Morgunblaðið - 12.08.1961, Blaðsíða 6
MORCTJNJtr 4 ÐIÐ
Laugaridagur 12. ágúst 1961 >
Danir búa sig undir
Allsherjarbing SÞ
Per Hækkerup formaður dönsku
sendinefndarinnar
rnmœww&'''?/ ' ' ■*"*?■<&$ niMoroj
„POLITIKEN“ segir frá því
um síðustu helgi, að Per
Hækkerup, talsmaður sósíal-
demókrata á þingi Dana,
verði formaður dönsku sendi
nefndarinnar á Allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna,
sem hefjast mun um miðjan
september nk. Þá er talið út-
lit fyrir að danskur fulltrúi
verði valinn til formennsku í
einni af fastanefndum þings-
ins. —
Jens Otto Krag mun verða að-
alleiðtogi Dana á allsherjarþing
inu, meðan hann tekur þátt í
störfum þess, en það mun ekki
verða nema 4 fyrstu vikurnar.
Að svo búnu tekur Hækkorup
við. — Fyrirrennari Hækkerups
á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna er Ernst Christianeen, fyrr
um ráðherra, sem nú er orðinn
sjötugur.
fy
rir
1000 króna
verðlaun
upplýsingar
Aðfaranótt sl. Iaugard. var
brotizt inn í kjallara húss-
ins nr. 23 við SkóJavörðu-
stíg. Þar var stolið græn-
um yfirhimni úr stóru tjaldi,
en tjaldið sjálft skilið eftir.
Tjaldsúlurnar, sem voru úr
léttmálmi — alúminíum —,
og öllum hælum var einnig
stolið. Þá hurfu ennfremur
2 prímusar, nýir skíðaskór,
tvenn veiðistígvél o. fl.
Nú héfur sá, er stolið var
frá, heitið þeim 1000 króna
verðlaunum, er gæti gefið
rannsóknarlögreglunni ein-
hverjar þær upplýsingar,
sem leitt gætu til þess að
hann fengi eigur sinar aftur.
Síldarflufn-
ingaskip
Gert hafði verið ráð fyrir því að
fyrsta síldartökuskip Rússa að
sækja síld upp í samninga þá, er
þeir hafa gert við síldarútvegs-
nefnd, kæmi um miðjan mánuð-
inn, og hæfi hleðsluna á Aust-
fjörðum. f gær tilkynnti Síldar-
útvegsnefnd, að fyrsta skipið
myndi ekki koma fyrr en upp úr
26. ágúst, Og er það talið ekki
óhagstæðara með tilliti til þess
að þá verður síldin, sem söltuð
var fyrst á Austfjörðum, orðin
fullverkuð, en eins og kunnugt
er, talið að hún þurfi að vera
a. m. k. fimm vikna gömul í
salti.
Hinn nýj sendinefndarformað-
ur Dana hefur um árabil haft af-
skipti af alþjóðamálum, einkum
með þátttöku í fundum Evrópu-
ráðsins og þingmannasambands
AtlantshafsbandalagBins.
Danskur lögfræðingur
í fjárhagsnefnd.
Ennfremur segir „Politiken"
frá því, að Danir muni gera til-
lög um Hermod Lannung, lög-
mann við landsréttinn, sem for-
mann fjárhagsnefndar allsherjar
þingsins. Enn sé ekki vitað um
neinn keppinaut um þá stöðu og
fari svo, að Lannung verði kjör
inn, geti hann einn manna stát
að af því að hafa gengt for-
mennsku í 3 fastanefndum þings
ins.
Þess er getið að fyrir fjárhags
nefndina muni koma ýmis erfið
vandamál, m.a. hvernig fá megi
aðildarþjóðimar til að taka þátt
í greiðslu kostnaðar af aðgerð-
um SÞ í Kongó, en auk kommún-
istaríkjanna hafa Frakkar lí'ka
neitað að greiða einn einasta
eyri. „Politíken" segir að það sé
því vandasamt starf, sem bíði
hins danska formannsefnis, ef
allt fer sem horfir. Það megi þó
einnig hafa í huga, að hér sé um
að ræða áhrifastöðu, sem skapi
m.a. tækifæri til að hafa bein
áhrif á dagskrá allsherjarþings-
ins, sem undirbúin er af for-
mönnum hinna 7 fastanefnda
þingsins ásamt varaforsetum
þess.
