Morgunblaðið - 16.08.1961, Page 8

Morgunblaðið - 16.08.1961, Page 8
8 MORGVTSBLAÐIÐ MiðviKudagur 16. ágúst 19i Áfram veginn ÞAÐ þótti í eina tíð mikil virð-' ing að vera bílstjóri, engu minni en nú þykir að vera flugstjóri — þó hann kunni að missa ljóm- ann fyrir geimfaranum innan tíðar. Það var litið upp til þeirra, sem stjórnuðu bílnum, þessu tækniundri, stigu öruggt á „high“ og „low“ og bremsuðu þegar það átti við — fyrir utan stýr- ishjólið sjálft og alla takkana, sem handleika varð. Það var þá, fyrir 25 til 30 ár- u>m, sem margan unglinginn dreymdi um að verða bílstjóri, þó í draumnum væri varla falið að eignast sinn egin Kadilakk eða 10-hjóla trukk. Nú er bíllinn að verða nauð- syn og bílpróf ekkert til að þykj- ast af — frekar vekur það at- hygli ef einhver hefur ekki bíl- próf. Hjá mörgum er bíllinn orðinn gagnslaust gaman, hjá öðrum fordild eða þægilegur ávani. Sá hópur er þó fjölmennur, sem hefur bílinn að atvinnutæki, og þá verður aksturinn á stundum ekki gaman eitt, og athyglin, sem bíl og bílstjóra er veitt, er oftast fyrir meintar ávirðingar í umferðinni. * ★ Fyrr röskum 30 árum var Ólaf- úr Ingibersson, ungur maður, duglegur og áræðinn, að ljúka bílprófi, s*m var númer 56 í Gullbringu og Kjósarsýslu hann var þá 17 ára og fékk undanþágu til að keyra uppskipunarbíl fyrir föður sinn. Síðan var haldið á- fram, þegar aldur og réttindi leyfðu og lögð áherzla á lang- ferðir — vöruflutninga til og frá Reykjavík. Nú hefur Ólafur Ingi- bersson eingöngu stundað þá flutninga í 25 ár samfleytt og ekið 300 sinnum að meðaltali á ári hverju, á milli Keflavíkur og Reykjavikur ásamt ótal hring- um á báðum leiðarendum — það svarar til 40 þúsund kílómetra á ári eða liðlega hringinn í kring- um jörðina — á þessum 25 árum hefur Ólafur ekið miljón kíló- metra, fram og aftur um þenn- an sama vegarspotta, og er þá ekki talið með þó hann skreppi aftur í bæinn að kvöldi, til að sjá spennandi kappleik eða þess háttar. — Ef Ólafur hefði stýrt út í gei-minn fyrir 25 árum væri hann búinn að fara sem svarar þrisvar sinnum til tunglsins. — Margt getur hent á langri leið, þó hún sé farinn um sama veg- inn — þessvegna er rabbað við Óla Ingibers, á meðan yngstu krakkamir tína pakka og pjönk- ur af stórabílnum inní Ingimund- arbúð, svo er setið í að næstu búð, og Ólafur spurður um hvemig þetta mikilvæga þjón- ustustarf, — vöruflutningar til og frá Keflavík — hafa þróast gegnum þessi liðnu 25 ár. — Ég byrjaði á þurrum bein- um og dragnótafiski og svo til baka vörur fyrir verzlanirnar og einstaklinga. Fastar daglegar ferðir komust ekki á fyrr en 1935, en nú eru þær orðn-ar fleiri. — Það var mikil vinna við þessa flutninga, bílstjórinn vann við hleðslu og losun, það voru 20 krónur fyrir hausa og fisk inneftir, en 12 krónur fyrir tonn- ið suður og komst niður í 8 krón- ur. — Nú er venjulegt flutn- ingsgjald 240 krónur á tonn og er alltaf að smáhækka. — Hvernig var starfsdagurinn? — Oft var hann nokkuð lang- ur. Þegar ýsu var smalað á ver- tíð til flutnings inní Reykjavík, því þangað fór öll ýsan, þá var byrjað að safna þegar fyrsti bát- urinn var búinn að gera að, sem var oft ekki fyrr en um 7 til 8 leytið og m síðaflH ekki búinn fyrr I «1 2 urgl #*tina. Þá varð ftt taggja M fyuA inneftir klukkan 5, því ýsan varð að yera komin inneftir um 7 leytið til sölu í bænum. — Það var sjaldan minna en 2 tímar hvora leið, þá var vegur inn mjór og hlykkjóttur og víða lítið sléttari en hraunið í kring, og svo varð að bíða og bakka á annari hverri beygju. — — Hvernig var svo vöruflutn- ingunum frá Reykjavík hagað og vörusöfnun þar? — Ég fékk fullar hendur af miðum, með skilaboðum og pönt- unum og sendiferðum í allar átt- ir. Stundum átti ég sjálfur að ráða innkaupum á ótrúlegustu hlutum, allt frá saumamaskínu- nálum uppí hjónarúm. — Það var kallað til mín — Kauptu fyrir mig, Óli — Mig vantarl Ólafur Ingibersson og fjölskylda — Marta Xeitsdóttir kona hans og 10 mannvænleg börn. V í vagniniim ek ég... Milljón kílómefrar milli Kefla- víkur og Reykjavíkur — Eitt dekk kostar nú tvö bílverð. Ólafur Ingibergss. við bílinn. — Hvernig hefur gengið að fá bíla til endurnýunar? — Sæmilega vel að fá