur“?
Þannig að hann lagði 1200
millj. kr. í nýjum sköttum á
ári á þjóðina enda þótt laun-
þegasamtökin hefðu sagt að
aldrei mætti leysa vandræði
bjargræðisveganna með nýj-
um skattaálögum. Hann
hleypti verðbólgunni lausbeizl
aðri eins og óargadýri á al-
menning. Dregið var að mikl
um mun úr verklegum fram-
kvæmdum, m.a. var rafvæð-
ingaráætlunin svikin og stór-
lega dregið úr raforkufram-
kvæmdum í sveitum. Gengi
isl. krónu var stórfellt, en sú
ráðstöfun var dulbúin með víð
tæku styrkja- og uppbóta-
kerfi.
Ekkert samráð var haft við
verkalýðssamtökin um þessar
ráðstafanir í efnahagsmálum,
enda var niðurstaðan sú að
þing Alþýðusambands tslands
neitaði að framlengja líf
vinstri stjórnar Hermanns Jón
assonar í nokkrar vikur með-
an lokatilraun væri gerð til
þess að ná samkomulagi innan
stjórnarinnar um nýjar ráð-
stafanir í efnahagsmálunum.
Þegar þannig var komið
neyddist Hermann Jónasson til
þess að lýsa því yfir frammi
fyrir alþjóð, að innan stjómar
hans væri engin samstaða um
úrræði til þess að leysa vand-
ræðin. Þar væri hver höndin
uppi á móti annarri. Að svo
búnu sagði Hermann Jónasson
af sér og vinstri stjórninni.
Hann hafði þá svikið öll þau
fyrirheit, sem hann gaf i kosn
ingunum 1956 og við myndun
vinstri stjórnarinnar þá um
sumarið.
Nú kemur þessi maður og
segir á fundi í Framsóknar-
félagi Reykjavíkur: Það má
ekki svíkja samninginn við
kjósendur! Stjórnmálaflokk-
um ber að efna fyrirheit sín!
Getur íslenzka þjóðin tekið
minnsta mark á orðum þessa
manns?
Sannarlega ekki. Forsætis-
ráðherra vinstri stjórnarinnar
sveik allt. Hann sveik alla
samninga sína og fyrirheit við
kjósendur, önnur en þau að
reyna í lengstu lög að ein-
angra Sjálfstæðisflokkinn í ís
lenzkum stjómmálum. Það fyr
irheit sitt reyndi hann í líf
og blóði að halda. En kjósend-
urnir, almenningur í landinu,
tók ráðin af honum. Getuleysi
hans sjálfs, svik hans á öllum
samningum og vantraust ísl.
kjósenda sópuðu honum og
vinstri stjóra hans burtiu og
fengu Sjálfstæðisflokknum for
ustuuna. Traust þjóðarinnar á
forsætisráðherra vinstri stjórn
arinnar hefur ekki aukizt síð-
an. Það er þvert á móti alltaf
að minnka.
Verða riú að rœsa
fram Vaðlaheiði
Land milli sjávar og heiðar á þrofum
á Svalbarðsströnd
I Svalbarðsstrandarhreppi við
Eyjafjörð er sennilega bezt nýtt
jörð á íslandi, en þar em á 14
kílómetra löngu svæði 30 býli.
Jóhamr?s Laxdai hreppstjóri í
Tungu leit inn á skrifstofur Mbl.
í gær og skýrði nokkuð frá bú-
skap bænda i Svalbarðsstrandar-
breppi.
Að eins eru 14 km endanna á
milli í hreppnum, en á þessu
svæði eru 30 bændur, og hefur
hver bóndi 15,2 hektara af túni
til jafnaðar. Miðað við 1960 er
heyuppskeran 870 hestar af töðu
á hvert býli, en engjar hafa ekki
verið nýttar hin síðari árin.
Skepnur allar lifa á ræktuðu
landi, utan sauðféð þrjá mán-
uði á sumri. Til jafnaðar hefur
hver bóndi 15 kýr og fimm geld-
neyti, og er mjólkurinnlegg
hvers bónda 35,600 lítrar til jafn-
aðar á s. 1. ári. Tekjur bænda af
fjárbúskap eru 1% lamb, eða 23
kg af kjöti eftir ána.
Mikil kartöflurækt er á Sval-
Harður árekstúr
í Norðurárdal
Kona skerst í andliti
BORGARNESI 11. ágúst. — Um
klukkan fimm síðdegis á fimmtu
daginn varð harður árekstur
milli bílanna R 10625 og E 375 í
svonefndu Hvammsleiti fyrir
neðan Hvamm í Norðurárdal, en
þarna er afleit blindbeygja. Er
Reykjavikurbíllinn suarhemlaði
t- hann varð vur ferða hins
bílsins, vildi svo óbeppilega til
að farangursgrlnd á þaki bilsins
losnað, og rann fram af þakinu,
þannig að hún byrgði ökumanni
sýn.