Skátarnir með vírdræsu á heyvagni. Ökumaóur er Páll Zóphaníasson.
Skátar að
verki
REYKJUM, Mosfellssveit, í júlí:
— Svo sem kunnugt er af blaða-
fregnum frá I vor, hefur fé iðu
lega festzt í vírum og slasazt
stórlega, eða hlotið hægan, hrylli
legan dauðdaga.
Hér er um að ræða vírflækjur
frá hernámstímanum, bæði gadda
vír og símavír — en því miður
einnig girðingar umhverfis sum-
arbústaði, sem hafa lent í van-
hirðu.
Er þetta komst í hámæli,
bauðst flokkur skáta til að koma
Og hreinsa til á verstu svæðun-
um. Hreppsnefnd Mosfellshrepps
sá um flutning skátanna en Bún-
aðarfélag hreppsins útvegaði öku
tæki og fleira.
Skátarnir unnu af kappi einn
dag og drógu feikna-dræsur af
gaddavír á afvikinn stað, þar
sem hann var grafinn í jörð. Þá
hefur skátaflokkur boðizt til að
koma aftur, og er þá helzt áform
að að safna saman símavír, sem
mjög mikið er af, einkum í
námunda við Lyklafell á Mos-
fellsheiði, en þar mun hafa verið
símastöð hersins á stríðsárunum.
Þaðan liggja línur í allar áttir
og skapa hættu fyrir búsmalann.
Eiga skátarnir þakkir skyldar
fyrir áhuga sinn á þessu máli. ,
- J.G. ’ (
Eftirsótt óhyggðaferð
EINS og skýrt var frá í fréttum
fyrir helgina mun Hið íslenzka
náttúrufræðifélag efna til
fræðslu- og skemmtiferðar að
Tungná, Þórisvatni og Veiðivötn
um dagana 16.—20. þ.m. Sam-
kvæmt upplýsingum, sem Mbl.
fékk í gær, höfðu þá rúmlega
tvöfallt fleiri en gert var ráð
fyrir að tækju þátt í ferðinni,
óskað eftir að komast með í
hana — éða alls um 110 manns.
Af þessari ástæðu hefur verið
ákveðið að fara aðra ferð á
sömu slóðir helgina á eftir, þ.e.
25.—27. ágúst. Þrátt fyrir þessa
ráðstöfun er allt þegar upp-
pantað og fleiri verða ferðirnar
ekki að sinni. — Upplýsingar
eru annars veittar í vinnustofu
Náttúrugripasafnsins, en þar eru
símar 12728 (ekki 12727, eins og
misritazt hefur) og 15487.
• Gakktu hægt um
m^ammmmwmmmmammmmmmmmmmmmmm*
gleðinnar dyr
Helsta hátíðarhelgi sumar-
sins er nú afstaðin og varpa
margir öndinni léttara. Veizlu
glaumurinn var ekki minni
í ár fremur en undanfarið,
nema síður væri. Velvakandi
amast aldrei við veizluhöldum
né mannfagnaði ýmiskonar og
telur slíkt gjarna til hinnar
beztu gleði og dægradvalar.
Það er þó ekki sama hvernig
til er stofnað. Ef ekki er ein-
göngu stefnt að bví að gleðja
sjálfan sig og aðra, þá er
hvorki um hátíð eða veizlu að
ræða. Samhlaup manna, ungra
og aldinna, sem fleyta brenni
víni ofan í sig úr stömpum
og ganga síðan berserksgang
á eftir, rekandi upp dýrsleg
öskur, gjarna berir að ofan,
misþyrmandi mönnum og mun
um, það er hvorki hátíð né
veizla, það er nautaat, frum-
stæð fórnarhátíð, villi-
mennska.