leyfin með aðstoð margra góðra manna, bæði í Keflavík og á meðal þeirra sem leyfin veita, en þegar leyf- in voru fengin tóku aðrir örðug- leikar við — að afla síhækkandi krónutölu — og 10 barna faðir hefur ekki mikinn afgang eða lánstraust — það var helst Guð- mundur minn í Sparisjóðnum, sem leit á krakkana sem merki um dugnað, sem hægt væri að treysta og hljóp oft undir bagga. — Einusinni borgaði Elías Þor- steinsson út fyfir mig einn bíl- inn — það var 1941 — það kom sér vel og ég gat borgað það aftur. — Jú, það þarf að hafa stór- an bíl fyrir stóra fjölskyldu. Sá elsti af okkar 10 börnum er nú orðinn 26 ára og við Marta sam- anlagt 93 ára — þetta eru dugn- aðar krakkar, sem ég er ánægður með, enda ekki alin upp við neitt dekur eða lúxus. — Við bjuggum í 19 ár á loftinu í þrem ur herbergjum undir súð — við voru einusinni 7 í sama herberg- inu — en nú er ég talinn eiga Miðtún 1, gamla íbúðin kæmist fyrir í stofunni þar! — Hefurðu ekki lent í erfið- leikum í þessum 7500 ferðum hér á milli? — Jú stundum, þegar snjór og ófærð var á veginum. Ég hefi| verið lengst á leiðinni innanað. í 24 tíma — þá var vestan rok og bylur. Við vorum nokkrir í samfloti og urðum að gista á Ströndinni til og frá. — Það var í febrúar 1936, sem ég átti kulda- lega ferð. Ég fór frá Keflavík seint um kvöld í suðaustan roki °g byl. Ég var þá með hrogna- tunnur, sem þurftu að komast í skip og var þetta önnur ferðin þann daginn. Ég komst við ill- an leik innundir Hvaleyrarholt, og þar stoppaði bíllinn, eftir að hafa í 5 tíma þrælazt allar vetr- arbrautir og útí hraun. Unglings- drengur var með mér þessa ferð og urðum við að ganga þar frá bílnum — þá var okkur kalt. —- Ég vakti upp mann við Illu- brekku í Hafnarfirði, sem ég vissi deili á — það var Sigurður Valdi- marsson smiður. Ég hafði keyrt lítilsháttar fyrir hann áður — og þar var okkur tekið eins og glat- aða syninum forðum. — Oft hefur maður verið 8 til 10 tíma á leiðinni og oft gist í tukt- húsinu í Hafnarfirði — ekki sem fangi — heldur sem hrakinn og veglaus ferðamaður sem skotið var skjólshúsi yfir. — — Á þessum 25 árum hefi ég sem betur fer aldrei farið útaf, ekki hvolft eða valdið slysum á öðrum. — Ég hefi nefnilega ver- ið svo lánsamur í lífinu bæði heima og að heiman. — — Hvernig hafa viðskiptamenn irnir verið hér í Keflavík? — Þeir hafa allir verið prýði- legir. Sumir hafa skammazt, þeg- tappa í vask, svo sem sona stór- an — Ég á afmæli á morg- un, kauptu fyrir mig —Stund- um sögðu þessar líka fallegu frúr, — viltu gera svolítið fyrir mig, Óli? — Nú þetta er mín vinna og ég vil gera það sem ég get. Þeir eru orðnir ótrúlega margir staðirnir, sem ég hefi átt erindi til. — Ég kynntist mörg- um góðum strákum í afgreiðsl- iim heildverzlananna, en nú eru þeir flestir orðnir heildsalar sjálf ir og segja nýjum afgreiðslu- mönnum að láta hann Óla taka eða hitt. — Útgerðarmennirnir voru stund um erfiðir. — Ég borðaði oftast á Vik og það vissu allir — þeir þurftu svo oft á ýmsu að halda og þá var kjötsúpan orðin köld, þegar símtölunum var lokið — sama sagan er heima — en það væri gaman að fá að borða og hlusta á fréttirnar — þá má byrja að hringja! — Hvað ertu búinn að eiga marga bíla? Þeir eru orðnir 6. Fyrsti bíllinn var tveggja tonna Cervolett GK 78, hann kostaði 3500 krónur — en nú kostar eitt dekk á þennan bíl 7 þúsund krónur, eða tvö bílverð. ★ DökkhærS Bardot BRIGITTE Bardot hefur breytt um háralit og er hár hennar nú aftur orðið svart — til mikillar armæðu fyrir marga Bardotaðdáendur. Um þessar mundir er frúin að leika í nýrri mynd í Genf, sem nefnist ,,Einkalíf“. Hinn breytti háralitur hennar gerir það að verkum að hún getur gengið um götur bæjarins óá- reitt af forvitnum vegfarend- um, og lögregluliðið, sem var henni til verndar, fékk frí. Margir spá því að stjarna Brigitte sé farin að fölna og rólegri dagar séu í vændum hjá hinni frægu, frönsku kvikmyndadís. ÞESSI 22ja ára gamla fegurð ardís er sögð eiga framtíð fyrir sér í brezkum kvikmynd um. Ástæðan: Hún er fyrir- taks fyrirsæta og var meðal annars uppáhaldsfyrirsæta Armstrong-Jones. Nafn henn- ar er Bethy Rogan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.