Rákust bílarnir á, og með
þeim afleiflingum afl farangurs-
i grindin kastaðist á rúðu Akranes
bílsins, og braut hana. —
Kona bilstjórans á Akranesbíln-
um, Margrét Einarsdóttir skarst
illa í andliti við áreksturinn.
Læknir og sjúkrabíll voru
kvaddir til frá Borgarnesi. og
komu þegar á vettvang. Gerði
læknirinn að sárum Margrétar,
sem síðan var flutt í sjúkrabíln-
um á sjúkrahúsið á Akranesi til
frekari aðhlynningar.
Þess skal getið, að vegurinn er
mjög viðsjárverður á þessum
slóðum, blindhom með kletti á
aðra hönd en Norðurá á hina.
Hafa orðið þarna margir slæmir
árekstrar. — Hörður.
barðsströnd, og var meðalfram-
leiðsla kartafla á býli um 200
tunnur s. 1. ár.
Ræst fram í heiðinni
Nýting landsins verður að telj-
ast mjög góð, enda er nú svo
komið, að mörg býli hafa rækt-
að hvern skika neðan girðingar
er skiftir heimalöndum og afrétti
og verða nú að fara að ræsa fram
x heiðinni sjálfri. Búaukningin
verður því í framtíðinni að byggj
ast á ræktun heðalandanna.
Skurðgrafa vann í hreppnum
s. 1. ár og í sumar og væntanlega
verður hún búin með eina umferð
um sveitina nú í haust. Er þá
grafið í heiðalöndum, og annars-
staðar lokið framræslu heima-
lands. Skurðgröfuna á ræktunar
samband Svalbarðsstrandar og
Grýtubakkahrepps, og með henni
vinnur Vilhelm Þórarinsson, einn
snjallasti skurðgraftrarmaður
landsins. Ræktunarsambandið á
einnig tvær beltavélar, sem vinna
hjá bændum, en þeirra eigin véla
kostur er nú orðinn mjög góður,
tvær dráttarvélar á bæ og tæki
við þær hin fullkomnustu til
ræktunar túna og garða, og til
heyskapar. Súgþurkun á heyi er
á flestöllum jörðunum.
Ekki lítur vel út með sprettu
garðávaxta í sumar, en getur þó
úr rætzt, ef ekki koma frost til
skaða fyrir miðjan september.
— Vopnahlé
Frh. af bls. 20.
byrjaði, hefði ýmsum aðgerðum
þjóðernissinna — allt frá vopn-
uðum árásum til skemimdar-
verka af ýmsu tagi — farið fjölg
andi og þær orðið að meðaltali
37 á sólarhring í stað tuttugu áð-
ur.
Fyrstu viðbrögð Frakka.
Ákvörðunin um að binda enda
á vopnhléð eru fyrstu viðbrögð,
sem franska stjórnin tekur opin-
berlega, eftir að slitnaði upp úr
viðræðum fulltrúa hennar og als
írskra þjóðernissinna við Evian,
en það var í síðastliðnuim mán-
uði.
A NA /S hnúiar / SV 50hnútar ¥ Snjókoma 9 Ú6i 7 Skúrir lí Þrumur mitit Kuklatkil ^ Hihski! H.Hmt | L‘I * * * * & LœgB |
Lægðin yfir Grænlandshafi
hreyfðist fremur hægt ANA
í gær, en ný lægð SV af Græn
landi fylgdi á eftir, og eru
því horfur á, að sunnanáttin
haldizt áfram. Ekki hefur hún
þó fært Norðlendingum þurrk
ennþá, en ágætt veður var á
síldarmiðunum í gær. Allmik-
ið þrumuveður var yfir Ermar
sundi á leið Loftleiðavélar,
sem var á flugi til Luxemburg.
Úlóöur maður raskar
friði á Hveravölium
Þ Ó T T viða hafi verið róstu-
samt úti um land á þeim stöð-
um, þar sem ferðalangar gista
í sumarferðum sínum, hafa þó
sæluhús Ferðafélags Islands
hingað til verið friðhelgur
griðastaður þeirra, sem vilja
njóta sumarleyfisins í kyrrð og
næði. Út af þessu brá þó í vik-
unni, þegar drukkinn maður
spillti næturró fjölda manns í
sæluhúsi félagsins á Hveravöll-
i^m. —.
Að kvöldi miðvikudags 9.