Þetta er pistill Velvakanda
nú eftir verzlunarmannahelg-
ina. Þessa helgi nota fjölmarg
ir til ferðalaga og er gjarna
safnast saman á fögrum stöð-
um, notið útsýni og veður-
blíðu og síðan stiginn dans.
þá syrtir venjulega í álinn og
upp hefst svall og svínarí, sem
öllum hlýtur að ofbjóða,
nema þeir séu áður mettaðir
af spírítus, með augun dofin,
sem drukkin í laugu. Þetta hef
ur endurtekið sig ár eftir ár á
Laugarvatni, Vaglaskógi,
Hreðavatni. í minni stíl í Þórs
mörk, Bjarkarlundi og svo
mætti lengi telja. Velvakanda
er aðeins kunnugt um einn
stað, þar sem fólk heldur há-
tíð í þess orðs réttu merkingu.
Það er þjóðhátíð Vestmanna-
eyinga.
• Allt æskunni
að kenna?
Það er orðin regla, að eftir
þessa helgi upphefst í blöðum
mikið níð og rógskrif um æsku
landsins og allt, sem ekki er
til fyrrmyndar skrifað á henn
ar reikning. Velvakandi hef-
ur þó heyrt, að slíkar drykkju-
samkundur hafi verið haldn
ar hér áður fyrr, allt frá alda
mótum, svo ekki sé leitað langt
yfir skammt. Fyrir stríð lögð
ust menn oft í hópdrykkjur
á Þingvöllum og Laugarvatni.
Og að lokum má nefna réttar-
dansleiki, sem tíðkast hafa
lengi og oft hafa lítið gefið
til fyrirmyndar skrifað á henn
eftir verzlunarmannahelgi. Er
fordæmið ef til vill þaðan?
• Hver er orsökin?
Hvað veldur því, að fs-
lendingar geta ekki safnazt
saman án þess að allt fari í
FERDIMAMI*
•Copyright P. I. B. Box 6 Copenhagen
72/0
- V i
handaskolum. Menn geta ekki
dreypt á víni, jafnvel tölu-
vert, og leikið síðan við hvern
sinn fingur á eftir. Er það
fyrst og fremst vegna pukurs
þess, sem lengi hefur einkennt
alla vinsölu hérlendis.
Landinn er alinn upp
í þeim móral, að ef
hann hefur flösku milli
handanna, þá sé vissara að
renna sem fyrst út úr henni,
áður en einhver annar^ gerir
það, því þá er ekki hlaupið
að því að endurnýja birgðirn-
ar, ef maður er t. d. staddur
í Þórsmörk.
Velvakandi er með þessu
ekki að mæla með því, að
vínbúð sé opnuð í Þórsmörk,
en aðeins að benda á þá aug-
Ijósu staðreynd, að hömlur
þær, sem áfengislöggjöfin
býður, eru aðeins til þess að
æsa upp þorstann í mannskapn
um og herða á svínaríinu.
• Eitur
Þegar æskumaður drekkur
sig skjóðufullann um verzl*
unarmannahelgina, þá .er það
oft vegna þess að vín er vand
fengið og hann er mikill kall,
ef hann getur sannað fyrrver
andi víneign sína með ölæð.
inu. Þessi æskumaður veit
ekki, hvemig á að umgangast
vín. Honum er sagt einu sinni
á ári, á bindindisdeginum i
skólanum, að brennivín sé eit-
ur. Annarri fræðslu er hon-
um ekki miðlað. Hana
fær sér vín og þykir
það gott. Þegar það merki-
lega skeður, að hann lifir
eitrið af, þá afskrifar hann á
stundinni allt fjas bindindis-
postulanna.
Þetta er eitt dæmi um mis-
heppnaðan bindindisáróður og
hugsanlegar afleiðingar hans.
Væri ekki rétt að taka þessi
mál raunhæfari tökum. Lög-
regluþjónar og bindindisof-
stæki leysir aldrei neitt áfeng-
isböl. Ekki heldur stóryrt
svargrein gegn Velvak<uida J
„Nútímanum"