ágúst hafði margt fólk tekið sér
gistingu í sæluhúsinu. Þar voru
10 Englendingar, 2 Þjóðverjar,
tvenn hjón með börn sín (ann-
ar eiginmaðurinn enskur), tvær
stúlkur frá Ferðaskrifstofu rík-
isins, sem áttu að undirbúa mót-
töku gesta á vegum skrifstof-
unnar daginn eftir, og bílstjóri
frá skrifstofunni. Auk þeirra
voru tveir íslenzkir menn, og
var það annar þeirra, sem
spillti næturró ferðalanganna.
Hinir tveir síðastnefndu héídu
sig í herbergi yfir eldhúsinu.
Kl. 3 um nóttina vakna aðrir
gestir við talsverðan hávaða úr
herbergi þeirra. Var annar
þeirra með drykkjulæti, skamm
aði félaga sinn blóðugum
skömmum og lamdi í þilin, en
hinn reyndi að róa hann.
Ágerðist hávaðinn smám sam-
an, og varð kvenfólkið hrætt,
vegna þess að sá drukkni spurði
sífellt um eldspýtur og leitaði
að þeim, svo að sumir óttuðust
að hann ætlaði að kveikja í.
Einn Islendinganna fór nú upp
og reyndi ásamt félaga hins
ölvaða að róa hann, en ekki
tókst þeim það. Heimtaði hann
nú hástöfum vín, kvenfólk og
eldspýtur, og hafði um það stór
orð og ill. Kvenfólkið var nú
orðið órólegt, enda vissi ein
stúlknanna til þess, að. hinn
drukkni gat orðið mjög ill-
skeyttur með víni. Kom hann
ofan í eldhúsið og hélt þar
áfram ferlegum drykkjulátum,
sem stöðugt jukust. Var honum
einkum í nöp. við félaga sinn,
sem gerði allt, sem í hans valdi
stóð til að sefa hann. Að lokum
var ástandið orðið slíkt, að
ákveðið var að færa manninn
út fyrir. Gerði það íslendingur.
Þar gerðist maðurinn algerlega
ölóður og reyndi að brjótast inn
í húsið aftur. Er ekki að orð-
lengja þá ljótu sögu, að í einn
og hálfan tíma urðu margir
menn, íslenzkir og útlenzkir, að
glíma við manninn og halda
honum. —. Menn skirrtust I
lengustu lög við að ganga hart
að honum, en reyndu að róa
hann með vatnsböðum og um-
tali, en ekkert dugði. — 1
áflogunum tókst manninum,
sem er heljarmenni að burðum,
að losa framtönn úr félaga sín-
um og rífa föt hans. Að þessum
tíma loknum, var svo dregið af
manninum, að hægt var að
troða honum inn í eigin bíl, og
þar sofnaði hann um síðir. Þar
lá hann til hádegis næsta dags,
og urðu ekki frekari spell að
honum.
Það er óneitanlega slæmt, að
einum manni skuli takast að
„terrorisera“ heilan hóp frið-
sælla ferðamanna, innlendra og
erlendra, og leiðinlegt, að sá at-
burður skuli hafa orðið í sælu-
húsi F.Í., sem ávallt hefur tek-
izt að halda húsum sínum
„hreinum".
Fimm tíma umferðar-
teppa á Vaðlaheiði
Akureyri í gærkvöldi.
Á FIMMTA tímanum í dag fór
stór vöruflutningabíll frá Reykja
vík út af veginum við Geldings-
árbrú í vestanverðri Vaðlaheiði,
en bíllinn flutti 6—7 tonn af rör-
um og járni, sem átt.u að fara til
Seyðisfjarðar. Skagaði bíllinn inn
á veginn, og tafðist umferð um
heiðina til klukkan rúmlega tíu
í kvöld.
Vöruflutningabíllinn var að
mæta bíl við brúna, er vegar-
brúnin gaf skyndilega eftir.
Stóð bíllinn þar fastur og skagaði
hálfur út á veginn, þannig að að-
eins minnstu bílar komust fram
ihjá.
Ekki tókst að ná bílnum upp
fyrr en klukkan rúmlega tíu í
kvöld, og safnaðist fyrir fjöldi
bíla, sem ekki komst framhjá.
Tveir stórir trukkar og kranabíll
voru fegnir til að draga vöru-
fiutningabílinn upp. Voru festir
vírar í hann, og héldu trukkarnir
við, þannig að bíllinn ylti ekki,
en kranabíllinn lyfti honum síðan
upp á veginn.
Þegar fréttaritari Mbl. kom að
um tíuleytið biðu 26 bílar við
brúna, ýmist á austur eða vest-
urleið. Þar á meðal var Húsa-
víkuráætlunarbíllinn, með alla
sína farþega, og hafði hann þó
lagt upp frá Akureyri klukkan
fjögur. — St. E. Sig.